Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Ég þori, get og dansa! Risapartý Kvennaárs 2025 í Iðnó

30. janúar @ 17:00 - 21:00

Stundin er runnin upp! Við ætlum að fagna upphafi Kvennaárs 2025 með RISA partýi í Iðnó þann 30. janúar frá 17 – 21. Við ætlum að dansa, syngja og finna ofurkraftinn í samstöðu kvenna og kvára.

Hin eina sanna Margrét Maack stýrir gleðinni og þeytir skífum! Léttar veigar og veitingar í boði fyrir þyrst og svöng. Öll velkomin sem vilja leggja baráttunni fyrir raunverulegu jafnrétti á Íslandi lið! Fatlaðar konur og kvár eru sérstaklega velkomin! Gott aðgengi er á staðnum.

Hvað er Kvennaár 2025?

50 ár eru liðin frá því að konur hér á landi lögðu niður launuð sem ólaunuð störf sín og stöðvuðu þannig samfélagið á Kvennafrídeginum svokallaða. Þrátt fyrir þrotlausa baráttu í hálfa öld búa konur enn við misrétti og ofbeldi. Metþátttaka í Kvennaverkfallinu árið 2023, á 21 stað um land allt og stærsta útifundi Íslandssögunnar í Reykjavík, sýndi svo ekki verður um villst að við erum tilbúin til að taka við keflinu frá baráttukonunum sem á undan okkur komu.

Til að fylgja eftir Kvennaverkfallinu höfum við, rúmlega 50 samtök femínista, kvenna, launafólks, fatlaðs fólks og hinsegin fólks tekið höndum saman og leggjum heilt ár undir baráttuna með fjölbreyttri dagskrá og treystum á að öll taki þátt – þannig breytum við samfélaginu saman. En við byrjum á því að hrista okkur saman í dansi!

Frekari upplýsingar má finna á kvennaar.is

 

We can and we will – dance!

The time has come! We are going to celebrate the launch of Women’s Year 2025 with a HUGE party in Iðnó Reykjavík on January 30th from 5 – 9 pm. We are going to dance, sing and experience the superpower of the solidarity of women and non-binary individuals.

The one and only Margrét Maack is the host and DJ of the night. Refreshments available for the thirsty and hungry. All are welcome who want to join the fight for real equality in Iceland!

What is Women’s Year 2025?

50 years have passed since women in this country stopped their paid and unpaid work and thus halted society on the so-called Women’s Day in 1975. Despite a tireless fight for half a century, women still live with inequality and violence. The record participation in the Women’s Strike in 2023, in 21 locations across the country and the largest outdoor protest in Icelandic history in Reykjavík, showed beyond doubt that we are ready to take over from the women who came before us.

To follow up on the Women’s Strike, we, over 50 feminist, women’s, workers’, disabled and queer organizations, have joined forces and are dedicating this whole year to the fight for equality with a diverse program and we are counting on everyone to participate – that’s how we change society together

More information can be found at kvennaar.is

Upplýsingar

Dagsetning:
30. janúar
Tími:
17:00 - 21:00
Viðburðir Flokkur:

Vettvangur

Iðnó
Vonarstræti 3
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map