Skip to main content
Loading Events

« All Events

Hvernig getur sálfræðimeðferð hjálpað endó konum og kvárum?

28. janúar @ 19:30

Athugið, þessi viðburður er aðeins fyrir meðlimi Endósamtakanna.
Anna Guðrún, sálfræðingur í endóteymi Landspítalans, heldur fyrirlestur fyrir meðlimi Endósamtakanna þriðjudaginn 28. Janúar kl. 19:30. Fyrirlesturinn fer fram í húsnæði samtakanna, í Sigtúni 42, en einnig er hægt að taka þátt rafrænt.
Skráning á viðburðinn fer fram hér: https://forms.gle/KKugy65MBizAHMKo8
Í fyrirlestrinum leitast Anna Guðrún við að svara spurningunni; hvernig getur sálfræðimeðferð hjálpað endó-konum og kvárum?
Hún mun einnig fjalla um verki, hvernig sálfræðimeðferð við langvinnum verkjum fer fram og hvaða ávinningur slík meðferð getur haft. Að auki mun hún kynna hvað felst í starfi hennar í endóteymi Landspítalans.
Um Önnu Guðrúnu
Anna Guðrún er fyrsti sálfræðingur endóteymisins á Landspítalanum, en staða sálfræðings í teyminu var meðal annars búin til vegna ákalls frá Endósamtökunum. Anna Guðrún lauk BS-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands 2017 og MS-gráðu í klínískri sálfræði frá Háskóla Íslands 2020. Áður starfaði Anna Guðrún sem sálfræðingur í þunglyndis- og kvíðateymi geðsviðs Landspítala (2021-2024) og geðteymi fullorðinna á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (2020-2021).

Details

Date:
28. janúar
Time:
19:30
Event Category: