Skip to main content
Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Barnvænt Ísland: Málþing um lokaathugasemdir Barnaréttarnefndar SÞ til íslenskra stjórnvalda

21.11.2022 @ 12:30 - 14:30

Mennta- og barnamálaráðuneytið, forsætisráðuneytið og Barnaheill – Save the Children á Íslandi standa fyrir málþingi um lokaniðurstöður úttektar Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna á innleiðingu Barnasáttmálans á Íslandi í samstarfi við barnaréttindavaktina, umboðsmann barna og fulltrúa ýmissa ungmennaráða.
Málþingið fer fram mánudaginn 21. nóvember kl. 12:30–14:30 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52.
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna tók gildi á Íslandi 1992 og var lögfestur árið 2013. Á málþinginu verða niðurstöðurnar kynntar og rætt um hvernig nýta megi þær til að gera Ísland að enn betri stað fyrir börn.
Málþingið er þátttakendum að kostnaðarlausu og eru allir velkomnir. Þátttakendur tilkynni um þátttöku í viðburðnum hér á Fésbókarsíðu mennta- og barnamálaráðuneytisins.
https://www.stjornarradid.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=e91885a3-65b3-11ed-9bb2-005056bc4727&fbclid=IwAR1BOj2vECb3LQWgHiUGTBXzwnQ3duaaweJ2qS89J-uxJ62wlVi9Ko73Xoc

Details

Date:
21.11.2022
Time:
12:30 - 14:30
Event Category:

Organizer

Barnaheill

Venue

Icelandair Hótel Reykjavík Natura
Nauthólsvegur 42
Reykjavík, Iceland
+ Google Map