- This event has passed.
Hvatningarverðlaun ÖBÍ
3. desember @ 11:00
Vertu með þegar við afhendum Hvatningarverðlaun ÖBÍ réttindasamtaka í ár!
Verðlaunahátíðin hefst stundvíslega klukkan 11 þann 3. desember á Grand hóteli í Reykjavík. Á dagskrá er mikil gleði, en hin tilnefndu verða kynnt þegar nær dregur.
Hvatningarverðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2007 en í fyrra varð Bíó Paradís fyrir valinu fyrir frumkvæði að aðgengi fyrir alla með sérstöku tilliti til ólíkra hópa.
Tilnefnd eru:
Dagbjört Andrésdóttir
Frumkvæði að vitundarvakningu um heilatengda sjónskerðingu.
Fúsi, aldur og fyrri störf
Höfundar: Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson og Agnar Jón Egilsson.
Leikverk sem markar tímamót í íslensku atvinnuleikhúsi.
Höfundar: Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson og Agnar Jón Egilsson.
Leikverk sem markar tímamót í íslensku atvinnuleikhúsi.
Múlaborg
Leiðandi leikskóli sem leggur áherslu á inngildingu fatlaðra barna og starfsfólks þar sem öll fá þess notið að læra, vinna og leika.
Leiðandi leikskóli sem leggur áherslu á inngildingu fatlaðra barna og starfsfólks þar sem öll fá þess notið að læra, vinna og leika.
Taktu flugið, beibí
Höfundur: Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir.
Leikverk sem markar tímamót í íslensku atvinnuleikhúsi
Höfundur: Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir.
Leikverk sem markar tímamót í íslensku atvinnuleikhúsi
Hvatningarverðlaunin eru veitt þeim sem hafa með verkum sínum stuðlað að einu samfélagi fyrir alla og endurspegla nútímalegar áherslur um þátttöku, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks.
3. desember er einmitt alþjóðadagur fatlaðs fólks og auk þess að standa fyrir Hvatningarverðlaununum er ÖBÍ með átakið upplýst samfélag. Fólk um allt land er hvatt til þess að lýsa upp í fjólubláu, einkennislit réttindabaráttu fatlaðs fólks.
Viðburðurinn verður táknmáls- og rittúlkaður.