- This event has passed.
Ertu ekki farin að vinna?! Málþing ÖBÍ um verðleikasamfélag
30. janúar @ 13:00 - 16:00
Kjarahópur og atvinnu- og menntahópur ÖBÍ réttindasamtaka standa fyrir málþingi þriðjudaginn 30. janúar 2024 frá kl. 13:00 til 16:00 á Nauthól.
Dagskrá
- Ávarp: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra
- Sjónarmið ÖBÍ réttindasamtaka: Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka
- Virði manneskjunnar handan vinnu: Nanna Hlín Halldórsdóttir, sérfræðingur við Heimspekistofnun HÍ
- Er vinnan mikilvægari en lífið? – Reynslusaga: Hrönn Stefánsdóttir, formaður atvinnu- og menntahóps ÖBÍ
- Hindranir fyrir atvinnuþátttöku: Anna Margrét Bjarnadóttir, kjarahópi ÖBÍ réttindasamtaka
- Vitundarvakning okkar allra – Reynslusaga: Kristín Auðbjörnsdóttir, móðir í endurhæfingu
- Spurt og svarað
- Kaffihlé
- Hvað er inngilding í vinnu innan og utan vinnumarkaðar? Stefan C. Hardonk, dósent við HÍ
- Ég get unnið með skerta starfsgetu – Reynslusaga: Atli Þór Þorvaldsson, viðskiptafræðingur með ósýnilega fötlun
- Handverkskonur með örorkulífeyri – Reynslusaga: Guðbjörg Kristín og Þóra Eiríksdætur.
- Er ég bara geðraskanirnar mínar? – Reynslusaga: Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, varaformaður kjarahóps ÖBÍ og valkyrja.
- Spurt og svarað
- Lokaorð: Þuríður Harpa Sigurðardóttir, fundarstjóri.
Málþingið tekur fyrir virði manneskjunnar óháð þátttöku á vinnumarkaði og (van)mat á framlagi fatlaðs fólks sem ekki getur tekið þátt á vinnumarkaði. Þá verður fjallað um inngildingu í atvinnu og hvernig hún birtist innan og utan vinnumarkaðar og áhrif kerfislægra hindrana fyrir atvinnuþátttöku fatlaðs fólks (s.s. tekjuskerðingar). Áhersla verður á fólk með ósýnilegar fatlanir.
Fundarstjóri: Þuríður Harpa Sigurðardóttir, fyrrverandi formaður ÖBÍ réttindasamtaka.
Málþinginu verður rit- og táknmálstúlkað og því verður einnig streymt.