Í tilefni 20 ára afmælishátíðar fötlunarfræða HÍ standa ÖBÍ réttindasamtök í samstarfi við Reykjavík Poetics, Tabú, Neurodiverse Writers’ Space og Anfinnsverkefnið fyrir sýningu á ritlist fatlaðra kvenna og jaðarsettra kynja á Íslandi.
Á viðburðinum verða ljóð og aðrir textar eftir Maríu Hreiðarsdóttur, Arndísi Lóu Magnúsdóttur, Freyju Haraldsdóttur, Sigríður Jónsdóttir, Þorberu Fjölnisdóttur, Kathy D’Arcy, Frida Adriana Martins, Sigrúnu Ósk, Benedikta Rostan og Elías Knörr.
Mannréttindahúsið er aðgengilegt fyrir öll. Viðburðurinn verður skynvinsamlegur, táknmáls- og rittúlkaður.
Sjá nánar upplýsingar: Aðrir viðburðir | Háskóli Íslands