Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Réttindaganga ÖBÍ á 1. maí

1. maí @ 13:00 - 16:00

ÖBÍ réttindasamtök hvetja allt fatlað fólk til að fjölmenna í kröfugöngu frá Skólavörðuholti niður á Ingólfstorg þann 1. maí. Nú sem fyrr er mikilvægt að fatlað fólk á Íslandi láti vel í sér heyra og krefjist jöfnuðar og réttlætis, bættra kjara og að sköpuð séu störf við hæfi.

Safnast verður saman fyrir kröfugönguna á Skólavörðuholti klukkan 13:00. Gengið er af stað klukkan 13:30 niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi þar sem dagskrá tekur við.

Bifreiðar með hreyfihamlaða einstaklinga með stæðiskort hafa heimild til að fara í gegnum mannaða lokun við Frakkastíg/Bergþórugötu og þaðan inn á sleppistæði við Tækniskólann og sömu leið út. Því þarf stæðiskorthafi að vera farþegi í bílnum. Einnig er gert  ráð fyrir sleppistæði við mannaða lokun við gatnamót Eiríksgötu/Njarðargötu.

ÖBÍ réttindasamtök bjóða í kaffi að dagskrá lokinni í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, og bjóða upp á ferðir frá Ingólfstorgi. Öll velkomin.

Mætum, krefjumst réttlætis og látum í okkur heyra.

Upplýsingar

Dagsetning:
1. maí
Tími:
13:00 - 16:00
Viðburðir Flokkur:

Skipuleggjandi

ÖBÍ réttindasamtök
Phone
530 6700
Email
obi@obi.is
Skoða Skipuleggjandi Vefsíðu

Vettvangur

Mannréttindahúsið
Sigtún 42
Reykjavík, Iceland
+ Google Map