- This event has passed.
Aðalfundur Tourette-samtakanna
23. maí @ 17:00
Aðalfundur Tourette-samtakanna á Íslandi verður haldinn fimmtudaginn 23. maí klukkan 17:00 í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42 í Reykjavík, þar sem Tourette-samtökin eru með skrifstofu.
Dagskrá aðalfundar er:
- Setning
- Skýrsla stjórnar
- Reikningar lagðir fram til samþykktar
- Félagsgjald komandi almanaksárs ákveðið
- Kosning stjórnar
- Kosning skoðunarmanns og annars til vara
- Önnur mál
Í ár er kosið um tvö sæti í stjórn samtakanna, en formaður var sérstaklega kjörinn til tveggja ára á fundinum í fyrra. Hægt er að gefa kost á sér í stjórn á fundinum.
Engar tillögur að lagabreytingum hafa borist og því eru þær ekki sérstaklega á dagskrá enda þurfa þær að berast 3 vikum fyrir aðalfund.
Boðið verður upp á léttar veitingar.