Hvað ætla stjórnmálaflokkarnir að gera fyrir fatlað fólk? Hvernig ætla þeir að tryggja full mannréttindi hér á landi?
Þessum spurningum og fleirum verður svarað á opnum fundi ÖBÍ réttindasamtaka með frambjóðendum til Alþingis þriðjudaginn 5. nóvember kl. 15-17 á Grand hóteli í Reykjavík.
Fundinum verður streymt hér: Bein útsending: Spurning um réttindi – fundur með frambjóðendum – ÖBI og hann verður táknmáls- og rittúlkaður. Fundarstjóri verður Helgi Seljan.
Öll velkomin.