Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Foreldrar barna sem glíma við geðrænar áskoranir: Samtal og samvinna [Geðhjálp]

17. september @ 20:00 - 22:00

Þriðjudaginn 17. september kl. 20:00 fer fram fundur á vegum Geðhjálpar og Umhyggju í samvinnu við Landspítala/BUGL, Geðheilsumiðstöð barna og Embætti landlæknis, þar sem markmiðið er að skapa vettvang fyrir foreldra barna sem glíma við geðrænar áskoranir. Fundarstaður er Hlutverkasetur Borgartúni 1.

Markmiðið er að gefa foreldrum og öðrum sem láta sér málefni barna með geðrænar áskoranir vettvang til samtals og stuðnings og hitta aðra með sambærilega reynslu.

Á fundinum verður farið yfir ýmislegt sem stendur foreldrum og börnum þeirra til boða og starfsemi Umhyggju félags langveikra barna kynnt. Markmiðið er að stofna hóp þar sem þessir foreldrar geti hist áfram og haft stuðning hvert af öðru og vinna saman að hagsmunum sínum og barna sinna.

Dagskrá

Þú ert númer 99 í röðinni, vinsamlegast hafðu samband síðar – Ásgerður Arna Sófusdóttir

Fjallað verður um leiðir í kerfinu, snemmtækan stuðning og úrræði fyrir fjölskyldur.

Ásgerður Arna er hjúkrunarfræðingur og teymisstýra Fjölskylduteymis 0-5 ára, en hún hefur starfað á Geðheilsumiðstöð Barna síðustu þrjú árin þar sem hún sinnir tengslaeflandi fjölskyldumeðferð. Síðustu 15 árin hefur Ásgerður Arna starfað með fjölskyldum og börnum, m.a. á BUGL, við skólahjúkrun, ungbarnavernd og í Brúnni í Hafnarfirði.

Þinn eigin besti vinur – Chien Tai Shill, þroskaþjálfi, félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur

Fjallað verður um álagsþætti og áskoranir foreldra sem eiga barn með geðrænar áskoranir og mikilvægi þess að foreldrar hugi að sér í þeim aðstæðum.

Chien Tai hefur unnið á BUGL í rúm fjögur ár og er nú teymisstjóri meðferðarteyma og sinnir einnig fjölskyldumeðferð. Áður var hún félagsráðgjafi í Klettaskóla í níu ár, en hún hefur kennt í HÍ til margra ára og var einnig starfsmaður í HR.

Kynning á Umhyggju – Árný Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri Umhyggju

Árný mun kynna félagið og þá þjónustu sem stendur félagsmönnum til boða, sem felst meðal annars í ráðgjöf og stuðning í réttindabaráttu, fjárstyrki, endurgjaldslausa lögfræðiráðgjöf, endurgjaldslausa sálfræðiþjónustu og möguleika á dvöl í sérútbúnum orlofshúsum bæði sumur og vetur.

Foreldrahópur stofnaður

Í lokin verður stofnaður foreldrahópur, þar sem markmiðið er að fá fram raddir foreldra. Foreldrar barna sem glíma við geðrænar áskoranir eru hvattir til þess að mæta og koma sínum skoðunum og reynslu á framfæri.

Við búum öll við geð rétt eins og við erum öll með hjarta: www.gedheilbrigdi.is

Upplýsingar

Dagsetning:
17. september
Tími:
20:00 - 22:00
Viðburðir Flokkur:

Skipuleggjandi

Geðhjálp
Phone:
570 1700
Email:
gedhjalp@gedhjalp.is
Skoða Skipuleggjandi Vefsíðu

Vettvangur

Hlutverkasetur
Borgartún 1
Reykjavík, 105
+ Google Map
Skoða Vettvangur Vefsíðu