Sitt hvoru megin við sama borð
18. janúar @ 16:00 - 1. febrúar @ 17:00
Sitt hvoru megin við sama borð
Verið hjartanlega velkomin á opnun á samsýningu Hrafns Hólmfríðarsonar og Þórsteins Svanhildarsonar 18. janúar nk. kl. 16:00
Myndlistarmaðurinn Rúrí opnar sýninguna.
Sýningin stendur frá 18.01.2025 – 01.02.2025
Sól rís á Fríða veröld.
Sitt hvoru megin við sama borð er samsýning tveggja ljósmyndara sem eiga það sameiginlegt að lifa í návígi við fötlun en þó á ólíkan hátt. Þórsteinn veitir umönnun á meðan Hrafn þiggur hana.
Hrafn Hólmfríðarson (Krummi) (f.1990) fékk heilablæðingu á heilastofn árið 2009 og er líkamlega fatlaður í kjölfar áfallsins. Hann á við jafnvægistruflanir að stríða, ásamt skerðingu á fínhreyfingum og snertiskyni í hægri hlið líkamans. Í verkinu sýnir Hrafn ljósmyndir sem veita innsýn í samband hans við móður sína, Fríðu.
Þórsteinn Svanhildarson (f.1988) eignaðist dóttur sína Sól sumarið 2021. Sól fæddist með afar sjaldgæft heilkenni, Rubinstein Taybi og veldur það þroskahömlun og líkamlegri fötlun. Í verkinu sýnir Þórsteinn ljósmyndir úr daglegu lífi fjölskyldunnar sem reynir þrátt fyrir fjölda áskorana að lifa hefðbundnu lífi.
Í gegnum myndrænt samtal deila þeir sjónarhornum sínum og skynjun á þau gáruáhrif sem fötlun hefur á þeirra nærumhverfi.
Sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands.
Gallery Port er styrkt af Reykjavíkurborg.
////////
Sitt hvoru megin við sama borð
Welcome to the opening of our joint exhibition 18th of January at 16:00
The Icelandic artist Rúrí will inaugurate the exhibition.
Sól rís á Fríða veröld.
Sitt hvoru megin við sama borð (Either side of the table) is a joint exhibition by two photographers, whose lives are entwined with disability, albeit in different ways. Þórsteinn is a carer, whilst Hrafn receives care.
Hrafn Hólmfríðarson (Krummi) (b.1990) suffered a brain stem hemorrhage in 2009 which left him physically disabled. As a result, he has a balance disorder along with limited fine motor control, and a reduced sense of touch on the right side of his body. Through his photography, Hrafn provides a glimpse into his life that he shares with his mother, Fríða.
Þórsteinn Svanhildarson (b. 1988) had his daughter, Sól, in the summer of 2021. Sól was born with a very rare syndrome called Rubinstein Taybi, which causes both
intellectual and physical disabilities. In his work, Þórsteinn exhibits photographs from the family’s day to day, who despite numerous challenges, try to lead a normal life.
intellectual and physical disabilities. In his work, Þórsteinn exhibits photographs from the family’s day to day, who despite numerous challenges, try to lead a normal life.
Through a visual dialogue, they share their perspectives and provoke an understanding of the ripple effects that disability has on their immediate environment.
The exhibition is part of The Icelandic Photo Festival.