- This event has passed.
Aðstandendanámskeið 6-12 barna með ADHD Vor 2024
3. febrúar @ 09:00 - 16:00
Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur barna með ADHD frá 6-12 ára aldri verður haldið 3. febrúar 2024 í húsakynnum ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð og í gegnum fjarfundarbúnað.
Námskeið er haldið einn laugardag i senn frá kl. 09:00-16:00. Ath! Boðið er uppá veitingar í hádeginu, ásamt kaffi og með því.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á ADHD röskunni og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nákomna. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.
Boðið verður upp á fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn.
Skipulag og dagskrá 3. febrúar 2024
Kl. 09:00 – 10:00 Hvað er ADHD? Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræðingur
Kl. 10:00 – 11:00 ADHD og lyfjamál Tilkynnt síðar
Kl. 11:00 – 11:15 Hlé
Kl. 11:15 – 12:15 ADHD og nám Haukur Örvar Pálmason sálfræðingur
Kl. 12:15 – 13:00 Hádegishlé
Kl. 13.00 – 14.00 ADHD og kvíði Kristín R. Sigurðardóttir sálfræðingur
Kl. 14:00 – 15:00 ADHD og fjölskyldan Dr. Drífa B. Guðmundsdóttir sálfræðingur
Kl. 15:00 – 15:15 Hlé
KL. 15:15 – 16:00 Kynning á Sjónarhól Lára G. Magnúsdóttir þroskaþjálfi
Félagsmenn í ADHD samtökunum fá verulegan afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd