Hver er staða ungs fatlaðs fólks á húsnæðis- og leigumarkaði? Hvaða hindranir standa í vegi fyrir þessum fjölbreytta hópi fólks og hvaða aðgerðir þarf að ráðast í til að jafna aðgengi þeirra að húsnæðisöryggi?
Húsnæðishópur ÖBÍ réttindasamtaka stendur fyrir málþinginu „Þetta er allt í vinnslu… húsnæðistækifæri ungs fatlaðs fólks“ þann 7. maí á Hótel Reykjavík Grand, í Háteigi frá kl. 15:30 – 17:00. Fundarstjóri verður Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka. Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra opnar fundinn.
Þrátt fyrir fögur fyrirheit um aðgerðir í húsnæðismálum fatlaðs fólks virðast lausnirnar alltaf vera rétt handan við hornið og fólk er beðið um að vera þolinmótt aðeins lengur. Sú staða er sérstaklega slæm fyrir ungt fatlað fólk sem fær ekki tækifæri til að lifa sjálfstæðu lífi líkt og ófatlaðir jafnaldrar þeirra. Á fundinum ræðum við hvernig staðan er og við heyrum frásagnir ungs fólks af reynslu sinni af húsnæðismarkaðnum.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum streymi. Þau sem ætla að mæta á Hótel Reykjavík Grand eru vinsamlegast beðin um að skrá sig í gegnum hlekkinn hér að neðan.
Frummælendur: