Mannréttindabíó
28. nóvember @ 10:00 - 11:30
Heimildarmyndin Acting Normal with CVI verður sýnd í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, fimmtudaginn 28. nóvember klukkan 10.
Myndin fjallar um Dagbjörtu Andrésdóttur, sem fæðist með heilatengda sjónskerðingu, en hún orsakast af skemmdum á þeim hlutum heilans sem vinna úr sjóninni.
Að sýningu lokinni mun Dagbjört svara spurningum gesta. Þetta er fyrsta fyrsta heimildarmyndin á heimsvísu sem gerð er um CVI, heilatengda sjónskerðingu.
Húsið opnar 9:30 og verður gestum boðið upp á morgunmat. Öll velkomin!
https://facebook.com/events/s/mannrettindabio-acting-normal-/572426905151435/