Ráðstefna og vinnustofur um nýjar leiðir í geðheilbrigðismálum verður haldin dagana 27. og 28. apríl 2023 á Hilton Reykjavík Nordica
Á þessari tveggja daga ráðstefnu verður gestum boðið að kynna sér önnur sjónarmið en þau sem hafa verið ríkjandi í geðheilbrigðismálum. Fyrirlesarar eru aðilar sem hafa beitt sér á alþjóðavettvangi fyrir breyttri nálgun í geðheilbrigðismálum. Auk þeirra mun fólk með reynslu af tilfinningalegri vanlíðan og/eða fíkn leiða vinnustofur.
Vonast er til að fólk, sem lætur sig geðheilbrigðismál varða, mæti og deili hugmyndum og taki þátt í nýsköpun og framþróun í málaflokknum.
Við bjóðum leikmenn jafnt sem fagfólk velkomið
Nánari upplýsingar um viðburðinn á gedhjalp.is