Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Málþing ADHD samtakanna 2024

11. október @ 10:00 - 16:00

Konur – Vitund og valdefling

ADHD samtökin standa fyrir málþingi um ADHD sem nefnist „Konur – Vitund og valdefling “ . Málþingið fram fer í Jötunheimum, Skátaheimili Víflis í Garðabæ þann 11. október kl. 10:00 – 16:00.

Málþinginu er ætlað að vekja athygli á áskorunum sem konur með ADHD glíma við ásamt því að kynna ýmsar lausnir til að takast á við afleiðingar hennar. Kunnir íslenskir fyrirlesarar halda erindi og umfjöllunarefnin snerta hina ýmsu kima ADHD.  Málþingið er frábært tækifæri til að bæta við þekkingu, læra að byggja á styrkleikum og hafa gaman saman.

Málþingið er opið öllum.

Skráning fer fram hér:

https://www.adhd.is/is/malthing-2024

Almennt verð: 9.900-
Félagsmenn 5.900.-

Dagskrá:

10:00 – 10:10 Setning málþings

Gyða Haraldsdóttir varaformaður ADHD samtakanna

10:10 – 10:30 Ávarp

 

10:30 – 10:50 Afhending Hvatningarverðlauna

 

10:50 – 11:20 ADHD – konur og refsivist

11:20 – 11:30  KAFFIHLÉ

11:30 – 12:30 ADHD hjá konum: líkamlegir áhættuþættir og sjúkdómar og tengsl við geðraskanir

Unnur Jakobsdóttir Smári sálfræðingur og doktorsnemi

12:30 – 13:30 HÁDEGISHLÉ

13:30 – 14:30 VÁ hvað þetta er gott … var ég búin að taka úr vélinni?

Kynlíf, hvatvísi og heilarugl

Kristín Þórisdóttir kynlífs markþjálfi

 

14:30 – 14:45 KAFFIHLÉ

 

14:45 – 15:45  „Gleymdi að borða og borðaði svo allt.“

Hvernig ADHD hefur áhrif á matarvenjur.

Ragga Nagli sálfræðingur og einkaþjálfari

 

15:45 – 16:00 Samantekt og málþingsslit

Elín H. Hinriksdóttir sérfræðingur ADHD samtakanna

Máþingsstýra er Þórdís Björk Þorfinnsdóttir (Dísa), leikkona, Reykjavíkurdóttir og áhrifavaldur með meiru.

Upplýsingar

Dagsetning:
11. október
Tími:
10:00 - 16:00
Viðburðir Flokkur:

Vettvangur

Jötunheimar