Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Hádegisfundur um aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu

10. apríl @ 11:30 - 13:00

Fáni geðheilbrigðis.
Gott aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og snemmtækri íhlutun skiptir sköpum til þess að styrkja fólk og auka seiglu. Mikið hefur verið rætt um lágþröskuldaúrræði og hvernig allir eigi að hafa aðgengi að fagfólki í geðheilbrigðisþjónustu sem hluta af almennri heilbrigðisþjónustu.
En þrátt fyrir fögur fyrirheit standa margir hópar eftir – og hafa lítinn sem engan aðgang að almennri geðheilbrigðisþjónustu. Á fundinum ræðum við skort á aðgengi fyrir fólk með fötlun að geðheilbrigði og hvaða lausnir eru í boði. Hvernig tryggjum við geðheilbrigði fyrir öll?
Frummælendur:
Eva Ágústa Aradóttir, ljósmyndari og stjórnandi hlaðvarpsins Ráfað um rófið
Gísli Kort Kristófersson, prófessor í geðhjúkrun við Háskólann á Akureyri og sérfræðingur í geðhjúkrun
Liv Anna Gunnell, fagstjóri sálfræðiþjónustu Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu

Upplýsingar

Dagsetning:
10. apríl
Tími:
11:30 - 13:00
Viðburðir Flokkur:

Vettvangur

Hilton Reykjavík Nordica
Suðurlandsbraut 2
Reykjavík, 108 Iceland