Þau sem eiga rétt til setu á aðalfundum ÖBÍ réttindasamtaka eru tilnefnd af aðildarfélögunum ÖBÍ. Sjá nánari upplýsingar um regluverk aðalfunda í 3. kafla, (10. til 17. grein) í Lög ÖBÍ
Aðalfundir
Fundargerðir
Aðalfundur 2024
Fundargerð aðalfundar ÖBÍ réttindasamtaka (Öryrkjabandalags Íslands) haldinn á Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, Reykjavík, 4. október 2024, kl. 16:00-19:00, og 5. október 2024, kl. 10:00-17:00.
Ávarp formanns, fundarsetning
Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ, setti fundinn kl. 16:06 og bauð fundargesti í sal sem og á Zoom hjartanlega velkomna. Flestir fundarmanna voru í sal.
Formaður sagði frá því að verkefni ársins hafi verið mörg og margvísleg og þeim fari fjölgandi. ÖBÍ réttindasamtök hafa lyft grettistaki í baráttunni fyrir fatlað fólk og leika málefnahóparnir þar stórt hlutverk. Þeirri vinnu er mikilvægt að halda áfram og valdefla fólkið. Til þess að geta tekið krefjandi verkefni, svo sem endurskipulagningu á örorkulífeyriskerfinu eða lagt upp með þau, er nauðsynlegt að búa yfir góðum mannauði sem ÖBÍ réttindasamtök búa svo sannarlega yfir. Fatlað fólk á að hafa sömu tækifæri og aðrir og geta lifað mannsæmandi lífi. Samfélagið á ekki að sætta sig við aukna fátækt og stéttaskiptingu. Það er mikilvægt að enginn sé skilinn eftir. Full þátttaka fatlaðs fólks á vinnumarkaði á ekki að vera fjarlægur draumur. Lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) er væntanleg. Réttindabarátta er langhlaup og mun ÖBÍ aldrei hætta að berjast. Alma þakkaði öllum þeim sem hafa lagt sitt á vogarskálarnir, stjórn, starfsfólki og öðrum.
Formaður lagði til að Eyvindur Elí Albertsson og Helga Vala Helgadóttir yrðu fundarstjórar og var það samþykkt. Formaður lagði til að Helga Guðmundsdóttir og Ragnheiður Ásta Sigurðardóttir rituðu fundargerð og var það samþykkt. Þá bauð formaður fundarstjórum að taka við fundinum.
Fundarstjórar þökkuðu traustið, buðu gesti velkomna og kynntu dagskrá fundarins (fskj. nr.1). Fundarstjóri tilkynnti að samkvæmt venju væri fulltrúum málefnahópa, stjórnar og hreyfinga ÖBÍ boðið að sitja fundinn sem áheyrnarfulltrúar.
Almenn fundarstörf
Skýrsla stjórnar (1)
Formaður flutti skýrslu stjórnar (fskj. nr. 2 – Ársskýrsla ÖBÍ 2024 til 2025. Skýrsla formanns og stjórnar, sem var ekki prentuð út að þessu sinni) og sagði meðal annars frá eftirfarandi atriðum:
Eins og ávallt var mikið að gera og verkefnin mörg. Stór hluti fatlaðs fólks býr við fátækt, þótt verðbólga hafi hjaðnað eru vextir háir sem og verðlag. ÖBÍ barðist ötullega fyrir réttindum fatlaðs fólks og átti reglulega fundi með ráðherrum, þingmönnum, sveitarstjórnum og stofnunum. Málefnahóparnir eru mjög mikilvægir í baráttunni enda málefnastarfið mikið. Hóparnir stóðu fyrir málþingum og fundum á árinu og áttu reglulega fundi með lykilaðilum.
Einna hæst bar á árinu að ný lög um gjörbreytt lífeyriskerfi voru samþykkt á Alþingi og náði ÖBÍ að koma mikilvægum breytingum í gegn. Kerfið var einfaldað til muna og heimilisuppbót hækkaði meira en gert var ráð fyrir. Þá var samþykkt að stofna Mannréttindastofnun, sem á loksins að greiða farveginn að lögfestingu SRFF.
Undanfarin ár hefur TR greitt út eingreiðslu til lífeyrisþega í desember og þrýsti ÖBÍ á að svo yrði áfram. Alls fengu lífeyrisþegar 66.381 kr. eingreiðslu, skattfrjálsa og skerðingalausa í desember 2023.
Í mörg ár hefur ÖBÍ barist fyrir hækkun bifreiðastyrkja til hreyfihamlaðs fólks, sem hafa verið óbreyttir frá nóvember 2015. Í janúar 2024 voru styrkirnir hækkaðir, sem var mikill sigur. Mikilvægt er að halda baráttunni áfram og þrýsta á um að styrkirnir séu endurskoðaðir á ársgrundvelli og að hækkanir taki mið af verðlagsbreytingum.
Rétt fyrir áramótin 2024 voru áætluð framlög úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna málaflokks fatlaðs fólks hækkuð um 5,8 milljarð króna fyrir árið 2024 og nema áætluð framlög sjóðsins vegna málaflokksins því 36,9 milljörðum króna. Í júní 2023 undirrituðu ÖBÍ og innviðaráðuneytið samkomulag um aukinn stuðning við átaksverkefni stjórnvalda og ÖBÍ um úrbætur um land allt í aðgengismálum fyrir fatlað fólk, fjármagnað með jöfnunarsjóðnum. Átaksverkefnið hófst vorið 2021 og var framlengt til ársloka 2024. Í því felst að bæta aðgengi fyrir fatlað fólk, meðal annars að opinberum byggingum, almenningssamgöngum, útivistarsvæðum og almenningsgörðum. Áfram verður unnið í samvinnu við sveitarfélög landsins að tryggja að fatlað fólk hafi aðgengi að samfélaginu til jafns við aðra.
ÖBÍ tók þátt í kröfugöngu 1. maí þar sem fjöldi fatlaðs fólks var eða er á vinnumarkaði. Það hefur lengi verið eitt af baráttumálum ÖBÍ réttindasamtaka að fatlað fólk hafi raunverulegt aðgengi að vinnumarkaði en það krefst þess að í boði séu fjölbreytt hlutastörf. Nýju lögunum um almannatryggingakerfið er ætlað að auka atvinnumöguleika fatlaðs fólks. Mikilvægt er að fylgja lögunum vel eftir við gildistöku þeirra, gera frekari umbætur á þeim, uppræta fordóma í garð fatlaðs fólks á vinnumarkaði og tryggja lífsæmandi kjör fyrir örorkulífeyristaka.
Þjóðfundur ungs fólks var haldinn 1. mars 2024 í samstarfi við Landssamband ungmennafélaga og Landssamtök íslenskra stúdenta. Ríflega sextíu manns á aldrinum 18-35 ára sóttu fundinn til þess að ræða inngildingu, jafnrétti og aðgengi í íslensku samfélagi. Starfsemi UngÖBÍ hefur verið mjög öflug, virk og sýnileg í kjölfar breytinga sem voru gerðar á fyrirkomulagi starfsins í lok árs 2023. Markmið breytinganna var að styrkja réttindabaráttu ungs fólks og áhrif þeirra innan ÖBÍ.
Í breyttu samfélagi þarf að vera vakandi fyrir jaðarsettum hópum og því hafa ÖBÍ réttindasamtök beitt sér til aðstoðar fötluðum umsækjendum um alþjóðlega vernd. Ráðinn var starfsmaður með sérþekkingu á málaflokknum auk þess sem samstarf var við önnur samtök.
Á árinu var ráðist í metnaðarfullar auglýsingaherferðir sem miðuðu að því að vekja umtal og umhugsun um kjör fatlaðs fólks á Íslandi og auka sýnileika ÖBÍ. Mörg dómsmál eru rekin fyrir hönd ÖBÍ á öllum dómsstigum. Málin eru fordæmisgefandi og hafa þýðingu fyrir marga einstaklinga.
Varða rannsóknarstofnun vann rannsókn fyrir hönd ÖBÍ á stöðu og kjörum fatlaðs fólks haustið 2023. TR samþykkti að senda boð um þátttöku á alla lífeyrisþega sem tryggði mikla svörun. Niðurstöðurnar voru sláandi og var skýrsla kynnt á fundi 5. nóvember 2023. Ríflega þriðjungur lífeyristaka býr við fátækt eða mikla fátækt og ræður meirihluti þeirra ekki við óvænt útgjöld. Auk þess þurfa margir örorkulífeyristakar að neita sér um grunnþjónustu, búa við slæma andlega líðan og þunga byrði af húsnæðiskostnaði. Allir helstu fjölmiðlar fjölluðu um skýrsluna og mættu fulltrúar ÖBÍ og Vörðu í viðtöl til þess að ræða efni hennar.
ÖBÍ réttindasamtök leggja áherslu á samtal og samstarf við helstu hagsmunaaðila og hafa gert sig gildandi í umfjöllun um fatlað fólk. Fagaðilar og fleiri sækja í þekkingu og reynslu ÖBÍ. Erlent samstarf hefur aukist, sem er einnig mikilvægt fyrir starfsemina.
Fundarstjóri bauð umræður um skýrslu stjórnar. Örfáar fyrirspurnir bárust og svaraði Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður heilbrigðishópsins, fyrirspurn varðandi lyfjaöryggi. Hann greindi frá því að sífellt væri unnið í þessum málum og samtöl ættu sér stað við lykilaðila á borð við Lyfjastofnun, Sjúkratryggingar og heilbrigðisráðherra.
Reikningar bandalagsins (2)
Íris Ólafsdóttir frá PwC fór yfir reikninga bandalagsins fyrir árið 2023 (fskj. nr. 3).
Rekstrartekjur ársins 2023 voru tæplega 1.167 milljónir í stað tæplega 1.084 milljónir árið 2022. Rekstrargjöld hækkuðu milli ára og námu rúmlega 526 milljónum árið 2023 samanborið við tæplega 520 milljónir árið áður. Rekstrarafkoma ársins 2023 fyrir fjármunatekjur og -gjöld var 640,4 milljónir, en var 564,1 milljón árið 2022. Rekstrarafkoma ársins 2023, að meðtöldum fjármunatekjum og veittum styrkjum, var jákvæð um 147 milljónir, en var 145,4 milljónir árið 2022.
Efnahagshluti reikningsins lækkaði lítillega milli ára. Varanlegir fastafjármunir voru rúmlega 539 milljónir árið 2023 samanborið við 552 milljónir árið áður og jukust langtímakröfur úr tæplega 239 milljónum árið 2022 í rúmlega 258 milljónir árið 2023. Þar var fyrst og fremst um að ræða bundnar innistæður. Fastafjármunir samtals voru því 797,5 milljónir árið 2023 í stað 791 milljónar árið áður. Veltufjármunir hækkuðu milli ára og voru 609,3 milljónir árið 2023 í stað 430,8 milljóna árið 2022. Eignir voru því samtals tæplega 1.407 milljónir árið 2023 í stað 1.222 milljóna árið áður.
Eigið fé og skuldir voru samtals tæplega 1.407 milljónir árið 2023 í stað 1.122 milljóna árið áður. Það skiptist í óráðstafað eigið fé, sem var tæplega 1.235 milljónir 2023 í stað 1.088 milljóna árið áður, og skuldir, sem voru samtals tæplega 172 milljónir 2023 í stað 134 milljóna árið 2022. Skýring á hækkun skammtímaskulda milli ára er aukið framlag til tengdra aðila.
Handbært fé í árslok 2023 var því 475,2 milljónir, í stað 332 milljóna árið áður.
Vísaði endurskoðandi í greinargóðar skýringar í ársreikningi á blaðsíðu 11-20 til frekari glöggvunar.
Fundarstjóri opnaði fyrir umræður um reikninga ÖBÍ. Til svara voru gjaldkeri ÖBÍ, Jón Heiðar
Jónsson, og framkvæmdastjóri ÖBÍ, Eva Þengilsdóttir. Eva sagði frá því að bandalagið væri fjárhagslega vel statt. ÖBÍ veitir um 540 milljónir í styrki til félaga, einstaklinga og tengdra aðila. ÖBÍ hjálpar einnig til við húsnæðismál, atvinnumál og menntamál og er almennt mikill styrkur fyrir samfélagið.
Engar umræður né fyrirspurnir voru varðandi reikninga bandalagsins og bar fundarstjóri reikninginn upp til atkvæða. Ársreikningur ÖBÍ 2023 var samþykktur samhljóða.
Skýrslur fastra málefnahópa (3)
Skýrslur málefnahópa ÖBÍ voru birtar í Ársskýrslu ÖBÍ 2023-2024 (fskj. nr. 2). Fundarstjóri kynnti formenn málefnahópanna.
- Aðgengishópur Bergur Þorri Benjamínsson.
- Atvinnu- og menntahópur Hrönn Stefánsdóttir.
- Barnamálahópur Sif Hauksdóttir.
- Heilbrigðishópur Vilhjálmur Hjálmarsson.
- Húsnæðishópur María Pétursdóttir.
- Kjarahópur Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, starfandi formaður.
Fundarstjórar buðu upp á fyrirspurnir, en engar bárust.
Skýrslur fyrirtækja (4)
Skýrslur fyrirtækja er að finna á heimasíðum þeirra (fskj. nr. 2) og ársreikningar fyrirtækja lágu frammi (fskj. nr. 4 a-d). Fundarstjórar báðu forstöðumenn fyrirtækjanna sem staddir voru á fundinum um að standa upp svo að fundarmenn sæju hverjir þeir væru. Fundarmönnum var bent á að senda fyrirspurnir beint til fyrirtækjanna sjálfra ef einhverjar væru.
- a) Brynja leigufélag ses.Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri.
- b) Hringsjá starfs- og endurmenntun Helga Eysteinsdóttir, forstöðumaður.
- c) Örtækni.
- d) Íslensk getspá.
- e) TMF Tölvumiðstöð.
- f) Fjölmennt Oddbergur Eiríksson, forstöðumaður Fjölmenntar.
Helga Gísladóttir, fyrrverandi forstöðumaður Fjölmenntar, er að hætta eftir langan tíma í starfi og afhenti formaður henni blómvönd með þökkum fyrir vel unnin störf. Helga þakkaði fyrir sig og fór í stuttu máli yfir þróun mála innan Fjölmenntar.
Stefna og starfsáætlun stefnuþings (5)
Stefnuþing var haldið 30. apríl 2024 (fskj. nr. 5 a-b). Þingið fjallaði um tvö málefni, annars vegar breytingu á nafni bandalagsins í lögum og hins vegar um aðildarfyrirkomulag. Niðurstöður stefnuþings eru lagðar fyrir aðalfund til samþykktar.
Fyrri tillaga
Formaður flutti fyrri tillögu stefnuþings um breytingu á nafni samtakanna í lögum. Núverandi nafn er Öryrkjabandalag Íslands og fjölluðu þátttakendur um rök með og á móti því að staðfesta ÖBÍ réttindasamtök í lögum samtakanna. Spurningin sem lögð var fyrir stefnuþing var eftirfarandi: „Ég er fylgjandi því að stefnuþing leggi fyrir aðalfund ÖBÍ tillögu um nafnabreytingu í ÖBÍ réttindasamtök.“ 94% þátttakenda merktu við já.
Spurningin til aðalfundar er eftirfarandi: Er aðalfundur samþykkur því að nafni Öryrkjabandalags Íslands verði breytt í ÖBÍ réttindasamtök í lögum bandalagsins?
Fundarstjóri bauð umræður. Nokkrar umræður urðu og sitt sýndist hverjum. Meðal annars kom fram tillaga um nýtt nafn, Réttindasamtök Íslands eða Réttindasamtökin. Bent var á að stefnuþing hefði rætt málið og niðurstaða lægi fyrir og ætti aðalfundur eingöngu að afgreiða fyrirliggjandi tillögu.
Fundarstjóri bar tillögu stefnuþings upp til kosninga. Tillagan var samþykkt með afgerandi meirihluta atkvæða, 6 voru á móti og 4 sátu hjá. Tillagan telst því samþykkt.
Seinni tillaga
Fríða Bragadóttir kynnti seinni tillögu stefnuþings varðandi aðild að bandalaginu. Ýmsar skoðanir eru uppi hvort skilyrði fyrir aðild að ÖBÍ séu nægileg og hvort þurfi víðtækari reglur.
Stefnuþing fékk 4 spurningar til umfjöllunar og voru niðurstöður eftirfarandi:
Hlutfall (%) | |
30% | Ég er fylgjandi því að endurskoða aðildarfyrirkomulag fyrir ný félög sem sækja um aðild. |
33% | Ég er fylgjandi því að endurskoða aðildarfyrirkomulag almennt, sem mögulega fæli í sér breytingar fyrir núverandi aðildarfélög. |
25% | Ég er ekki fylgjandi því að breyta aðildarfyrirkomulagi félaga, hvorki fyrir ný félög sem sækja um aðild né núverandi félög innan samtakanna. |
13% | Tek ekki afstöðu. |
Stjórn ÖBÍ skipaði nefnd til að fylgja eftir niðurstöðum stefnuþings og var niðurstaða nefndarinnar sú að of skammur tími væri fram að aðalfundi til að leggja fram haldbærar tillögur og því væri rétt að fá umræðu um málið áður en farið væri í frekari vinnu og leggja eftirfarandi spurningu um aðild fyrir aðalfund: Ýmsar skoðanir hafa verið uppi um það hvort skilyrði fyrir aðild að ÖBÍ séu nægileg. Þurfum við víðtækari/flóknari reglur?
Fundarstjóri bauð upp á umræður. Bent var á að lagfæringar hefðu verið gerðar á lögum ÖBÍ undandarin ár en þeirri vinnu þyrfti að halda áfram, meðal annars í tengslum við aðild.
Fundarstjóri bar framlagða spurningu upp til atkvæða. Tillagan var samþykkt með miklum meirihluta atkvæða, 10 voru á móti og 19 sátu hjá.
Ákvörðun aðildargjalda (6)
Fundarstjóri kynnti framkomna tillögu frá stjórn ÖBÍ um að aðildargjöld ÖBÍ yrðu óbreytt fyrir árið 2025, 0 kr. (fskj. nr. 6).
Fundarstjóri bar tillöguna upp til atkvæða og var hún samþykkt einróma.
Þóknun fyrir stjórnarsetu (7)
Fundarstjóri tók til afgreiðslu tillögu frá stjórn ÖBÍ um þóknun fyrir setu í stjórn og framkvæmdaráði (fskj. nr. 7).
Lagt er til að fyrirkomulag við greiðslu þóknunar fyrir fundarsetu fyrir fulltrúa í stjórn og framkvæmdaráði ÖBÍ verði óbreytt frá fyrra starfsári, sem er eftirfarandi:
- Fulltrúar í stjórn og framkvæmdaráði ÖBÍ og varamenn fá greiddar 7 einingar fyrir hvern setinn stjórnar- / framkvæmdaráðsfund, sem er allt að 2,5 klst. langur. 2 einingar eru fyrir undirbúning fundar og 5 einingar fyrir sjálfan fundinn. Aðalmenn sem tilkynna forföll fá greiddar 2 einingar fyrir undirbúning fundar.
- Fyrir hverja byrjuðu klst. umfram það er greidd ein eining.
- Fyrir setu á hádegisfundi (vinnufundi) eru greiddar 3,5 einingar.
- Upphæð þóknunar tekur mið af ákvörðun þóknananefndar ríkisins.
Fundarstjóri bar tillöguna upp til atkvæða og var hún samþykkt með meirihluta atkvæða.
Áður en fundi á föstudegi var slitið var ný auglýsingaherferð frá ÖBÍ undir yfirskriftinni „Hækkun lífeyris er lífsnauðsynleg“ frumsýnd og vakti hún mikla lukku.
Kl. 17:42 frestaði fundarstjóri fundi til kl. 10 laugardaginn 5. október 2024.
Laugardagur 5. október 2024 – fundi framhaldið
Fundarstjóri hóf fund að nýju kl. 10:10.
Kosningar í stjórn
Fundarstjóri bauð Sigrúnu Birgisdóttur, formanni kjörnefndar, að koma upp og segja frá starfi nefndarinnar. Sigrún greindi frá því að kjörnefnd hefði óskað eftir framboðum eins og lög gera ráð fyrir. Mikilvægt er að hafa jafnræði á milli fötlunarhópa, kynja, búsetu og aldurshópa í huga þegar gengið er til kosninga. Að því loknu var fyrirkomulag kosninganna kynnt og rafræn prufukosning framkvæmd.
Yfirlit yfir aðalfundarfulltrúa var sent út í fundargögnum og liggur á borðum fundarmanna í sal (fskj. nr. 8) ásamt yfirliti yfir framboð (fskj. nr. 9).
Formaður (8) (kosið 2025)
Varaformaður (9)
Tveir voru í framboði, Sigurður Haukdal Styrmisson, Diabetes Íslandi og Vilhjálmur Hjálmarsson, ADHD samtökunum (fskj. nr. 10 a-b). Fundarstjóri bauð frambjóðendum að kynna sig áður en kosning fór fram. Atkvæði voru 115 og skiptust þau svo:
- Sigurður Haukdal Styrmisson, 12 atkvæði (10,08%)
- Vilhjálmur Hjálmarsson, 103 atkvæði (86,55%)
Vilhjálmur er því kjörinn varaformaður ÖBÍ 2024-2026.
Gjaldkeri (10)
Einn var í framboði, Jón Heiðar Jónsson, Sjálfsbjörg lsh. (fskj. nr. 11). Engin mótframboð bárust og var hann því sjálfkjörinn.
Formenn fastra málefnahópa (11)
Formenn málefnahópa voru kosnir 2023 til tveggja ára. Formaður kjarahóps lét af störfum á miðju starfsári og því var kosið um formann kjarahóps til eins árs, 2024-2025.
Kjarahópur (fskj. nr. 12)
Einn var í framboði, Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, ADHD samtökunum.
Engin mótframboð bárust og var hún því sjálfkjörin til eins árs, 2024-2025.
Heilbrigðishópur
Þar sem Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður heilbrigðishóps var kjörinn varaformaður var embættið laust til eins árs 2024-2025. Beðið var um framboð úr sal og barst eitt framboð frá Telmu Sigtryggsdóttur, Heyrnarhjálp. Öll framboð sem berast eftir að aðalfundur hefst þurfa samþykki fundarins og var framboðið einróma samþykkt.
Þar sem ekki bárust önnur framboð var Telma sjálfkjörin í embætti formanns heilbrigðishóps til eins árs, 2024-2025.
Stjórnarmenn (12)
Fundarstjóri kynnti kosningu sjö stjórnarmanna til tveggja ára. Tíu höfðu boðið sig fram innan tilskilins frests (fskj. nr. 13 a-j). Halla B. Thorkelsson dró framboð sitt tilbaka. Eitt framboð barst eftir að fundur hófst, frá Frímanni Sigurnýassyni, Vífli og samþykktu fundarmenn framboðið. Frambjóðendur kynntu sig.
Greidd voru atkvæði og skiptust þau á eftirfarandi hátt:
- Dóra Ingvadóttir, Gigtarfélaginu, 84 atkvæði (11,49%)
- Eiður Welding, CP félaginu 104 atkvæði (14,23%)
- Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir, Fjólu, 86 atkvæði (11,76%)
- Frímann Sigurnýasson, Vífli, 15 atkvæði (2,05%)
- Guðni Sigmundsson, Sjálfsbjörg lsh., 42 atkvæði (5,75%)
- Guðrún Barbara Tryggvadóttir, Nýrnafélaginu, 100 atkvæði (13,68%)
- Ingibjörg Snjólaug Snorra Hagalín, MS félagi Íslands, 72 atkvæði (9,85%)
- Sigurður Haukdal Styrmisson, Diabetes Ísland, 28 atkvæði (3,83%)
- Sigþór Unnsteinn Hallfreðsson, Blindrafélaginu, 106 atkvæði (14,5%)
- Svavar Kjarrval, Einhverfusamtökunum, 94 atkvæði (12,86%)
Þessi hlutu kosningu til setu í stjórn ÖBÍ 2024-2026: Sigþór Unnsteinn Hallfreðsson, Eiður Welding, Guðrún Barbara Tryggvadóttir, Svavar Kjarrval, Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir, Dóra Ingvadóttir og Ingibjörg Snjólaug Snorra Hagalín.
Varamenn (13)
Fundarstjóri kynnti kosningu 3ja varamanna til tveggja ára (fskj. nr. 14 a-b). Þeir sem ekki náðu kjöri sem aðalmenn gáfu kost á sér sem varamenn. Tvö framboð bárust eftir að tilskilinn frestur rann út frá Ingibjörgu Elísabetu Garðarsdóttur, Endósamtökunum og Frímanni Sigurnýassyni, Vífli. Framboð þeirra voru samþykkt. Frambjóðendur kynntu sig.
Gengið var til kosninga og skiptust atkvæðin á eftirfarandi hátt:
- Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, SUM samtökunum, 90 atkvæði (71,43%)
- Frímann Sigurnýasson, Vífli, 6 atkvæði (4,76%)
- Ingibjörg Elísabet Garðarsdóttir, Endósamtökunum, 88 atkvæði (69,84%)
- Óskar Guðmundssoni, Einhverfusamtökunum, 89 atkvæði (70,63%)
- Guðni Sigmundsson, Sjálfsbjörg lsh., 36 atkvæði (28,57%)
- Sigurður Haukdal Styrmisson, Diabetes Íslandi, 16 atkvæði (12,7%)
Þessi hlutu kosningu til setu sem varamenn í stjórn ÖBÍ 2024-2026: Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, Óskar Guðmundsson og Ingibjörg Elísabet Garðarsdóttir.
Aðrar kosningar til tveggja ára (kosið 2025)
- Kosning fimm manna kjörnefndar og tveggja til vara (14)
- Kosning fimm manna laganefndar og tveggja til vara (15)
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og tveggja til vara (16)
Lagabreytingar, aðildarumsóknir, ályktanir, önnur mál
Lagabreytingar (17)
Engar lagabreytingar lágu fyrir fundinum. Þar sem tillaga stefnuþings um nýtt nafn bandalagsins var samþykkt var ákveðið að leggja fyrir fundinn lög ÖBÍ með breyttu nafni, það er nafnið ÖBÍ réttindasamtök kemur í stað Öryrkjabandalags Íslands (fskj. nr. 15 a-b). Í framhaldi af því verða lögin yfirfarin og lagfærð með tilliti til málfars í tengslum við nýtt nafn. Kosið var um lögin í heild sinni með breyttu nafni og voru þau samþykkt.
Aðildarumsóknir (18)
Engar aðildarumsóknir bárust.
Ályktanir aðalfundar (19)
Ein ályktun barst fyrir fundinn og kynnti formaður ÖBÍ hana (fskj. nr. 16). Ályktunin er svohljóðandi:
Ályktun aðalfundar ÖBÍ réttindasamtaka 2024
ÖBÍ réttindasamtök skora á stjórnvöld að standa við lögbundnar skyldur sínar og tryggja fötluðu fólki mannsæmandi líf og jöfn tækifæri. Fatlað fólk á Íslandi býr við hvað lökust kjör á landinu, óviðunandi aðgengi að menntun, atvinnu, húsnæði og heilbrigðisþjónustu. Það er því brýnt að ríki og sveitarfélög fari að lögum og alþjóðlegum skuldbindingum.
Mörg mikilvæg skref hafa verið stigin í átt að bættri stöðu fatlaðs fólks undanfarin ár, en betur má ef duga skal og krefjast ÖBÍ réttindasamtök úrbóta án tafar. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er skýr og honum ber að fylgja.
Fundarstjóri bauð umræður um ályktunina. Umræður voru um ályktunina sjálfa og breytingar á greinargerð sem fylgdi henni. Lagt var til að orðunum „íþrótta- og tómstundastarfi“ yrði bætt inn í setningu tvö í ályktuninni þannig að setningin hljóði svo: „Fatlað fólk á Íslandi býr við hvað lökust kjör á landinu, óviðunandi aðgengi að menntun, atvinnu, íþrótta- og tómstundastarfi, húsnæði og heilbrigðisþjónustu.“ Tillagan var samþykkt.
Ályktunin í heild sinni var borin upp með áorðnum breytingum og var samþykkt samhljóða. Ekki þótti ástæða til að bera upp tillögur á breytingum á greinargerðinni þar sem hún er einungis til stuðnings ályktuninni en mun ekki birtast almennt.
Önnur mál (20)
- Eiður Welding, formaður UngÖBÍ sagði frá því sem hefur verið gert á árinu, en UngÖBÍ tók til starfa með breyttu sniði um áramótin 2023/2024. Mikilvægt er að styrkja starfið og virkja þannig hóp ungmenna innan ÖBÍ. Hann hvatti aðildarfélögin til að fá ungmenni innan sinna raða til að taka þátt í UngÖBÍ.
- Sigþór U. Hallfreðsson, formaður Blindrafélagsins bauð fulltrúum í Bíó Paradís þann 15. október á frumsýningu myndarinnar „Acting normal“ á meðan húsrúm leyfir.
- Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir, SUM spurði stjórn ÖBÍ réttindasamtaka hvort að samtökin hyggðust fordæma gjöreyðileggingu á heilbrigðiskerfinu og öðru í Palestínu. Fundarstjóri vísaði fyrirspurninni til stjórnar ÖBÍ.
- Guðrún Barbara Tryggvadóttir, Nýrnafélaginu sagðist vilja styrkja starf eldri öryrkja og bað þá sem hafa áhuga á að taka þátt í slíku starfi að hafa samband við sig á nyra@nyra.is.
- Vilhjálmur Hjálmarsson, ADHD samtökunum ræddi 12. og 13. grein laga ÖBÍ sem snúa að framboði og framboðsfresti. Á aðalfundi mega eingöngu bjóða sig fram þeir sem eru á fundinum. Hann benti á að stundum losna embætti formanna málefnahópa með stuttum fyrirvara og óskaði eftir því að laganefnd skoði málið.
- Gísli Jónasson, MND á Íslandi sagði frá því að hann fær ekki örorkuskírteini vegna aldurs þar sem hann sé „of gamall“. Um leið og öryrkjar komast á eftirlaunaaldur missa þeir ákveðin réttindi þar sem réttindi öryrkja og eldri borgara séu ekki þau sömu, þrátt fyrir að málið hafi verið rætt við ráðherra. Hann óskaði eftir því að stjórn ÖBÍ skoði þetta mál.
- Bergþór Heimir Þórðarson fráfarandi varaformaður óskaði nýju stjórnarfólki til hamingju með kjörið og þakkaði kærlega fyrir samstarfið á liðnum árum. Hann sagðist ávallt vera tilbúinn að veita aðstoð sé hennar óskað.
Fundarstjórar þökkuðu fyrir sig og afhentu formanni ÖBÍ fundinn.
Fundarlok
Alma Ýr, formaður ÖBí réttindasamtaka þakkaði aðalfundarfulltrúum fyrir fundarsetuna og bauð nýtt fólk hjartanlega velkomið til starfa. Einnig þakkaði hún fráfarandi stjórn kærlega fyrir samstarfið og þeirra kraft og innlegg í baráttuna. Saman getum við gert ótrúlega hluti og við skulum halda því áfram! Að lokum þakkaði hún Bergþóri Heimi Þórðarsyni sérstaklega fyrir þarfan og góðan stuðning í baráttunni og fékk hann mikið lófatak fyrir vel unnin störf.
Formaður sleit fundi klukkan 13:07.
Fylgiskjöl:
- Dagskrá aðalfundar ÖBÍ 4. og 5. október 2024
- Ársskýrsla ÖBÍ 2023 til 2024, hlekkur: Ársskýrsla ÖBÍ réttindasamtaka 2023-2024
- Ársreikningur ÖBÍ 2023
- Ársreikningar fyrirtækja 2023
- Brynja leigufélag ses.
- Örtækni
- Hringsjá
- Fjölmennt
- Stefnuþing 2024
- Breyting á nafni
- Aðildarfyrirkomulag
- Ákvörðun aðildargjalda
- Þóknun fyrir stjórnarsetu
- Listi yfir aðalfundarfulltrúa aðildarfélaga ÖBÍ
- Yfirlit yfir framboð til embætta 2024
- a) til b) Kynningar frambjóðenda til varaformanns (2)
- Kynning frambjóðanda til gjaldkera (1)
- Kynning frambjóðanda til formanns kjarahóps (1)
- a) til j) Kynning frambjóðanda til stjórnar (10)
- a) til b) Kynningar frambjóðenda til varamanna í stjórn (2)
- a) Lög ÖBÍ, samþykkt 7. október 2023
- b) Lög ÖBÍ réttindasamtaka fyrir aðalfund 5. október 2024
- Ályktun ÖBÍ 2024
(Kynningum frambjóðenda er raðað eftir stafrófsröð ef framboð eru fleiri en eitt.Talan fyrir aftan kynningarnar gerir ráð fyrir að allir sendi inn kynningu, hún gæti því breyst.)
Aðalfundur 2023
Fundargerð aðalfundar ÖBÍ réttindasamtaka haldinn á Grand hóteli, Sigtúni 28, Reykjavík, 6. október 2022, kl. 16:00-19:00, og 7. október 2023, kl. 10:00-17:00.
Ávarp formanns, fundarsetning
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, setti fundinn kl. 16:02 og bauð fundargesti í sal sem og á Zoom hjartanlega velkomna. Flestir fundarmanna voru í sal. Fjarfundarkerfi og rafrænt kosningakerfi hafa gefist vel og því var ákveðið að nota þau áfram.
Formaður þakkaði fyrir magnaðan tíma síðastliðin 6 ár sem formaður. Á þessum tíma hafa orðið miklar breytingar, mikil barátta er að baki og hafa myndast fjölmörg tækifæri fyrir félaga réttindasamtaka ÖBÍ. Fatlað fólk verður þó fyrir misrétti og mismunun á hverjum degi. Formaður var þakklát fyrir baráttuna, traustið og sagðist vera reynslunni ríkari. Hún horfði björtum augum til framtíðar og sagðist hlakka til að fylgjast með baráttu og sigrum bandalagsins.
Formaður lagði til að Eyvindur Elí Albertsson og Helga Vala Helgadóttir yrðu fundarstjórar og var það samþykkt. Formaður lagði til að Helga Guðmundsdóttir og Ragnheiður Ásta Sigurðardóttir rituðu fundargerð og var það samþykkt. Þá bauð formaður fundarstjórum að taka við fundinum.
Fundarstjórar þökkuðu traustið, buðu gesti velkomna og kynntu dagskrá fundarins (fskj. nr. 1). Fundarstjóri tilkynnti að samkvæmt venju væri fulltrúum málefnahópa, stjórnar og hreyfinga ÖBÍ boðið að sitja fundinn sem áheyrnarfulltrúar.
Almenn fundarstörf
Skýrsla stjórnar (1)
Formaður flutti skýrslu stjórnar (fskj. nr. 2 – Ársskýrsla ÖBÍ 2023 til 2024. Skýrsla formanns og stjórnar, bls. 8-34) og sagði meðal annars frá eftirfarandi atriðum:
Á árinu voru reglulegir fundir með félags- og vinnumarkaðsráðherra, þingmönnum og sveitarstjórnarfólki og almennt var mikið samráð við stjórnvöld til dæmis þegar kom að því að skipa fulltrúa í vinnuhópa. Lögð var áhersla á að taka pláss og að ÖBÍ væri sýnilegt. ÖBÍ sendi yfir 100 umsagnir um hin ýmsu lög og álit til ráðuneytis og stofnana. Eitt stærsta verkefnið á sviði samráðs þetta starfsárið var í kringum Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks til ársins 2030 að ógleymdri þátttöku ÖBÍ í vinnuhópum vegna stöðu Íslands í tengslum við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Áfram var haldið með heildarendurskoðun á almannatryggingakerfinu á starfsárinu og náðust þó nokkur skref í baráttunni. TR greiddi út eingreiðslu á árinu sem var hugarfóstur ÖBÍ. Eingreiðslan var ekki sú fyrsta sem TR hefur greitt út en engu að síður var hún afar mikilvæg. Örorkulífeyrir var hækkaður í janúar og júní 2023 um samtals 10% og er þetta annað árið í röð sem ÖBÍ nær fram hækkun á lífeyri. Þessi hækkun kemur þó ekki til af góðu en hún var viðbragð stjórnvalda við vaxandi verðbólgu. Eftir áralanga baráttu var frítekjumarkið einnig hækkað úr 109.600 kr. í 200.000 kr. en því miður náðist ekki að hækka framfærsluuppbótina.
Farið var í hringferð með ráðherra og Þroskahjálp um landið vorið 2023. Lögð var áhersla á að vera sýnileg í fjölmiðlum og hafa þættirnir „Dagur í lífi“ á RÚV fengið góðar viðtökur. Þar að auki hefur verið unnið að mörgum árangursríkum samstarfsverkefnum sem miða að því að bæta aðgengi og viðmót í garð fatlaðs fólks. Til dæmis má nefna verkefni varðandi aðgengisfulltrúa í sveitarfélögum sem hófst sumarið 2021 í samstarfi við ríkið og Samband íslenskra sveitarfélaga. Ennfremur verkefnið „Gott aðgengi í ferðaþjónustu“ sem komst á gott skrið á árinu. Annað samstarfsverkefni er samstarf aðgengishóps ÖBÍ við Arkitektafélag Íslands, Félag íslenskra landslagsarkitekta, Félag húsgagna- og innanhússarkitekta (FHI), Byggingafræðingafélag Íslands (BFÍ) og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vorið 2022 um upplýsingagjöf um algilda hönnun. Einnig á ÖBÍ í góðu samstarfi við Virk starfsendurhæfingarsjóð varðandi ungt fatlað fólk og atvinnuleit, en samstarfið gengur út á að veita ungmennum aðstoð við atvinnuleit. Eftir mikinn þrýsting frá ÖBÍ féllst Reykjavíkurborg á að falla frá ólögmætri gjaldtöku í bílastæðahúsum en borgin hafði rukkað handhafa stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða. Enn er unnið að því að tryggja að þessi lög séu virt á einkareknum bílastæðum um land allt.
Stjórnvöld sömdu loksins við sérgreinalækna eftir langvarandi samningsleysi og áralangan þrýsting ÖBÍ. Tók nýi samningurinn gildi þann 1. september 2023. Enn á þó eftir að semja við sjúkraþjálfara og hvetur ÖBÍ til þess að sálfræðiþjónusta verði einnig gjaldfrjáls.
Barátta fyrir bættri stöðu fatlaðs fólks er kjarninn í starfsemi ÖBÍ. Árangurinn byggir á því að ÖBÍ nái eyrum yfirvalda og skilningi og samstöðu samfélagsins. Til þess að svo verði þarf að koma sjónarmiðum bandalagsins á framfæri á margvíslegan hátt, jafnt á götum úti sem og í dómssal. Alls voru fimmtán dómsmál í gangi á vegum ÖBÍ réttindasamtaka í lok starfsársins, þau elstu frá árinu 2019. Eitt helsta leiðarstefið í starfsemi ÖBÍ er samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) og er afar mikilvægt að stjórnvöld, þingheimur og samfélagið allt öðlist skilning á mikilvægi þess að lögfesta samninginn eins fljótt og auðið er.
Kannanir og rannsóknir voru unnar á starfsárinu til að mæla stöðu fatlaðs fólks á Íslandi og viðhorf almennings í málaflokknum. Niðurstöðurnar vöktu jafnan þó nokkra athygli og hafa leitt til aukins samtals og aðgerða í málaflokknum.
Félagsvísindastofnun HÍ vann rannsókn fyrir ÖBÍ um stöðu fatlaðs fólks á húsnæðismarkaði og í ljós kom að 58% öryrkja búa í eigin húsnæði samanborið við 74% allra fullorðinna á Íslandi. Þá eru 29% öryrkja á leigumarkaði miðað við 13% allra fullorðinna á landinu. Niðurstöðurnar sýna að staða fólks sem býr í leiguhúsnæði er almennt verri, það greiðir hærra hlutfall tekna í rekstur, hefur meiri áhyggjur af kostnaði og er líklegra til þess að lenda í vanskilum.
Gallup vann könnun um viðhorf Íslendinga til kjara öryrkja og voru niðurstöðurnar afar skýrar. Landanum fannst kjörin vera frekar slæm og taldi afar brýnt að bæta kjör örorkulífeyrisþega.
Félagsvísindastofnun gerði einnig könnun um útgjöld til heilbrigðismála. Stór hluti fólks með 75% örorku frestar því að fara til læknis, sjúkraþjálfara og að leysa út lyf. Staðan er því sú að umtalsverður hópur býr við verulega kostnaðarbyrði vegna útgjalda til heilbrigðismála. Þar er staða yngra fólks, einstæðinga, lágtekjufólks og fatlaðs fólks verst.
VSÓ ráðgjöf vann skýrslu fyrir ÖBÍ um ástand stoppistöðva Strætó á landsbyggðinni. Í ljós kom að slæmt aðgengi var að flestum biðstöðvum og mikið verk að vinna í þeim málum.
Ákveðið var að endurtaka könnun um stöðu fatlaðs fólks á Íslandi sem Varða rannsóknarmiðstöð vinnumarkaðarins gerði fyrir ÖBÍ 2021. Leitað var til TR um aðstoð við að koma könnuninni á framfæri við viðskiptavini TR sem heyra undir málaflokkinn og hefur samvinna milli TR og Vörðu um hvernig staðið skuli að málum verið góð. Með þessu samstarfi eru töluvert meiri líkur á að betri gögn fáist um stöðu fatlaðs fólks á Íslandi.
Að lokum upplýsti formaður að Hugarfar, eitt aðildarfélaga ÖBÍ, hefði sjálfkrafa sagt sig úr bandalaginu þar sem það hefði ekki skilað inn lögbundnum gögnum síðustu 4 ár.
Fundarstjóri bauð umræður um skýrslu stjórnar en engar urðu.
Reikningar bandalagsins (2)
Íris Ólafsdóttir frá PwC fór yfir reikninga bandalagsins fyrir árið 2022 (fskj. nr. 3).
Rekstrartekjur ársins 2022 voru tæplega 1.084 milljónir í stað tæplega 1.140 milljónir árið 2021. Rekstrargjöld hækkuðu milli ára og námu tæplega 520 milljónum árið 2021 samanborið við 440,1 milljón árið áður. Rekstrarafkoma fyrir fjármunatekjur og -gjöld var 564,1 milljón, en var 698,9 milljónir árið 2021. Rekstrarafkoma að meðtöldum fjármunatekjum og veittum styrkjum, var jákvæð um 145,4 milljónir, en var jákvæð um 256,3 milljónir árið 2021.
Efnahagshluti reikningsins hækkaði töluvert á milli ára. Varanlegir fastafjármunir voru 552 milljónir árið 2022 samanborið við 303 milljónir árið áður og jukust langtímakröfur úr tæplega 223 milljónum árið 2021 í tæplega 239 milljónir árið 2022. Þar var fyrst og fremst um að ræða bundnar innistæður. Fastafjármunir samtals voru því 791 milljón árið 2022 í stað 526 milljóna árið áður. Veltufjármunir lækkuðu milli ára og voru 430,8 milljónir árið 2022 í stað 604,4 milljóna árið 2021. Eignir voru því samtals tæplega 1.222 milljónir árið 2022 í stað 1.130 milljóna árið áður.
Eigið fé og skuldir skiptast í óráðstafað eigið fé, sem var 1.088 milljónir 2022 í stað 942 milljóna árið áður, og skuldir, sem voru samtals 134 milljónir 2021 í stað 188 milljóna árið 2021. Helsta skýring á lækkun skammtímaskulda milli ára er vegna ógreiddra framlaga og styrkja sem og skuldir við tengda aðila.
Handbært fé í árslok 2022 var því 332 milljónir, í stað 394,7 milljóna árið áður.
Vísaði endurskoðandi í greinargóðar skýringar í ársreikningi á blaðsíðu 11-20 til frekari glöggvunar.
Fundarstjóri opnaði fyrir umræður um reikninga ÖBÍ. Til svara voru gjaldkeri ÖBÍ, Jón Heiðar Jónsson, og framkvæmdastjóri ÖBÍ, Eva Þengilsdóttir.
Eva Þengilsdóttir, framkvæmdastjóri, sagði frá því að bandalagið væri fjárhagslega vel statt og tengist það meðal annars mikilli aukningu á rekstri fasteignar. Ráðist var í gagngerar endurbætur og breytingar á húsnæðinu haustið 2022 með tilliti til aðgengismála. Hagstæðir samningar náðust við góða verktaka og hafa framkvæmdirnar gengið framar vonum og tímaáætlanir staðist. Lögð er áhersla á að húsnæðið í heild verði aðgengilegt fyrir alla.
Engar umræður né fyrirspurnir voru varðandi reikninga bandalagsins og bar fundarstjóri reikninginn upp til atkvæða. Ársreikningur ÖBÍ 2023 var samþykktur samhljóða.
Skýrslur fastra málefnahópa (3)
Skýrslur málefnahópa ÖBÍ voru birtar í Ársskýrslu ÖBÍ 2022-2023 sem var dreift á fundinum (fskj. nr. 2, bls. 35-42). Atli Þór Þorvaldsson sagði frá starfi málefnahópanna og kynnti fundarstjóri formenn þeirra:
- Aðgengishópur (Bergur Þorri Benjamínsson, formaður)
- Atvinnu- og menntahópur (Hrönn Stefánsdóttir, formaður)
- Barnamálahópur (Sif Hauksdóttir, starfandi formaður)
- Heilbrigðishópur (Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður)
- Húsnæðishópur (María Pétursdóttir, formaður)
- Kjarahópur (Atli Þór Þorvaldsson, formaður)
Í kjölfarið kynntu nokkrir formenn hópanna stuttlega það helsta úr starfinu á síðasta starfsári.
María Pétursdóttir, formaður húsnæðishópsins, vakti athygli á málþingi á vegum hópsins sem áætlað er að halda þann 23. október 2023 varðandi rannsókn og skýrslu Félagsvísindastofnunar HÍ um húsnæðismál og fatlað fólk.
Bergur Þorri Benjamínsson, formaður aðgengishópsins, bað fundargesti um að senda hópnum ábendingar um gjaldtöku á bílastæðum. Ennfremur sagði hann frá því að umfangsmikil endurskoðun á byggingarreglugerð stæði yfir. Markmiðið væri að einfalda reglugerðina og ætlar hópurinn að reyna að standa vörð um hagsmuni fatlaðs fólks í þeirri vinnu.
Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður heilbrigðishópsins, sagði frá því að hópurinn fékk Félagsvísindastofnun HÍ til þess að gera stóra rannsókn, sem var birt í maí 2023, varðandi kostnað einstaklinga við heilbrigðisþjónustu. Sláandi var að fatlað fólk frestar því að fara til læknis, sjúkraþjálfara og leysa út lyf vegna of hás kostnaðar. Ákveðið hefur verið að endurtaka viðlíka könnun í framtíðinni. Á árinu sömdu stjórnvöld við sérgreinalækna og nú standa yfir samningar við sjúkraþjálfara. Því miður er enn ósamið við sálfræðinga. Næsta verkefni hópsins er endurskoðun á löggjöf um hjálpartæki.
Fundarstjóri bauð umræður um starf málefnahópa.
Þuríður Harpa, formaður, hvatti aðildarfélögin til þátttöku í könnun Vörðu á högum fatlaðs fólks. Slík könnun er mikilvæg, það er að ná til fatlaðs fólks og fá upplýsingar um hagi þess. Áhugavert verður að bera saman niðurstöður könnunarinnar við síðustu könnun frá árinu 2021. Til að ná til sem flestra stendur yfir samtal ÖBÍ og TR um að TR sendi könnunina út til allra lífeyrisþega. Valfrjálsir spurningalistar verða sendir út á íslensku, ensku og pólsku. Umræður sköpuðust um framkvæmd könnunarinnar í tengslum við fólk með heilabilun og ætlar Þuríður að hafa samband við Vörðu og TR varðandi lausn á því. Ennfremur kom ábending úr sal um að aðildarfélögin sendi félagsmönnum sínum tölvupóst og hvetji til þátttöku í könnuninni.
Skýrslur fyrirtækja (4)
Skýrslur fyrirtækja lágu frammi (fskj. nr. 2, bls. 43-48) og ársreikninga fyrirtækja má sjá í fylgiskjölum 4 a-d. Starfsemi tveggja fyrirtækja var kynnt. Að öðru leyti var boðið upp á umræður um skýrslurnar.
Örtækni (a)
Jónas Páll Jakobsson, framkvæmdastjóri Örtækni, kynnti starfsemina og breytingar síðastliðinna 2ja ára. Markmið Örtækni er að veita fólki með skerta starfsgetu þjálfun til starfa á almennum vinnumarkaði eða framtíðarstarfa hjá fyrirtækinu. Hjá Örtækni starfa 26 manns í tveimur deildum, annars vegar á rafeindaverkstæði og hins vegar í ræstingu. Ræstingadeildin sér um ræstingar í Hátúni fyrir Brynju leigufélag og Skógarhlíð 14. Helstu verkefni á rafeindaverkstæði er samsetning á flóknum rafeindabúnaði sem og sérsmíði og samsetning á ýmsum gerðum kapla. Viðskiptavinir Örtækni eru mörg af framsæknustu tækni- og iðnfyrirtækjum á Íslandi en einn elsti og helsti samstarfsaðili er Vaki fiskeldiskerfi. Einnig má nefna íslenskt frumkvöðlafyrirtæki, Faradice, sem Örtækni framleiðir bílahleðslustöðvar fyrir. Hleðslustöðvarnar eru sérhannaðar fyrir íslenskar aðstæður.
Töluverðar umbætur voru gerðar á húsnæði Örtækni í Hátúni árið 2022 sem mælst hafa vel fyrir. Ný ásýnd vörumerkis var kynnt í upphafi árs 2022 og í kjölfarið var markaðsefni og heimasíða uppfærð. Vörumerkið er lýsandi fyrir starfsemi Örtækni þar sem hlutir, lausnir og fólk er tengt saman, hlutum er komið á hreyfingu og kveikt á hugmyndum.
Fundarstjóri bauð upp á spurningar, Jónas var til svara en engar fyrirspurnir bárust.
Fjölmennt (b)
Helga Gísladóttir, forstöðumaður Fjölmenntar, kynnti starfsemina. Fjölmennt er sjálfseignarstofnun í eigu ÖBÍ og Þroskahjálpar og var stofnuð árið 2002 með samruna nokkurra eldri stofnana. Fjölmennt er á fjárlögum og er með þjónustusamning við félags- og vinnumarkaðsráðuneyti. Hjá Fjölmennt starfa 20 manns í 16 stöðugildum. Tvær deildir eru starfræktar í Reykjavík, símenntunardeild og ráðgjafadeild. Þriðja deildin sinnti námi fyrir fólk með geðrænar áskoranir frá árinu 2003-2022, en hún var lögð niður þar sem námið mætti ekki væntingum þeirra sem það stunduðu. Mikið samstarf er við símenntunarstöðvar á landsbyggðinni sem halda úti námi fyrir markhóp Fjölmenntar.
Markhópur Fjölmenntar er fatlað fólk 20 ára og eldra, en elsti nemandinn er 84 ára gamall. Meginmarkmiðið er að fötluðu fólki bjóðist fjölbreytt símenntun í formi náms og námskeiða að loknu formlegu námi í skólakerfinu. 200 manns stunda nám hjá Fjölmennt og býðst þeim afar fjölbreytt námskeið. Lögð er áhersla á litla námshópa, einstaklingsmiðaða kennslu auk samstarfs við heimili. Flest námskeiðin eru kennd einu sinni í viku og eru námskeiðsgjöld og námsskeiðsstaðir fjölbreyttir. Því miður hefur orðið mikill niðurskurður á síðustu árum vegna verðbólgu og verðlagshækkana og því hefur námskeiðsframboð minnkað.
Síðustu ár hafa stjórnvöld breytt lögum um framhaldsfræðslu og aukið áherslu á náms- og starfstækifæri fyrir fatlað fólk. Ekki er nóg að auka eingöngu tækifæri í háskólanámi eða atvinnunámi, einnig þarf að huga að tækifærum varðandi tómstundatengt nám. Þar sem meirihluti fatlaðs fólks hefur ekki tækifæri til að stunda tómstundatengt nám leggur Fjölmennt mikla áherslu á slíkt nám, til dæmis kór, matreiðslunámskeið og margt fleira.
Fundarstjóri bauð upp á spurningar, Helga var til svara. Spurt var um aðsókn í námið með tilliti til biðlista. Helga svaraði því til að mjög mikil ásókn væri í námið. Námskeiðin hefðu verið stytt til að koma fleiri nemendum að. Allir komast að sem sækja um á réttum tíma.
Íslensk getspá (c)
Bergur Þorri Benjamínsson, fulltrúi ÖBÍ í stjórn Íslenskrar getspár, var til svara, engar fyrirspurnir bárust.
TMF- Tölvumiðstöð (d)
Sigrún Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri TMF, var til svara, engar fyrirspurnir bárust.
Hringsjá (e)
Helga Eysteinsdóttir, forstöðumaður Hringsjár, var til svara, engar fyrirspurnir bárust.
Brynja leigufélag ses. (f)
Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Brynju, var til svara, engar fyrirspurnir bárust.
Stefna og starfsáætlun stefnuþings (5)
Fundarstjórar tilkynntu að þessi liður yrði ekki tekinn fyrir þar sem stefnuþing var ekki haldið árið 2023. Næsta stefnuþing verður haldið vorið 2024.
Ákvörðun aðildargjalda (6)
Fundarstjóri kynnti framkomna tillögu frá stjórn ÖBÍ um að aðildargjöld ÖBÍ yrðu óbreytt fyrir árið 2023, 0 kr. (sjá fskj. nr. 5).
Fundarstjóri bar tillöguna upp til atkvæða og var hún samþykkt einróma.
Þóknun fyrir stjórnarsetu (7)
Fundarstjóri tók til afgreiðslu tillögu frá stjórn ÖBÍ um þóknun fyrir stjórnarsetu, svohljóðandi (sjá fskj. nr. 6):
Lagt er til að fyrirkomulag við greiðslu þóknunar fyrir fundarsetu fyrir fulltrúa í stjórn ÖBÍ verði óbreytt frá fyrra starfsári:
- Stjórnarmenn ÖBÍ og varamenn fá greiddar 7 einingar fyrir hvern setinn stjórnarfund sem er allt að 2,5 klst. langur. 2 einingar eru fyrir undirbúning fundar og 5 einingar fyrir sjálfan fundinn. Ef forföll eru tilkynnt eru greiddar 2 einingar fyrir undirbúning fundar.
- Fyrir hverja klst. umfram það er greidd ein eining.
- Upphæð þóknunar tekur mið af ákvörðun þóknananefndar ríkisins.
Fundarstjóri boðaði til kosninga. Tillagan var samþykkt, einn sat hjá.
Kl. 17:38 frestaði fundarstjóri fundi til kl. 10 laugardaginn 7. október 2023.
Laugardagur 7. október 2023 – fundi framhaldið
Fundarstjóri hóf fund að nýju kl. 10:10. Vilhjálmur Hjálmarsson óskaði eftir leyfi til að ávarpa fundinn og því bar fundarstjóri upp dagskrártillögu. Greidd voru atkvæði og var tillagan samþykkt samhljóma. Í kjölfarið ávarpaði Vilhjálmur Hjálmarsson fundinn (fskj. 27) og minnti á mikilvægi lýðræðis. Mikilvægt er að aðildarfélög haldi aðalfund árlega þannig að umboð stjórna félaganna sé uppfært reglulega. Sérstaklega er mikilvægt að fulltrúar sem gefa kost á sér hafi hlotið kosningu á til þess bærum aðalfundi hvers félags.
Kosningar í stjórn
Fundarstjóri bauð Alberti Ingasyni, fulltrúa kjörnefndar, að koma upp og segja frá starfi nefndarinnar. Albert greindi frá því að kjörnefnd hefði óskað eftir framboðum eins og lög gera ráð fyrir. Því miður bárust ekki næg framboð í öll embætti og því fór meiri orka hjá nefndinni en vanalega í að manna þau. Albert hvatti stjórn ÖBÍ og aðildarfélög til þess að hafa þetta í huga og hvetja sitt fólk til þátttöku. Að því loknu var fyrirkomulag kosninganna kynnt og rafræn prufukosning framkvæmd.
Yfirlit yfir aðalfundarfulltrúa var sent út í fundargögnum og liggur á borðum fundarmanna í sal (fskj. nr. 7) ásamt yfirliti yfir framboð (fskj. nr. 8).
Formaður (8)
Í framboði voru Alma Ýr Ingólfsdóttir, Sjálfsbjörg Ish. og Rósa María Hjörvar, Blindrafélaginu (fskj. nr. 9 a-b). Fundarstjórar buðu frambjóðendum að kynna sig. Greidd voru atkvæði.
Áður en niðurstaða kosninga var kynnt þakkaði Eva Þengilsdóttir, framkvæmdastjóri ÖBÍ, fyrir sína hönd og annarra starfsmanna, Þuríði Hörpu, fráfarandi formanni, fyrir frábært samstarf og óskaði henni gæfu og gengis í komandi verkefnum. Þuríður Harpa þakkaði fyrir sig og tók sérstaklega fram að án alls fólksins innan ÖBÍ væri ekki búið að ná þeim góða árangri sem nú hefur náðst.
Atkvæðin voru 114 og skiptust svo:
- Alma Ýr Ingólfsdóttir, Sjálfsbjörg lsh., 57 atkvæði (50%)
- Rósa María Hjörvar, Blindrafélaginu, 56 atkvæði (49,12%)
- Auð atkvæði 1 (0,88%)
Alma Ýr, nýkjörinn formaður, kom upp í pontu, þakkaði félagsmönnum kærlega fyrir stuðninginn og traustið og kvaðst hlakka verulega til komandi tveggja ára.
Varaformaður (9) (kosið 2024)
Gjaldkeri (10) (kosið 2024)
Formenn fastra málefnahópa (11)
Fundarstjóri bauð frambjóðendum að kynna sig (fskj. nr. 10-15).
Aðgengishópur Bergur Þorri Benjamínsson, SEM samtökunum
Atvinnu- og menntahópur Hrönn Stefánsdóttir, Gigtarfélagi Íslands
Barnamálahópur Sif Hauksdóttir, Astma- og ofnæmisfélagi Íslands
Heilbrigðishópur Vilhjálmur Hjálmarsson, ADHD samtökunum
Húsnæðishópur María Pétursdóttir, MS félagi Íslands
Kjarahópur Sigríður Halla Magnúsdóttir, Endósamtökunum
Þar sem engin mótframboð bárust á fundinum voru ofantaldir aðilar sjálfkjörnir.
Stjórnarmenn (12)
Fundarstjóri kynnti kosningu þriggja stjórnarmanna til tveggja ára. Þrír höfðu boðið sig fram innan tilskilins frests (fskj. nr. 16 a-c). Þrjú framboð frá Höllu B. Þorkelsson, Heyrnarhjálp, Ólafi Jóhanni Borgþórssyni, Parkinsonsamtökunum og Margréti Lilju Aðalsteinsdóttur, Sjálfsbjörg lsh. bárust eftir að fresti lauk og voru þau borin undir samþykki fundarins. Framboðin voru samþykkt einróma.
Frambjóðendur kynntu sig. Greidd voru atkvæði og skiptust þau á eftirfarandi hátt:
- Frímann Sigurnýasson, Vífli, 20 atkvæði (6,41%)
- Ingi Hans Ágústsson, HIV Íslandi 26 atkvæði (8,33%)
- María M.B. Olsen, Gigtarfélagi Íslands, 73 atkvæði (23,4%)
- Halla B. Þorkelsson, Heyrnarhjálp, 52 atkvæði (16,67%)
- Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir, Sjálfsbjörg Ish., 77 atkvæði (24,68%)
- Ólafur Jóhann Borgþórsson, Parkinsonsamtökunum, 63 atkvæði (20,19%)
Þessi hlutu kosningu til setu í stjórn ÖBÍ 2023-2025:
- Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir
- María M.B. Olsen og
- Ólafur Jóhann Borgþórsson.
Varamenn (13)(Kosið 2024)
Sigríður Halla Magnúsdóttir sat í stjórn sem varamaður 2022-2024. Þar sem hún var kosin formaður kjarahóps (liður 11) þurfti að kjósa 1 varamann til eins árs (2023-2024) í hennar stað. Öllum fulltrúum var gefinn kostur á að bjóða sig fram. Þeir sem ekki náðu kjöri sem aðalmenn gáfu kost á sér sem varamenn:
- Frímann Sigurnýasson, Vífli, 14 atkvæði (12,39%)
- Ingi Hans Ágústsson, HIV Íslandi, 19 atkvæði (16,81%)
- Halla B. Þorkelsson, Heyrnarhjálp, 79 atkvæði (69,91%)
Niðurstaða kosninganna var sú að Halla B. Þorkelsson var kosin varamaður til eins árs.
Aðrar kosningar til tveggja ára (2023-2025)
Kjörnefnd (14)
Fimm buðu sig fram sem aðalmenn í kjörnefnd (fskj. nr. 17 a-e) og tveir sem varamenn (fskj. nr. 18 a-b)
- Dóra Ingvadóttir, Gigtarfélagi Íslands
- Drífa Ósk Sumarliðadóttir, Spoex
- Edda Svavarsdóttir, CCU samtökunum
- Einar Þór Jónsson, HIV Íslandi
- Sigrún Birgisdóttir, Einhverfusamtökunum
Varamenn:
- Alvar Óskarsson, MS félagi Íslands
- Helga Guðrún Loftsdóttir, Nýrnafélaginu
Allir frambjóðendur voru sjálfkjörnir þar sem frekari framboð bárust ekki.
Laganefnd (15)
Fimm buðu sig fram til aðalmanna (fskj. nr. 19 a-e) og tveir til varamanna (fskj. nr. 20 a-b). Eitt framboð til varamanns, Sigurður Þ. Helgason, Hjartaheillum, barst eftir að frestur rann út. og var framboðið samþykkt einróma. Aðalmenn voru sjálfkjörnir.
- Herbert Snorrason, ADHD samtökunum
- Ragnar Davíðsson, Ný rödd
- Salóme H. Gunnarsdóttir, Parkinsonsamtökunum
- Svavar G. Jónsson, HIV Íslandi
- Þórður Höskuldsson, Ás styrktarfélagi
Kosið var um varamenn og var niðurstaða kosninganna eftirfarandi:
- Dagbjört Anna Gunnarsdóttir, MS félagi Íslands, 76 atkvæði (42,22%)
- Gísli Jónasson, MND á Íslandi, 56 atkvæði (31,11%)
- Sigurður Þ. Helgason, Hjartaheillum, 40 atkvæði (22,22%)
Dagbjört Anna Gunnarsdóttir og Gísli Jónasson voru réttkjörin sem varamenn kjörnefndar.
Skoðunarmenn reikninga og varamenn (16)
Tveir buðu sig fram til aðalmanna (fskj. nr. 21 a-b) og tveir til varamanna (fskj. nr. 22 a-b).
- Berglind Ólafsdóttir, MS félagi Íslands
- Karen Ösp Friðriksdóttir, Endósamtökunum
Varamenn:
- Guðmundur Rafn Bjarnason, Blindrafélaginu
- Ólafur Dýrmundsson, Stómasamtökum Íslands
Ekki bárust fleiri framboð og voru ofantaldir aðilar sjálfkjörnir.
Lagabreytingar, aðildarumsóknir, ályktanir, önnur mál
Lagabreytingar (17)
Teknar voru til afgreiðslu tillögur laganefndar til breytinga á lögum ÖBÍ (sjá lög ÖBÍ í fskj. nr. 23 og lagabreytingar í fskj. nr. 24 a-b).
Formaður laganefndar, Herbert Snorrason, gerði grein fyrir störfum og niðurstöðum nefndarinnar. Miklar umræður urðu um lögin í nefndinni en á endanum var ákveðið að leggja fram tvær lagabreytingatillögur.
Formaður laganefndar kynnti 1. tillögu, sem er í tveimur liðum um skýrara ákvæði um skyldur aðildarfélaga (fskj. nr. 24 a), sem er breyting á 6. gr. um réttindi og skyldur aðildarfélaga og 10. gr. um aðalfundarfulltrúa.
1. liður. Í stað 2. mgr. 6.gr. kemur eftirfarandi:
Aðildarfélögum ber skylda til að:
- Uppfylla kröfur 4.gr. um aðildarskilyrði svo lengi sem aðildin varir.
- Heimila trúnaðarmanni aðgang að félagaskrá.
- Skila ársskýrslu, staðfestum ársreikningi, lista yfir stjórnarmenn og þá sem skipa trúnaðarstöður, og lögum félagsins, hafi þeim verið breytt, í síðasta lagi sex vikum fyrir aðalfund.
- Greiða aðildargjöld í samræmi við ákvörðun aðalfundar.
Eftirfarandi breytingartillaga (fskj. 28) barst frá Fríðu Bragadóttur, Diabetes Íslandi á punkti 3:
Skila ársskýrslu, ársreikningi samþykktum á aðalfundi félagsins, lista yfir stjórnarmenn og þá sem skipa trúnaðarstöður, og lögum félagsins, hafi þeim verið breytt, í síðasta lagi sex vikum fyrir aðalfund.
Fundarstjóri bauð umræður en engar urðu. Formaður laganefndar gerði tillöguna að sinni og því var upphaflega tillagan borin upp með áorðnum breytingum. Samþykkt.
2. liður. Í 4. mgr. 10. gr. falla út orðin „Aðildarfélög skulu í síðasta lagi sex vikum fyrir aðalfund skila ársskýrslu, staðfestum ársreikningi og lögum, hafi þeim verið breytt, til stjórnar. Félagaskrá skal yfirfarin í samræmi við ákvæði 5. gr.“
Ekki urðu umræður um tillöguna og var hún samþykkt.
Formaður laganefndar kynnti 2. tillögu, um lengd tímamörk í kjörin embætti sem er breyting á 12. gr. laga ÖBÍ um kjörgengi og atkvæðagreiðslur. (fskj. nr. 24 b)
- Í stað orðanna „þrjú heil kjörtímabil“ skal koma „fjögur heil kjörtímabil“.
- Í stað orðanna „þriggja heilla tímabila, þ.e. alls að hámarki 7 ár“ skal koma „fjögurra heilla tímabila, þ.e. alls að hámarki 9 ár“.
Fundarstjóri bauð umræður um tillöguna og sköpuðust miklar umræður um hana. Vangaveltur voru um hvort að kjörtímabil stjórnsýslu skiptu máli í réttindasamtökum. Ennfremur voru umræður um hvort lenging kjörtímabils væri af hinu góða og hvort að sólarlagsákvæði væru þá óþörf. Bent var á að gott væri að samþykkja tillöguna líkt og önnur nágrannalönd og Evrópusamtök hafa gert.
Frávísunartillaga (fskj. 29) barst frá Ægi Lúðvíkssyni, MND félaginu. Frávísunartillagan var felld og kosið var um tillögu laganefndar með handauppréttingu. Lagabreytingar þarfnast samþykkis að minnsta kosti ¾ hluta greiddra atkvæða og þar sem niðurstaðan var óskýr var orðið við beiðni um rafræna kosningu, sem fór svo:
- 68 sögðu já, samþykki eða 63,55%
- 34 sögðu nei, hafna eða 31,78%
- 5 tóku ekki afstöðu eða 4,67%
Tillaga laganefndar var felld.
Kosið var um lögin í heild sinni með áorðnum breytingum. Samþykkt samhljóða.
Aðildarumsóknir (18)
Ein aðildarumsókn barst frá SUM – samtökum um áhrif umhverfis á heilsu (fskj. nr. 25 a-g). Formaður ÖBÍ kynnti umsóknina, sagði að stjórn ÖBÍ hefði farið yfir þau gögn sem skilað var inn og taldi enga annmarka á því að umsóknin yrði tekin fyrir á aðalfundi. Umsókn barst frá SUM fyrir nokkrum árum en var hafnað þar sem félagið uppfyllti ekki skilyrði ÖBÍ. Nú hafa öll skilyrði verið uppfyllt og því leggur stjórn ÖBÍ umsókn SUM fyrir aðalfund.
Fram kom í umræðum að SUM væri sjúklingafélag og að samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismála-stofnuninni (WHO) teljist mygla til sjúkdóma. Miklar umræður sköpuðust, meðal annars um hvers konar fötlun félagar SUM glíma við og hvort að félagið eigi erindi í ÖBÍ. Bent var á að því miður leiði mygla oft til örorku og því séu einhverjir félagsmenn í SUM öryrkjar, en ekki allir. Oft sé um að ræða dulda öryrkja og ungt fólk.
Niðurstaða kosninga um aðild SUM að Öryrkjabandalaginu fór svo:
- 83 sögðu já, samþykki eða 79,81%
- 14 sögðu nei, hafna eða 13,46%
- 7 tóku ekki afstöðu eða 6,73%
Aðild SUM að ÖBÍ var samþykkt með meirihluta atkvæða.
Ályktanir aðalfundar (19)
Ein ályktun barst fyrir fundinn og kynnti formaður ÖBÍ hana (fskj. nr. 26). Ályktunin er svohljóðandi:
Ályktun aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands 2023
Aðalfundur ÖBÍ hvetur ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur til að bregðast með afgerandi hætti við vaxandi fátækt fatlaðs fólks og hækka örorkulífeyri um 12,4% án tafar.
Matarkarfan hefur nú hækkað um 12,4%, húsnæðiskostnaður eykst stöðugt og hækkanir á lífeyri ná varla að halda í við verðbólgu, hvað þá meira. Þau tekjulægstu í íslensku samfélagi verja stærstum hluta tekna sinna í nauðsynjar, miklum mun stærri en aðrir hópar. Það er því hófsöm krafa ÖBÍ réttindasamtaka að lífeyrir verði hækkaður um þessi sömu 12,4%.
Verðbólga ársins er nú 8% en ekki 5,6% eins og fjárlagafrumvarp þessa árs gerði ráð fyrir. Kjarasamningar eru framundan og því allar líkur á að verðbólga haldist há næsta ár og standist ekki verðbólguspá þá sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu upp á 4,9%.
Ríkisstjórnin er minnt á eigin stjórnarsáttmála, en í honum segir: „Afkoma örorkulífeyrisþega verður áfram bætt með það að markmiði að bæta sérstaklega kjör þeirra sem lakast standa“. Aðalfundur ÖBÍ krefst þess að stjórnvöld standi við orð sín og tekjulægsti hópur samfélagsins fái lífsnauðsynlega kjarabót.
Fundarstjóri bauð umræður um ályktunina en engar urðu.
Gengið var til kosninga og ályktunin samþykkt samhljóða.
Önnur mál (20)
A Rósa María Hjörvar formannsframbjóðandi þakkaði stuðninginn og góða kosningabaráttu. Óskaði hún Ölmu Ýr alls hins besta sem og félagsmönnum til hamingju með nýjan formann.
B Svavar Kjarrval, Einhverfusamtökunum sagði frá næsta verkefni samtakanna, sem er að fara yfir sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og greina hvaða þýðingu hann hefur fyrir einhverft fólk. Hvatti hann önnur aðildarfélög til að gera slíkt hið sama.
C Bergur Þorri Benjamínsson, Sjálfsbjörg lsh. talaði um mikilvægi þess að félagar og aðildarfélög ræði við sínar sveitarstjórnir og hvetji til þess að sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lögfestur sem fyrst.
D Helga Jóhanna Hallgrímsdóttir, Nýrnafélaginu velti upp hvort ætti að breyta orðinu örorkuþegi í lífeyrisþegi. Þuríður Harpa þakkaði ábendinguna og nefndi að til væru fjöldamörg orð yfir lífeyrisþega á borð við lífeyristaka.
E Fulltrúar þökkuðu fráfarandi formanni fyrir frábær störf og stýrði Sveinn Guðmundsson, SÍBS, salnum í ferfalt bravó hróp.
F Nýkjörinn formaður, Alma Ýr þakkaði fundarmönnum aftur fyrir traustið. Þakkaði hún einnig Rósu Maríu fyrir góða kosningabaráttu og kvaðst myndu sakna Þuríðar Hörpu.
Fundarstjórar þökkuðu fyrir sig og afhentu fráfarandi formanni ÖBÍ fundinn.
Fundarlok
Fráfarandi formaður, Þuríður Harpa þakkaði aðalfundarfulltrúum fyrir fundarsetuna og bauð nýtt fólk hjartanlega velkomið til starfa. Um leið þakkaði hún fráfarandi stjórnarmönnum fyrir vel unnin störf, óskaði þeim velfarnaðar og kvaðst hlakka til að sjá þau áfram í baráttunni.
Þuríður þakkaði sérstaklega fyrir allar kveðjurnar í dag sem og góða nærveru og samstarf síðastliðin 6 ár. Hún óskaði Ölmu Ýr hjartanlega til hamingju með formannskjörið og óskaði henni sem og öðrum fundargestum alls hins besta á komandi starfsárum.
Formaður sleit fundi klukkan 14:32.
Fylgiskjöl:
- Dagskrá aðalfundar ÖBÍ 6. og 7. október 2023
- Ársskýrsla ÖBÍ 2022 til 2023, hlekkur: Ársskýrslur – ÖBI (obi.is)
- Ársreikningur ÖBÍ 2022
- Ársreikningar fyrirtækja 2022
- a) Brynja leigufélag ses.
- b) Örtækni
- c) Hringsjá
- d) Fjölmennt
- Ákvörðun aðildargjalda
- Þóknun fyrir stjórnarsetu
- Listi yfir aðalfundarfulltrúa aðildarfélaga ÖBÍ
- Yfirlit yfir framboð til embætta 2023
- a) til b) Kynningar frambjóðenda til formanns (2)
- Kynning frambjóðanda til formanns aðgengishóps (1)
- Kynning frambjóðanda til formanns atvinnu- og menntahóps (1)
- Kynning frambjóðanda til formanns barnamálahóps (1)
- Kynning frambjóðanda til formanns heilbrigðishóps (1)
- Kynning frambjóðanda til formanns húsnæðishóps (1)
- Kynning frambjóðanda til formanns kjarahóps (1)
- a) til c) Kynningar frambjóðenda til stjórnar (3)
- a) til e) Kynningar frambjóðenda til kjörnefndar (5)
- a) til b) Kynningar frambjóðenda til varamanna kjörnefndar (2)
- a) til e) Kynningar frambjóðenda til laganefndar (5)
- a) til b) Kynningar frambjóðenda til varamanna laganefndar (2)
- a) til b) Kynningar frambjóðenda til skoðunarmanna reikninga (2)
- a) til b) Kynningar frambjóðenda til varaskoðunarmanna reikninga (2)
- Lög Öryrkjabandalags Íslands samþykkt 8. október 2022
- a) til b) Lagabreytingatillögur laganefndar (2)
- a) til g) Aðildarumsókn SUM – Samtaka um áhrif umhverfis á heilsu
- Ályktun aðalfundar ÖBÍ
- Athugasemd í tengslum við kosningar
- Breytingartillaga við 1. tillögu laganefndar
- Frávísunartillaga á 2. tillögu laganefndar
(Kynningum frambjóðenda er raðað eftir stafrófsröð ef framboð eru fleiri en eitt.)
Aðalfundur 2022
Fundargerð aðalfundar ÖBÍ réttindasamtaka
haldinn á Grand hóteli, Sigtúni 28, Reykjavík, 7. október 2022, kl. 16:00-19:00, og 8. október 2022, kl. 10:00-17:00.
Ávarp formanns, fundarsetning
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, setti fundinn kl. 16:07 og bauð fundargesti í sal sem og á Zoom hjartanlega velkomna. Flestir fundarmanna voru í sal. Fjarfundarkerfi og rafrænt kosningakerfi hafa gefist vel og því var ákveðið að nota þau áfram.
Formaður sagði að margt væri framundan eftir annasamt ár. Ásýnd ÖBÍ hefur tekið breytingum og var nýtt merki tekið í notkun í september 2022. Þessar breytingar voru ákveðnar í framhaldi af niðurstöðu stefnuþings ÖBÍ 2021 og 2022.
Formaður lagði til að Eyvindur Elí Albertsson og Margrét Kristmannsdóttir yrðu fundarstjórar og var það samþykkt. Formaður lagði til að Helga Guðmundsdóttir og Ragnheiður Ásta Sigurðardóttir rituðu fundargerð og var það samþykkt. Þá bauð formaður fundarstjórum að taka við fundinum.
Fundarstjórar þökkuðu traustið, buðu gesti velkomna og kynntu dagskrá fundarins (fskj. nr. 1). Fundarstjóri tilkynnti að samkvæmt venju væri fulltrúum málefnahópa, stjórnar og hreyfinga ÖBÍ boðið að sitja fundinn sem áheyrnarfulltrúar.
Almenn fundarstörf
Skýrsla stjórnar (1)
Formaður flutti skýrslu stjórnar (fskj. nr. 2 – Ársskýrsla ÖBÍ 2021 til 2022. Skýrsla formanns og stjórnar, bls. 9-37) og sagði meðal annars frá eftirfarandi atriðum:
Á árinu tók við ný ríkisstjórn og nýir ráðherrar, nýjar sveitarstjórnir og nýtt sveitarstjórnarfólk. Í félagsmálaráðuneytið kom nýr ráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, sem er annt um hag fatlaðs fólks. ÖBÍ hefur verið í góðu sambandi og stöðugu samráði við nýja ríkisstjórn sem hefur skilað góðum árangri. ÖBÍ vinnur stöðugt að réttlátara samfélagi fyrir fatlað fólk og á árinu gerðist heilmargt í þeim málum. Sem dæmi má nefna að ráðast á í heildarendurskoðun á almannatryggingakerfinu. Formaður hvatti forystumenn og talsmenn aðildarfélaganna að láta í sér heyra, vera hugrakka og krefjast réttlætis.
Í nóvember 2021 hófust umræður ÖBÍ við UMFÍ um kaup á 25% hlut þeirra í Sigtúni 42 og var gengið frá kaupunum í febrúar 2022. Um er að ræða góða fjárfestingu og á sama tíma mikilvægt skref fyrir sambandið. Eftir kaupin á ÖBÍ 75% í fasteigninni. Nokkur aðildarfélög ÖBÍ munu koma inn í húsið með sína starfsemi. Með þessu má segja að Sigtúnið verður miðstöð mannréttinda fatlaðs fólks.
Á árinu hélt ÖBÍ áfram að vinna með nýja stefnu sem var samþykkt á aðalfundi árið 2021. Stefnan byggist á níu meginmarkmiðum sem öll eiga að stuðla að langtíma umbótum og jákvæðum breytingum. Áherslurnar eru leiðbeinandi í starfi málefnahópa og aðildarfélaga.
Nýtt merki ÖBÍ réttindasamtaka var hannað, ný ímynd og nýr vefur. Þetta var allt saman hluti af endurmörkun ÖBÍ. Nýtt merki ÖBÍ er sterkt, einfalt og nútímalegt og vísar til þess að 15% mannkyns er fatlað fólk auk þess sem fjólublái liturinn tengist alþjóðlegum lit fatlaðs fólks.
Það er samtökum eins og ÖBÍ afar mikilvægt að vel takist til að virkja stjórnvöld, bæði ríki og sveitarfélög eða einstaka stofnanir til að viðhafa merkingarbært samráð. Það er einnig í anda samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF). Á starfsárinu fundaði ÖBÍ með fjölmörgum frambjóðendum til Alþingis, frambjóðendum til sveitarstjórna og átti fjölda samtala og funda með einstaka þingmönnum og ráðherrum um málefni sem kröfðust aðgerða til að fatlað fólk eigi líf til jafns við aðra. Kjaramálin báru þar hæst en einnig aðgengismál, atvinnumál, heilbrigðismál, húsnæðismál og málefni barna.
Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga stóð ÖBÍ fyrir fundaherferð um landið ásamt Þroskahjálp. Haldnir voru um 20 fundir í stærstu sveitarfélögunum í öllum landshlutum þar sem fulltrúum allra flokka ásamt almenningi var boðið að mæta og málefni fatlaðs fólks rædd. Niðurstöður nýrrar Gallup könnunar sem ÖBÍ lét framkvæma um nærþjónustu sveitarfélaga 2022 voru kynntar. Afar áhugavert var að niðurstöður könnunarinnar voru þær að flestir svarendur vilja færa þjónustuna aftur til ríkisins. Svarendur töldu að sveitarfélögin leggðu of litla áherslu á málaflokkinn og að nauðsynlegt væri að samræma þjónustuna á milli sveitarfélaga. Á fundunum voru aðgengismál og húsnæðismál mikið rædd. Þessi áhersla endurspeglast í könnuninni þar sem svarendur vilja að sveitarfélögin auki framboð húsnæðis á viðráðanlegu verði.
ÖBÍ þrýsti á eingreiðslu frá ríkinu til örorkulífeyrisþega sem var samþykkt og greidd út í desember 2021. Þessi eingreiðsla var fyrst greidd út í desember 2019 en það er áfangasigur að hafa náð henni fram undanfarin ár. Þar að auki var árleg hækkun örokulífeyris hærri en venjulega, í stað 3,5% var hækkun upp í 5,6% sem var framkvæmd í tveimur skrefum. Hækkunin er hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar auk þess sem hún er merki um að málflutningur ÖBÍ nái eyrum stjórnvalda.
Reglugerð um heimilisuppbót var breytt þannig að nú getur barn búið í foreldrahúsum og verið í skóla til 26 ára aldurs án þess að foreldrar missi heimilisuppbót. Önnur kjarabót var hækkun SÍ í greiðsluþátttöku vegna almennra tannlækninga fatlaðs fólks og aldraðra úr 57% í 63%. Þar að auki fékk SÍ auknar heimildir til þess að styrkja kaup á hjálpartækum fyrir fötluð börn með tvö heimili þannig að þau geti átt vís hjálpartæki á báðum heimilum.
Undanfarin ár hafa örorkulífeyrisþegar þurft að prenta sjálfir út örorkuskírteini þar sem TR gerir það ekki lengur. Á árinu náðist samkomulag við nýjan forstjóra TR og ráðherra þess efnis að TR muni aftur gefa út örorkuskírteini í hefðbundinni kortastærð. Síðar á árinu er fyrirhugað að örorkuskírteinin verði einnig stafræn og til notkunar í snjallsímum. Þetta hefur verið mikið baráttumál hjá ÖBÍ og ánægjulegt að þetta hafi komist í gegn.
Á árinu unnust þrjú mál fyrir dómstólum og þó nokkur önnur eru í undirbúningi. Þessi dómsmál eru fordæmisgefandi og hafa mikla þýðingu fyrir fjölda fólks. Þau mál sem unnust í Hæstarétti voru m.a. búsetuskerðing á sérstakri uppbót og NPA.
Að lokum sagði formaður að bandalagið hefði barist af krafti í rúm 60 ár fyrir réttindum fatlaðs fólks. SRFF mun færa okkur nær því að eiga líf til jafns við aðra. Formaður þakkaði stjórn og aðildarfélögum kærlega fyrir samstarfið á árinu.
Fundarstjóri bauð umræður en engar urðu.
Formaður veitti formanni Blindravinafélags Íslands, Helgu Eysteinsdóttur, viðurkenningu fyrir einstakt ævistarf fyrir hönd ÖBÍ. Blindravinafélagið hefur eingöngu haft tvo formenn frá upphafi þess og hefur Helga, sem er nú komin yfir áttrætt, verið viðloðandi félagið frá því að hún var 14 ára gömul.
Ársreikningur ÖBÍ (2)
Íris Ólafsdóttir frá PwC fór yfir reikninga bandalagsins fyrir árið 2021 (fskj. nr. 3).
Rekstrartekjur ársins 2021 voru rúmlega 1.139 milljónir í stað rúmlega 921,5 milljónir árið 2020.
Rekstrargjöld ársins 2021 hækkuðu milli ára og námu tæplega 441 milljónum árið 2021 samanborið við 322,1 milljón árið áður.
Rekstrarafkoma ársins 2021 fyrir fjármunatekjur og -gjöld var 698,9 milljónir, en var 599,4 milljónir árið 2020.
Rekstrarafkoma ársins 2021, að meðtöldum fjármunatekjum og veittum styrkjum jukust töluvert milli ára, var jákvæð um 256,3 milljónir, en var jákvæð um 78 milljónir árið 2020.
Efnahagshluti reikningsins hækkaði töluvert á milli ára. Varanlegir fastafjármunir voru 303 milljónir árið 2021 samanborið við 309,6 milljónir árið áður og jukust langtímakröfur úr 214 milljónum árið 2020 í tæplega 223 milljónir árið 2021. Þar var fyrst og fremst um að ræða bundnar innistæður.
Fastafjármunir samtals voru því 527 milljónir 2021 í stað 523 milljóna árið áður.
Veltufjármunir voru 0 kr. árið 2021 í stað 2,7 milljóna 2020 og voru eignir því samtals 1.130 milljónir árið 2021 í stað 798 milljóna 2020.
Eigið fé og skuldir voru samtals 1.130 milljónir árið 2021 í stað 798 milljóna árið áður. Það skiptist í óráðstafað eigið fé, sem var 942 milljónir 2021 í stað 686 milljóna árið áður, og skuldir, sem voru samtals 188 milljónir 2021 í stað 112 milljónir árið 2020. Helsta skýring á hækkun skammtímaskulda milli ára er vegna ógreiddra framlaga og styrkja sem og skuldir við tengda aðila.
Handbært fé í árslok 2021 var því 394,7 milljónir, í stað 175,6 milljóna árið áður.
Vísaði endurskoðandi í greinargóðar skýringar í ársreikningi á blaðsíðu 11-19 til frekari glöggvunar.
Fundarstjóri opnaði fyrir umræður um reikninga ÖBÍ. Til svara voru gjaldkeri ÖBÍ, Jón Heiðar Jónsson, og framkvæmdastjóri ÖBÍ, Eva Þengilsdóttir.
Ein fyrirspurn barst varðandi hækkun á rekstrarkostnaði fasteigna og skrifstofu. Framkvæmdastjóri svaraði því að hækkun á rekstrarkostnaði fasteignar mætti rekja til framkvæmda í kjallara í Sigtúni og hækkun á rekstrarkostnaði skrifstofu væri vegna meiri starfsemi á árinu 2021 heldur en árið áður.
Frekari umræður og fyrirspurnir voru ekki og bar fundarstjóri reikninginn upp til atkvæða. Ársreikningur ÖBÍ 2021 var samþykktur samhljóða.
Skýrslur fastra málefnahópa (3)
Skýrslur málefnahópa ÖBÍ voru birtar í Ársskýrslu ÖBÍ 2021-2022 sem var dreift á fundinum (fskj. nr. 2, bls. 40-45). Formenn málefnahópa komu upp og klöppuðu fundargestir fyrir þeim og starfi málefnahópanna.
Skýrslur fyrirtækja (4)
TMF- Tölvumiðstöð (a)
Rúnar Björn Herrera stjórnarformaður, var til svara, engar fyrirspurnir bárust.
Örtækni (b)
Jónas Páll Jakobsson, framkvæmdastjóri ÖBÍ, forfallaðist því miður. Fulltrúar voru beðnir um að senda honum tölvupóst ef að einhverjar fyrirspurnir væru.
Fjölmennt (c)
Helga Gísladóttir, forstöðumaður ÖBÍ, var til svara, engar fyrirspurnir bárust.
Íslensk getspá (d)
Bergur Þorri Benjamínsson, fulltrúi ÖBÍ í stjórn Íslenskrar getspár, var til svara, engar fyrirspurnir bárust.
Hringsjá (e)
Helga Eysteinsdóttir, forstöðumaður Hringsjár, flutti framsögu og kynnti m.a. stefnumótunarvinnu Hringsjár síðasta ár. Undir forystu Hrannar Pétursdóttur stefnumótunarsérfræðings var gerð úttekt á starfi Hringsjár. Hrönn safnaði gögnum og talaði við fyrrverandi og núverandi nemendur, þjónustukaupa, samstarfsaðila og fulltrúa aðildarfélaga ÖBÍ. Skemmst er frá því að segja að allir voru mjög ánægðir með námið og þótti mjög vel að því staðið. Hringsjá mun halda áfram að sinna sínum helsta markhóp, sem er fólk 18 ára og eldra, sem hefur verið frá vinnumarkaði eða námi vegna slysa, veikinda, félagslegra örðugleika eða annarra áfalla. Vilji er til þess að halda í þá sérstöðu að ekki sé nauðsynlegt að klára ákveðna áfanga til að útskrifast úr náminu. Áhugi er á að bjóða upp á fleiri námsbrautir, en húsnæðið í Hátúni setur starfseminni ákveðnar skorður þar sem það er löngu sprungið. Því stendur yfir leit að hentugra húsnæði þar sem starfsemin rúmast öll á einum stað. Markmið starfsemi Hringsjár er að styðja nemendur til að láta drauma sína rætast og auka lífsgæði þeirra.
Ein fyrirspurn barst varðandi nemendafjölda á 1. önn og hversu marga nemendur væri hægt að taka inn. Helga svaraði því til að hægt væri að taka inn að hámarki 25 nemendur sem skýrist að mestu leyti vegna húsnæðisskorts.
Brynja leigufélag ses. (f)
Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Brynju, flutti framsögu og fjallaði m.a. um rekstur Brynju og þau verkefni sem Brynja sinnir. Brynja er sjálfseignarstofnun í atvinnurekstri með sterkan efnahag og eignasafn upp á ríflega 850 íbúðir. Tilgangur félagsins er einfaldur, að kaupa, eiga og reka íbúðarhúsnæði fyrir öryrkja. Lögð er áhersla á hagkvæmt leiguverð.
Fasteignasafnið er verðmætasti hluti eignasafns Brynju og nam það 31 milljarði króna í lok árs 2021. Eigið fé félagsins var 24 milljarðar í lok árs 2021, sem er góður vitnisburður um að haldið hafi verið vel á spöðunum.
Ný stjórn Brynju hefur skilgreint breyttar áherslur varðandi uppbyggingu á eignasafni félagsins og er stefnt á stækkun þess, það er kaup á um 320 íbúðum á næstu 5 árum og er áhersla lögð á að nýta stofnframlög ríkis og sveitarfélaga til uppbyggingarinnar. Til að tryggja fyrirsjáanleika í rekstrinum hefur Brynja gert stefnumarkandi samkomulag við verktaka og óhagnaðardrifin leigufélög og langtímaleigusamninga við sveitarfélög. Það skilar meiri fyrirsjáanleika varðandi kaup og afhendingu íbúða auk þess að tryggja félagslega blöndun.
Helstu áskoranir í rekstri Brynju eru:
- Opnun biðlista, gera ráð fyrir miklum fjölda fólks sem mun skrá sig á biðlista fyrir leiguíbúðum.
- Miklar hækkanir á fasteignamarkaði, sem er drifinn áfram af lágum vöxtum og mikilli umframeftirspurn.
- Aukin verðbólga.
- Verðtryggðir vextir.
Fundarstjóri bauð umræður. Þó nokkrar fyrirspurnir bárust, flestar varðandi fjölgun íbúða á komandi árum, fjármögnun á þeim og leiguverð. Áhyggjur voru hvort leiguverð hækki samhliða fjölgun íbúða á lánum. Framkvæmdastjóri svaraði því til að leigusamningar og leiguverð hefur ekki hækkað samhliða kaupum á nýjum íbúðum og því þyrfti ekki að hafa áhyggjur af hækkun leiguverðs. Einnig var spurt út í hvort kæmi til greina að frysta leiguverð hjá Brynju og sýna fordæmi fyrir önnur leigufélög. Framkvæmdastjóri svaraði því til að það hefði komið til umræðu og þyrfti að skoða betur og gera á mjög hóflegan hátt. Loks var spurt hvort það verði stuðningur til breytinga hjá núverandi leigjendum Brynju ef þeir lenda í óvæntum aðstæðum. Framkvæmdastjóri svaraði því til að notast er við svokallað bráðaúrræði, þ.e. tímabundið húsnæðisúrræði á meðan fólk vinnur úr sínum málum.
Stefna og starfsáætlun stefnuþings (5)
Vegna covid náðist ekki að halda stefnuþing árið 2020. Stefnuþing var því haldið 2021 og til að ná aftur réttum takti var eins dags stefnuþing haldið 1. apríl 2022. Næsta stefnuþing verður haldið árið 2024. Lögð var fram tillaga stefnuþings til aðalfundar (fskj. nr. 15) og hljóðar hún svo:
Gildistími framtíðarsýnar og meginmarkmiða verði til ársins 2030.
Fundarstjóri bauð upp á umræður um tillöguna. Engar urðu þannig að gengið var til kosninga. Tillagan var samþykkt samhljóða.
Ákvörðun aðildargjalda (6)
Fundarstjóri kynnti framkomna tillögu frá stjórn ÖBÍ um að aðildargjöld ÖBÍ yrðu óbreytt fyrir árið 2023, 0 kr. (sjá fskj. nr. 5).
Fundarstjóri tilkynnti jafnframt að ef engin mótmæli væru liti fundarstjóri svo á að tillagan væri samþykkt. Engin mótmæli voru og telst því tillagan samþykkt samhljóða.
Þóknun fyrir stjórnarsetu (7)
Fundarstjóri tók til afgreiðslu tillögu frá stjórn ÖBÍ um þóknun fyrir stjórnarsetu, svohljóðandi (sjá fskj. nr. 6):
Lagt er til að fyrirkomulag við greiðslu þóknunar fyrir fundarsetu fyrir fulltrúa í stjórn ÖBÍ verði óbreytt frá fyrra starfsári:
- Stjórnarmenn ÖBÍ og varamenn fá greiddar 7 einingar fyrir hvern setinn stjórnarfund sem er allt að 2,5 klst. langur. 2 einingar eru fyrir undirbúning fundar og 5 einingar fyrir sjálfan fundinn. Ef forföll eru tilkynnt eru greiddar 2 einingar fyrir undirbúning fundar.
- Fyrir hverja klst. umfram það er greidd ein eining.
- Upphæð þóknunar tekur mið af ákvörðun þóknananefndar ríkisins.
Fundarstjóri boðaði til kosninga. Tillagan var samþykkt samhljóða.
Kl. 18:45 frestaði fundarstjóri fundi til kl. 10 laugardaginn 8. október 2022.
Laugardagur 8. október 2022 – fundi framhaldið
Kosningar í stjórn
Fundarstjóri bauð Alberti Ingasyni, fulltrúa kjörnefndar, að koma upp og segja frá starfi nefndarinnar.
Yfirlit yfir aðalfundarfulltrúa var sent út í fundargögnum og liggur á borðum fundarmanna í sal (fskj. nr. 7) ásamt yfirliti yfir framboð (fskj. nr. 8).
Formaður (8)
Kosið verður 2023.
Varaformaður (9)
Bergþór Heimi Þórðarson, ADHD samtökunum gaf kost á sér í embættið (fskj. nr. 9). Ekki bárust fleiri framboð og því var Bergþór sjálfkjörinn varaformaður ÖBÍ.
Gjaldkeri (10)
Jón Heiðar Jónsson, Sjálfsbjörg lsh. gaf kost á sér í embættið (fskj. nr. 10). Ekki bárust fleiri framboð og því var Jón Heiðar sjálfkjörinn gjaldkeri ÖBÍ.
Formenn fastra málefnahópa (11)
Kosið verður 2023.
Stjórnarmenn (12)
Fundarstjóri kynnti kosningu sjö stjórnarmanna til tveggja ára. Átta höfðu boðið sig fram innan tilskilins frests (fskj. nr. 11 a-h).
Frambjóðendur kynntu sig. Greidd voru atkvæði og skiptust þau á eftirfarandi hátt:
- Eiður Welding, CP félaginu (79%)
- Fríða Bragadóttir, Samtök sykursjúkra (74,2%)
- Guðni Sigmundsson, Sjálfsbjörg lsh. (44,4%)
- Guðrún Barbara Tryggvadóttir, Nýrnafélaginu (77,4%)
- Ingibjörg Snjólaug Snorra Hagalín, MS félagi Íslands (62,9%)
- María Óskarsdóttir, Sjálfsbjörg lsh. (42,7%)
- Sigþór Unnsteinn Hallfreðsson, Blindrafélaginu (77,4%)
- Snævar Ívarsson, Félagi lesblindra á Íslandi (69,4%)
Þessi hlutu kosningu til setu í stjórn ÖBÍ 2022-2024:
Eiður Welding, Guðrún Barbara Tryggvadóttir, Sigþór Hallfreðsson, Fríða Bragadóttir, Snævar Ívarsson, Ingibjörg Hagalín og Guðni Sigmundsson.
Varamenn (13)
Fundarstjóri kynnti kosningu þriggja varamanna til tveggja ára. Þrír höfðu boðið sig fram innan tilskilins frests (fskj. nr. 12 a-c). Eitt framboð til viðbótar barst á fundinum og samþykkti fundurinn framboðið samhljóða.
Frambjóðendur kynntu sig. Greidd voru atkvæði og skiptust þau á eftirfarandi hátt:
- Erla Hlynsdóttir, Tourette-samtökunum (28,31%)
- María Óskarsdóttir, Sjálfsbjörg Ish. (18,15%)
- Óskar Guðmundsson, Einhverfusamtökunum (20,92%)
- Sigríður Halla Magnúsdóttir, Samtökum um endómetríósu (32,31%)
Þessi hlutu kosningu til setu sem varamenn í stjórn ÖBÍ 2022-2024:
- Sigríður Halla Magnúsdóttir, Erla Hlynsdóttir og Óskar Guðmundsson.
Aðrar kosningar til tveggja ára (kosið 2023)
Kjörnefnd (14)
Laganefnd (15)
Skoðunarmenn reikninga og varamenn (16)
Lagabreytingar, aðildarumsóknir, ályktanir, önnur mál
Lagabreytingar (17)
Teknar voru til afgreiðslu tillögur laganefndar til breytinga á lögum ÖBÍ (sjá lög ÖBÍ í fskj. nr. 13 og lagabreytingar í fskj. nr. 14 a-d).
Formaður laganefndar, Herbert Snorrason, kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir störfum og niðurstöðum nefndarinnar. Tilgangur lagabreytinga í ár var að koma í veg fyrir misskilning og samræma lög ÖBÍ lögum um félög til almannaheilla.
Fundarstjóri útskýrði fyrirkomulag kosninga. Hver liður yrði borinn upp til kosninga og í framhaldinu yrði tillagan í heild borin upp til samþykktar. Einfaldur meirihluti réði úrslitum.
Formaður laganefndar kynnti 1. tillögu, sem er breyting á orðalagi í tengslum við lög um félög til almannaheilla (fskj. nr. 14a).
Breyting á 9. grein um aðalfund:
a) Í stað heitisins „Almennt ákvæði“ mun greinin heita „Fundarboðun og aðalfundur“.
b) Orðin „að lágmarki“ bætast inn í 3. málslið.
c) 3. og síðasti málsliður færast framar og verða að 1. og 2. málslið.
d) Við greinina bætist nýr 3. málsliður „Fari fundur fram að hluta eða alfarið um fjarfundarbúnað skal þess getið í fundarboði. Þá skal þess einnig getið ef aðrar reglur gilda um þátttakendur á fjarfundi en um þá sem eru á staðnum.“
e) Setningin „Stjórn boðar til fundarins og skal hann boðaður með a.m.k. tveggja mánaða fyrirvara með bréfi til allra aðildarfélaga.“ verður „Stjórn boðar til fundarins með a.m.k. tveggja mánaða fyrirvara með sannanlegum hætti.“
Fundarstjóri bauð upp á umræður um lagabreytingartillögu. Ein fyrirspurn barst varðandi þátttakendur á fjarfundi og nokkrar umræður urðu um hana. Í kjölfarið lagði Ragnheiður Ríkharðsdóttir formaður Alzheimersamtakanna fram skriflega breytingartillögu á 4. málslið (fskj. 18). Setningin „Þá skal þess einnig getið ef aðrar reglur gilda um þátttakendur á fjarfundi en um þá sem eru á staðnum.“ verði:
„Þess skal jafnframt getið verði tjáningarfrelsi þeirra sem þannig taka þátt takmarkað á einhvern hátt.“
Fundarstjóri bauð umræður um breytingatillöguna en engar urðu. Gengið var til atkvæða. Breytingartillagan var samþykkt samhljóða.
Fundarstjóri bauð umræður um lagabreytinguna með áorðnum breytingum. Einn fundargesta lýsti yfir óánægju sinni með tillöguna og kvað hana ýta undir mismunun. Gengið var til kosninga og var tillagan samþykkt með þorra atkvæða.
9. gr. hljóðar svo eftir samþykktina:
- gr. Fundarboðun og aðalfundur
Fundur er lögmætur sé löglega til hans boðað og að lágmarki helmingur boðaðra fundargesta viðstaddur. Fundarstað og fundartíma skal tilgreina í fundarboði. Fari fundur fram að hluta eða alfarið um fjarfundarbúnað skal þess getið í fundarboði. Þess skal jafnframt getið verði tjáningarfrelsi þeirra sem þannig taka þátt takmarkað á einhvern hátt.
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum bandalagsins. Fundinn skal halda í október ár hvert. Stjórn boðar til fundarins með a.m.k. tveggja mánaða fyrirvara með sannanlegum hætti.
Formaður laganefndar kynnti 2. tillögu í 3 liðum sem ætlað er að lagfæra orðalag í tengslum við lög um félög til almannaheilla (fskj. nr. 14b)
1. liður. Breyting á 2. málsgrein 14. greinar um lagabreytingar.
Hlutfallið „⅔“ breytist í „¾“.
2. liður. Breyting á 1. málsgrein 17. greinar um aukaaðalfund.
Orðið „þriðjungur“ í 2.málslið verður „tíundi hluti“.
1. liður. Breyting á 28. grein um slit bandalagsins.
Hlutfallið „⅔“ breytist í „¾“.
Fundarstjóri bauð umræður um tillöguna en engar urðu. Tillagan var samþykkt samhljóða.
Formaður laganefndar kynnti 3. tillögu, í 3 liðum, sem ætlað er að lagfæra orðalag í tengslum við lög um félög til almannaheilla.
1. liður. Breyting á 2. málsgrein 6. greinar um réttindi og skyldur aðildarfélaga.
Orðið „sbr. 25. gr.“ fellur niður.
2. liður. Breyting á heiti og viðbót við 25. grein um tekjur bandalagsins.
a) Við bætast orðin „“og ráðstöfun þeirra“.
b) Eftirfarandi texti kemur nýr inn sem 1. málsgrein „Reglulegar tekjur bandalagsins koma frá tengdum atvinnurekstri sem stuðlar að markmiðum bandalagsins, Íslenskri getspá, útleigu húsnæðis og aðildargjöldum.“
c) Orðið „og“ fellur út í 1. málslið og kemur „.“ í staðinn.
d) Síðasta setning núgildandi málsgreinar fellur út „Aðalfundur ákveður aðildargjöld félaganna.“
Fundarstjóri opnaði fyrir spurningar og umræður varðandi tillögu 3. Nokkrar fyrirspurnir bárust sem formaður laganefndar svaraði. Gengið var til kosninga og tillagan samþykkt samhljóða.
Formaður laganefndar kynnti 4. tillögu, í 3 liðum, sem unnin var að beiðni stjórnar ÖBÍ.
1. liður. Breyting á 1. málslið 1. og 3. málsgreinar 18. greinar A um kosningu og hlutverk stjórnar.
a) Orðið „fimm“ í 1. málslið 1. málsgreinar breytist í „sex“.
b) Orðið „ellefu“ í 1. málslið 1. málsgreinar breytist í „tíu“.
c) Orðið „fjóra“ í 1. málslið 3. málsgreinar breytist í „þrjá“.
2. liður.Breyting á 1. málslið 1. málsgreinar 23. greinar um málefnahópa.
-
- Orðið „fimm“ í 1. málslið 1. málsgreinar breytist í „sex“.
3. liður.Tímabundið ákvæði bætist við 23. grein um málefnahópa.
-
- Ákvæðið hljóðar svo: „Þar til formaður sjötta málefnahópsins hefur verið kosinn á aðalfundi eftir almennum ákvæðum laganna skal hann hafa sömu stöðu í stjórn ÖBÍ og starfandi formaður fasts málefnahóps.“
Fundarstjóri bauð umræður um tillöguna en engar urðu. Gengið var til kosninga og lagabreytingin var samþykkt samhljóða.
Gengið var til kosninga um lögin í heild sinni með áorðnum breytingum. Lögin voru samþykkt samhljóða.
Aðildarumsóknir (18)
Engar aðildarumsóknir lágu fyrir.
Ályktanir aðalfundar (19)
Ein ályktun barst fyrir fundinn og kynnti formaður ÖBÍ hana (fskj. nr. 16). Ályktunin er svohljóðandi:
Ályktun aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands 2022
Aðalfundur ÖBÍ lýsir þungum áhyggjum af vaxandi framfærsluvanda fatlaðs fólks og skorar á stjórnvöld að hækka örorkulífeyri, draga úr skerðingum vegna atvinnuþátttöku og hækka tekju- og eignamörk.
Lágtekjuvandi fatlaðs fólks hefur lengi verið ærinn, en í verðbólgu sem nú geisar er staðan orðin grafalvarleg. Lífeyrir er allt of lágur og hvati til atvinnuþátttöku lítill. Brotið er á mannréttindum fatlaðs fólks, sem býr við algjöran framfærsluvanda. Það sést meðal annars á því að fatlað fólk er nú 42% þeirra sem leita til Umboðsmanns skuldara og hefur fjölgað hratt í þeim hópi frá 2019.
Við krefjumst þess að það sem út af hefur borið síðustu áratugi verði leiðrétt. Ríkisstjórnin segir í stjórnarsáttmálanum að endurskoða eigi málefni fatlaðs fólks með það að markmiði að bæta lífskjör þess og lífsgæði, afkomu og möguleika til atvinnuþátttöku. Þetta eru falleg orð en nú þarf aðgerðir sem bæta stöðuna strax
– fatlað fólk getur ekki beðið lengur!
ÖRLÖGIN eru í ykkar höndum stjórnvöld
Fundarstjóri bauð umræður um ályktunina. Ein ábending barst þess efnis að inn í tillöguna vantaði einstæða foreldra á örorkulífeyri.
Gengið var til kosninga og ályktunin samþykkt samhljóða.
Önnur mál (20)
A
Bergþór Heimir Þórðarson varaformaður lagði fram tillögu um nýjan fastan málefnahóp ÖBÍ (fskj. nr. 17).
Tillaga um nýjan fastan málefnahóp ÖBÍ fyrir aðalfund 2022:
Á þessum aðalfundi var tillaga til lagabreytingar um að fjölga föstum málefnahópum ÖBÍ úr fimm hópum í sex samþykkt.
Af því tilefni er hér með lagt til að málefnahópur um málefni barna sem skipaður var sem tímabundinn málefnahópur af stjórn verði gerður að föstum málefnahópi.
Fundarstjóri bauð umræður um tillöguna. Fyrirspurnir bárust varðandi mönnun hópsins og hvort að breyta þyrfti ályktun stefnuþings í kjölfarið á samþykkt tillögunnar. Bergþór svaraði því til að málefnahópurinn væri fullmannaður og kæmi skýrt fram í ályktun stefnuþings.
Tillagan var borin upp og samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta.
B
Jóhann Guðvarðarson frá Gigtarfélaginu bað um orðið og óskaði nýkjörnum stjórnarmönnum til hamingju með kjörið. Benti hann á að ræða þyrfti lyfjaskort í landinu innan stjórnar ÖBÍ.
C
Dóra Ingvadóttir frá Gigtarfélaginu greindi frá því að ekki væri skýrt fyrir aðildarfélögin hverjir gætu átt aðild að ÖBÍ og hvernig hægt væri að ganga í ÖBÍ. Nauðsynlegt væri að setja skýran ramma um hvernig eigi að afgreiða aðildarumsóknir.
D
Áslaug Ýr Hjartardóttir frá Fjólu vildi vekja athygli á því að sumir fundarmenn væru blindir, heyrnarlausir eða með aðra fötlun sem gerði það að verkum að þeir þyrftu meiri tíma til að ná því sem fram færi. Mikilvægt væri að flýta sér ekki á aðalfundi.
E
Snævar Ívarsson frá Félagi lesblindra benti á mikilvægi almennilegs háborðs þannig að það sæist vel hver væri í púlti. Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður svaraði og sagði að á þessum fundi hefði verið ákveðið að hafa ekki háborð á palli. Á næsta aðalfundi verður pallur.
Fundarstjórar þökkuðu fyrir sig og afhentu formanni ÖBÍ, Þuríði Hörpu Sigurðardóttur, fundinn.
Fundarlok
Formaður þakkaði aðalfundarfulltrúum fyrir fundarsetuna og bauð nýtt fólk hjartanlega velkomið til starfa. Um leið þakkaði hún fráfarandi stjórnarmönnum fyrir vel unnin störf og óskaði þeim velfarnaðar og kvaðst hlakka til að sjá þau áfram í baráttunni. Þá þakkaði formaður fundarstjórum og fundarriturum fyrir góð störf sem og starfsfólki ÖBÍ. Að lokum hvatti hún félaga til þess að vera stórhuga, leiða breytingar, vera breytingin og halda áfram góðum störfum.
Formaður sleit fundi kl. 12:47.
Fylgiskjöl:
1. Dagskrá aðalfundar ÖBÍ 7. og 8. október 2022
2. Ársskýrsla ÖBÍ 2021 til 2022
3. Ársreikningur ÖBÍ 2021
4. Ársreikningur fyrirtækja 2021
a) Brynja Hússjóður Öryrkjabandalagsins
b) Örtækni
c) Hringsjá
d) Fjölmennt
5. Ákvörðun aðildargjalda
6. Þóknun fyrir stjórnarsetu
7. Listi yfir aðalfundarfulltrúa aðildarfélaga ÖBÍ
8. Yfirlit yfir framboð til embætta 2022
9. Kynning frambjóðanda til varaformanns (1)
10. Kynning frambjóðanda til gjaldkera (1)
11. a) til h) Kynningar frambjóðenda til stjórnar (8)
12. a) til c) Kynningar frambjóðenda til varamanna stjórnar (3)
13. Lög Öryrkjabandalags Íslands samþykkt 16. október 2021
14. a) til d) Lagabreytingatillögur laganefndar (4)
15. Tillaga stefnuþings til aðalfundar ÖBÍ 2022
16. Ályktun aðalfundar ÖBÍ 2022
17. Tillaga um 6. fasta málefnahóp ÖBÍ
18. Tillaga Ragnheiðar Ríkharðsdóttur um breytingu á 9. gr. laga ÖBÍ
(Kynningum frambjóðenda er raðað eftir stafrófsröð ef framboð eru fleiri en eitt)
Aðalfundur 2021
Fundargerð
Fundargerð aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands, haldinn á Hilton Reykjavík Nordica 15. október 2021, kl. 16:00-19:00, og 16. október 2021, kl. 10:00-17:00.
Ávarp formanns, fundarsetning
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, setti fundinn kl. 16:05 og bauð fundargesti í sal sem og á Zoom hjartanlega velkomna. Formaður brýndi fyrir gestum að huga vel að sóttvörnum vegna Covid-19.
Á síðasta aðalfundi árið 2020 var í fyrsta sinn kosið með rafrænu kosningakerfi sem gekk vonum framar og því var ákveðið að nota það einnig í ár.
Á starfsárinu var ráðist í mikla stefnumótun hjá bandalaginu og einnig var unnin greining á virkni á skipulagi skrifstofu ÖBÍ og tillögur gerðar um breytingar. Lilja Þorgeirsdóttir framkvæmdastjóri ÖBÍ til síðustu 13 ára var kvödd og við starfi hennar tók Eva Þengilsdóttir.
Formaður lagði til að Eyvindur Elí Albertsson og Ríkey Jóna Eiríksdóttir yrðu fundarstjórar og var það samþykkt. Formaður lagði til að Helga Guðmundsdóttir og Ragnheiður Ásta Sigurðardóttir rituðu fundargerð og var það samþykkt. Þá bauð formaður fundarstjórum að taka við fundinum.
Fundarstjórar þökkuðu traustið, buðu gesti velkomna og kynntu dagskrá fundarins (fskj. nr. 1). Fundarstjóri tilkynnti að samkvæmt venju væri fulltrúum málefnahópa, stjórnar og hreyfinga ÖBÍ boðið að sitja fundinn sem áheyrnarfulltrúar.
Almenn fundarstörf
Skýrsla stjórnar (1)
Formaður flutti skýrslu stjórnar (fskj. nr. 2 – Ársskýrsla ÖBÍ 2020 til 2021. Skýrsla formanns og stjórnar, bls. 9-35) og sagði meðal annars frá eftirfarandi atriðum:
Heimsfaraldur Covid 19 setti mark sitt á starf bandalagsins á þessu ári líkt og á árinu 2020. Segja mætti að aðlögunarhæfni gæti verið orð ársins, að minnsta kosti hvað varðar starfsemi ÖBÍ. ÖBÍ leitaði allra leiða til þess að halda baráttumálum þess hátt á lofti og nýtti til þess ýmsa miðla, auglýsti, skrifaði, talaði og hélt fjarfundi. Þau málefni sem hæst báru á starfsári bandalagsins voru kjaramál, aðgengismál og geðheilbrigðismál.
Bandalagið varð 60 ára á árinu. Heimsfaraldurinn kom í veg fyrir hátíðarhöld á sjálfan afmælisdaginn 5. maí en ÖBÍ minntist þó dagsins á áberandi hátt. Fjórblöðungur ÖBÍ, þar sem athyglinni var beint að því hve miklir eftirbátar við Íslendingar erum hinum Norðurlandaþjóðunum í velferðarmálum, fylgdi Fréttablaðinu og barst inn um lúgur landsmanna 8. maí. Þó nokkur umræða skapaðist í kjölfarið á þessum bæklingi ásamt skýrslu Stefáns Ólafssonar um íslenska lífeyriskerfið í samanburði við hin norrænu kerfin. Þann 5. september var haldinn afmælisfögnuður. Forseti Íslands var heiðursgestur og Sif Holst, varaformaður dönsku systursamtaka ÖBÍ, hélt fyrirlestur. Veittar voru 18 viðurkenningar til baráttufélaga sem unnið hafa fyrir bandalagið í áratug eða meira. Guðríður Ólafs Ólafíudóttir fékk heiðursviðurkenningu fyrir langt og mikilvægt starf í þágu fatlaðs fólks.
Í tíð síðustu ríkisstjórnar gerðist það að örorkulífeyrir varð lægri en atvinnuleysisbætur og munar nú tæpum 50.000 kr. ÖBÍ lagði áherslu á hækkun örorkulífeyris í öllum samskiptum við stjórnvöld og hækkun frítekjumarks vegna atvinnutekna, sem sagt að verulega yrði dregið úr skerðingum vegna tekna öryrkja. Þar að auki kallaði ÖBÍ eftir tímasettri áætlun frá stjórnvöldum um hækkun örorkulífeyris til jafns við lágmarkslaun.
Stór áfangi náðist þegar örorku- og endurhæfingargreiðslur hækkuðu 1. janúar 2021 hjá rétt um 7.800 manns um 8.000 kr. umfram vísitöluhækkun. Strax og ríkisstjórnin hafði kynnt aðgerðir sínar um hækkun örorku- og endurhæfingarlífeyris til þeirra sem engar aðrar tekjur hafa var ljóst að þrýsta þyrfti á að tekjuviðmið yrðu hækkuð í kjölfarið til að hækkanirnar hyrfu ekki í vasa sveitarfélaganna. ÖBÍ, ASÍ og BSRB leiddu saman hesta sína og vöktu athygli stjórnvalda á þessu. Þetta leiddi til þess að við lokaafgreiðslu fjárlaga var samþykkt að hækka húsnæðisbætur um 250 milljónir. Auk þess var um 100 milljón kr. tímabundin hækkun framlags til húsnæðisbóta samþykkt. Þetta þýddi að hækkun örorkulífeyris eftir áramót hafði ekki þau kveðjuverkandi áhrif að lækka húsaleigubætur eða sérstakar húsaleigubætur. Ómetanlegt er að hafa stuðning launahreyfingarinnar í kjarabaráttunni.
Á árinu var farið í mótun á heildarstefnu fyrir ÖBÍ. Ráðgjafafyrirtækið Arcur sá um stefnuþing ÖBÍ og stefnumótunina en vinnunni lauk með kynningu fyrir stjórn ÖBÍ í ágúst. Stefnan var unnin í víðtæku samráði við aðildarfélög og fulltrúa í málefnahópum ÖBÍ ásamt stjórn. Undir lokin var unnin greining á virkni og skipulagi skrifstofu ÖBÍ og tillögur gerðar um breytingar.
Tillaga stefnuþings og niðurstaða vinnu ráðgjafa er að stefna ÖBÍ verði byggð upp í kringum níu meginmarkmið: Skilvirk heilbrigðisþjónusta, öflug atvinnuþátttaka, nám fyrir alla, gott aðgengi, sjálfsögð réttindi, góð lífskjör, merkingarbært samráð, sterk jákvæð ímynd og víðtæk þátttaka. Hvert og eitt þessara meginmarkmiða á að stuðla að langtíma umbótum og jákvæðum breytingum. Á grunni hvers meginmarkmiðs eru kynntar áherslur stefnunnar sem varða götuna fram á við í sértækum málefnum. Áherslurnar eiga að geta stutt við og veitt leiðsögn um fjölmörg verkefni bæði á vettvangi málefnahópa en einnig til verkefna innan aðildarfélaga.
Aðgengismál fengu talsverða athygli í samfélaginu, bæði hjá stjórnmálamönnum og almenningi. Í maí 2021 undirrituðu formaður ÖBÍ, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, félags- og barnamálaráðherra og formaður og framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga samkomulag um stórátak um úrbætur í aðgengismálum fyrir fatlað fólk. Í kjölfarið réð ÖBÍ verkefnisstjóra til starfa sem er tengiliður aðgengisfulltrúa sveitarfélaganna og mun vinna með þeim að áríðandi verkefnum. Verkefnið er tímabundið til loka ársins 2022 og verður metið í lokin hvort því verði haldið áfram. Meðal verkefna sem unnið hefur verið að eru endurbætur á strætóbiðstöðvum og eins var sett upp hjólastólalyfta á Bessastöðum.
ÖBÍ lagði sérstaka áherslu á geðheilbrigðismál á starfsárinu og hefur þrýst mjög á innleiðingu og fjármögnun á sálfræðiþjónustu. Í ljósi þess að andleg veikindi hrjá um 40% af ungu fólki þá er það fjárfesting til framtíðar að niðurgreiða sálfræðiþjónustu fyrir ungt fólk. ÖBÍ vakti athygli á málinu með greinaskrifum og auglýsingaherferð.
ÖBÍ vakti einnig athygli á því að þegar börn fatlaðs fólks ná 18 ára aldri og eru ekki í skóla fellur heimilisuppbót niður og því neyðast margir til að reka börn sín að heiman. Ráðherra breytti þessari reglugerð þannig að börn mega nú búa heima til 25 ára aldurs án þess að sú búseta hafi áhrif á heimilisuppbót foreldris, séu þau í fullu námi. ÖBÍ vinnur að því breyta þessu þannig að orðalagið fullt nám verði fellt úr reglugerðinni.
Stærstu áfangasigrarnir í hagsmunabaráttunni virðast ekki nást nema með atbeina dómstóla. Fjöldi mála er annaðhvort í undirbúningi til málshöfðunar eða nú þegar í meðförum dómstóla.
Vorið 2021 var samið við Vörðu rannsóknastofnun vinnumarkaðarins um að gera spurningakönnun um fjárhagsstöðu fatlaðs fólks, heilsu þess, líðan og þátttöku á vinnumarkaði. Mikilvægt er að meta stöðu öryrkja og þeirra sem þiggja örorkustyrk eða endurhæfingarlífeyri.
Að lokum sagði formaður frá því að ljóst væri að baráttan mun halda áfram þar sem fjölmörg hagsmunamál bíða úrlausnar. Hún þakkaði starfsmönnum, aðildarfélögum og málefnahópum fyrir góð störf á árinu og hvatti alla til þess að „vera breytingin“.
Fundarstjóri bauð umræður um skýrslu stjórnar og nokkrar fyrirspurnir og ábendingar bárust meðal annars í sambandi við aðgengismál og dómsmál. Ennfremur var bent á að alzheimer sjúklingar falla oft á milli sveitarfélaganna og félagslega kerfisins. Spurt var hvort það væri fötlun að greinast með heilabilun og hvort ÖBÍ sjái fyrir sér að þessi hópur falli undir bandalagið? Formaður taldi ljóst að alzheimer væri fötlun og alzheimer sjúklingar ættu klárlega heima hjá ÖBÍ.
Ársreikningur ÖBÍ (2)
Bryndís Björk Guðjónsdóttir, endurskoðandi frá PwC ehf., kynnti ársreikning ÖBÍ fyrir árið 2020 (fskj. nr. 3 – Ársreikningur ÖBÍ 2020).
Það var álit endurskoðanda að reikningurinn gæfi glögga mynd af afkomu félagsins á árinu, efnahag og breytingum á haldbæru fé í árslok 2020. Ársreikningurinn var áritaður án fyrirvara af endurskoðanda og skoðunarmönnum.
Endurskoðandi fór yfir helstu meginatriði ársreikningsins:
Rekstrartekjur ársins 2020 voru 921,5 milljónir í stað rúmlega 706 milljónir árið 2019.
Rekstrargjöld ársins 2020 voru svipuð og árið áður, eða 322,1 milljónir 2019 í stað 322,2 milljónir árið 2018.
Rekstrarafkoma ársins 2020 fyrir fjármunatekjur og -gjöld var 599,4 milljónir, en var tæplega 384 milljónir árið 2019
Rekstrarafkoma ársins 2020, að meðtöldum fjármunatekjum og veittum styrkjum, var jákvæð um 78 milljónir, í stað ríflega 4,6 milljóna halla árið áður.
Efnahagshluti reikningsins breyttist ekki mikið á milli ára. Varanlegir fastafjármunir voru 309,6 milljónir 2020 samanborið við 317,5 milljónir árið áður og jukust langtímakröfur úr 207 milljónum árið 2019 í 214 milljónir árið 2020. Þar var fyrst og fremst um að ræða bundnar innistæður.
Fastafjármunir samtals voru því 523 milljónir 2020 í stað 525 milljóna árið áður.
Veltufjármunir voru 275 milljónir 2020 í stað 304 milljóna 2019 og voru eignir því samtals 798 milljónir árið 2020, í stað 829 milljóna 2019.
Eigið fé og skuldir voru samtals 798 milljónir árið 2020 í stað 829 milljóna árið áður. Það skiptist í óráðstafað eigið fé, sem var 686 milljónir 2020 í stað 608 milljóna árið áður, og skuldir, sem voru samtals 112 milljónir 2020 í stað 221 milljón árið 2019. Helsta skýring á lækkun skulda milli ára er lækkun skammtímaskulda vegna þess að í lok árs 2019 var ekki búið að gera upp við Brynju hússjóð en uppgjörið 2020 við Brynju fór fram fyrir árslok.
Handbært fé í árslok 2020 var því 175,6 milljónir, í stað 227,6 milljóna árið áður.
Vísaði endurskoðandi í greinargóðar skýringar í ársreikningi á blaðsíðu 11-20 til frekari glöggvunar.
Fundarstjóri opnaði fyrir umræður um reikninga ÖBÍ. Til svara voru gjaldkeri ÖBÍ, Jón Heiðar Jónsson, og framkvæmdastjóri ÖBÍ, Eva Þengilsdóttir.
Jón Heiðar Jónsson gjaldkeri sagði að Covid hefði m.a. haft áhrif á það að rekstrargjöld hafa sveiflast til. Kostnaður vegna aðkeyptrar þjónustu og rannsókna hefur hækkað á meðan kostnaður vegna funda, ráðstefna, auglýsinga og kynninga lækkaði.
Frekari umræður og fyrirspurnir voru ekki og bar fundarstjóri reikninginn upp til atkvæða. Ársreikningur ÖBÍ 2020 var samþykktur samhljóða.
Skýrslur fastra málefnahópa (3)
Skýrslur málefnahópa ÖBÍ voru birtar í Ársskýrslu ÖBÍ 2020-2021 sem var dreift á fundinum (fskj. nr. 2, bls. 40-46 og 67). Formenn málefnahópa kynntu sig og klöppuðu fundargestir fyrir þeim og starfi málefnahópanna.
Skýrslur fyrirtækja (4)
Skýrslur fyrirtækja lágu frammi (fskj. nr. 2, bls. 49-54) og ársreikninga fyrirtækja má sjá í fylgiskjölum 4a-4d. Fundarstjóri bauð umræður um skýrslurnar.
BRYNJA, hússjóður Öryrkjabandalagsins (a)
Flóki Ásgeirsson staðgengill formanns stjórnar Brynju var til svara. Nokkrar fyrirspurnir bárust. Spurt var um málarekstur Brynju við Reykjavíkurborg og svaraði Flóki því til að dómsmál væri rekið á milli þessara aðila og að niðurstöðu væri að vænta á næstu vikum.Bent var á að skv. ársreikningi Brynju sést að mikil aukning hefur verið í óráðstöfuðu eigin fé Brynju. Er það hlutverk Brynju að safna hagnaði fremur en að kaupa íbúðir? Flóki svaraði því að það sé svo sannarlega hlutverk Brynju að fjárfesta í íbúðum en það ferli sé hins vegar langt og tímafrekt. Uppsöfnun hefur orðið en stefnt er að því að fjárfesta í íbúðarhúsnæði fyrir þá hópa sem þurfa. Mikilvægt er að hafa í huga að Brynja getur ekki keypt hvaða húsnæði sem er, huga þarf að aðgengismálum, staðsetningu og mörgu fleiru.
Að lokum barst fyrirspurn frá íbúa í Hátúni hvort fyrirhugað væri að halda íbúafund á milli Brynju húsfélags og íbúa Hátúns. Flóki mun koma ábendingunni áleiðis.
Örtækni (b)
Þorsteinn Jóhannsson, framkvæmdastjóri, var til svara, ein fyrirspurn barst varðandi framlög Vinnumálastofnunar (VMST) til Örtækni og hvort að fjölgun hefði orðið á störfum á vegum Örtækni. Þorsteinn svaraði því til að gert hefur verið samkomulag á milli VMST og sveitarfélaganna. Samkomulagið er mjög óljóst sem gerir það að verkum að mikil togstreita er á milli þessara aðila. Framlög til Örtækni hafa verið þau sömu síðustu 6 árin.
Þuríður Harpa, formaður, þakkaði Þorsteini sérstaklega fyrir mjög vel unnin störf í gengum langan og farsælan starfsferil (28 ár) og óskaði honum alls hins besta um ókomna tíð.
Hringsjá (c)
Helga Eysteinsdóttir, forstöðumaður, var til svara, en engar fyrirspurnir bárust.
TMF – Tölvumiðstöð (d)
Rúnar Björn Herrera, stjórnarformaður, var til svara, en engar fyrirspurnir bárust.
Fjölmennt (e)
Helga Gísladóttir, forstöðumaður, var til svara, en engar fyrirspurnir bárust.
Íslensk getspá (f)
Bergur Þorri Benjamínsson, fulltrúi ÖBÍ í stjórn ÍG, var til svara, en engar fyrirspurnir bárust.
Stefna og starfsáætlun stefnuþings (5)
Á árinu var farið í mótun á heildarstefnu fyrir ÖBÍ og sá ráðgjafafyrirtækið Arcur um stefnumótunina og stefnuþing ÖBÍ, sem haldið var í apríl 2021. Vinnunni lauk með kynningu á stefnu fyrir stjórn ÖBÍ í ágúst. Stefnan var unnin í víðtæku samráði við aðildarfélög og fulltrúa í málefnahópum ÖBÍ ásamt stjórn. (Stefnuskjal ÖBÍ var sent út til fundarfulltrúa fyrir fundinn, fskj. nr. 20.)
Arnar Pálsson, ráðgjafi hjá Arcur, sagði frá vinnu stefnuþings, sem að þessu sinni var rafrænt vegna Covid. Lögð var fram framtíðarsýn ÖBÍ og tillögur að áherslum og markmiðum bandalagsins til næstu ára. Næstu skref eru að málefnahóparnir noti þessa framtíðarsýn og áherslur í starfi sínu.
Framtíðarsýn ÖBÍ er að standa vörð um réttindi fatlaðra einstaklinga og aðstandenda þeirra í kraftmiklu samstarfi við stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila. Stefna ÖBÍ 2020-2022 er byggð upp i kringum níu meginmarkmið:
- Skilvirk heilbrigðisþjónusta
- Öflug atvinnuþátttaka
- Nám fyrir alla
- Gott aðgengi
- Sjálfsögð réttindi
- Góð lífskjör
- Merkingarbært samráð
- Sterk jákvæð ímynd
- Víðtæk þáttaka
Leiðarstef þessara meginmarkmiða er líf til jafns til aðra. Þau hafa verið tengd við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem og Samning Sameinuðu þjóðanna um fatlað fólk. Á stefnuþingi 2021 voru 6 forgangsáherslur samþykktar út frá þessum 9 meginmarkmiðum og munu málefnahóparnir vinna eftir þeim og hjálpa til við að velja réttu verkefnin og ná markmiðunum.
Fundarstjóri bauð upp á fyrirspurnir og umræður en engar urðu.
Gengið var til kosninga um áherslur stefnuþings. 101 (99%) samþykkti áherslurnar.
- Málefnahópur um heilbrigðismál
- Málefnahópur um kjaramál
- Málefnahópur um húsnæðismál
- Málefnahópur um málefni barna
- Málefnahópur um aðgengismál
Breytingartillaga barst frá stjórn ÖBÍ og hljóðar hún svo:
Stjórn ÖBÍ leggur til að tillögu stefnuþings um fasta málefnahópa næstu ára verði breytt þannig að málefnahópur um atvinnu- og menntamál verði áfram fastur málefnahópur í stað þess að tímabundinn málefnahópur um málefni barna verði gerður að föstum málefnahópi.
- Málefnahópur um heilbrigðismál
- Málefnahópur um kjaramál
- Málefnahópur um húsnæðismál
- Málefnahópur um atvinnu- og menntamál
- Málefnahópur um aðgengismál
Fundarstjóri bauð uppá umræður um tillögurnar. Líflegar umræður urðu og spurt var af hverju málefnahópur um málefni barna ætti ekki að vera fastur. Formaður svaraði því til að ÖBÍ vildi leggja áherslu á fullorðið fólk þar sem meginþorri félagsmanna væru fullorðið fólk. Varaformaður bætti við að hópurinn muni starfa áfram þótt hann verði ekki fastur málefnahópur.
Gengið var til kosninga um breytingartillögu stjórnar. 82 samþykktu eða 85,42% fundarmanna og 9 sögðu nei eða 9,38%. Breytingartillagan telst því samþykkt.
Því næst var tillagan um það hverjir fastir málefnahópar ÖBÍ eigi að vera á næstu árum borin fram aftur með áorðnum breytingum. Fundarstjóri bauð umræður en engar urðu. Gengið var til kosninga og var tillagan samþykkt með afgerandi meirihluta atkvæða (91%).
Ákvörðun aðildargjalda (6)
Fundarstjóri kynnti framkomna tillögu frá stjórn ÖBÍ um að aðildargjöld ÖBÍ yrðu óbreytt, 0 kr. (sjá fskj. nr. 5).
Fundarstjóri tilkynnti jafnframt að ef engin mótmæli væru liti fundarstjóri svo á að tillagan væri samþykkt. Engin mótmæli voru og telst því tillagan samþykkt.
Þóknun fyrir stjórnarsetu (7)
Fundarstjóri tók til afgreiðslu tillögu frá stjórn ÖBÍ um þóknun fyrir stjórnarsetu, svohljóðandi (sjá fskj. nr. 6):
Lagt er til að fyrirkomulag við greiðslu þóknunar fyrir fundarsetu fyrir fulltrúa í stjórn ÖBÍ verði eftirfarandi:
- Stjórnarmenn ÖBÍ og varamenn fá greiddar 7 einingar fyrir hvern setinn stjórnarfund sem er allt að 2,5 klst. langur. 2 einingar eru fyrir undirbúning fundar og 5 einingar fyrir sjálfan fundinn. Ef forföll eru tilkynnt eru greiddar 2 einingar fyrir undirbúning fundar.
- Fyrir hverja klst. umfram það er greidd ein eining.
- Upphæð þóknunar tekur mið af ákvörðun þóknananefndar ríkisins sem er 2.502 kr. á hverja einingu, miðað við apríl 2020.
Fundarstjóri bauð umræður. Ein fyrirspurn barst varðandi einingakerfið á bak við tillöguna. Framkvæmdastjóri svaraði og útskýrði hugmyndina að baki einingakerfisins. Tillagan var samþykkt með þorra atkvæða.
Kl. 18:44 frestaði fundarstjóri fundi til kl. 10 laugardaginn 16. október 2021.
Laugardagur 16. október 2021 – fundi framhaldið
Kosningar í stjórn
Yfirlit yfir aðalfundarfulltrúa var sent út í fundargögnum og liggur á borðum fundarmanna í sal (fskj. nr. 7) ásamt yfirliti yfir framboð (fskj. nr. 8).
Formaður kjörnefndar Jón Þorkelsson greindi frá starfi nefndarinnar. Starfið gekk vel og náðist að finna fólk í öll laus embætti.
Formaður (8)
Þuríður Harpa Sigurðardóttir frá Sjálfsbjörg lsh. gaf kost á sér til næstu 2ja ára (fskj. nr. 9). Ekki bárust fleiri framboð til formanns og var Þuríður Harpa því sjálfkjörin sem formaður Öryrkjabandalags Íslands.
Varaformaður (9)
Kosið verður 2022.
Gjaldkeri (10)
Kosið verður 2022.
Formenn fastra málefnahópa (11)
Kosið var um formenn fastra málefnahópa sem samþykktir voru undir lið 5 (fskj. nr. 10-13).
Málefnahópur um aðgengismál: Bergur Þorri Benjamínsson frá Sjálfsbjörg lsh. var einn í framboði og var því sjálfkjörinn sem formaður málefnahóps um aðgengismál.
Málefnahópur um atvinnu-og menntamál: Hrönn Stefánsdóttir frá Gigtarfélagi Íslands var ein í framboði og var því sjálfkjörin sem formaður málefnahóps um atvinnu- og menntamál.
Málefnahópur um heilbrigðismál: Vilhjálmur Hjálmarsson frá ADHD samtökunum var einn í framboði og var því sjálfkjörinn sem formaður málefnahóps um heilbrigðismál.
Málefnahópur um kjaramál: Atli Þór Þorvaldsson frá Parkinsonsamtökunum var einn í framboði og var því sjálfkjörinn sem formaður málefnahóps um kjaramál.
Málefnahópur um húsnæðismál: María Pétursdóttir frá MS félagi Íslands var ein í framboði og var því sjálfkjörin sem formaður málefnahóps um húsnæðismál.
Stjórnarmenn (12)
Fundarstjóri kynnti kosningu fjögurra stjórnarmanna til tveggja ára. Sjö höfðu boðið sig fram innan tilskilins frests (fskj. nr. 14 a-g).
Frambjóðendur kynntu sig. Greidd voru atkvæði og skiptust þau á eftirfarandi hátt:
- Hjördís Ýrr Skúladóttir, MS félagi Íslands, 85 atkvæði (21,85%)
- Albert Ingason, SPOEX, 70 atkvæði (17,99%)
- María M.B. Olsen, Gigtarfélagi Íslands, 56 atkvæði (14,4%)
- Fríða Rún Þórðardóttir, Astma- og ofnæmisfélagi Íslands, 55 atkvæði (14,14%)
- Guðrún Barbara Tryggvadóttir, Nýrnafélaginu, 55 atkvæði (14,14%)
- María Óskarsdóttir, Sjálfsbjörg lsh., 37 atkvæði (9,51%)
- Frímann Sigurnýasson, Vífli, 31 atkvæði (7,97%)
Þar sem Fríða Rún og Guðrún Barbara hlutu jafnmörg atkvæði þurfti að skera úr um hvor fær sætið. Samkvæmt lögum ÖBÍ skal hlutkesti ráða, nema tillaga komi fram um annað. Fundurinn vildi kjósa og var niðurstaða kosninganna sú að Fríða Rún Þórðardóttir hlaut kosningu (53%) og var því kjörin stjórnarmaður.
Þessi hlutu kosningu til setu í stjórn ÖBÍ 2021-2023: Albert Ingason, Fríða Rún Þórðardóttir, Hjördís Ýrr Skúladóttir og María M.B. Olsen.
Varamenn (13)
Engin framboð til varamanna bárust fyrir fundinn. 2 sæti voru laus og bauð fundarstjóri áhugasömum fundarmönnum 5 mínútur til að skila inn framboðum á fundinum.
4 framboð bárust og skiptust atkvæðin á eftirfarandi hátt:
- Frímann Sigurnýasson, Vífli, 37, atkvæði (18,5%)
- Guðrún Barbara Tryggvadóttir, Nýrnafélaginu, 92 atkvæði (46%)
- Herbert Snorrason, ADHD samtökunum, 32 atkvæði (16%)
- María Óskarsdóttir, Sjálfsbjörg lsh., 39 atkvæði (19,5%)
Niðurstaða kosninganna var sú að Guðrún Barbara Tryggvadóttir og María Óskarsdóttir hlutu kosningu sem varamenn til næstu tveggja ára.
Aðrar kosningar til tveggja ára
Kjörnefnd (14)
Fimm buðu sig fram í embætti aðalmanna í kjörnefnd (fskj. nr. 15 a-g):
- Albert Ingason, SPOEX
- Dagný Erna Lárusdóttir, Astma- og ofnæmisfélagi Íslands
- Jón Þorkelsson, Stómasamtökum Íslands
- Sigurbjörg Ármannsdóttir, MS félagi Íslands
- Sigrún Birgisdóttir, Einhverfusamtökunum
Tveir buðu sig fram til embættis varamanna í kjörnefnd:
- Dóra Ingvadóttir, Gigtarfélagi Íslands
- Einar Þór Jónsson, HIV Íslandi.
Ekki bárust fleiri framboð í kjörnefnd og voru því áðurnefndir aðilar sjálfkjörnir.
Laganefnd (15)
Sex framboð bárust til aðalmanna í laganefnd (fskj. nr. 16 a-f). Greidd voru atkvæði og skiptust þau á eftirfarandi hátt:
- Herbert Snorrason, ADHD samtökunum, 62 atkvæði ( 14,76%)
- Jóhann Guðvarðarson, Gigtarfélagi Íslands, 76 atkvæði (18,1%)
- María Óskarsdóttir, Sjálfsbjörg Ish., 68 atkvæði (16,19%)
- Ólafur Árnason, Parkinsonsamtökunum, 51 atkvæði (12,14%)
- Ragnar Davíðsson, Nýrri rödd, 78 atkvæði (18,57%)
- Sævar Guðjónsson, Heilaheillum, 83 atkvæði (19,76%)
Niðurstaða kosninganna var sú að Herbert Snorrason, Jóhann Guðvarðarson, María Óskarsdóttir, Ragnar Davíðsson og Sævar Guðjónsson hlutu kosningu sem aðalmenn í laganefnd til næstu tveggja ára.
Fimm framboð bárust til varamanna í laganefnd. Greidd voru atkvæði og skiptust þau á eftirfarandi hátt:
- María Pétursdóttir, MS félaginu, 36 atkvæði (18,56%)
- Ólafur Árnason, Parkinsonsamtökunum, 20 atkvæði (10,31%)
- Ásta Þórdís Skjalddal, Sjálfbjörg lsh., 52 atkvæði ( 26,8%)
- Eiður Welding, CP á Íslandi, 40 atkvæði (20,62%)
- Sigurður Helgason, Hjartaheillum, 46 atkvæði (23,71%)
Niðurstaða kosninganna var sú að Ásta Þórdís Skjalddal og Sigurður Helgason náðu kjöri sem varamenn í laganefnd til næstu tveggja ára.
Skoðunarmenn reikninga og varamenn (16)
Tvö framboð bárust til skoðunarmanna reikninga (fskj. nr. 17 a-b):
- Árni Sverrisson, Alzheimersamtökunum á Íslandi
- Ingveldur Jónsdóttir, MS félagi Íslands
Tvö framboð bárust til varamanna skoðunarmanna reikninga:
- Grétar Pétur Geirsson, Sjálfsbjörg lsh.
- Guðmundur Rafn Bjarnason, Blindrafélaginu
Ekki bárust fleiri framboð og voru áðurnefndir aðilar því sjálfkjörnir.
Lagabreytingar, aðildarumsóknir, ályktanir, önnur mál
Lagabreytingar (17)
Teknar voru til afgreiðslu tillögur til breytinga á lögum ÖBÍ sem borist höfðu laganefnd fyrir aðalfund (sjá lög ÖBÍ í fskj. nr. 18 og lagabreytingar í fskj. nr. 19 a-c).
Formaður laganefndar, Bergþór Heimir Þórðarson, kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir störfum og niðurstöðum nefndarinnar. Í byrjun starfsársins ákvað laganefnd að leggja áherslu á lagfæringar og einföldun á lögum bandalagsins og eru lagabreytingarnar afurð þeirrar vinnu. Laganefnd fór einnig yfir lögin með tilliti til áhrifa stefnumótunarvinnunnar.
Fundarstjóri útskýrði fyrirkomulag kosninga. Hver liður verður borinn upp til kosninga, síðan verður tillagan í heild borin upp til samþykktar. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum.
Formaður laganefndar kynnti 1. tillögu, sem er tiltekt á lögum í 8 liðum (fskj. nr. 19a). Tilgangur tillögunnar er tiltekt í félagslögum ÖBÍ. Tillögunni er meðal annars ætlað að fella á brott úreltar greinar, samræma orðalag og innleiða fyrstu skref til samræmingar við ný lög um félög til almannaheilla.
b. Bráðabirgðaákvæði greinarinnar fellur brott.
Tillagan var samþykkt með miklum meirihluta atkvæða.
Í stað orðanna „atkvæðisbærra aðalfundarfulltrúa“ í 2.málslið greinarinnar kemur „greiddra atkvæða“.
Fyrirspurn barst varðandi ⅔ regluna og hvort að ekki væri ákvæði í lögunum sem fjallar um kosningar og hvernig þær skulu fara fram. Formaður laganefndar svaraði því til að hvergi væri skilgreint á einum stað hvað aukinn meirihluti er.
Tillagan var samþykkt með afgerandi meirihluta atkvæða.
Á undan orðunum „aðal- og varafulltrúar“ í 2. málslið, 1. málsgreinar kemur orðið „lögráða“.
Fundinum barst breytingartillaga frá Svavari Kjarrval varðandi 3. lið lagabreytingartillögunnar og lagði Svavar til að eftirfarandi málsliður myndi bætast aftan við 1. mgr. 12. gr:
Framangreind krafa um lögræði á ekki við um kjörgengi í laganefnd og kjörnefnd.
Fundarstjóri óskaði eftir stuðningsmanni við tillögu Svavars sem barst. Óskuðu fundargestir eftir skýringu á tillögu laganefndar sem og breytingartillögu Svavars. Nokkrar umræður urðu um málið. Ástæða tillögu laganefndar er sú að lög bandalagsins séu í samræmi við lög um félög til almannaheilla. Ástæða tillögu Svavars er að bæði laganefnd og kjörnefnd eru vinnuhópar og hafa ekkert lagalegt vald.
Gengið var til atkvæðagreiðslu um breytingartillögu Svavars og var hún samþykkt með 53% greiddra atkvæða.
Kosið var um tillöguna í heild sinni með áorðnum breytingum og var hún samþykkt með meirihluta atkvæða (77,78%).
b. Aftan við 2. málslið, 4. mgr. á eftir orðinu „aðalfundar“ bætist við „með ⅔ hluta greiddra atkvæða“.
Fundinum barst breytingartillaga frá Höllu Þorkelsdóttur:
Í stað „með að minnsta kosti ⅔ hluta greiddra atkvæða“ komi „með meirihluta greiddra atkvæða“.
Umræður voru um tillögurnar áður en gengið var til atkvæða. Breytingartillagan var samþykkt með 61,29% greiddra atkvæða.
Kosið var um tillöguna í heild sinni með áorðnum breytingum og var hún samþykkt með meirihluta atkvæða (82,65%).
Í stað orðanna „atkvæðisbærra aðalfundarfulltrúa“ í 2. mgr. 14. gr. kemur „hluta greiddra atkvæða“.
Tillagan var samþykkt með afgerandi meirihluta atkvæða (95,7%).
c. 2. mgr. orðast svo: „Tillögum sem berast eftir að fundur er hafinn er hægt að koma á dagskrá aðalfundar með samþykki a.m.k. 2/3 greiddra atkvæða.“
Tillagan var samþykkt með afgerandi meirihluta atkvæða (96,81%).
Í stað orðanna „atkvæðisbærra aðalfundarfulltrúa“ í 2. málslið 28. greinar kemur „greiddra atkvæða“.
Tillagan var samþykkt með afgerandi meirihluta atkvæða (96,84%).
d. 4. málsgrein orðist svo: „Tímabil þau sem nefnd eru í 4. mgr. 12. gr. og 2. mgr. 23. gr. gilda að öðru leyti frá aðalfundi 2017.“
Tillagan var samþykkt með afgerandi meirihluta atkvæða (95,74%).
Gengið var til kosninga um 1. tillögu lagabreytinga í heild sinni og var tillagan samþykkt með afgerandi meirihluta atkvæða (97,75%).
Formaður laganefndar kynnti 2. tillögu, í 2 liðum, sem ætlað er að bæta úr vanköntum í lögum ÖBÍ sem flækja óþarflega rekstur skrifstofu bandalagsins (fskj. nr. 19b).
Fundarstjóri lagði til að kosið væri um 2. tillögu í heild sinni (1. og 2. lið saman) til að spara tíma en mótmæli bárust úr sal. Því var kosið um hvorn lið fyrir sig.
Á eftir 3. málsl. 4. mgr. bætist nýr málsliður við sem orðast svo: „Meirihluti stjórnar ritar firma félagsins“.
Tillagan var samþykkt með afgerandi meirihluta atkvæða (97,85%).
Orðin „sem háðir eru samþykki stjórnar“ í lok síðasta málsliðar greinarinnar falla brott.
Tillagan var samþykkt með afgerandi meirihluta atkvæða (93,81%).
Gengið var til kosninga um 2. tillögu lagabreytinga í heild sinni og var tillagan samþykkt með afgerandi meirihluta atkvæða (94,62%).
Formaður laganefndar kynnti 3. tillögu, í 2 liðum, sem ætlað er að stytta og einfalda 23. gr. um málefnahópa. Í þess stað kemur skylda stjórnar að setja reglur um hópana (fskj. nr. 19c).
a. Í stað orðanna „einn formann málefnahóps“ í 5. málsl. 1. mgr. 23. gr kemur „tvo formenn málefnahópa kjörna á aðalfundi“.
Fundarstjóri opnaði fyrir spurningar og umræður varðandi 1. lið a í tillögu 3. Nokkrar umræður urðu um fjöldatakmörkun á fjölda formanna málefnahópa hvers aðildarfélags. Í kjölfarið barst breytingartillaga:
- Setningin „Hvert félag getur átt mest tvo formenn málefnahópa kjörna á aðalfundi á hverjum tíma“ myndi detta út.
Mótmæli bárust úr sal og var tillagan dregin tilbaka.
c. Allt sem kemur á eftir orðunum „Hann tekur einnig sæti formanns málefnahópsins í stjórn“ í 3. mgr. 23. gr fellur brott.
Breytingartillaga barst úr sal um að fella út c lið, þ.e.: „Hann tekur einnig sæti formanns málefnahópsins í stjórn“. Fundarstjóri óskaði eftir stuðningsmanni við tillöguna sem fékkst. Gengið var til kosninga og var breytingartillagan samþykkt með 68,42% greiddra atkvæða.
e. Við greinina bætist ný málsgrein svohljóðandi: „Stjórn skal setja reglur um málefnahópa, t.d. um skipan þeirra, fjölda fulltrúa, lengd setu og skýrslugjöf, sbr. 27. gr. laganna. Stjórn hefur heimild til að skipa tímabundna málefnahópa og skulu reglurnar einnig ná yfir þá hópa.“
Kosið var um 1. lið í heild sinni með áorðnum breytingum og var tillagan samþykkt með afgerandi meirihluta atkvæða (90,22%).
Orðin „og 2. mgr. 23. gr.“ í 4. málsgrein falla brott.
Tillagan var samþykkt með afgerandi meirihluta atkvæða (90,43%).
Gengið var til kosninga um 3. tillögu lagabreytinga í heild sinni og var tillagan samþykkt með afgerandi meirihluta atkvæða (92,39%).
Að endingu var gengið til kosninga og kosið um lögin í heild sinni með áorðnum breytingum. Lögin voru samþykkt með afgerandi meirihluta atkvæða (95,7%).
Bergþór þakkaði fráfarandi laganefnd fyrir samvinnuna og óskaði nýrri stjórn laganefndar velfarnaðar í komandi starfi.
Aðildarumsóknir (18)
Engar aðildarumsóknir lágu fyrir.
Ályktanir aðalfundar (19)
Engar ályktanir bárust innan tilskilins frests, en tvær ályktanir bárust fyrir fundinn á tilskyldum tíma og óskaði fundarstjóri leyfis fundarins til að taka ályktanirnar fyrir og var það samþykkt með afgerandi meirihluta atkvæða (84,62%).
Formaður ÖBÍ, Þuríður Harpa Sigurðardóttir, kynnti fyrri ályktunina, (fskj. nr. 21) svohljóðandi:
Ályktun aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands 2021
Aðalfundur Öryrkjabandalagsins skorar á þingmenn að sýna hugrekki og dug til að rétta hlut fatlaðs fólks.
Stór hluti fatlaðs fólks býr við efnislegan skort, þ.e. fátækt, sem opinberaðist þjóðinni í rannsókn Vörðu í haust.
Fram til þessa hefur skort mjög á pólitískan vilja til að takast á við vandamálið. Lengur verður ekki beðið, staðan er grafalvarleg og algerlega óviðunandi.
Það sæmir okkur ekki sem þjóð að sitja lengur með hendur í skauti.
Við erum tilbúin, hvað með ykkur?
Ekkert um okkur án okkar!
Fundarstjóri bauð umræður um ályktunina. Ein fyrirspurn barst varðandi hversu hátt hlutfall fatlaðs fólks býr við efnislegan skort. Þuríður svaraði að hlutfallið væri um það bil 35%.
Gengið var til kosninga og ályktunin samþykkt með afgerandi meirihluta atkvæða (95,74%).
Formaður kynnti seinni ályktunina (fskj. nr. 22), svohljóðandi:
Ályktun aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands 2021
Ríkið lögfesti tafarlaust samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og valkvæðan viðauka við samninginn.
Aðalfundur ÖBÍ krefst þess að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lögfestur um leið og Alþingi kemur saman á 152. löggjafarþingi 2021.
Samningurinn kveður á um grundvallarmannréttindi fatlaðs fólks í heiminum. Réttindin sem felast í skjalinu hafa þó enn ekki verið tryggð hér á landi enda gerist það ekki fyrr en samningurinn hefur verið lögfestur. Þangað til á fatlað fólk á Íslandi ekki þau réttindi sem felast í samningnum. Þessu hafa íslenskir dómstólar slegið föstu, nú síðast með dómi Landsréttar 7. október sl. þar sem borgari átti ekki rétt til notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA) þrátt fyrir ákvæði samningsins, einkum 19. gr. hans.
Íslenska ríkið hefði átt að klára lögfestingu samningsins fyrir mörgum árum síðan. Ef íslenska ríkið hefur raunverulegan vilja til þess að tryggja fötluðu fólki jafnan rétt og jöfn tækifæri óháð fötlun verður að lögfesta samninginn án frekari tafa.
Ekkert um okkur án okkar!
Fundarstjóri bauð umræður um ályktunina en enginn tók til máls.
Gengið var til kosninga og var ályktunin samþykkt með afgerandi meirihluta (96,77%).
Önnur mál (20)
A
Eiður Welding frá CP félaginu hvatti aðildarfélög ÖBÍ til þess að styrkja ungmennastarf sitt og benti á að enginn gæti tjáð sig um málefni barna án þess að vera í virku samstarfi við þau.
B
Einn fundargesta þakkaði fyrir frábæran fund og benti á að margir fundargesta tilheyri einnig hópi eldri borgara. Hann hvatti alla til þess að berjast fyrir réttindum beggja hópa. Einnig talaði hann um mikilvægi þess að minna TR og SÍ á að borga allt sem þessir hópar eiga rétt á.
C
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, vakti athygli á því að 3 formenn málefnahópa létu nú af störfum vegna sólarlagsákvæðis og bauð þau velkomin í pontu. Þökkuðu þau meðlimum málefnahópanna fyrir gott og gefandi starf og hvöttu sem flesta til þess að taka þátt í vinnu málefnahópanna.
Þá þökkuðu fundarstjórar fyrir sig og afhentu formanni ÖBÍ, Þuríði Hörpu Sigurðardóttur, fundinn.
Fundarlok
Formaður þakkaði aðalfundarfulltrúum fyrir fundarsetuna og bauð nýtt fólk hjartanlega velkomið til starfa. Um leið þakkaði hún fráfarandi stjórnarmönnum fyrir vel unnin störf og óskaði þeim velfarnaðar og kvaðst hlakka til að sjá þau áfram í baráttunni. Hún þakkaði einnig traustið fyrir að kjósa sig aftur sem formann. Þá þakkaði formaður fundarstjórum og fundarriturum fyrir góð störf, sem og starfsfólki ÖBÍ.
Formaður sleit fundi kl. 16:33.
Fylgiskjöl:
- Dagskrá aðalfundar ÖBÍ 15. og 16. október 2021
- Ársskýrsla ÖBÍ 2020 til 2021
- Ársreikningur ÖBÍ 2020
- Ársreikningur fyrirtækja 2020
- a) Brynja Hússjóður Öryrkjabandalagsins
- b) Örtækni
- c) Hringsjá
- d) Fjölmennt
- Ákvörðun aðildargjalda
- Þóknun fyrir stjórnarsetu
- Listi yfir aðalfundarfulltrúa aðildarfélaga ÖBÍ
- Yfirlit yfir framboð til embætta 2021
- Kynning frambjóðanda til formanns (1)
- Kynning frambjóðanda til formanns málefnahóps um aðgengismál (1)
- Kynning frambjóðanda til formanns málefnahóps um atvinnu- og menntamál (1)
- Kynning frambjóðanda til formanns málefnahóps um heilbrigðismál (1)
- Kynning frambjóðanda til formanns málefnahóps um kjaramál (1)
- a) til g) Kynningar frambjóðenda til stjórnar (7)
- a) til g) Kynningar frambjóðenda til kjörnefndar (7)
- a) til f) Kynningar frambjóðenda til laganefndar (6)
- a) til b) Kynningar frambjóðenda til skoðunarmanna reikninga (2)
- Lög Öryrkjabandalags Íslands samþykkt 3. október 2020
- a) til c) Lagabreytingatillögur laganefndar (3)
- Stefnuskjal ÖBÍ
- Ályktun aðalfundar ÖBÍ 2021, áskorun á þingmenn
- Ályktun aðalfundar ÖBÍ 2021, lögfesting SRFF
(Kynningum frambjóðenda er raðað eftir stafrófsröð ef framboð eru fleiri en eitt)
Aðalfundur 2020
Fundargerð
Ávarp formanns, fundarsetning
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, setti fundinn kl. 16:07 og bauð fundarmenn velkomna. Formaður sagði frá breyttu fundarformi í ljósi samkomutakmarkana og sóttvarna. Hluti aðalfundarfulltrúa var í sal og hluti tók þátt í gegnum Zoom.
Formaður lagði til að Eyvindur Elí Albertsson og Rósa María Hjörvar yrðu fundarstjórar og var það samþykkt. Formaður lagði til að Aðalheiður Rúnarsdóttir og Ragnheiður Ásta Sigurðardóttir rituðu fundargerð og var það samþykkt. Þá bauð formaður fundarstjórum að taka við fundinum.
Fundarstjórar þökkuðu traustið, buðu gesti velkomna og kynntu dagskrá fundarins (fskj. nr. 1). Fundarstjóri tilkynnti að samkvæmt venju sætu fundinn áheyrnarfulltrúi Kvennahreyfingar ÖBÍ, Karen Anna Erlingsdóttir, og áheyrnarfulltrúi Ungliðahreyfingar ÖBÍ, Margét Lilja Aðalsteinsdóttir.
Almenn fundarstörf
Skýrsla stjórnar (1)
Formaður flutti skýrslu stjórnar (fskj. nr. 2 – Ársskýrsla ÖBÍ 2019 til 2020. Skýrsla formanns og stjórnar, bls. 9-31) og sagði meðal annars frá eftirfarandi atriðum:
Skýrslan og starf sambandsins litast af Covid sem hefur tekið yfir líf okkar allra. Fyrirhugað var að halda stóran borgarafund, málþing og funda með alþingismönnum og sveitarfélögum. En svo kom Covid og fundir færðust úr fundarsölum yfir á eldhúsborðið. Stefnuþingi var frestað fram á næsta ár. ÖBÍ var í góðum samskiptum við stjórnvöld, bæði ríki og sveitarfélög og sendi stjórnvöldum vikulega skýrslu um hvaða áhrif ástandið hafði á okkar fólk.
Á síðasta aðalfundi var hleypt af stokkunum auglýsingaherferðinni „Þér er ekki boðið“. Herferðin hófst með áberandi sjónvarpsauglýsingu en einnig voru miklar auglýsingar á samfélagsmiðlum. Þá er hafinn undirbúningur að sjónvarpsþáttaröð „Dagur í lífi“ sem stefnt er að verði sýnd á RÚV haustið 2021 ef Covid leyfir. Rafræn kröfuspjöld vegna rafrænnar kröfugöngu sem málefnahóparnir stóðu fyrir í tilefni af 1. maí fengu einnig góða dreifingu á samfélagsmiðlum.
Á árinu hefur verið afar gott samstarf á milli ÖBÍ og verkalýðshreyfingarinnar enda margar sameiginlegar áherslur í baráttunni. Þann 19. maí skrifuðu fjögur heildarsamtök launafólks (ASÍ, BSRB, BHM og KÍ) undir yfirlýsingu og kröfu ÖBÍ um að hagur öryrkja yrði bættur öllum til hagsbóta. Þarna fékk ÖBÍ góðan liðsstyrk í baráttunni en innan þessara fjögurra heildarsamtaka eru um 180.000 einstaklingar.
Mikill tími ÖBÍ fór í að skrifa umsagnir um fjáraukalög og berjast fyrir hækkun grunnlífeyris. Fulltrúar ÖBÍ fóru auk þess á fundi fjárlaganefndar og félagsmálanefndar til þess að fylgja umsögnunum eftir. Öll vinnan skilaði því að í desember 2019 greiddi TR eingreiðslu að upphæð 10.000 kr. til þeirra örorkulífeyrisþega sem fá desemberuppbót. Sami hópur fékk svo aðra eingreiðslu í júní 2020 að upphæð 20.000 kr. Báðar þessar eingreiðslur voru skattfrjálsar til þess að koma í veg fyrir skerðingar.
Þrátt fyrir erfitt ár gerðist ýmislegt gott líka. Framganga velferðarsviðs Reykjavíkurborgar var aðdáunarverð í Covid faraldrinum. ÖBÍ vann dómsmál gegn TR vegna búsetuskerðingar þeirra sem eru eða hafa verið búsettir erlendis. Sálfræðiþjónusta verður niðurgreidd skv. samþykkt Alþingis. Hækkun varð á styrkjum til kaupa á sérútbúnum bílum.
Á árinu voru haldnir reglulegir samráðsfundir við TR. TR viðurkenndi að hafa reiknað einstaklinga út skv. rangrireiknireglu í búsetumálum. Enn er samt sama reikniregla notuð við útreikninga og ÖBÍ vinnur að því að því verði breytt. Margir örorkulífeyrisþegar fengu endurkröfu frá TR þegar Reykjavíkurborg framfylgdi dómi Hæstaréttar og greiddi öllum þeim sem áttu rétt á því húsaleigubætur. Vegna stöðugrar vinnu ÖBÍ féllst TR á að skoða mál hvers og eins.
Formaður lagði áherslu á að rödd ÖBÍ væri sterk og greinilegt er að á hana er hlustað. Því væri afar mikilvægt að tala öll einum rómi. Vefsíða og samfélagsmiðlar sambandsins eru mikilvægir hlekkir í fréttaflutningi. Facebooksíða ÖBÍ er með um 9000 fylgjendur sem margir hverjir eru afar virkir.
Málefnahópar bandalagsinseru orðnir 7 talsins, fimm fastir hópar og tveir tímabundnir. Málefnahóparnir eru afar mikilvægir þrýstihópar og starf þeirra er grundvöllur málefnavinnu ÖBÍ. Mikið hefur verið að gera hjá hópunum og öll eru baráttumálin brýn.
ÖBÍ tekur virkan þátt í erlendu samstarfi, bæði norrænu og evrópsku. Starfsárið 2019-2020 fór Ísland með formennsku í HNR sem er samstarfsvettvangur heildarsamtaka fatlaðs fólks á Norðurlöndunum. Þrír fundir voru haldnir á árinu, einn í Stokkhólmi og tveir í gegnum Teams fjarfundabúnað. Á dagskrá fyrsta fundarins var staða fatlaðs fólks á vinnumarkaði en síðari tveir fundirnir voru helgaðir Covid og áhrifum faraldursins á fatlað fólk. Fulltrúar ÖBÍ tóku einnig þátt í fundum á vegum RNSF (ráðgefandi og stefnumarkandi ráð varðandi málefni fatlaðs fólks fyrir norrænu ráðherranefndina) og EDF (Evrópusamtök fatlaðs fólks).
Tveir formannafundir voru haldnir á árinu. Sá fyrri var haldinn 12. september 2019 en sá seinni 21. janúar 2020.
Formaður fór einnig yfir hvað væri framundan. Haustið 2021 verður kosið til Alþingis. Á kosningaári harðnar baráttan óneitanlega og þá sem aldrei fyrr er mikilvægt að standa saman.
Fundarstjóri bauð umræður um skýrslu stjórnar, en enginn kvaddi sér hljóðs.
Ársreikningur ÖBÍ (2)
Bryndís Björk Guðjónsdóttir, endurskoðandi frá PwC ehf., kynnti ársreikning ÖBÍ fyrir árið 2019 (fskj. nr. 3 – Ársreikningur ÖBÍ 2019). Endurskoðandi vakti athygli á athugasemd um Covid-19 í skýrslu stjórnar. Ekki var búist við að veiran mundi hafa áhrif á fjárhagsstöðu ÖBÍ.
Það var álit endurskoðanda að reikningurinn gæfi glögga mynd af afkomu félagsins á árinu, efnahag og breytingum á haldbæru fé í árslok 2019. Ársreikningurinn var áritaður án fyrirvara af endurskoðanda og skoðunarmönnum.
Endurskoðandi fór yfir helstu meginatriði ársreikningsins.
Rekstrartekjur ársins 2019 voru 706 milljónir í stað rúmlega 661 milljón árið 2018.
Rekstrargjöld ársins 2019 voru einnig hærri en árið áður, eða 322 milljónir 2019 í stað 281 milljóna 2018.
Rekstrarafkoma ársins 2019 fyrir fjármunatekjur og -gjöld var 384 milljónir, en 380 milljónir 2018.
Rekstrarafkoma ársins 2019, að meðtöldum fjármunatekjum og veittum styrkjum, var neikvæð um ríflega 4,5 milljónir, í stað tæplega 39 milljóna hagnaðar árið áður. Þar munaði mest um tæplega 400 milljónir í veitt framlög og styrki árið 2019 í stað ríflega 352 milljóna árið áður.
Efnahagshluti reikningsins breyttist ekki mikið á milli ára. Varanlegir fastafjármunir voru 318 milljónir 2019 samanborið við 321 milljón árið áður og jukust langtímakröfur úr 200 milljónum árið 2018 í 207 milljónir árið 2019. Þar var fyrst og fremst um að ræða bundnar innistæður.
Fastafjármunir samtals voru því 525 milljónir 2019 í stað 524 milljóna árið áður. Veltufjármunir voru 304 milljónir 2019 í stað 285 milljóna 2018 og voru eignir því samtals 829 milljónir árið 2019, í stað 809 milljóna 2018.
Eigið fé og skuldir voru samtals 829 milljónir 2019 í stað 809 milljóna árið áður. Það skiptist í óráðstafað eigið fé, sem var 608 milljónir 2019 í stað 613 milljóna árið áður, og skuldir, sem voru samtals 221 milljón 2019 í stað 196 milljóna 2018.
Rekstrarafkoma ársins 2019 var neikvæð um 4,6 milljónir. Skýrðist það helst af því að haldbært fé frá rekstri í árslok 2019 var tíu milljónir, í stað 147 milljóna árið áður. Helsta skýring þessarar miklu breytingar var talsverð skammtímaskuld vegna ógreidds styrks til Brynju hússjóðs.
Handbært fé í árslok 2019 var því 228 milljónir, í stað 227 milljóna árið áður.
Vísaði endurskoðandi í skýringar í ársreikningi á blaðsíðu 10-16 til frekari glöggvunar.
Fundarstjóri opnaði fyrir umræður um reikninga ÖBÍ. Til svara voru gjaldkeri ÖBÍ, Bergur Þorri Benjamínsson, og framkvæmdastjóri ÖBÍ, Lilja Þorgeirsdóttir.
Framkvæmdarstjóri ÖBÍ, Lilja Þorgeirsdóttir, sagði tekjur ársins 2019 hafa verið góðar, hærri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Sagði hún tekjur nær alfarið frá Íslenskri getspá, en að leigutekjur standi undir meginþunga kostnaðar af rekstri fasteignar ÖBÍ. Framkvæmdarstjóri sagði ráðstöfun tekna vera ákvörðun stjórnar og að fjármagni væri ráðstafað til aðildarfélaga ÖBÍ, Brynju hússjóðs og reksturs ÖBÍ. Þá væru greiddir styrkir til fyrirtækja sem ÖBÍ er aðili að og innlent hjálparstarf.
Gjaldkeri ÖBÍ, Bergur Þorri Benjamínsson, færði fundinum þau gleðitíðindi að á fundi sínum þann 29. september 2020 samþykkti stjórn Íslenskrar getspár að greiða út aukagreiðslu upp á 300 milljónir til eignaraðila. Minnti Bergur á að ÖBÍ eigi 40% í Íslenskri getspá.
Frekari umræður og fyrirspurnir voru ekki og bar fundarstjóri reikninginn upp til atkvæða. Ársreikningur ÖBÍ 2019 var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum.
Skýrslur fastra málefnahópa (3)
Málefnahópur um aðgengismál (a)
Ingveldur Jónsdóttir frá MS félagi Íslands, formaður hópsins, sagði frá starfi hópsins og þakkaði þeim sem sátu í hópnum gott samstarf .
Ásamt Ingveldi voru í hópnum Birna Einarsdóttir frá Gigtarfélagi Íslands, Ingólfur Már Magnússon frá Heyrnarhjálp, Jón Heiðar Jónsson frá Sjálfsbjörg lsh., Lilja Sveinsdóttir frá Blindrafélaginu, Margrét Lilja Arnheiðardóttir frá Sjálfsbjörg lsh. og Sigurjón Einarsson frá Fjólu, sem einnig var varaformaður. Formaður þakkaði starfsmanni hópsins, Stefáni Vilbergssyni, fyrir einstaklega gott samstarf og aðstoð.
Fundarstjóri bauð umræður en engar urðu.
Málefnahópur um atvinnu- og menntamál (b)
Áslaug Ýr Hjartardóttir, Fjólu, var starfandi formaður hópsins frá desember 2019 og fór yfir starf hópsins. Hún hrósaði hópnum fyrir vel unnin störf og sagði mjög gott að vinna með honum.
Með Áslaugu Ýr störfuðu í hópnum Brynhildur Arthúrsdóttir frá Laufi, Elma Finnbogadóttir frá Blindrafélaginu, Hrannar Björn Arnarsson frá ADHD samtökunum, Hrönn Stefánsdóttir frá Gigtarfélagi Íslands, og Vilborg Jónsdóttir frá Parkinsonsamtökunum. Sigurður Jón Ólafsson frá Stómasamtökum Íslands og Sylviane Lecoultre frá Geðhjálp voru varamenn. Starfsmaður hópsins var Þórdís Viborg.
Fundarstjóri bauð umræður en engar urðu.
Málefnahópur um heilbrigðismál (c)
Emil Thóroddsen frá Gigtarfélagi Íslands, formaður hópsins, gerði grein fyrir starfi hópsins á starfsárinu.
Ásamt honum voru í hópnum Fríða Rún Þórðardóttir frá Astma- og ofnæmisfélagi Íslands, Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir frá Sjálfsbjörg lsh., Guðni Sigurmundsson frá Sjálfsbjörg lsh., Karl Þorsteinsson frá Ás styrktarfélagi, Sigríður Jóhannsdóttir frá Samtökum sykursjúkra og Vilhjálmur Hjálmarsson frá ADHD samtökunum. Stefán Vilbergsson var starfsmaður hópsins.
Fundarstjóri bauð umræður en enginn kvaddi sér hljóðs.
Málefnahópur um kjaramál (d)
Bergþór Heimir Þórðarson frá Geðhjálp, formaður hópsins, sagði frá starfi hópsins.
Ásamt honum störfuðu í hópnum Atli Þór Þorvaldsson frá Parkinsonsamtökunum, sem var varaformaður, Dóra Ingvadóttir frá Gigtarfélagi Íslands, Elín Ýr Hafdísardóttir frá Fjólu, Elva Dögg Hafberg Gunnarsdóttir frá Tourette-samtökunum á Íslandi, Frímann Sigurnýasson frá Vífli og Unnur Hrefna Jóhannsdóttir frá Laufi. Varamenn hópsins voru Geirdís Hanna Kristjánsdóttir frá Geðhjálp og Valgerður Hermannsdóttir frá Hjartaheillum. Sigríður Hanna Ingólfsdóttir var starfsmaður hópsins.
Fundarstjóri bauð umræður en engar urðu.
Málefnahópur um sjálfstætt líf (e)
Rúnar Björn Herrera frá SEM samtökunum, formaður hópsins, sagði frá starfi hans.
Með honum áttu sæti í hópnum Bergþór G. Böðvarsson frá Geðhjálp, Eliona Gjecaj frá Blindrafélaginu, Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir frá Blindrafélaginu, Eyþór Kamban Þrastarson frá Blindrafélaginu, Megan Lee Smith frá Sjálfsbjörg lsh. og Snædís Rán Hjartardóttir frá Fjólu. Starfsmaður hópsins var Sigurjón Unnar Sveinsson og Katrín Oddsdóttir.
Rúnar Björn sagði frá starfi hópsins. Engar fyrirspurnir bárust.
Málefnahópur um málefni barna (f)
Elín Hoe Hinríksdóttir frá ADHD samtökunum, formaður hópsins sagði frá starfi hans.
Með henni í hópnum voru Fríða Bragadóttir frá Samtökum sykursjúkra / Laufi, Hjalti Sigurðsson frá Blindrafélaginu, Jóna Kristín Gunnarsdóttir frá ADHD samtökunum, Sif Hauksdóttir frá Astma- og ofnæmisfélagi Íslands, Sigrún Birgisdóttir frá Einhverfusamtökunum og Sunna Brá Stefánsdóttir frá Gigtarfélagi Íslands. Varamaður var Margrét Vala Marteinsdóttir frá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra. Starfsmaður hópsins var Þórdís Viborg.
Spurt var hvort ungmenni eða barn ætti sæti í hópnum. Elín sagði svo ekki vera en að eitt sæti væri laust í hópnum og hvatti hún aðildarfélögin til að tilnefna ungmenni sem fulltrúa í hópinn.
Málefnahópur um húsnæðismál (g)
María Pétursdóttir frá MS félagi Íslands var formaður hópsins og sagði frá starfi hans.
Með henni í hópnum sátu Guðmundur Rafn Bjarnason frá Blindrafélaginu, María Magdalena Birgisdóttir Olsen frá Gigtarfélaginu, María Óskarsdóttir frá Sjálfsbjörg lsh., Olgeir Jón Þórisson frá Einhverfusamtökunum sem var varaformaður hópsins, Stefán Benediktsson frá Heyrnarhjálp, Steinar Björgvinsson frá Blindrafélaginu. Frímann Sigurnýasson frá Vífli og Karen Anna Erlingsdóttir frá Gigtarfélaginu voru til vara. Valdís Ösp Árnadóttir var starfmaður hópsins.
Spurt var hvort hópurinn hafi skoðað umhverfismál í tengslum við húsnæði. María sagði svo vera og að hópurinn hafi rætt um að setja spurningar þar að lútandi inn í könnun um húsnæði, umhverfi og aðgengi.
Skýrslur fyrirtækja (4)
Skýrslur fyrirtækja lágu frammi (fskj. nr. 2, bls. 42-47) og ársreikninga fyrirtækja má sjá í fylgiskjölum 4a-4d. Fundarstjóri bauð umræður um skýrslurnar.
BRYNJA, hússjóður Öryrkjabandalagsins (a)
Emil Thóroddsen, stjórnarmaður hjá Brynju hússjóði, var til svara. Spurt var hvort stjórn sjóðsins sæi tækifæri til að stækka eignasafn sjóðsins. Sagði Emil stöðuna ekki góða, að lokað hafi verið fyrir umsóknir í rúmt ár og ekki væri fyrirséð að opnað yrði aftur í bráð, en í kringum 500 væru á biðlista. Sagði hann alltaf væri vel tekið á móti hugmyndum um úrræði til úrbóta. Óvenju margar íbúðir voru keyptar á árinu.
Örtækni (b)
Þorsteinn Jóhannsson, framkvæmdastjóri, var til svara en engar fyrirspurnir bárust.
Hringsjá (c)
Lilja Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri ÖBÍ, var til svara. Spurt var um vangreidd opinber gjöld á ársreikningi. Lilja sagði það alvanalegt, opinber gjöld séu ekki greidd fyrr en í janúar og því sé ekki um skuld að ræða.
TMF- Tölvumiðstöð (d)
Sigrún Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri, var til svara en engar fyrirspurnir bárust.
Fjölmennt (e)
Halldór Sævar Guðbergsson, varaformaður ÖBÍ, var til svara, en engar fyrirspurnir bárust.
Íslensk getspá (f)
Bergur Þorri Benjamínsson, fulltrúi ÖBÍ í stjórn Íslenskrar getspár, var til svara, en engar fyrirspurnir bárust.
Stefnuþing: Stefna og starfsáætlun (5)
Formaður sagði frá því að fjórða Stefnuþingi ÖBÍ, sem fram átti að fara í mars 2020, hafi verið frestað vegna samkomutakmarkana vegna Covid-19 og að áætlað væri að halda þingið 9. og 10. apríl 2021.
Aðildargjöld, ákvörðun (6)
Fundarstjóri kynnti framkomna tillögu frá stjórn ÖBÍ um að aðildargjöld ÖBÍ yrðu óbreytt, 0 kr. (sjá fskj. nr. 5).
Spurt var um forsendur tillögunnar og ástæðu þess að engin aðildargjöld væru greidd. Lilja Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri, svaraði. Í 6. gr. laga ÖBÍ segir að aðildarfélög skuli greiða aðildargjöld í samræmi við ákvörðun aðalfundar. Áður en Íslensk getspá var stofnuð og ÖBÍ fór að fá þaðan reglubundnar tekjur var rekstur ÖBÍ fjármagnaður með greiðslu þessara aðildargjalda. Í dag er ekki þörf á að greiðslu þessara gjalda en vegna laga ÖBÍ er þessi tillaga afgreidd árlega.
Þá var tillagan tekin til atkvæða og hún samþykkt með 106 atkvæðum gegn fjórum, einn sat hjá.
Stjórnarseta, þóknun (7)
Fundarstjóri tók til afgreiðslu tillögu frá stjórn ÖBÍ um þóknun fyrir stjórnarsetu, svohljóðandi (sjá fskj. nr. 6):
Lagt er til að fyrirkomulag við greiðslu þóknunar fyrir fundarsetu fyrir fulltrúa í stjórn ÖBÍ verði eftirfarandi:
• Stjórnarmenn ÖBÍ og varamenn fá greiddar 7 einingar fyrir hvern setinn stjórnarfund sem er allt að 2,5 klst. langur. 2 einingar eru fyrir undirbúning fundar og 5 einingar fyrir sjálfan fundinn. Ef forföll eru tilkynnt eru greiddar 2 einingar fyrir undirbúning fundar.
• Fyrir hverja klst. umfram það er greidd ein eining.
• Upphæð þóknunar tekur mið af ákvörðun þóknananefndar ríkisins sem er
2.502 kr. á hverja einingu, miðað við apríl 2020.
Fundarstjóri bauð umræður. Spurt var um einingakerfið og útskýrði framkvæmdastjóri ÖBÍ hugmyndina að baki því.
Greidd voru atkvæði um tillöguna, sem var samþykkt með þorra atkvæða, einn var á móti og fimm sátu hjá.
Kl. 19:00 frestaði fundarstjóri fundi til kl. 10 laugardaginn 3. október 2020.
Laugardagur 3. október 2020 – fundi framhaldið
Fundarstjóri hóf fund að nýju kl. 10:22.
Kosningar í stjórn
Fundarstjóri tilkynnti að 130 fulltrúar væru skráðir inn í kosningakerfi fundarins (sjá lista yfir aðalfundarfulltrúa í fskj. nr. 7), þar af væru 54 á Zoom. Yfirlit yfir framboð til stjórnar var í fundargögnum (sjá fskj. nr. 8). Kynningar á frambjóðendum lágu frammi og má sjá þær í fylgiskjölum (sjá fskj. nr. 9-13b).
Jón Þorkelsson, formaður kjörnefndar, sagði frá starfi nefndarinnar. Ólíkt fyrri árum komu framboð til allra lausra embætta áður en frestur rann út og því var starf nefndarinnar létt. Hrósaði Jón aðilum fyrir vilja til þátttöku í starfi ÖBÍ.
Spurt var hvort ekki væru leyfð framboð á fundinum. Fundarstjóri sagði svo vera, en að meirihluta fundarfulltrúa þyrfti að samþykkja framboðið. Þá var kosið um að leyfa framboð á fundinum. 118 greiddu atkvæði og var samþykkt að leyfa framboð á fundinum með 77 atkvæðum gegn 33, nokkrir sátu hjá.
Formaður (8)
Kosið verður í embætti formanns 2021.
Varaformaður (9)
Fyrir fundinum lá að kjósa varaformann. Einn hafði boðið sig fram innan tilskilins frests, Bergþór Heimir Þórðarson frá Geðhjálp (sjá fskj. nr. 9).
Samþykkt hafði verið að leyfa framboð á fundinum og bauð Gísli Helgason frá Blindravinafélagi Íslands sig fram.
Frambjóðendur kynntu sig. Gengið var til kosninga, 117 greiddu atkvæði sem skiptust þannig:
Bergþór Heimir Þórðarson frá Geðhjálp fékk 84 atkvæði.
Gísli Helgason frá Blindravinafélagi Íslands fékk 33 atkvæði.
Því var Bergþór Heimir frá Geðhjálp réttkjörinn varaformaður ÖBÍ 2020-2022.
Gjaldkeri (10)
Fyrir fundinum lá að kjósa gjaldkera. Einn hafði boðið sig fram fyrir fundinn, Jón Heiðar Jónsson frá Sjálfsbjörg lsh. (sjá fskj. nr. 10)
Ekki komu fram önnur framboð og því var Jón Heiðar sjálfkjörinn í embætti gjaldkera ÖBÍ 2020-2022.
Formenn fastra málefnahópa (11)
Kosið verður um formenn fastra málefnahópa 2021 en fyrir fundinum lá að kjósa formann Málefnahóps um atvinnu- og menntamál til eins ár. Í framboði var Áslaug Ýr Hjartardóttir frá Fjólu (sjá fskj. nr. 11).
Ekki komu fram fleiri framboðog því var Áslaug Ýr sjálfkjörin sem formaður málefnahóps um atvinnu- og menntamál 2020-2021.
Vegna kjörs Berþórs Heimis í embætti varaformanns losnaði formennska í málefnahópi um kjaramál og opnaði fundarstjóri fyrir framboð. Atli Þór Þórðarson frá Parkinsonsamtökunum bauð sig fram.
Fleiri framboð komu ekki og því var Atli Þór sjálfkjörinn í embætti formanns málefnahóps um kjaramál 2020-2021.
Stjórnarmenn (12)
Fundarstjóri kynnti kosningu sjö stjórnarmanna til tveggja ára. Níu höfðu boðið sig fram innan tilskilins frests, (sjá fskj. nr. 12a-i). Þau voru Dóra Ingvadóttir frá Gigtarfélagi Íslands, Elva Dögg Gunnarsdóttir frá Tourette-samtökunum, Fríða Bragadóttir frá Samtökum sykursjúkra, Fríða Rún Þórðardóttir frá Astma- og ofnæmisfélagi Íslands, Ingibjörg Snjólaug Snorra Hagalín frá MS félagi Íslands, Karl Þorsteinsson frá Ás styrktarfélagi, Sigþór U. Hallfreðsson frá Blindrafélaginu, Snævar Ívarsson frá Félagi lesblindra á Íslandi og Þorsteinn Þorsteinsson frá Spoex. Eiður Welding bauð sig fram á fundinum.
Frambjóðendur kynntu sig. Greidd voru atkvæði. Þessi hlutu kosningu til setu í stjórn ÖBÍ 2020-2022:
- Fríða Bragadóttir frá Samtökum Sykursjúkra fékk 97 atkvæði
- Sigþór U. Hallfreðsson frá Blindrafélaginu fékk 97 atkvæði
- Elva Dögg Gunnarsdóttir frá Tourette-samtökunum fékk 94 atkvæði
- Eiður Welding frá CP félaginu fékk 83 atkvæði
- Dóra Ingvadóttir frá Gigtarfélaginu fékk 82 atkvæði
- Snævar Ívarsson frá Félagi lesblindra á Íslandi fékk 82 atkvæði
- Ingibjörg Snjólaug Snorra Hagalín frá MS félagi Íslands fékk 79 atkvæði
Varamenn (13)
Fundarstjóri kynnti kosningu þriggja varamanna í stjórn til tveggja ára. Tveir höfðu boðið sig fram innan tilskilins frests, (sjá fskj. nr. 13a-b), þau Elín Ýr Hafdísardóttir frá Fjólu og Vilhjálmur Hjálmarsson frá ADHD samtökunum. Fundurinn samþykkti að leyfa jafnframt framboð Fríðu Rúnar Þórðardóttur frá Astma- og ofnæmissamtökunum, Karls Þorsteinssonar frá Ás styrktarfélagi og Þorsteins Þorsteinssonar frá Spoex. Frambjóðendur kynntu sig.
Greidd voru atkvæði. Þessi hlutu kosningu til setu sem varamenn í stjórn ÖBÍ 2020-2022:
- Elín Ýr Hafdísardóttir frá Fjólu fékk 85 atkvæði
- Vilhjálmur Hjálmarsson frá ADHD samtökunum fékk 79 atkvæði
- Fríða Rún Þórðardóttir frá Astma- og ofnæmissamtökunum fékk 70 atkvæði
Formaður kvaddi sér hljóðs. Óskaði hún nýkjörnum fulltrúum til hamingju með kosninguna. Jafnframt þakkaði hún fráfarandi fulltrúum samstarfið. Sagði hún að í fyrsta sinn tæki sólarlagsákvæði laga ÖBÍ gildi. Vegna þess ákvæðis gengu þrír reynslumiklir aðilar úr embættum og færði formaður þeim Halldóri Sævari Guðbergssyni, Bergi Þorra Benjamínssyni og Garðari Sverrissyni blóm með þökkum fyrir vel unnin störf.
Aðrar kosningar til tveggja ára
Kjörnefnd (14)
Kosið verður í kjörnefnd 2021.
Laganefnd (15)
Kosið verður í laganefnd 2021.
Skoðunarmenn reikninga og varamenn (16)
Kosið verður um skoðunarmenn reikninga og varafulltrúa þeirra 2021.
Lagabreytingar, aðildarumsóknir, ályktanir, önnur mál
Lagabreytingar (17)
Teknar voru til afgreiðslu tillögur til breytinga á lögum ÖBÍ sem borist höfðu laganefnd fyrir aðalfund (sjá lög ÖBÍ í fskj. nr. 14).
Formaður laganefndar, Bergþór Heimir Þórðarson, kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir störfum og niðurstöðum nefndarinnar.
Aðalfundur ÖBÍ 2019 hafði falið laganefnd að kanna tvö atriði; annars vegar hvort meirihluti stjórnar ÖBÍ ætti að vera skipaður fötluðu fólki og hins vegar hvort víkka ætti út kjörgengi aðalfundarfulltrúa, þ.e. hvort varafulltrúar gætu boðið sig fram til ákveðinna embætta.
Nefndin fór yfir lög ÖBÍ með þessi atriði í huga og niðurstöður þeirrar yfirferðar voru kynntar breytingatillögur.
Þá tók fundarstjóri fyrstu lagabreytingartillögu frá laganefnd til afgreiðslu, uppfærða frá því sem kynnt var í fundargögnum.
Formaður laganefndar kynnti uppfærða tillögu um breytingu á 18. grein laga ÖBÍ, að á eftir 1. mgr. 18. gr. A bætist við ný málsgrein, afgreidd í tveimur hlutum, a) og b), svohljóðandi (sjá fskj. nr. 15a):
„Meirihluti stjórnar skal skipaður fötluðu fólki eða aðstandendum fatlaðs fólks sem þarf aðstoð til að tala máli sínu. Með fötlun er vísað til skilnings Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.“
„Formaður skal vera fatlaður einstaklingur eða aðstandandi fatlaðs fólks sem þarf aðstoð til að tala máli sínu.“
Fundarstjóri bauð umræður um tillöguna. Þrettán tóku til máls. Gerð var athugasemd við að kynntri tillögu hafi verið breytt og breytta tillagan tekin til afgreiðslu. Rætt var um hugtakanotkun og skilgreiningar í tengslum við að bæta „foreldrum“ inn í textann eða hvort „aðstandandi“ nái yfir alla þá sem málið varða og mikilvægi þess að orðalag sé ekki opið til túlkunar. Lagt var til að láta þýða 7. álit sérfræðinefndar um SRFF. Nefnt var að mikilvægt væri að andlit ÖBÍ út á við sé fatlaður einstaklingur.
Formaður laganefndar lagði áherslu á þann skilning að fólk sem getur tjáð sig sjálft, með stuðningi aðstoðarmanna og/eða tækja, kemur auðvitað fram fyrir sig sjálft. Fólk verður að meta það sjálft hvort það sé fatlað eða ekki. Taldi hann mjög líklegt að 7. álitið verði þýtt og lýsti þeim vilja sínum að málið verði unnið áfram, jafnvel með vinnustofu eða málþingi. Í tengslum við b-lið komst nefndin að þeirri niðurstöðu að verði varaformaður að taka við af formanni, væri það aldrei lengur en fram að næsta aðalfundi og því þótti laganefnd ekki þörf á því að gera þá kröfu að varaformaður sé fatlaður eða aðstandandi fatlaðs fólks sem þarf aðstoð til að tala máli sínu.
Þá tók fundarstjóri a-lið 1. tillögu til afgreiðslu. Rúnar Björn Herrera lagði til að eftirfarandi yrði tekið út úr tillögunni: „…eða aðstandendum fatlaðs fólks sem þarf aðstoð til að tala máli sínu.“, Frímann Sigurnýasson studdi. Tillagan var felld, 58 voru á móti og 45 með. Fjórir tóku ekki afstöðu.
Þá voru greidd atkvæði um a-lið eins og hann var kynntur:
„Meirihluti stjórnar skal skipaður fötluðu fólki eða aðstandendum fatlaðs fólks sem þarf aðstoð til að tala máli sínu. Með fötlun er vísað til skilnings Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.“
102 atkvæði voru á fundinum. Tillagan var samþykkt með 75 atkvæðum gegn 24 á móti. Þrír tóku ekki afstöðu.
Þá var b-liður 1. tillögu tekinn til afgreiðsu.
„Formaður skal vera fatlaður einstaklingur eða aðstandandi fatlaðs fólks sem þarf aðstoð til að tala máli sínu.“
Svavar Kjarrval lagði til að orðunum „og varaformaður” yrði skotið inn á eftir „Formaður”. Var það samþykkt með 75 atkvæðum, gegn 24, þrír tóku ekki afstöðu.
Þá voru greidd atkvæði um b-lið 1. tillögu með áorðnum breytingum:
„Formaður og varaformaður skulu vera fatlaðir einstaklingar eða aðstandendur fatlaðs fólks sem þarf aðstoð til að tala máli sínu.“
Var tillagan samþykkt með 64 atkvæðum gegn 27. Fimm tóku ekki afstöðu.
Þá voru greidd atkvæði um 18. gr. með áorðnum breytingum. Var hún samþykkt svohljóðandi með 74 atkvæðum gegn 12, þrír tóku ekki afstöðu:
„Stjórn samanstendur af nítján stjórnarmönnum: formanni, varaformanni, gjaldkera, fimm formönnum fastra málefnahópa og ellefu öðrum stjórnarmönnum. Stjórn er kosin á aðalfundi úr hópi aðalfundarfulltrúa sem boðið hafa sig fram til trúnaðarstarfa skv. 13. gr. Jafnframt skal aðalfundur kjósa þrjá varamenn sem hafa seturétt á stjórnarfundum. Stjórnarmenn sitja í umboði aðalfundar en ekki einstakra aðildarfélaga.
Meirihluti stjórnar skal skipaður fötluðu fólki eða aðstandendum fatlaðs fólks sem þarf aðstoð til að tala máli sínu. Með fötlun er vísað til skilnings Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Formaður og varaformaður skulu vera fatlaðir einstaklingar eða aðstandendur fatlaðs fólks sem þarf aðstoð til að tala máli sínu.
Á oddatöluári skal kjósa formann, formenn fastra málefnahópa og fjóra stjórnarmenn. Á ári sem kemur upp á sléttri tölu skal kjósa varaformann, gjaldkera, sjö stjórnarmenn og þrjá varamenn. Fjöldi atkvæða ræður röð varamanna. Ef kjósa þarf varamann til skemmri tíma en tveggja ára, verður hann síðastur í röð varamanna.
Stjórn fer með æðsta vald bandalagsins á milli aðalfunda. Meginhlutverk stjórnar er að framfylgja lögum og stefnu bandalagsins. Stjórn gerir starfssamning við formann.
Aðalmenn í stjórn geta setið að hámarki í þrjú kjörtímabil samfellt. Seta í formannsembætti er óháð fyrri stjórnarsetu.“
Þá tók fundarstjóri lagabreytingartillögu nr. 2 til afgreiðslu. Formaður laganefndar kynnti tillögu um breytingu á 12. grein laga ÖBÍ, þar sem lagt var til innskot í og viðbót við 1. mgr. (sjá fskj. nr. 15b) svohljóðandi:
„Inn í setninguna „Fulltrúar aðildarfélaga hafa atkvæðisrétt …” bætast við orðin „sem sitja fundinn” og seinni hluti setningarinnar verður að nýrri setningu: „Allir aðal- og varafulltrúar sinna félaga hafa kjörgengi í öll embætti á aðalfundi að teknu tilliti til uppfylltra skilyrða um kjörgengi.”
Fundarstjóri bauð umræður um tillöguna. Tveir tóku til máls, samþykkir tillögunni, en ítrekuðu vandað orðalag.
Þá voru greidd atkvæði um tillöguna. Var hún samþykkt með 77 atkvæðum gegn tveimur. Fimm tóku ekki afstöðu.
Þá tók fundarstjóri lagabreytingartillögu nr. 3 til afgreiðslu. Formaður laganefndar kynnti tillögu um viðbót, nýja málsgrein 2. mgr, við 13. grein laga ÖBÍ, a (sjá fskj. nr. 15c):
„Ef fulltrúi hættir áður en kjörtímabili lýkur er kosið í það embætti á næsta aðalfundi.“
Fundarstjóri bauð umræður um tillöguna en enginn kvaddi sér hljóðs. Greidd voru atkvæði um tillöguna. Var hún samþykkt samhljóða. Þrír tóku ekki afstöðu.
Þá tók fundarstjóri lagabreytingartillögu nr. 4 til afgreiðslu. Formaður laganefndar kynnti tillögu um breytingu á 12. grein laga ÖBÍ (sjá fskj. nr. 15d), að við hana bætist ný málsgrein:
„Fulltrúar í öllum embættum sem kosið er um á aðalfundi geta setið að hámarki í þrjú heil kjörtímabil samfellt í sama embætti. Hafi einstaklingur verið kosinn á miðju kjörtímabili getur hann klárað það auk þriggja heilla tímabila, þ.e. alls að hámarki 7 ár. Öll hlutverk innan stjórnar, þar með taldir varamenn, teljast sem seta í sama embætti þegar samfelldur tími er reiknaður samkvæmt þessu ákvæði. Seta í formannsembætti ÖBÍ er óháð fyrri stjórnarsetu.“
Jafnframt falla sambærilegar setningar úr 13. gr., 18. gr. Aog 24. gr. og hljóða þær svo:
13. gr. 4. mgr.: „Kjörnefndarmenn geta setið að hámarki í þrjú heil kjörtímabil samfellt.“
18. gr. A. 4. mgr.: „Aðalmenn í stjórn geta setið að hámarki í þrjú kjörtímabil samfellt. Seta í formannsembætti er óháð fyrri stjórnarsetu.“
24. gr. 1. mgr., 2. setning: „Laganefndarmenn geta setið að hámarki í þrjú heil kjörtímabil samfellt.“
Fundarstjóri bauð umræður um tillöguna og tveir tóku til máls. Vildu þeir nánari skýringu á hvernig skilja bæri breytinguna. Greidd voru atkvæði um tillöguna. Var hún samþykkt með 75 atkvæðum gegn fjórum. Tveir tóku ekki afstöðu.
Eftirfarandi lagagreinum var breytt og hljóða þær nú svo:
12. gr.:
„Fulltrúar aðildarfélaga sem sitja fundinn hafa atkvæðisrétt. Allir aðal- og varafulltrúar sinna félaga hafa kjörgengi í öll embætti á aðalfundi að uppfylltum skilyrðum um kjörgengi.
Í öllum málum ræður einfaldur meirihluti, ef ekki er kveðið á um annað í þessum lögum. Atkvæðagreiðslur skulu vera leynilegar, sé þess óskað. Hafi tveir eða fleiri frambjóðendur hlotið jafnmörg atkvæði og röð þeirra skiptir máli ræður hlutkesti, nema tillaga komi fram um annað.
Kjósa má allt að jafnmarga frambjóðendur og þau sæti sem í boði eru hverju sinni.
Fulltrúar í öllum embættum sem kosið er um á aðalfundi geta setið að hámarki í þrjú heil kjörtímabil samfellt í sama embætti. Hafi einstaklingur verið kosinn á miðju kjörtímabili getur hann klárað það auk þriggja heilla tímabila, þ.e. alls að hámarki 7 ár. Öll hlutverk innan stjórnar, þar með taldir varamenn, teljast sem seta í sama embætti þegar samfelldur tími er reiknaður samkvæmt þessu ákvæði. Seta í formannsembætti ÖBÍ er óháð fyrri stjórnarsetu.”
13. gr.:
„Kjörnefnd skal hið minnsta tveimur mánuðum fyrir aðalfund óska eftir framboðum í trúnaðarstöður. Framboð skulu berast kjörnefnd eigi síðar en einum mánuði fyrir aðalfund. Kjörnefnd skal tryggja næg framboð í þau embætti sem kosið er um. Kjörnefnd skal einnig tryggja fjölbreytni framboða með tilliti til jafnræðis milli fötlunarhópa. Jafnframt skal hún líta til annarra atriða sem talin eru skipta máli, svo sem kynja, búsetu og aldurshópa.
Ef fulltrúi hættir áður en kjörtímabili lýkur er kosið í það embætti á næsta aðalfundi.
Kjörnefnd skal senda aðalfundarfulltrúum lista með nöfnum frambjóðenda eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.
Allir frambjóðendur eiga sama rétt á að kynna sig, þ.á.m. á aðalfundi. Berist framboð of seint eru þau háð samþykki aðalfundar.“
18. gr. A:
„A. Kosning og hlutverk stjórnar
Stjórn samanstendur af nítján stjórnarmönnum: formanni, varaformanni, gjaldkera, fimm formönnum fastra málefnahópa og ellefu öðrum stjórnarmönnum. Stjórn er kosin á aðalfundi úr hópi aðalfundarfulltrúa sem boðið hafa sig fram til trúnaðarstarfa skv. 13. gr. Jafnframt skal aðalfundur kjósa þrjá varamenn sem hafa seturétt á stjórnarfundum. Stjórnarmenn sitja í umboði aðalfundar en ekki einstakra aðildarfélaga.
Meirihluti stjórnar skal skipaður fötluðu fólki eða aðstandendum fatlaðs fólks sem þarf aðstoð til að tala máli sínu. Með fötlun er vísað til skilnings Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Formaður og varaformaður skulu vera fatlaðir einstaklingar eða aðstandendur fatlaðs fólks sem þarf aðstoð til að tala máli sínu.
Á oddatöluári skal kjósa formann, formenn fastra málefnahópa og fjóra stjórnarmenn. Á ári sem kemur upp á sléttri tölu skal kjósa varaformann, gjaldkera, sjö stjórnarmenn og þrjá varamenn. Fjöldi atkvæða ræður röð varamanna. Ef kjósa þarf varamann til skemmri tíma en tveggja ára, verður hann síðastur í röð varamanna. Stjórn fer með æðsta vald bandalagsins á milli aðalfunda. Meginhlutverk stjórnar er að framfylgja lögum og stefnu bandalagsins. Stjórn gerir starfssamning við formann.
24. gr.:
Innan bandalagsins skal starfa laganefnd. Hún vinnur að lagfæringum og breytingum á lögum ÖBÍ.
Aðildarumsóknir (18)
Engar aðildarumsóknir lágu fyrir.
Ályktanir aðalfundar (19)
Engar ályktanir bárust innan tilskilins frests, en ein ályktun barist fyrir fundinn og fundarstjóri óskaði leyfis fundarins til að taka ályktunina fyrir. Var það samþykkt með 60 atkvæðum gegn sex og sex sátu hjá.
Formaður ÖBÍ, Þuríður Harpa Sigurðardóttir, kynnti ályktun aðalfundar ÖBÍ um kjör örorkulífeyrisþega, svohljóðandi (sjá fskj. nr. 16):
Ályktun aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands haldinn 2. og 3. október 2020
Við skilum skömminni til ríkisstjórnarinnar
Í þrjú ár hefur ríkisstjórn Katrínar, Bjarna og Sigurðar Inga ákveðið að auka fátækt fatlaðs og langveiks fólks í stað þess að bæta kjör okkar. Sístækkandi hópur öryrkja býr við sárafátækt. Það veldur aðalfundi Öryrkjabandalags Íslands miklum vonbrigðum að um áramótin 2020-2021 verði munurinn á örorkulífeyri og lágmarkslaunum orðinn kr. 86.000.
Frá árinu 2007 hefur bil á milli örorkulífeyris og lágmarkslauna stöðugt breikkað. Í valdatíð núverandi ríkisstjórnar hefur ekkert verið gert til að bregðast við þessari kjaragliðnun, heldur þvert á móti hefur bilið breikkað enn meira, þrátt fyrir að ríkisstjórnin segist vinna í anda heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, hvar efst á blaði er að útrýma fátækt. Nú þegar Bjarni hefur lagt fram sitt síðasta fjárlagafrumvarp á kjörtímabilinu er enga breytingu að sjá.
Aðalfundur Öryrkjabandalagsins krefst þess að ríkisstjórnin endurskoði afstöðu sína gagnvart lífskjörum fatlaðs og langveiks fólks og bæti kjör okkar án tafar. Skömm ríkisstjórnarinnar er að halda okkur í fátækt og skýla sér á bakvið Covid og slæmt efnahagsástand.
Fátækt er afleiðing skammarlegra pólitískra ákvarðana. Ekkert um okkur án okkar!
Fundarstjóri bauð umræður um ályktunina en enginn tók til máls.
Fundarstjóri bar ályktunina upp til atkvæða og var hún samþykkt með 67 atkvæðum gegn tveimur, sjö sátu hjá.
Önnur mál (20)
Gísli Helgason frá Blindravinafélagi Íslands sagði frá þeim tímamótum sem verða 2021 þegar Blindravinafélagið mun sjálfkrafa hætta í bandalaginu, sbr. 7. gr. laga ÖBÍÍ og þetta sé því hans síðasti aðalfundur. Það hafi skipst á skin og skúrir á aðalfundum bandalagsins en hann hafi þroskast mikið á veru sinni hér. Minnti á mikilvægi „Ekkert um okkur án okkar“.
Bergþór Heimir Þórðarson þakkaði fyrir traustið til embættis varaformanns. Þakkaði hann einnig fyrir fyrir gott samtal og samvinnu í laganefnd.
Þá þökkuðu fundarstjórar fyrir sig og afhentu formanni ÖBÍ, Þuríði Hörpu Sigurðardóttur, fundinn.
Fundarlok
Formaður þakkaði öllum fyrir fundarsetuna og þolinmæði við nýtt fundarform. Hún þakkaði fráfarandi stjórnarfólki fyrir vel unnin störf og óskaði nýju stjórnarfólki til hamingju með embættin. Þá þakkaði formaður fundarstjórum og fundarriturum fyrir góð störf sem og starfsfólki ÖBÍ.
Formaður sleit fundi kl.16:34
Aðalfundur 2019
Aðalfundur ÖBÍ 2019
Ávarp formanns – fundarsetning
Fundarstjórar þökkuðu traustið, buðu gesti velkomna og kynntu dagskrá fundarins (fskj. nr. 1). Fundarstjóri óskaði samþykkis fundarins fyrir setu fulltrúa frá Ás, styrktarfélagi, Hugarfari, Nýrri rödd og Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra, en upplýsingar um þá bárust eftir tilskilinn frest. Var seta þeirra samþykkt.
Fundarstjóri óskaði þá samþykkis fyrir setu fulltrúa úr málefnahópum ÖBÍ. Var það samþykkt og tóku sæti á fundinum María Hauksdóttir fyrir málefnahóp um atvinnu- og menntamál, Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir fyrir málefnahóp um heilbrigðismál, Jón Heiðar Jónsson fyrir málefnahóp um aðgengismál, Ingibjörg Snjólaug Snorra Hagalín fyrir málefnahóp um sjálfstætt líf og Svavar Kjarrval úr stjórn ÖBÍ.
Óskað var samþykkis fyrir setu tveggja áheyrnarfulltrúa Kvennahreyfingar ÖBÍ, þær Margéti Lilju Aðalsteinsdóttur og Jenný Pétursdóttur, og eins áheyrnarfulltrúa Ungliðahreyfingar ÖBÍ, Andra Valgeirssonar. Var seta þeirra samþykkt.
Almenn fundarstörf
Skýrsla stjórnar (1)
Formaður flutti skýrslu stjórnar (fskj. nr. 2 – Ársskýrsla Öryrkjabandalags Íslands 2018-2019. Skýrsla formanns og stjórnar, bls. 9-29) og sagði meðal annars frá eftirfarandi atriðum:
Barátta er orð ársins en þrátt fyrir að engir stórir sigrar hafi unnist þá varð ákveðin vitundarvakning meðal verkalýðsfélaga sem var sannarlega sigur. Baráttan heldur því áfram, ÖBÍ vill eiga samtal og samráð við stjórnvöld og hafa áhrif á mál sem varða fatlað og langveikt fólk.
Mikill tími starfsársins fór í kjarabaráttu. Lengi hefur verið unnið að því að fá stjórnvöld til þess að afnema krónu á móti krónu skerðinguna á sérstöku uppbótinni vegna atvinnutekna. Í júní 2019 lagði félags- og barnamálaráðherra fram frumvarp þar sem gefinn var afsláttur af skerðingunni um 35 aura. Í dag er því 65% skerðing í stað 100% áður. Það voru mikil vonbrigði að skerðingin skyldi ekki vera afnumin að fullu og því ákvað ÖBÍ að höfða dómsmál á hendur stjórnvöldum vegna þessa máls.
Í ár urðu einnig þær ánægjulegu breytingar á lögum um almannatryggingar að TR skuli taka tillit til atvinnutekna mánaðarlega í stað þess að horfa heilt ár aftur í tímann. Ennfremur voru einnig samþykkt lög sem þýða að uppbætur á lífeyri vegna framfærslubyrðar og uppbót vegna reksturs bifreiðar er undanþegin skatti frá 1. janúar 2019. Þarna unnust nokkrir sigrar en svo kom að fjárlögum. Í lok desember 2018 voru fjárlög 2019 samþykkt. Í þessum fjárlögum voru engar hækkanir umfram lögbundnar. Í umræðum á Alþingi ákváðu stjórnvöld svo skyndilega að taka 1,1 milljarð af því sem fyrr hafði verið úthlutað til málaflokks örorku og fatlaðs fólks. ÖBÍ mótmælti þessum fyrirætlunum harðlega. Þegar endurskoðuð fjármálaáætlun var lögð fram, var tillaga um að skerða fyrri tillögu til málaflokksins um 8 milljarða vegna gjaldþrots WOW, loðnubrests og minnkandi ferðamannastraums. Enn á ný mótmælti ÖBÍ kröftuglega og fór það svo að í endanlegri fjármálaáætlun varð 4,5 milljarða lækkun í stað átta áður.
ÖBÍ sendi inn kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna útreiknings TR á skerðingum örorkulífeyris til þeirra sem búið hafa hluta úr ævi erlendis. ÖBÍ taldi að útreikningur TR bryti í bága við íslensk lög og samræmdist ekki EES reglugerð um almanna- tryggingar. Umboðsmaður Alþingis var sammála skilningi ÖBÍ og í desember 2018 viðurkenndi velferðarráðuneytið að TR bæri að fara eftir lögum og endurreikna og greiða upp á það sem vantaði. Um miðjan maí 2019 hóf TR endurreikning á búsetu til þeirra rúmlega 1000 manns sem áttu rétt á leiðréttingu. Stjórnvöld hafa gefið það út að leiðrétt verði fjögur ár aftur í tímann en ÖBÍ krefst þess að TR leiðrétti tíu ár aftur í tímann. Fyrirhugað er að höfða dómsmál í þeirri von um að ná fram leiðréttingu tíu ár aftur í tímann.
Á árinu endurgreiddi Reykjavíkurborg fólki sem leigði hjá Brynju hússjóði og öðrum hagsmunaaðilum sem leigja öryrkjum húsnæði, sérstakar húsaleigubætur aftur í tímann. Þessar bætur lentu í vasa TR vegna þess að litið var á þær sem fjármagnstekjur og því ollu bæturnar skerðingu á lífeyrisgreiðslum. Að mati ÖBÍ er þetta óviðunandi staða og því hefur verið sent erindi til Félagsmálaráðuneytisins þar sem lögð er til lausn á málinu.
Þá kynnti formaður nýja auglýsingaherferð til þess að vekja athygli almennings á kjörum örorkulífeyrisþega. Slagorð herferðarinnar er „Bjóðum betur“. Fyrirhugað er að auglýsingaherferðin verði á öllum helstu samfélagsmiðlum auk sjónvarps, útvarps og blaða.
Formaður fjallaði einnig um greiningarskýrslu KPMG um þróun örorku til ársins 2030 sem var unnin að beiðni félagsmálaráðuneytisins. Þar kemur fram að öryrkjum muni fjölga mikið fram til ársins 2030. ÖBÍ taldi nauðsynlegt að fá álit sérfræðings á skýrslunni og var Kolbeinn Stefánsson hagfræðingur fenginn til þess að vinna greinargerð um fjölgun örorkulífeyrisþega frá árinu 2008 til ársins 2030. Skemmst er frá því að segja að niðurstöður hans eru allt aðrar en KPMG (sjá fskj. nr.2a).
Mikil aukning varð á umfjöllun um ÖBÍ í fjölmiðlum skv. talningu Creditinfo, sem gefur vísbendingu um að fréttaflutningur af málefnum bandalagsins sé markviss og nái athygli. Þá hefur fylgjendum ÖBÍ á Facebook fjölgað um tæp 20% á tímabilinu.
Málefnahópar bandalagsins eru afar mikilvægir og störf þeirra eru grundvöllur að málefnavinnu ÖBÍ. Valinn maður er í hverju rúmi og vinna þeirra er ómetanleg. Aðalfundur 2018 samþykkti að farið yrði í aðgengisátak. Tveir starfsmenn voru ráðnir til hálfs árs, Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir og Guðrún Ósk Maríasdóttir. Þær komu í pontu og kynntu átakið.
Fundarstjóri bauð umræður um skýrslu stjórnar. Tveir fundarmenn tóku til máls og þökkuðu fyrir góða skýrslu. Spurt var hvort að aðgengismálum yrði fylgt eftir þar sem úrbóta var þörf? Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir svaraði og sagði að málefnahópur um aðgengi myndi fylgja úrbótum eftir. Ennfremur var spurt hvernig hægt væri að beita sér fyrir hækkun á örorkulífeyri? Þuríður Harpa formaður svaraði og sagði að ÖBÍ vonaðist til þess að stjórnvöld myndu standa við þá leiðréttingu sem þau höfðu áður lofað. ÖBÍ hefur leitað liðsinnis verkalýðsfélaganna og vonast formaðurinn til þess að það muni bera árangur.
Ársreikningur ÖBÍ (2)
Guðmundur Snorrason, endurskoðandi frá PwC ehf., kynnti ársreikning ÖBÍ fyrir árið 2018 (fskj. nr. 3 – Ársreikningur 2018). Það var álit endurskoðanda að reikningurinn gæfi glögga mynd af afkomu félagsins á árinu, efnahag og breytingum á haldbæru fé í árslok 2018. Ársreikningurinn var áritaður án fyrirvara af endurskoðanda og skoðunarmönnum. Endurskoðandi vakti athygli á breyttri framsetningu reikninganna, sem var gerð til að leiða fram með skýrari hætti hvað rekstur ÖBÍ tekur til sín án áhrifa frá framlögum frá Íslenskri getspá og styrkjum sem ÖBÍ veitir aðildarfélögum.
- Heildartekjur ársins 2018 voru 2,2 % hærri en árið 2017, 13,2 milljónir í stað 12,5 árið áður.
- Rekstrargjöld voru 281 milljón 2018 en 251 milljón 2017.
- Laun og tengd gjöld hækkuðu á milli ára því laun hækkuðu vegna kjarasamninga, vegna leiðréttingar aftur í tímann og fjölgun starfsmanna um tvö stöðugildi.
- Fundir, ráðstefnur, auglýsingar og kynningar voru 30 milljónir 2018 á móti rúmlega 33 milljónum árið á undan.
- Fjármunatekjur ársins 2018 voru 11,5 milljónir, í stað tæplega 10 árið 2017.
- Rekstrarafkoma fyrir fjármunatekjur var neikvæð upp á 256 milljónir árið 2018 á móti 228 milljónum árið á undan. Framlög frá Íslenskri getspá, sem hækkuðu um 11% á milli ára, komu til móts við neikvæða rekstrarafkomu.
- Rekstrarafkoma 2018 var tæpar 39 milljónir, í stað ríflega 21,5 milljóna 2017.
- Fastafjármunir lækkuðu um sjö milljónir á milli ára, að stærstum hluta vegna fasteignar. Aðrar langtímakröfur hækkuðu um átta milljónir og því stóðu fastafjármunir nánast óbreyttir á milli ára, fór úr tæpum 523 milljónum 2017 í tæplega 524 milljónir árið 2018.
- Eigið fé jókst á milli ára, fór úr 574 milljónum árið 2017 í 613 milljónir árið 2018. Lífeyrisskuldbindingar stóðu nánast í stað á milli ára og skammtímaskuldir jukust úr tæpum 50 milljónum 2017 í tæplega 156 milljónir 2018, vegna ógreiddra framlaga til tengdra aðila um áramót.
- Heildarniðurstaða efnahagsreiknings var mjög góð um áramót, eignir, eigið fé og skuldir samtals 808,5 milljónir 2018, í stað 664 milljóna 2017.
- Fundarstjóri opnaði fyrir umræður um reikninga ÖBÍ. Til svara voru gjaldkeri ÖBÍ og framkvæmdastjóri.
- Framkvæmdarstjóri, Lilja Þorgeirsdóttir, þakkaði yfirferð á ársreikningi. Sagði hún að þegar tekjur aukist eykst svigrúm til styrkja. Rekstrarafgangi 2018 var ráðstafað til Brynju hússjóðs ÖBÍ og í aukastyrki til aðildarfélaga.
- Fimm fundarmenn tóku til máls. Spurt var hvers vegna starfsmönnum á skrifstofu ÖBÍ fjölgi ört og hvað gerist ef tekjur frá Íslenskri getspá falli niður. Spurt var um lífeyrisskuldbindingar og hvort þær séu ekki uppreiknaðar reglulega og spurt var hvort einhverjir starfsmenn þiggi laun skv. samningum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Gerð var athugasemd við að formenn málefnahópa væru ekki taldir til starfsmanna ÖBÍ og spurt var um hvernig styrkir til félaga séu ákveðnir.
- Framkvæmdastjóri sagði formenn málefnahópa og gjaldkera ÖBÍ fá þóknun og að þeir væru taldir með sem starfsmenn ÖBÍ. Hægt væri að reka ÖBÍ í eitt ár á þeim sjóðum sem til væru með því að skera niður alla styrki. Lífeyrisskuldbindingar ÖBÍ eru uppreiknaðar reglulega. Um úthlutun styrkja gilda ákveðnar reglur, sem aðildarfélögin geta nálgast hjá framkvæmdastjóra. Aukastyrkir til aðildarfélaga og fyrirtækja eru veittir samkvæmt ákvörðun stjórnar og eru reiknaðir miðað við rétt aðildarfélags til fjölda fulltrúa á aðalfundi ÖBÍ.
- Gjaldkeri ÖBÍ, Bergur Þorri Benjamínsson, sagði að stærð varasjóðs væri ákvörðun stjórnar hverju sinni. Hann velti upp þeirri spurningu hversu miklum sjóðum ÖBÍ eigi að safna. Gjaldkeri minnti á að einkaleyfi Íslenskrar getspár til reksturs Lottó gildi til 2038 og því sé ekki tímabært að hafa áhyggjur af því að tekjur þaðan falli niður. Þá sagði hann stöðu ÖBÍ vera góða.
- Varaformaður ÖBÍ, Halldór Sævar Guðbergsson, tók til máls og sagði að breytingar á starfsemi ÖBÍ sem aðalfundur hefur samþykkt kalli á fjölgun starfsmanna skrifstofunnar vegna aukinna verkefna.
Frekari umræður og fyrirspurnir voru ekki og bar fundarstjóri reikninginn upp til atkvæða. Var ársreikningur ÖBÍ 2018 samþykktur samhljóða.
Skýrslur fastra málefnahópa (3)
Málefnahópur um aðgengismál (a)
Ingveldur Jónsdóttir frá MS félagi Íslands, formaður hópsins, sagði frá starfi hópsins, þakkaði gott samstarf við þá sem sátu í hópnum og starfsmanni hópsins.
Ásamt Ingveldi voru í hópnum Birna Einarsdóttir frá Gigtarfélagi Íslands, Grétar Pétur Geirsson frá Sjálfsbjörg lsh. Ingólfur Már Magnússon frá Heyrnarhjálp, Jón Heiðar Jónsson frá Sjálfsbjörg lsh., Lilja Sveinsdóttir frá Blindrafélaginu, Sara Birgisdóttir frá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra og Sigurjón Einarsson frá Fjólu, sem einnig var varaformaður. Stefán Vilbergsson var starfsmaður hópsins.
Fundarstjóri bauð umræður en engar urðu.
Málefnahópur um atvinnu- og menntamál (b)
Sævar Pálsson frá Hjartaheillum var formaður hópsins og með honum störfuðu Brynhildur Arthúrsdóttir frá Laufi, Hrönn Stefánsdóttir frá Gigtarfélagi Íslands, María Hauksdóttir frá Blindrafélaginu, Sigríður Fossberg Thorlacius frá Málbjörg, Sigurður Jón Ólafsson frá Stómasamtökum Íslands og Sylviane Lecoultre frá Geðhjálp. Brandur Bjarnason Karlsson frá Sjálfsbjörg lsh., og Hrannar Björn Arnarsson frá ADHD samtökunum voru varamenn. Starfsmaður hópsins var Þórdís Viborg.
Hrönn Stefánsdóttir sagði frá starfi hópsins, í fjarveru formanns, og sýndi myndband sem hópurinn lét gera, um allskonar störf fyrir allskonar fólk. Fundarstjóri bauð umræður en engar urðu.
Málefnahópur um heilbrigðismál (c)
Emil Thóroddsen frá Gigtarfélagi Íslands var formaður og ásamt honum voru í hópnum Fríða Rún Þórðardóttir frá Astma- og ofnæmisfélagi Íslands, Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir frá Sjálfsbjörg lsh., Karl Þorsteinsson frá Ás styrktarfélagi, Sigríður Jóhannsdóttir frá Samtökum sykursjúkra, Stefanía G. Kristinsdóttir frá SÍBS og Vilhjálmur Hjálmarsson frá ADHD samtökunum. Varamenn voru Fríða Björk Arnardóttir frá Hjartaheillum og Hannes Þórisson frá Félagi nýrnasjúkra. Stefán Vilbergsson var starfsmaður hópsins.
Formaður gerði góða grein fyrir starfi hópsins sem hélt 18 fundi og tvö málþing á milli aðalfunda. Fundarstjóri bauð umræður enginn kvaddi sér hljóðs.
Málefnahópur um kjaramál (d)
Rósa María Hjörvar frá Blindrafélaginu var formaður og Bergþór Heimir Þórðarson frá Geðhjálp varaformaður. Starfaði hann sem formaður frá því Rósa María fór í veikindaleyfi í maí 2019. Ásamt þeim störfuðu í hópnum Dóra Ingvadóttir frá Gigtarfélagi Íslands, Einar Björnsson frá Geðhjálp, Frímann Sigurnýasson frá SÍBS og Sævar Pálsson og Valgerður Hermannsdóttir frá Hjartaheillum. Varamenn hópsins voru Helga Elínborg Auðunsdóttir frá SÍBS og Snæbjörn Áki Friðriksson frá Málbjörg. Sigríður Hanna Ingólfsdóttir var starfsmaður hópsins.
Hópurinn fundaði 24 sinnum og var starf starfshópa félagsmálaráðherra um breytt almannatryggingakerfi stór þáttur í vinnu hópsins. Fundarstjóri bauð umræður og spurt var hvort ekki þurfi að þrýsta á um að öryrkjar fái fulltrúa í kjarasamninga- nefndir. Bergþór svaraði því játandi.
Málefnahópur um sjálfstætt líf (e)
Rúnar Björn Herrera frá SEM samtökunum var formaður hópsins og með honum áttu sæti í hópnum Arna Sigríður Albertsdóttir frá SEM samtökunum, Bergþór G. Böðvarsson frá Geðhjálp, Elma Finnbogadóttir frá Blindrafélaginu, Freyja Haraldsdóttir frá Tabú, Guðmundur Magnússon frá SEM samtökunum, Snædís Rán Hjartardóttir frá Fjólu og varamenn voru Andri Valgeirsson frá Sjálfsbjörg lsh. og Ingibjörg Snorra Hagalín frá MS félagi Íslands. Starfsmaður hópsins var Sigurjón Unnar Sveinsson.
Rúnar Björn sagði frá starfi hópsins. Sagði hann meðal annars frá því að fjöldi NPA samninga hefur tvöfaldast frá aðalfundi 2018. Hópurinn hefur meðal annars veitt sveitafélögum aðhald við að framfylgja lögum og reglugerð um NPA. Engar fyrirspurnir bárust.
Málefnahópur um málefni barna (f)
Elín Hoe Hinríksdóttir frá ADHD samtökunum var formaður málefnahóps um málefni barna og í hópnum með henni sátu Fríða Bragadóttir frá Samtökum sykursjúkra / Laufi, Halldóra Inga Ingileifsdóttir frá Ás styrktarfélagi, Sif Hauksdóttir frá Astma- og ofnæmisfélagi Íslands, Sigrún Birgisdóttir frá Einhverfusamtökunum og Sunna Brá Stefánsdóttir frá Gigtarfélagi Íslands. Varamenn voru Áslaug Inga Kristinsdóttir frá Geðhjálp og Ragnar Vignir frá ADHD samtökunum. Starfsmaður hópsins var Þórdís Viborg.
Formaður kynnti skýrslu hópsins, sagði frá ungmennaþingi sem hópurinn stóð fyrir og kynnti vinnu við réttindagátt um réttindi barna með fötlun og raskanir, sem verið er að taka saman fyrir hópinn. Elín þakkaði starfsmanni og nefndarmönnum fyrir mjög gott starf.
Fundarstjóri bauð umræður um skýrsluna. Þrír tóku til máls. Spurt var um réttindi barna sem eiga fatlaða foreldra og hvort stefnt sé á að skoða það sérstaklega. Spurt var hvort erlendir foreldrar eigi fulltrúa í málefnahópnum og hvort einhver hópur sé starfandi á vegum Reykjavíkurborgar sem hugi að málefnum fatlaðra barna af erlendum uppruna og foreldra þeirra.
Elín sagði það vera á dagskrá vetrarins að huga að stöðu heilbrigðra barna fatlaðra foreldra. Ennfremur sagði hún að hugað yrði að réttindum erlendra foreldra fatlaðra barna og stefnt væri að því að þýða réttindabækling yfir á önnur tungumál til þess að auðvelda erlendum foreldrum að þekkja réttindi sín.
Skýrslur fyrirtækja (4)
Skýrslur fyrirtækja lágu frammi (fskj. nr. 2, bls. 40-45) og ársreikninga fyrirtækja má sjá í fylgiskjölum 4a-4e. Fundarstjóri bauð umræður um skýrslurnar.
BRYNJA, hússjóður Öryrkjabandalagsins (a)
Garðar Sverrisson, formaður Brynju, var til svara. Spurt var um kaup og sölu íbúða, ástæður þess að engin íbúð hafi verið keypt/byggð 2018 og hvort standi til að bæta úr því 2019. Einnig var spurt hvort eitthvað gangi á biðlista.
Garðar sagði lítið ganga á biðlista. Hann sagði stofnframlög frá ríkisstjórn og styrki hafa verið engin á síðasta ári og þess vegna hafi engar íbúðir verið keyptar.
Örtækni (b)
Þorsteinn Jóhannsson, framkvæmdastjóri, var til svara en engar fyrirspurnir bárust.
Hringsjá (c)
Helga Eysteinsdóttir, forstöðumaður, var til svara en engar fyrirspurnir bárust.
TMF- Tölvumiðstöð (d)
Sigrún Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri, var til svara en engar fyrirspurnir bárust.
Fjölmennt (e)
Helga Gísladóttir, forstöðumaður, var til svara, en engar fyrirspurnir bárust.
Stefnuþing: Stefna og starfsáætlun (5)
Formaður þakkaði málefnahópum og formönnum þeirra fyrir gríðargott starf frá síðasta stefnuþingi. Kynnti formaður fjórða Stefnuþing ÖBÍ, sem fram fer 27. og 28. mars 2020, á Grand Hóteli, þar sem m.a. heimsmarkmið SÞ verða tekin fyrir.
Aðildargjöld, ákvörðun (6)
Fundarstjóri kynnti fram komna tillögu frá stjórn ÖBÍ um að aðildargjöld ÖBÍ yrðu óbreytt, 0 kr. (sjá fskj. nr. 5). Rúnar Björn Herrera kvaddi sér hljóðs fyrir hönd stjórnar SEM samtakanna og lagði fram eftirfarandi tillögu (sjá fskj. nr. 5a):
„Á stjórnarfundi SEM haldin 1. Október 2019 ákvað Stjórn SEM að gera tillögu til aðalfundar ÖBÍ þess efnis að ÖBÍ taki félagsgjöld af félögum innan ÖBÍ og leggur stjórn SEM fram að félagsgjal pr. félaga verði 100 krónur á félagsmann.“
Fundarstjóri bauð umræður um báðar tillögurnar. Ellefu fundarmenn tóku til máls. Í máli þeirra kom fram áminning til aðildarfélaga um að hafa sína félagaskrá í lagi. Fram kom að tillagan væri til að sporna gegn því að aðildarfélögin bólgni út.
Fundarstjóri tók tillögu SEM samtakanna til afgreiðslu. Tillagan var felld með þorra atkvæða gegn fjórum.
Þá var tekin til atkvæða tillaga stjórnar ÖBÍ. Tillagan var samþykkt með þorra atkvæða gegn tveimur og tveir sátu hjá.
Stjórnarseta, þóknun (7)
Fundarstjóri tók til afgreiðslu tillögu frá stjórn ÖBÍ um þóknun fyrir stjórnarsetu, svohljóðandi (sjá fskj. nr. 6):
Lagt er til að fyrirkomulag við greiðslu þóknunar fyrir fundarsetu fyrir fulltrúa í stjórn ÖBÍ verði óbreytt frá fyrra starfsári sem er eftirfarandi:
- Stjórnarmenn ÖBÍ og varamenn fá greiddar 6 einingar fyrir hvern setinn stjórnarfund sem er allt að 2,5 klst. langur.
- Fyrir hverja klst. umfram það er greidd ein eining.
- Upphæð þóknunar tekur mið af ákvörðun þóknananefndar ríkisins sem er
- 2.308 kr. á hverja einingu, miðað við júní 2019.
Fundarstjóri bauð umræður. Spurt var hvort ekki væri um lága þóknun að ræða. Framkvæmdastjóri útskýrði fyrirkomulag greiðslna.
Greidd voru atkvæði um tillöguna sem var samþykkt með þorra atkvæða, en 10 sátu hjá.
Kl. 19:50 frestaði fundarstjóri fundi til kl. 10 laugardaginn 5. október 2019.
Fundarstjóri hóf fund að nýju kl. 10:07.
Kosningar í stjórn
Fundarstjóri lagði til að Páll Hilmarsson, Dóra Guðrún Pálsdóttir og Ólafur Sindri Ólafsson yrðu talningamenn á fundinum. Var það samþykkt samhljóða.
Albert Ingason kvaddi sér hljóðs og sagði frá starfi kjörnefndar í fjarveru formanns hennar, Jóns Þorkelssonar. Þakkaði Albert starfsmanni nefndarinnar fyrir vel unnin störf. Sagði Albert störf nefndarinnar hafa verið meira krefjandi að þessu sinni en oft áður og þess vegna telur kjörnefnd sig knúna til að velta því upp hvort tilefni sé til að stækka þann hóp sem hún hefur úr að velja. Albert kynnti framboð tveggja aðila sem bárust eftir að framboðslisti var prentaður. Það voru framboð Gísla Helgasonar til setu í laganefnd og Ingveldar Jónsdóttur sem varamann við endurskoðun reikninga.
Formaður (8)
Þuríður Harpa Sigurðardóttir var ein í framboði til formanns ÖBÍ (fskj. nr. 9) og því var hún sjálfkjörin í embætti formanns ÖBÍ 2019-2021.
Þuríður Harpa tók til máls og þakkaði fyrir traustið. Hún taldi sitt helsta verkefni vera að berjast gegn kjaragliðnun undanfarinna ára. Halldór Sævar Guðbergsson varaformaður kvaddi sér hljóðs og sagði Þuríði Hörpu hafa komið fullskapaða inn í embætti formanns fyrir tveimur árum og leitt stjórn og skrifstofu áfram af röggsemi og hugmyndaauðgi.
Varaformaður (9)
Kosið verður í embætti varaformanns 2020.
Gjaldkeri (10)
Kosið verður í embætti gjaldkera 2020.
Formenn fastra málefnahópa (11)
Fundarstjóri kynnti að 120 atkvæðabærir fulltrúar væru í salnum.
Fundarstjóri kynnti kosningu í embætti formanns málefnahóps um aðgengismál. Ein var í framboði, Ingveldur Jónsdóttir frá MS félaginu (fskj. nr. 10).
Engin framboð bárust úr sal og því var Ingveldur Jónsdóttir sjálfkjörin formaður málefnahóps um aðgengismál 2019-2021.
Fundarstjóri kynnti kosningu í embætti formanns málefnahóps um atvinnu- og menntamál. Einn var í framboði, Sævar Pálsson frá Hjartaheillum (fskj. nr. 11).
Engin framboð bárust úr sal og var Sævar Pálsson því sjálfkjörinn formaður málefnahóps um atvinnu- og menntamál 2019-2021.
Fundarstjóri kynnti kosningu í embætti formanns málefnahóps um heilbrigðismál. Einn var í framboði, Emil Thóroddsen frá Gigtarfélagi Íslands (fskj. nr. 12).
Engin framboð bárust úr sal og því var Emil Thóroddsen sjálfkjörinn formaður málefnahóps um heilbrigðismál 2019-2021.
Fundarstjóri kynnti kosningu í embætti formanns málefnahóps um kjaramál. Einn var í framboði, Bergþór H. Þórðarson frá Geðhjálp (fskj. nr. 13).
Engin framboð bárust úr sal og því var Bergþór H. Þórðarson sjálfkjörinn formaður málefnahóps um kjaramál 2019-2021.
Fundarstjóri kynnti kosningu í embætti formanns málefnahóps um sjálfstætt líf. Einn var í framboði, Rúnar Björn Herrera frá SEM samtökunum (fskj. nr. 14).
Engin framboð bárust úr sal og því var Rúnar Björn Herrera sjálfkjörinn formaður málefnahóps um sjálfstætt líf 2019-2021.
Stjórnarmenn (12)
Fundarstjóri kynnti kosningu fjögurra stjórnarmanna til tveggja ára. Fjögur höfðu boðið sig fram innan tilskilins frests, þau Elín Hoe Hinriksdóttir frá ADHD samtökunum, Frímann Sigurnýasson frá Vífli, María Óskarsdóttir frá Sjálfsbjörg lsh. og Sylviane Lecoultre frá Geðhjálp (sjá fskj. nr.15a-d). Fundurinn samþykkti að leyfa framboð Gísla Helgasonar frá Blindravinafélaginu. Farið var yfir fyrirkomulag kosninganna. Frambjóðendur kynntu sig.
Greidd voru 120 atkvæði og voru þrír seðlar ógildir. Þessi hlutu kosningu til setu í stjórn ÖBÍ 2019-2021:
- Elín Hoe Hinriksdóttir með 110 atkvæði.
- Sylviane Lecoultre með 105 atkvæði.
- María Óskarsdóttir með 98 atkvæði.
- Frímann Sigurnýasson með 97 atkvæði.
Aðrar kosningar til tveggja ára
Kjörnefnd (14)
Fundarstjóri kynnti að 122 atkvæðabærir fulltrúar væru í salnum og tók fyrir kosningu fimm fulltrúa í kjörnefnd. Í framboði voru Albert Ingason frá SPOEX, Dagný Erna Lárusdóttir frá Astma- og ofnæmisfélagi Íslands, Jón Þorkelsson frá Stóma- samtökum Íslands, Sigurbjörg Ármannsdóttir frá MS félagi Íslands og Sigurður Rúnar Sigurjónsson frá SÍBS (sjá fskj. nr.16a-e). Engin framboð komu fram á fundinum og því var kjörnefnd sjálfkjörin.
Í framboði tveggja varamanna í kjörnefnd voru Sigrún Birgisdóttir frá Einhverfu- samtökunum og Dóra Ingvadóttir frá Gigtarfélagi Íslands. Engin framboð bárust úr sal og voru þær því sjálfkjörnar.
Laganefnd (15)
Fundarstjóri kynnti kosningu fimm fulltrúa í laganefnd. Innan tilskilins tíma höfðu boðið sig fram Frímann Sigurnýasson frá Vífli, Hrannar Björn Arnarsson frá ADHD samtökunum, Jóhann Guðvarðarson frá Gigtarfélagi Íslands, Sveinn Guðmundsson frá SÍBS og Þorsteinn Fr. Sigurðsson frá Sjálfsbjörg lsf. Þorsteinn dró framboð sitt til baka fyrir fundinn. Fundarstjóri óskaði leyfis fundarins fyrir framboði Helgu Hallgríms- dóttur frá Nýrnafélaginu, Bergþórs H. Þórðarsonar frá Geðhjálp, Maríu Óskarsdóttur frá Sjálfsbjörg lsh. og Gísla Helgasonar frá Blindravinafélagi Íslands. Var það samþykkt. Frambjóðendur kynntu sig.
Fundarstjóri kynnti að 124 fulltrúar væru í salnum með atkvæðisrétt. Gengið var til kosninga fimm fulltrúa í laganefnd og þessi hlutu kosningu:
- Helga Hallgrímsdóttir með 114 atkvæði.
- María Óskarsdóttir með 101 atkvæði.
- Bergþór H. Þórðarson með 97 atkvæði.
- Hrannar B. Arnarsson með 93 atkvæði.
- Jóhann Guðvarðarson með 69 atkvæði.
Fundarstjóri kynnti kosningu tveggja varafulltrúa. Edda Svavarsdóttir frá CCU samtökunum og Ragnar Davíðsson frá Nýrri rödd höfðu kynnt framboð sín fyrir aðalfundinn en Ragnar dró framboð sitt til baka. Fundarstjóri óskaði leyfis fundarins fyrir framboðum Rúnars Björns Herrera frá SEM samtökunum, Fjólu Guðmunds- dóttur frá HIV – Íslandi, Gísla Helgasonar frá Blindravinafélaginu og Eyþórs Kamban Þrastarsonar frá Blindrafélagi Íslands. Var það samþykkt. Frambjóðendur kynntu sig og dró Gísli framboð sitt til baka.
Fundarstjóri kynnti fyrirkomulag kosninganna og fundarmenn gengu til atkvæða. Greidd voru 121 atkvæði, einn seðill var auður. Þessi hlutu kosningu sem varafulltrúar í laganefnd:
- Edda Svavarsdóttir með 64 atkvæði.
- Rúnar Björn Herrera með 61 atkvæði.
Skoðunarmenn reikninga og varamenn (16)
Fundarstjóri kynnti kosningu tveggja skoðunarmanna reikninga og varafulltrúa þeirra. Í framboði voru Árni Sverrisson frá Alzheimersamtökunum á Íslandi og Guðrún Bergmann Franzdóttir frá Hjartaheillum. Fleiri gáfu ekki kost á sér og því voru þau sjálfkjörin.
Grétar Pétur Geirsson frá Sjálfsbjörg lsh. var í framboði sem varamaður. Fundarstjóri óskaði leyfis fundarins fyrir framboði Guðmundar Rafns Bjarnasonar frá Blindrafélaginu og Ingveldar Jónsdóttur frá MS félagi Íslands og var það samþykkt. Ingveldur dró framboð sitt til baka og því voru Grétar Pétur og Guðmundur Rafn sjálfkjörnir.
Lagabreytingar, aðildarumsóknir, ályktanir, önnur mál
Lagabreytingar (17)
Teknar voru til afgreiðslu tillögur til breytinga á lögum ÖBÍ sem borist höfðu laganefnd fyrir aðalfund (sjá lög ÖBÍ í fskj. nr. 18).
Formaður laganefndar, Dóra Ingvadóttir frá Gigtarfélagi Íslands, gerði grein fyrir störfum nefndarinnar. Í nefndinni sátu, auk formanns, Ingi Hans Ágústsson frá HIV Íslandi, Svavar Kjarrval Lúthersson frá Einhverfusamtökunum, Vilborg Gunnarsdóttir frá Alzheimersamtökunum og Þórir Steingrímsson frá Heilaheillum. Nefndinni höfðu borist þrjár lagabreytingartillögur fyrir aðalfund (sjá fskj. nr. 19-21).
Svavar Kjarrval frá Einhverfusamtökunum kvaddi sér hljóðs og dró áður kynnta breytingartillögu sína til baka (sjá fskj. nr. 20).
Tillaga Guðjóns Sigurðssonar frá MND félagi Íslands var ekki tekin til afgreiðslu, heldur vísað í önnur mál (sjá fskj. nr. 21).
Þá tók fundarstjóri breytingartillögu frá MS félagi Íslands til afgreiðslu. Ingveldur Jónsdóttir kynnti tillöguna um breytingu á 1. mgr. 12. gr. laga ÖBÍ (sjá fskj. nr. 19):
„Aðalfulltrúar aðildarfélaga hafa atkvæðisrétt og eru kjörgengir á aðalfundi. Varafulltrúar aðildarfélaga eru kjörgengir í eftirfarandi embætti: laganefnd, kjörnefnd og skoðunarmenn reikninga.“
Fundarstjóri bauð umræður um tillöguna. Átján tóku til máls. Voru fundarmenn almennt hlynntir breytingartillögunni en töldu hana ekki nægilega skýra, bæði varðandi seturétt varafulltrúa á aðalfundi, atkvæðarétt og framboðsrétt aðalfulltrúa sem forfallast og rétt þeirra þegar varamenn eru kallaðir inn. Hörgull hefur verið á frambjóðendum í þau embætti sem talin eru upp í tillögunni og taka þarf af allan vafa varðandi seturétt og kjörgengi fulltrúa.
Vilhjálmur Hjálmarsson frá ADHD samtökunum lagði fram tvær breytingartillögur, en hvorug var tekin til afgreiðslu.
Gísli Helgason frá Blindravinafélaginu lagði til að tillögu MS félags Íslands yrði vísað frá (sjá fskj. nr. 21a). Var tillagan felld með 42 atkvæðum gegn 32 og 35 sátu hjá.
Dóra Ingvadóttir, formaður laganefndar, lagði til að vísa málinu til laganefndar. Var það samþykkt með þorra atkvæða gegn einu og tveir sátu hjá.
Aðildarumsóknir (18)
Engar aðildarumsóknir lágu fyrir.
Ályktanir aðalfundar (19)
Engar ályktanir bárust innan tilskilins frests, en fjórar ályktanir höfðu borist fyrir fundinn og fundarstjóri óskaði leyfis fundarins til að taka ályktanirnar fyrir. Var það samþykkt samhljóða.
Formaður ÖBÍ, Þuríður Harpa Sigurðardóttir, kynnti aðalályktun fundarins um kjör örorkulífeyrisþega, svohljóðandi (sjá fskj. nr. 22):
Ályktun aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands haldinn 4. og 5. október 2019 um kjör örorkulífeyrisþega.
Fundarstjóri bauð umræður um ályktunina. Einn tók til máls og hvatti til samþykktar.
Fundarstjóri bar ályktunina upp til atkvæða og var hún samþykkt samhljóða.
Formaður kynnti ályktun um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (sjá fskj. nr. 23).
Fundarstjóri bauð umræður. Tveir tóku til máls. Var formaður og stjórn hvött til að eiga samtal við nýkjörinn dómsmálaráðherra. Spurt var hvers vegna tímafrestur væri ekki skemmri.
Fundarstjóri bar ályktunina upp til atkvæða. Var hún samþykkt samhljóða.
Formaður kynnti ályktun um atvinnuþátttöku örorkulífeyrisþega (sjá fskj. nr. 24).
Fundarstjóri bauð umræður um ályktunina, en engar urðu.
Fundarstjóri bar ályktunina upp til atkvæða og var hún samþykkt með þorra atkvæða gegn einu.
Formaður kynnti ályktun um mikilvægi mótunar stefnu í endurhæfingarmálum (sjá fskj. nr. 25 ):
Fundarstjóri bauð umræður. Fimm tóku til máls og höfðu athugasemdir við orðalag greinargerðar sem fylgdi með ályktuninni.
Fundarstjóri bar ályktunina upp til atkvæða og var hún samþykkt með þorra atkvæða, tveir sátu hjá.
Önnur mál (20)
Aðalfundur leggur til að stjórn, í samvinnu við laganefnd bandalagsins, verði falið að meta hvort lög Öryrkjabandalags Íslands standist kröfur samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sbr. álit nefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks nr. 7, kröfur Evrópusamtaka fatlaðs fólks (EDF) og kröfur Evrópusamtaka um sjálfstætt líf ) um meirihlutaþátttöku fatlaðs fólks í stjórnum og ráðum.
Telji stjórn eða laganefnd þörf á því að leggja til breytingar á lögum Öryrkjabandalags Íslands skal hún leggja breytingartillögur sínar fram eigi síðar en í maí 2020 og verða þær síðan lagðar fyrir aðalfund 2020
Ægir fylgdi tillögunni úr hlaði. Hann sagði ekkert í lögum ÖBÍ sem taki á þessu máli og tillagan sé hvatning til laganefndar og stjórnar ÖBÍ að skoða vel sjöunda almenna álit nefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (sjá http://bit.ly/7-alit-sþ) og sýn ENIL á það álit (sjá http://bit.ly/ENIL-um-7-alit-SÞ). Sagði Ægir tillöguflytjendur óska svars við tillögunni.
Fundarstjóri bauð umræður um tillöguna. Sjö tóku til máls. Voru menn almennt fylgjandi tillögunni. Spurt var hvort ekki væri ástæða til að láta þýða álitið til að forðast mistúlkun og ræddu menn ólíkan skilning hugtakanna fötlun og skerðing og nauðsyn þess að skoða málið vel. Jafnframt var þess óskað að laganefnd kannaði umfang skyldunnar sem álitið fjallar um, hvort hún nái umfram stjórnir félaga- samtaka. Rætt var um mikilvægi þess að tryggja meirihluta fatlaðs fólks í stjórnum og spurt hvort lög ÖBÍ endurspegli alþjóðlegar reglur.
Fundarstjóri tók tillöguna til afgreiðslu. Var hún samþykkt með þorra atkvæða og sex sátu hjá.
Fundarmenn vöktu athygli á þjónustu Sjúkratrygginga við þá sem þurfa penna fyrir insúlíngjafir og vörur vegna stóma og þvagleggja. Hvatti stjórn aðildarfélögin til að hyggja að þessum málum fyrir sína félagsmenn.
Halldór Sævar Guðbergsson varaformaður ÖBÍ þakkaði góðan fund og hvatti fundarmenn til að halda baráttunni áfram og krefjast verulegrar hækkunar á grunnbótum. Hann hvatti jafnframt hvert og eitt aðildarfélag til að senda inn umsögn um fjárlagafrumvarpið.
Þá þökkuðu fundarstjórar fyrir sig og afhentu formanni ÖBÍ, Þuríði Hörpu Sigurðardóttur, fundinn.
Fundarlok
Formaður hvatti félögin til að tilnefna fulltrúa inn í málefnahópa ÖBÍ. Þakkaði hún fundarstjórum skelegga og góða fundarstjórn og þakkaði traustið sem henni hefur verið sýnt. Baráttan heldur áfram!
Formaður sleit fundi kl.16:02.
Fylgiskjöl:
Aðalfundur 2018
Aðalfundur ÖBÍ 2018
Ávarp formanns, fundarsetning
Almenn fundarstörf
Skýrsla stjórnar (1)
Ársreikningur ÖBÍ (2)
Skýrslur fastra málefnahópa (3)
Málefnahópur um aðgengismál (a)
Málefnahópur um atvinnu- og menntamál (b)
Málefnahópur um heilbrigðismál (c)
Umræður
Málefnahópur um kjaramál (d)
Málefnahópur um sjálfstætt líf (e)
Málefnahópur um málefni barna (f)
Skýrslur fyrirtækja (4)
BRYNJA, hússjóður Öryrkjabandalagsins (a)
Örtækni (b)
Hringsjá (c)
TMF- Tölvumiðstöð (d)
Fjölmennt (e)
Íslensk getspá (f)
Stefnuþing: Stefna og starfsáætlun (5)
Varaformaður sagði frá Stefnuþingi ÖBÍ sem haldið var 20. og 21. apríl 2018. Þetta var þriðja stefnuþing ÖBÍ og sagði varaformaður að enn væri að komast mynd á framkvæmd þess.
Formaður kynnti tillögur um þau málefni sem verða efst á baugi sex málefnahópa ÖBÍ næstu tvö ár eftir vinnu á Stefnuþingi 2018 (fylgiskjöl 5a-f).
Fundarstjóri opnaði fyrir umræður um tillögur frá stefnuþingi. Tveir tóku til máls og ræddu aðgengi að umhverfi og náttúru og kjaramál.
Fundarstjóri bar tillögurnar upp til atkvæða og voru þær samþykktar samhljóða.
Aðildargjöld, ákvörðun (6)
Fundarstjóri lagði til að aðildargjöld ÖBÍ yrðu óbreytt, 0 kr., og opnaði fyrir umræður. (sjá fskj. nr. 6)
Arnar Haukur Lárusson frá SEM samtökunum lagði fram breytingartillögu og lagði til að aðildargjöld yrðu hækkuð í kr. 5000 á ári (sjá fylgiskjal nr. 6a).
Fundarstjóri bauð umræður um breytingartillöguna. Sigþór U. Hallfreðsson frá Blindrafélaginu lagði til að vísa breytingatillögunni frá og Halldór Sævar Guðbergsson studdi þá tillögu.
Fundarstjóri bar frávísunartillöguna upp til atkvæða. Var hún samþykkt með öllum greiddum atkvæðum gegn fjórum.
Stjórnarseta, þóknun (7)
- Stjórnarmenn ÖBÍ og varamenn fá greiddar 6 einingar fyrir hvern setinn stjórnarfund sem er allt að 2,5 klst. langur.
- Fyrir hverja klst. umfram það er greidd ein eining.
- Upphæð þóknunar og tekur mið af ákvörðun þóknananefndar ríkisins sem er 2.308 kr. á hverja einingu, miðað við ágúst 2018.”
Kosningar í stjórn
Fram fór nafnakall. Mættir voru fulltrúar fyrir 41 aðildarfélag ÖBÍ (fskj. nr. 5 – Fulltrúar aðildarfélaga, mætingarlisti 6. október 2018). Yfirlit yfir framboð til stjórnar var í fundargögnum (sjá fskj. nr. 6). Kynningar á frambjóðendum lágu frammi og má sjá þær í fylgiskjölum.
Fundarstjóri lagði til að Páll Hilmarsson, Dóra Guðrún Pálsdóttir og Ólafur Sindri Ólafsson yrðu talningamenn á fundinum. Var það samþykkt samhljóða
Albert Ingason kvaddi sér hljóðs í fjarveru formanns kjörnefndar og gerði stuttlega grein fyrir starfi nefndarinnar. Þakkaði hann Þórnýju, starfmanni kjörnefndar, og starfsmönnum ÖBÍ góð störf. Tölvupóstur var sendur aðildarfélögum og óskað eftir framboðum í laus embætti. Framboð bárust í öll laus embætti. Fulltrúum var sendur framboðslisti 20. september 2018. Fyrir mistök var nafni Erlu S. Valtýsdóttur frá Tourette samtökunum ofaukið á listanum og óskaði Albert eftir því að fundarmenn leiðréttu það í gögnum sínum.
Fundarstjóri bauð frambjóðendum að kynna sig en fulltrúar höfðu fengið kynningarblað frambjóðenda með fundargögnum (fylgiskjöl nr. 10, 11, 12a-h).
Fram komu framboð á fundinum, frá Magnúsi Þorgrímssyni frá Hjartaheill og Ólínu Sveinsdóttur frá Parkinsonsamtökunum. Fundarstjóri óskaði samþykkis fundarins fyrir framboðum þeirra og voru þau samþykkt.
Formaður (8)
Varaformaður (9)
Fundarstjóri kynnti kosningu í embætti varaformanns. Einn var í framboði, Halldór Sævar Guðbergsson frá Blindrafélaginu (fskj. nr. 10).
Engin framboð bárust úr sal og var Halldór Sævar Guðbergsson því sjálfkjörinn varaformaður ÖBÍ 2018-2020.
Gjaldkeri (10)
Fundarstjóri kynnti kosningu í embætti gjaldkera. Einn var í framboði, Bergur Þorri Benjamínsson frá Sjálfsbjörg lsh. (fskj. nr. 11).
Engin framboð bárust úr sal og var Bergur Þorri Benjamínsson því sjálfkjörinn gjaldkeri ÖBÍ 2018-2020.
Formenn fastra málefnahópa (11)
Fundarstjóri kynnti kosningu í embætti formanns málefnahóps um atvinnu- og menntamál til eins ár. Einn var í framboði, Sævar Pálsson frá Hjartaheill (fskj. nr.12).
Engin framboð bárust úr sal og var Sævar Pálsson því sjálfkjörinn formaður málefnahóps um atvinnu- og menntamál 2018-2019.
Stjórnarmenn (12)
Varamenn (13)
Fundarstjóri kynnti kosningu þriggja varamanna til tveggja ára. Í framboði voru Karl Þorsteinsson frá Ás styrktarfélagi, Ólína Sveinsdóttir frá Parkinsonsamtökunum, Þorsteinn Þorsteinsson frá SPOEX og Magnús Þorgrímsson frá Hjartaheill.
Greidd voru 116 atkvæði, eitt var ógilt og þrjú auð (fskj. nr. 13). Þessi hlutu kosningu til setu sem varamenn í stjórn 2018-2020:
Aðrar kosningar til tveggja ára
Kjörnefnd (14)
Laganefnd (15)
Fundarstjóri kynnti kosningu tveggja fulltrúa í laganefnd til eins árs. Í framboði voru: Vilborg Gunnarsdóttir frá Alzheimersamtökunum á Íslandi og Þórir Steingrímsson frá Heilaheill.
Fundarstjóri óskaði samþykkis fundarins fyrir framboði Gísla Helgasonar til setu í laganefnd. Var það samþykkt.
Greidd voru 115 atkvæði, einn atkvæðaseðill var ógildur og tveir auðir (fskj. nr. 14). Þessi hlutu kosningu til setu í laganefnd til eins árs:
Skoðunarmenn reikninga og varamenn (16)
Kosnir verða skoðunarmenn reikninga og varamenn þeirra árið 2019.
Lagabreytingar, aðildarumsóknir, ályktanir, önnur mál
Lagabreytingar (17)
Innan bandalagsins skulu starfa fimm fastir málefnahópar. Hlutverk þeirra er að leggja fram tillögur í hagsmunamálum í samræmi við áherslur stefnuþings. Aðalfundur ákveður málefni þeirra eftir tillögu stefnuþings. Formenn þeirra skulu kosnir á aðalfundi. Hvert félag getur átt mest einn formann málefnahóps á hverjum tíma.
D. Aðrar kosningar til tveggja ára
14. Kosning fimm manna kjörnefndar og tveggja til vara.
15. Kosning fimm manna laganefndar og tveggja til vara.
16. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og tveggja til vara.
Aðildarumsóknir (18)
Ályktanir aðalfundar (19)
Formaður ÖBÍ, Þuríður Harpa Sigurðardóttir, kynnti aðalályktun fundarins, svo hljóðandi (sjá fskj. nr. 17):
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 5. og 6. október 2019 ályktar um mikilvægi þess að aðgengi sé fyrir alla.
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ), haldinn 5. og 6. október 2018, skorar á stjórnvöld að:
-
Auka atvinnutækifæri fatlaðs fólks með skerta starfsgetu þannig að í boði verði fjölbreyttari störf á vinnumarkaði.
-
Innleiða hvatningakerfi fyrir fyrirtæki og stofnanir til að ráða starfsfólk með skerta starfsgetu.
-
Tryggja viðeigandi aðlögun á vinnumarkaði.
-
Auka námsframboð fyrir ungt fólk með sérþarfir.
-
Koma á fót símenntunar- og starfsmenntunarsjóði fyrir fatlað fólk og fólk með skerta starfsgetu.
Ályktun aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 5. og 6. október 2019 ályktar um kostnaðarþátttöku í heilbrigðisþjónustu.
- Samningur um tannlæknakostnað lífeyrisþega verði fullfjármagnaður á árinu 2019 þannig að ríkið greiði 75% af kostnaði.
- Kostnaðarþátttaka í heilbrigðisþjónustu verði leiðrétt á árinu 2019 þannig að lífeyrisþegar greiði ekki meira en þriðjung af kostnaði almennra notenda.
- Lækka þarf kostnað sjúkratryggðra í greiðsluþátttökukerfum heilbrigðisþjónustu og lyfja, svo fólk fresti ekki eða sleppi því að sækja sér nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.
- Nauðsynlegir þjónustuþættir og lyf sem ekki falla undir núverandi greiðsluþátttöku í heilbrigðisþjónustu og lyfjum verði sett undir þök kerfanna.
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 5. og 6. október 2019 skorar á alla þingmenn að bæta kjör örorkulífeyrisþega með því að hafa áhrif á fjárlagagerð ríkisins fyrir árið 2019 með eftirfarandi hætti:
- Hækka óskertan lífeyri almannatrygginga frá 1.1.2019 í 413.000 kr.
- Afnema „krónu á móti krónu“ skerðingu sérstakrar framfærsluppbótar.
- Draga verulega úr tekjuskerðingum í almannatryggingakerfinu.
- Hækka persónuafslátt þannig að ekki verði greiddur tekjuskattur af tekjum undir 300.000 kr. á mánuði.
- Setja lög til að koma í veg fyrir að lífeyrissjóðir skerði greiðslur til örorkulífeyrisþega vegna greiðslna úr almannatryggingakerfinu.
Fundarstjóri bauð umræður en enginn tók til máls. Þá var ályktunin borinn upp til atkvæða og var hún samþykkt samhljóða.
Formaður kynnti ályktun um málefni barna (sjá fskj. nr. 22).
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ), haldinn 5. og 6. október 2018 skorar á stjórnvöld að:
- Jafna tækifæri til náms og tryggja að nemendur með sérþarfir (stuðningsþarfir) fái þá lögbundnu þjónustu sem þeir eiga rétt á innan skólakerfisins.
- Tryggja réttindi barna og gæta að því að hagur þeirra vegi þyngst í öllum ákvörðunum sem um þau eru tekin.
- Tryggja að raddir barna fái aukið vægi innan kerfisins.
- Tryggja heildstæða einstaklingsmiðaða þjónustu í leik- og grunnskólum.
- Tryggja fötluðum börnum rétt til íþrótta- og tómstundaiðkunar til jafns við aðra.
- Auka geðheilbrigðisþjónustu barna og unglinga og eyða biðlistum.
Fundarstjóri bauð umræður um ályktunina. Til máls tóku fjórir fundarmenn. Samþykkt var að bæta orðinu stuðningsþarfir innan sviga við á eftir orðinu sérþarfir.
Fundarstjóri bar ályktunina um málefni barna, með breytingum, upp til atkvæða. Ályktunin var samþykkt samhljóða.
Formaður kynnti ályktun um mannréttindavernd fatlaðs fólks (sjá fskj. nr. 23).
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) skorar á stjórnvöld að virða þá alþjóðasáttmála sem íslenska ríkið hefur undirgengist til að tryggja mannréttindavernd fatlaðs fólks. ÖBÍ leggur áherslu á eftirfarandi atriði:
- Að Alþingi samþykki fyrirliggjandi þingsályktunartillögu um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í tillögunni kemur fram að lögfesta eigi samninginn eigi síðar en 13. desember 2019, á 13 ára afmælisdegi samningsins.
- Að stjórnvöld fullgildi valfrjálsu bókunina við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. ÖBÍ fordæmir að það hafi ekki verið gert þrátt fyrir að Alþingi ályktaði þann 20. september 2016 að hún skyldi fullgilt eigi síðar en í árslok 2017.
- ÖBÍ fagnar lögum nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði, þar sem kveðið er á um bann við mismunun á vinnumarkaði á grundvelli fötlunar. ÖBÍ harmar þó þá ákvörðun löggjafans að ekkert fjármagn hafi fylgt með lögfestingunni til að tryggja rétta framkvæmd laganna.
Ályktun aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands haldinn 5. og 6. október 2018 um lögfestingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA).
Önnur mál (20)
Tillaga um viðbót við ályktun um heilbrigðismál
Ályktun um alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu
Tillaga um aðgengiseftirlit
Fundarlok
Fylgiskjöl:
Aðalfundur 2017
Aðalfundur ÖBÍ 2017
Ávarp formanns, fundarsetning
Ellen Calmon, formaður ÖBÍ, setti fundinn kl. 16:15 og bauð fundarmenn velkomna. Formaður lagði til að Kolbeinn Óttarsson Proppé og Drífa Snædal yrðu fundarstjórar og var það samþykkt samhljóða. Þá bauð formaður fundarstjórum að taka við fundinum.
Fundarstjórar þökkuðu traustið, buðu gesti velkomna og kynntu dagskrá fundarins (fskj. nr. 1). Fundarstjóri bar undir fundinn að Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir frá Kvennahreyfingu ÖBÍ og Andri Valgeirsson frá Ungliðahreyfingu ÖBÍ sætu sem áheyrnarfulltrúar og var það samþykkt samhljóða.
Þá leitaði fundarstjóri samþykkis fundarins fyrir setu fulltrúa aðildarfélaga sem skiluðu upplýsingum utan tilskilins tíma. Þessir fulltrúar voru: Áslaug Hreiðarsdóttir, Svava Bjarkardóttir og Kristín Björg Jörundsdóttir fyrir Málefli, Erla Sölvadóttir fyrir Félag lifrarsjúkra, Ásgeir E. Ásgeirsson fyrir Einhverfusamtökin, Birna Björnsdóttir, Hólmfríður Pálmadóttir og Kristinn Arinbjörn Guðmundsson fyrir Hugarfar. Var seta þeirra samþykkt samhljóða.
Fundarstjóri leitaði að endingu samþykkis fundarins fyrir setu fólks úr málefnahópum ÖBÍ. Þau voru María Hauksdóttir og Ingibjörg Magnúsdóttir úr málefnahópi ÖBÍ um atvinnu- og menntamál. Var seta þeirra samþykkt samhljóða.
Fundarstjóri lagði til að Aðalheiður Rúnarsdóttir og Ragnheiður Ásta Sigurðardóttir rituðu fundinn og var það samþykkt samhljóða.
Almenn fundarstörf
Skýrsla stjórnar (1)
Formaður flutti skýrslu stjórnar (fskj. nr. 2 – Ársskýrsla Öryrkjabandalags Íslands 2016-2017. Skýrsla formanns og stjórnar, bls. 9-21) og sagði meðal annars frá eftirfarandi atriðum.
Samstöðufundur var haldinn á vegum málefnahóps um kjaramál í desember 2016 þar sem þingmönnum voru afhent óskaskrín, sem í voru óskir fatlaðs fólks um aukið aðgengiseftirlit, óskir um sömu tækifæri á vinnumarkaði, að heilbrigðisþjónusta verði endurgjaldslaus, og að bæði NPA og samingur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lögfest, til að nefna dæmi.
Hluti af starfi ÖBÍ er vitundarvakning og mikilvægt er að vera sífellt vakandi fyrir því að minna á fatlað fólk og réttindi þess. Þann 1. maí tók ÖBÍ þátt með slagorðinu Lúxus eða lífsnauðsyn? Fátækt útilokar fólk frá samfélaginu? Í maí fjallaði sjónvarpsþátturinn Atvinnulífið á Hringbraut um ÖBÍ og fyrirtæki tengd því. ÖBÍ var tilnefnt til Lúðursins, Íslensku auglýsingaverðlaunanna, fyrir myndbandið Fæði, klæði, húsnæði – fyrir alla. Í tilefni 55 ára afmælis ÖBÍ ákvað stjórn að gefa aðildarfélögum tvö myndbönd hverju. Myndböndin eru mikilvæg tæki til vitundarvakningar svo almenningur kynnist betur starfi aðildarfélaganna og til að vekja athygli á fjölbreytileika aðildarfélaga ÖBÍ. Þá voru hvatningarverðlaun ÖBÍ veitt í desember.
Formannafundir voru tveir á árinu, að vori og hausti. Starfsdagur stjórnar var haldinn í mars og formaður ÖBÍ átti reglulega fundi með aðildarfélögunum til að kynna að hvaða verkefnum ÖBÍ var að vinna hverju sinni og heyra hvernig ÖBÍ getur stutt við starf félaganna. Málefnahópar ÖBÍ hafa skilað miklu starfi og góðum afurðum.
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) var fullgiltur 2016 en þrýst hefur verið á stjórnvöld að lögfesta samninginn og fullgilda valfrjálsu bókunina með samningnum fyrir árslok 2017. ÖBÍ, ásamt fleirum, sendi stjórnvöldum áskorun að því tilefni í júlí 2017, um að fullgilda viðaukann hið fyrsta. ÖBÍ fékk rétt til útgáfu bókarinnar Lukka frá færeyskum systursamtökum ÖBÍ. Áætlað er að bókin komi út veturinn 2017-2018 og stefnt er að því að gefa öllum grunnskólanemum hana til að fræða þau um SRFF. Bókin verður gefin út sem hljóðbók, táknmálsbók og lesbók.
Á skrifstofu ÖBÍ eru þrjár starfseiningar: Stoðþjónusta og almannatengsl, Verkefnastjórnun og Lögfræðiþjónusta. Ellefu einstaklingar starfa á skrifstofunni í 10,6 stöðugildum. Þar er veitt einstaklingsráðgjöf. ÖBÍ notar Podio á innri vef sínum og öll aðildarfélög hafa aðgang að honum. Umferð um Facebook-síðu ÖBÍ eykst sífellt. Tvö veftímarit komu út á árinu og eitt prentað tímarit.
Starfsfólk skrifstofu ÖBÍ fór í náms- og kynnisferð til Brussel í júní 2017, þar sem það aflaði sér þekkingar, myndaði tengsl og kynntist betur starfi systursamtaka og annarra samtaka og alþjóðastofnana sem hafa aðsetur í Brussel. Áherslan var á að fræðast um vinnu við skuggaskýrslur. Formaður ÖBÍ situr í ráðgefandi og stefnumarkandi ráði varðandi málefni fatlaðs fólks fyrir Norrænu ráðherranefndina og samtarfsaðila hennar. ÖBÍ er aðili að HNR sem er samstarfsvettvangur helstu heildarsamtaka fatlaðs fólks og langveikra á Norðurlöndunum og sjálfsstjórnarsvæðunum. Einnig tekur ÖBÍ þátt í EDF, Evrópusamtökum fatlaðs fólks.
Formaður vakti athygli á sjálfsvígum ungra karla og hvatti fundarmenn til að koma vel fram við aðra og sýna náunganum virðingu og hlýju. Þá þakkaði formaður fyrir samstarfið undanfarin ár.
Fundarstjóri bauð umræður um skýrslu stjórnar. Halldór Sævar Guðbergsson, varaformaður ÖBÍ, fjallaði um þrjú réttindamál sem mikilvæg eru og ÖBÍ hefur unnið mikið að hingað til og mun leggja áherslu á áfram. Þessi mál eru kjaramál og starfsgetumat, NPA og SRFF. Grétar Pétur Geirsson þakkaði frábæru og faglegu starfsfólki ÖBÍ. Hann hrósaði formanni vegna breytinga á starfsemi ÖBÍ, sérstaklega fyrir málefnahópana. Ólína Sveinsdóttir, Parkinsonsamtökunum á Íslandi, færði formanni þakkir fyrir góð störf.
Halldór Sævar Guðbergsson, varaformaður ÖBÍ, kallaði starfsfólk bandalagsins á svið og þakkaði fyrir góð störf. Þá þakkaði hann formanni ÖBÍ, Ellen Calmon, fyrir gott og ánægjulegt samstarf.
Ársreikningur ÖBÍ (2)
Guðmundur Snorrason, endurskoðandi frá Price Waterhouse Coopers ehf., kynnti ársreikning ÖBÍ fyrir árið 2016 (fskj. nr. 3 – Ársreikningur 2016). Það var álit endurskoðanda að reikningurinn gæfi glögga mynd af afkomu félagsins á árinu, efnahag og breytingum á haldbæru fé í árslok 2016. Þá hefði ársreikningur ÖBÍ að geyma nauðsynlegar upplýsingar í samræmi við lög um ársreikninga og gaf skoðunin ekki tilefni til athugasemda. Ársreikningurinn var áritaður án fyrirvara af endurskoðanda og skoðunarmönnum.
Stjórn ákvað að hafa meiri sundurliðun í framsetningu rekstrarreiknings en áður hafði verið. Heildarrekstrartekjur árið 2016 voru 618,9 milljónir, á móti kr. 492,5 milljónum árið 2015. Þessi hækkun var að mestu vegna hærra framlags frá Íslenskri getspá og aukaframlags frá Íslenskri getspá. Leigutekjur hækkuðu lítillega, úr 10,9 milljónum 2015 í 12,3 milljónir 2016. Var sú hækkun vegna fullrar nýtingar á húsnæðinu á árinu 2016 og örlítillar vísitöluhækkunar. Engar aðrar tekjur voru á árinu.
Rekstrargjöld ársins voru samtals 635,9 milljónir, á móti 514,5 milljónum 2015. Auknar tekjur frá Íslenskri getspá hækkuðu framlög til aðildarfélaganna um 36% á milli ára, úr 285,1 í 386,7 milljónir. Launagreiðslur hækkuðu um 6,5%, úr 114,5 í 121,9 milljónir, vegna almennrar launahækkunar og ákveðið var að greiða formönnum málefnahópa fyrir störf sín. Lífeyrisskuldbindingar jukust á milli ára, úr 1,8 milljónum í 7,1 milljón.
Almennur rekstrarkostnaður hækkaði á milli ára. Liðurinn Fundir, ráðstefnur, auglýsingar og kynningar jókst úr 37,4 milljónum í 53,1 milljón, því meira var lagt í auglýsingar og kynningarmál en áður. Aðkeypt þjónusta og rannsóknir voru rúmar 17 milljónir árið 2015 en numu 19 milljónum 2016. Engin útgáfa var árið 2016 svo sá liður var í 0 kr. Rekstrarkostnaður fasteignar stóð í stað og rekstur skrifstofu lækkaði úr 16,5 milljónum 2015 í 14,3 milljónir 2016. Ýmis rekstrarkostnaður lækkaði úr 16 milljónum í 13,9 milljónir og afskriftir lækkuðu lítillega, voru 8,3 milljónir 2016. Samanlagt hækkaði rekstrarkostnaður, utan styrkja, launa og lífeyrisskuldbindinga, um tæpar átta milljónir, úr 104,1 milljón 2015 í 111,9 milljónir 2016.
Afskriftir lækkuðu úr 8,9 milljónum árið 2015 í 8,3 milljónir árið 2016 svo að samtals var rekstrarafkoman fyrir fjármagnsliði neikvæð um 17 milljónir 2016, í stað 22 milljóna árið 2015. Fjármunatekjur jukust úr 10,1 milljón 2015 í 11,2 milljónir 2016 og rekstrarafkoma ársins 2016 var því neikvæð um 5,8 milljónir 2016.
Fastafjármunir jukust lítillega á milli ára og veltufjármunir hækkuðu úr 171,6 milljónum 2015 í 212,3 milljónir 2016. Í lok árs 2016 var eigið fé 552,3 milljónir og skuldir 184,9 milljónir. Samkvæmt efnahagsreikningi félagsins jukust eignir um rúmlega 41 milljón og í árslok árið 2016 voru eignir og skuldir ÖBÍ 737,2 milljónir og haldbært fé kr. 144,5 milljónir.
Fundarstjóri opnaði fyrir fyrirspurnir um reikninga ÖBÍ. Til svara voru framkvæmda- stjóri ÖBÍ og varaformaður, í fjarveru gjaldkera.
Gísli Helgason, Blindravinafélaginu, þakkaði góða yfirferð reikninga og spurði um skuld formanns við ÖBÍ, hvort stjórn hafi tekið á málinu.
Grétar Pétur Geirsson óskaði ÖBÍ til hamingju með flottan ársreiking og vakti athygli á hækkun styrkja til aðildarfélaga.
Ægir Lúðvíksson, MND félaginu og aðili í stjórn ÖBÍ, gerði athugasemd við árs- reikning ÖBÍ. Ægir sagði þann ársreikning sem kynntur var stjórn ÖBÍ og undirritaður 1. júní 2016 ekki þann ársreikning sem kynntur var á aðalfundinum. Í ársreikningi sem var kynntur 1. júní var lán til formanns fært sem fyrirframgreiðsla launa. Það þótti Ægi rangt og undirritaði því ekki reikningana. Á framlögðum og kynntum ársreikningi á aðalfundi var umrætt lán fært sem lán til tengdra aðila, ekki sem fyrirframgreidd laun, og var Ægir sáttur við það og sagðist hefði skrifað undir þann ársreikning.
Halldór Sævar Guðbergsson, varaformaður, fékk orðið og sagði formann hafa fengið fyrirframgreiðslu á launum. Sagði hann stjórn hafa formlega gert athugasemdir við formann og framkvæmdastjóra. Stjórn hefur sett skýrar reglur um lán og fyrirframgreiðslur til starfsmanna, að þær séu ekki heimilar. Taldi Halldór stjórn hafa brugðist við og málinu sé því lokið í sátt. Þá upplýsti Halldór fundarmenn um að lánið sé að fullu greitt, með vöxtum.
Fleiri fyrirspurnig bárust ekki og þá bar fundarstjórireikninginn upp til atkvæða. Var ársreikningur ÖBÍ 2016 samþykktur samhljóða.
Skýrslur fastra málefnahópa (3)
Skýrslur Málefnahópa ÖBÍ voru birtar í Ársskýrslu ÖBÍ 2016-2017 sem var dreift á fundinum, (fskj. nr. 2, bls. 24-28).
Málefnahópur um aðgengi (a)
Grétar Pétur Geirsson, formaður málefnahóps um aðgengi, sagði frá starfi hópsins. Í hópnum sátu, auk formanns: Birna Einarsdóttir frá Gigtarfélagi Íslands, Ingólfur Már Magnússon frá Heyrnarhjálp, Ingveldur Jónsdóttir frá MS félagi Íslands, Jón Heiðar Jónsson frá Sjálfsbjörg lsh, Lilja Sveinsdóttir frá Blindrafélaginu og Sara Birgisdóttir frá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra. Stefán Vilbergsson var starfsmaður hópsins.
Grétar þakkaði gott samstarf við þá sem sátu í hópnum og starfsmanni hópsins.
Málefnahópur um atvinnu- og menntamál (b)
Guðrún Sæmundsdóttir, formaður málefnahóps um atvinnu- og menntamál, kynnti skýrslu hópsins. Í hópnum voru, auk formanns: María Hauksdóttir frá Blindrafélaginu, Elín Hoe Hinriksdóttir frá ADHD samtökunum, Sylviane Lecoultre frá Geðhjálp, Ingibjörg Magnúsdóttir frá Gigtarfélagi Íslands, Brandur Bjarnason Karlsson frá Sjálfsbjörg lsh og Hrafnhildur Kristbjönsdóttir frá Sjálfsbjörg lsh. Alma Ýr Ingólfsdóttir og Þorbera Fjölnisdóttir voru starfsmenn hópsins.
Guðrún þakkaði öllum í hópnum og starfsmönnum góð störf.
Málefnahópur um heilbrigðismál (c)
Emil Thóroddsen, formaður málefnahóps um heilbrigðismál, kynnti skýrslu hópsins. Í hópnum voru, auk formanns Bergþór G. Böðvarsson frá Geðhjálp, Fríða Rún Þórðardóttir frá Astma- og ofnæmisfélagi Íslands, Guðrún Bergmann Franzdóttir frá Hjartaheill, Sigríður Jóhannsdóttir frá Samtökum sykursjúkra, Stefanía G. Kristinsdóttir frá SÍBS og Vilhjálmur Hjálmarsson frá ADHD samtökunum. Stefán Vilbergsson var starfsmaður hópsins.
Emil þakkaði þeim sem sátu í hópnum frábært starf.
Málefnahópur um kjaramál (d)
María Óskarsdóttir, formaður, kynnti skýrslu hópsins. Í hópnum voru Dóra Ingvadóttir frá Gigtarfélagi Íslands, Erna Arngrímsdóttir frá SPOEX, Frímann Sigurnýasson frá SÍBS, Guðmundur Ingi Kristinsson frá Sjálfsbjörg lsh, Hilmar Guðmundsson frá Sjálfsbjörg lsh. og María M.B. Olsen frá Gigtarfélagi Íslands. Sigríður Hanna Ingólfsdóttir var starfsmaður hópsins.
María þakkaði öllum fyrir ánægjulegt samstarf.
Málefnahópur um sjálfstætt líf (e)
Rúnar Björn Herrera, formaður málefnahóps um sjálfstætt líf kynnti skýrslu hópsins. Í hópnum sátu Elma Finnbogadóttir frá Blindrafélaginu, Hrefna Haraldsdóttir frá ADHD samtökunum, Snædís Rán Hjartardóttir frá Heyrnarhjálp, Védís Drafnardóttir frá Geðhjálp, Þuríður Harpa Sigurðardóttir frá Sjálfsbjörg lsh. og Ægir Lúðvíksson frá MND félaginu á Íslandi. Sigurjón Unnar Sveinsson var starfsmaður hópsins.
Rúnar Björn þakkaði öllum fyrir ánægjulegt samstarf.
Skýrslur fyrirtækja (4)
Skýrslur fyrirtækja lágu frammi. (fskj. nr. 2, bls. 30-35). Ársreikningar fyrirtækja eru í fylgiskjölum 4a-4d.
BRYNJA, hússjóður Öryrkjabandalagsins (a)
Björn Arnar Magnússon, framkvæmdastjóri, var til svara en engar fyrirspurnir bárust.
Örtækni (b)
Þorsteinn Jóhannsson, framkvæmdastjóri, var til svara en engar fyrirspurnir bárust.
Hringsjá (c)
Helga Eysteinsdóttir, forstöðumaður Hringsjár, var til svara en engar fyrirspurnir bárust.
TMF- Tölvumiðstöð (d)
Sigrún Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri, var til svara en engar fyrirspurnir bárust.
Fjölmennt (e)
Helga Gísladóttir, forstöðumaður Fjölmenntar, var til svara en engar fyrirspurnir bárust.
Íslensk getspá (f)
Lilja Þorgeirsdóttir, fulltrúi ÖBÍ í stjórn Íslenskrar getspár, var til svara en engar fyrirspurnir bárust.
Stefnuþing: Stefna og starfsáætlun (5)
Þessi dagskrárliður er í lögum ÖBÍ en þar sem Stefnuþing var ekki haldið árið 2017 var ekkert rætt undir liðnum.
Aðildargjöld, ákvörðun (6)
Fundarstjóri lagði til að aðildargjöld yrðu óbreytt, 0 kr., og var það samþykkt einróma.
Kl. 18:47 frestaði fundarstjóri fundi til kl. 10, laugardag 21. október 2017.
Laugardagur 21. október 2017 – fundi framhaldið
Fundarstjóri hóf fund að nýju kl. 10:00 og kynnti dagskrá (fskj. nr. 1).
Jón Þorkelsson, formaður kjörnefndar, kvaddi sér hljóðs og sagði stuttlega frá starfi nefndarinnar. Hlutverk nefndarinnar er að óska eftir framboðum í trúnaðarstöður. Tölvupóstur var sendur út til aðildarfélaga og framboð bárust til allra embætta. Fulltrúar fengu framboðslista sendan 28. september 2017.
Fundarstjóri lagði til að Páll Hilmarsson, Hildur Lilliendahl og Ólafur Sindri Ólafsson yrðu talningarmenn á fundinum. Var það samþykkt samhljóða. Fundarstjóri óskaði leyfis fundarins að Davíð Oddsson tæki sæti sem fulltrúi fyrir Félag lesblindra á Íslandi. Var það samþykkt samhljóða.
Kosningar í stjórn
Fram fór nafnakall. Mættir voru 126 fulltrúar fyrir 40 félög ÖBÍ (fskj. nr. 5 – Fulltrúar aðildarfélaga, mætingarlisti 21. október 2017). Yfirlit yfir framboð til stjórnar var í fundargögnum, sjá fskj. nr. 6. Kynningar á frambjóðendum lágu frammi og má sjá þær í fylgiskjölum.
Formaður (7)
Í framboði voru Einar Þór Jónsson, HIV-Ísland (fskj. 7a), og Þuríður Harpa Sigurðardóttir, Sjálfbjörg lsh. (fskj. 7b). Engin framboð bárust úr sal. Fundarstjóri bauð frambjóðendum að kynna sig.
Þá var gengið til kosninga um formann ÖBÍ. Var fyrirkomulag kosninganna útskýrt og kjörseðlum dreift. Greidd voru 126 atkvæði (fskj. nr. 18). Einar Þór Jónsson, HIV-Ísland, hlaut 58 atkvæði og Þuríður Harpa Sigurðardóttir, Sjálfsbjörg – lsh, hlaut 68 atkvæði. Því var Þuríður Harpa Sigurðardóttir réttkjörinn formaður ÖBÍ 2017-2019. Nýkjörinn formaður tók til máls, þakkaði kærlega fyrir traustið og sagðist hlakka afar mikið til að vinna með öllum félögum ÖBÍ næstu árin.
Varaformaður (8) og Gjaldkeri (9)
Kosið verður í embætti varafomanns og gjaldkera 2018.
Formenn fastra málefnahópa (10)
Aðgengi – málefnahópur. Í framboði var Ingveldur Jónsdóttir, MS félagi Íslands (fskj. 8). Engin framboð bárust úr sal og því var Ingveldur Jónsdóttir sjálfkjörinn formaður málefnahóps um aðgengi 2017-2019.
Atvinnu- og menntamál – málefnahópur. Í framboði var Guðrún Sæmundsdóttir, ME félagi Íslands (fskj. 9). Engin framboð bárust úr sal og Guðrún Sæmundsdóttir því sjálfkjörinn formaður málefnahóps um atvinnu- og menntamál 2017-2019.
Heilbrigðismál – málefnahópur. Emil Thóroddsen, Gigtarfélagi Íslands, var einn í framboði (fskj. 10). Engin framboð bárust úr sal og Emil Thóroddsen því sjálfkjörinn formaður málefnahóps um heilbrigðismál 2017-2019.
Kjaramál – málefnahópur. Í framboði voru María Óskarsdóttir frá Sjálfsbjörg lsh. (fskj. 11a) og Rósa María Hjörvar frá Blindrafélaginu (fskj. 11b). Fleiri framboð komu ekki fram. Óskað var leynilegrar atkvæðagreiðslu. Frambjóðendur kynntu sig.
Fundarstjóri kynnti að einn bættist við kjörskrá, svo 127 höfðu atkvæðisrétt. Þá var gengið til kosninga um formann málefnahóps um kjaramál. Greidd voru 126 atkvæði, einn kjörseðill var auður (fskj. nr. 18). Atkvæði féllu þannig að María Óskarsdóttir hlaut 32 atkvæði og Rósa María Hjörvar hlaut 93 atkvæði. Því var Rósa María Hjörvar kjörinn formaður málefnahóps um aðgengismál 2017-2019.
Sjálfstætt líf – málefnahópur. Í framboði var Rúnar Björn Herrera, SEM samtökunum (fskj. 12). Engin framboð bárust úr sal og Rúnar Björn Herrera því sjálfkjörinn formaður málefnahóps um sjálfstætt líf 2017-2019.
Stjórnarmenn (11)
Fundarstjóri kynnti kosningu fjögurra stjórnarmanna sem lá fyrir fundinum. Elín Hoe Hinriksdóttir frá ADHD samtökunum (fskj. 13a), Frímann Sigurnýasson frá SÍBS (fskj. 3b), Ólína Sveinsdóttir frá Parkinsonsamtökunum (fskj. 13c) og Svavar Kjarrval frá Einhverfusamtökunum (fskj. 13d) voru í framboði auk Maríu Óskarsdóttur frá Sjálfbjörg lsh (fskj. 11a). Jafnframt fékkst samþykki fundarins fyrir framboði Sylviane Pétursson-Lecoultre frá Geðhjálp (án fskj.). Fundarstjóri kynnti fyrirkomulag kosninganna og bauð frambjóðendum að kynna sig.
Valgeir Jónasson og Garðar Sverrisson gerðu athugasemd við framkvæmd atkvæðagreiðslunnar. Fundarstjóri ítrekaði að framkvæmd atkvæðagreiðslunnar væri skv. 12 gr. laga ÖBÍ.
Þá var gengið til kosninga til stjórnar ÖBÍ. Var fyrirkomulag kosninganna útskýrt og kjörseðlum dreift. Greidd voru 126 atkvæði, gildir seðlar voru 123, tveir seðlar voru auðir og einn seðill var ógildur (fskj. nr. 18).
Þessi hlutu kosningu til setu í stjórn 2017-2019:
– Svavar Kjarrval, Einhverfusamtökunum, 112 atkvæði
– Elín Hoe Hinriksdóttir, ADHD samtökunum, 91 atkvæði
– Sylviane Pétursson-Lecoultre, Geðhjálp, 80 atkvæði
– Frímann Sigurnýasson, SÍBS, 64 atkvæði
Varamenn (12)
Fundarstjóri tilkynnti kosningu þriggja varamanna til eins ár, því þrír varamenn hlutu kosningu í stjórn og formennsku í málefnahópum. Fundarstjóri leitaði samþykkis fundarins fyrir því að kosning færi fram og var það samþykkt. Óskað var leynilegrar atkvæðagreiðslu og féllst fundarstjóri á það.
Þessi buðu sig fram: Þröstur Emilsson frá ADHD samtökunum (fskj. nr. 15e), Guðmundur Ingi Kristinsson frá Sjálfbjörg lsh (án fskj.), Gísli Helgason frá Blindravinafélagi Íslands (án fskj.) og Ólína Sveinsdóttir frá Parkinsonsamtökunum (fskj. nr. 13c). Frambjóðendur kynntu sig.
Þá var gengið til kosninga til stjórnar ÖBÍ. Var fyrirkomulag kosninganna útskýrt og kjörseðlum dreift. Greidd voru 126 atkvæði og einn seðill var ógildur (fskj. nr.18).
Þessi hlutu kosningu til setu sem varamenn í stjórn ÖBÍ 2017-2018:
– Guðmundur Ingi Kristinsson, 92 atkvæði
– Þröstur Emilsson, 90 atkvæði
– Ólína Sveinsdóttir, 81 atkvæði
Aðrar kosningar til tveggja ára
Kjörnefnd (13)
Fundarstjóri kynnti kosningu í fimm manna kjörnefnd. Í framboði voru Albert Ingason frá Spoex (fskj. nr. 14a), Dagný Erna Lárusdóttir frá SÍBS (fskj. nr. 14b), Jón Þorkelsson frá Stómasamtökunum (fskj. nr. 14c), Sigurbjörg Ármannsdóttir frá MS félagi Íslands (fskj. nr. 14d) og Sigurður R. Sigurjónsson frá SÍBS (fskj. nr. 14e). Eitt framboð barst á fundinum, frá Gísla Helgasyni frá Blindravinafélaginu (án fskj.) Var framboð Gísla samþykkt með þorra atkvæða, gegn einu. Frambjóðendur kynntu sig.
Þá var gengið til kosningar til kjörnefndar ÖBÍ. Atkvæðagreiðsla var leynileg. Var fyrirkomulag kosninganna útskýrt og kjörseðlum dreift. Greidd voru 109 atkvæði og einn seðill var auður (fskj. nr. 18).
Þessi hlutu kosningu til setu í kjörnefnd ÖBÍ 2017-2019:
– Sigurbjörg Ármannsdóttir, 104 atkvæði
– Albert Ingason, 101 atkvæði
– Dagný Erla Lárusdóttir, 99 atkvæði
– Jón Þorkelsson, 99 atkvæði
– Sigurður Rúnar Sigurjónsson, 91 atkvæði
Laganefnd (14)
Fundarstjóri kynnti kosningu í fimm manna laganefnd. Í framboði voru: Dóra Ingvadóttir frá Gigtarfélagi Íslands (fskj. nr. 15a), Guðný Linda Óladóttir frá Samtökum lungnasjúklinga (fskj. nr. 15b), Ingi Hans Ágústsson frá HIV Íslandi (fskj. nr. 15c), Svavar Kjarrval frá Einhverfusamtökunum (fskj. nr. 15d) og Þröstur Emilsson frá ADHD samtökunum (fskj. nr. 15e). Engin framboð bárust úr sal og þau því sjálfkjörin í laganefnd 2017-2019.
Skoðunarmenn reikninga og varamenn (15)
Fundarstjóri kynnti kosningu tveggja skoðunarmanna reikninga. Tvö voru framboði. þau Árni Sverrisson frá Alzheimersamtökunum á Íslandi (fskj. nr. 16a) og Hrönn Petersen frá CCU samtökunum (fskj. nr. 16b). Engin framboð bárust á fundinum og þau því sjálfkjörin sem skoðunarmenn reikninga ÖBÍ.
Fundarstjóri kynnti kosningu tveggja varamanna skoðunarmanna reikninga. Tvö framboð höfðu borist innan tilskilins frests frá Bergþóru Bergsdóttur frá MS félagi Íslands (fskj. nr. 17a) og Ólafi R. Dýrmundssyni frá Stómasamtökum Íslands (fskj. nr. 17b). Framboð Bergþóru var ógilt og því kallað eftir framboðum á fundinum. Árni Heimir Ingimundarson frá Málbjörgu, Drífa Pálín Geirs frá ADHA samtökunum og Halldóra Alexandersdóttir frá Laufi, félagi flogaveikra, gáfu kost á sér.
Þá var gengið til kosninga. Var fyrirkomulag kosninganna útskýrt og kjörseðlum dreift. Greidd voru 100 atkvæði og einn seðill var auður. Þessi hlutu kosningu til setu sem varamenn skoðunarmanna reikninga ÖBÍ:
– Árni Heimir Ingimundarson,(71 atkv.
– Halldóra Alexandersdóttir, 61 atkv.
Lagabreytingar, aðildarumsóknir, ályktanir, önnur mál
Lagabreytingar
Teknar voru til afgreiðslu sjö tillögur til lagabreytinga sem borist höfðu laganefnd fyrir aðalfund.
Ingveldur Jónsdóttir, formaður laganefndar, gerði grein fyrir fjórum breytingartillögum frá laganefnd (fskj. nr. 20a). Ellen Calmon gerði grein fyrir breytingartillögum sínum (fskj. nr. 20b). Þá bauð fundarstjóri umræður.
Þröstur Emilsson, ADHD samtökunum, lagði fram dagskrártillögu um að lagabreytingartillögum Ellenar Calmon á greinum 18 og 19 yrði vísað til laganefndar (fskj. nr. 20c). Fundarstjóri bar tillögu Þrastar undir atkvæði. Var hún samþykkt með þorra atkvæða, einn sat hjá.
Emil Thóroddsen, Gigtarfélagi Íslands, lagði til að breytingartillögu Ellenar Calmon á 9. grein yrði vísað til laganefndar (fskj. nr. 20d). Fundarstjóri bar tillögun Emils undir atkvæði. Var hún samþykkt með þorra atkvæða, gegn einu atkvæði á móti og átta sem sátu hjá.
Gísli Helgason, Blindravinafélagi Íslands, lagði til að breytingartillögu við 10. grein laga bandalagsins yrði vísað aftur til laganefndar (fskj. nr. 20e). Fundarstjóri bar tillöguna upp til atkvæða. Tillagan var felld með þorra atkvæða gegn 10 og einn sat hjá.
Þá tók fundarstjóri lagabreytingartillögur frá laganefnd (fskj. nr. 20a) til afgreiðslu.
- Útstrikun úr 1. gr. Nafn, félagar og varnarþign.
Tillaga var samþykkt samhljóða. - Viðbót við 10. gr. Aðalfundarfulltrúar.
Hrannar Jónsson, Geðhjálp, lagði fram breytingartillögu við breytingartillögu laganefndar við 2. mgr. 10. gr. laganna (fskj. 20f). Lagði hann til innskot orðsins einstaka á milli gegnum og fjáraflanir, og að skipta út orðunum utan reglulegra félagsgjald fyrir og njóta ekki fulltra réttinda sem félagar. Setningin hljóði þá svona:
„þó skulu ekki teljast með þeir einstaklingar sem eingöngu styrkja félögin í gegnum einstaka fjáraflanir og njóta ekki fullra réttinda sem félagar.“
Var tillaga Hrannars borin upp til atkvæða og samþykkt með 50 atkvæðum gegn 37, sex sátu hjá.
Þá var tillaga laganefndar, með áorðnum breytingum, borin upp til atkvæða. Var tillagan samþykkt með 71 atkvæði gegn 19, tveir sátu hjá.
- Viðbót við 7. gr. Úrsögn.
Frímann Sigurnýasson, SÍBS, lagði til breytingu á tillögu laganefndar (fskj. nr. 20g), að skipta út síðari hluta tillögunnar, hefur félagið sjálfkrafa sagt sig úr bandalanginu, og setja í staðinn getur aðalfundur ÖBÍ vísað félaginu úr bandalaginu. Setningin hljóði þá svona:
„Hafi vanskil á gögnum varað í meira en fjögur ár samfellt getur aðalfundur ÖBÍ vísað félaginu úr bandalaginu.“
Var tillaga Frímanns borin upp til atkvæða og felld með 62 atkvæðum gegn 28, fjórir sátu hjá.
Þá var breytingartillaga laganefndar borin upp til atkvæða. Var tillagan samþykkt með tveimur þriðju hlutum greiddra atkvæða, tveir sátu hjá.
Síðari hluti tillögunnar, bráðabirgðaákvæði á 7. grein, var þá tekinn til atkvæða. Var hann samþykktur með öllum greiddum atkvæðum.
Þá var 7. grein laganna í heild sinni, með áorðnum breytingum, borin upp til atkvæða og samþykkt með öllum greiddum atkvæðum gegn einu og fimm sátu hjá.
- Viðbót við tölulið 18 í 11. gr. Dagskrá aðalfundar.
Tillaga samþykkt með öllum greiddum atkvæða gegn einu og einn sat hjá.
Þá var 11. grein laganna í heild sinni, með áorðnum breytingum, borin upp til atkvæða og samþykkt, tveir sátu hjá.
Þá bar fundarstjóri lög ÖBÍ upp til atkvæða, svo breytt. Voru þau samþykkt samhljóða.
Aðildarumsóknir
Engar aðildarumsóknir bárust innan tilskilinns umsóknarfrests.
Ályktanir aðalfundar
Engar ályktanir bárust framkvæmdastjórn innan tilskilins frests, en sex ályktanir höfðu borist fyrir fundinn og fundarstjóri óskaði leyfis fundarins til að taka ályktanirnar fyrir. Var það samþykkt með þorra atkvæða gegn einu.
Gísli Helgason, Blindravinafélagi Íslands, gerði athugasemd við hversu seint ályktanir bárust fulltrúum og fór fram á að fundarstjóri læsi ályktanirnar upp fyrir fundinn. Fundarstjóri áréttaði við fulltrúa að ályktanir skuli berast fyrir tilskilinn frest og varð við beiðni um upplestur ályktana.
Ályktun aðalfundar ÖBÍ um aðgengiseftirlit (fskj. nr. 21).
Fundarstjóri las ályktunina og meðfylgjandi greinargerð. Fundarstjóri bauð umræður.
Fram komu tvær tillögur um breytingu á orðalagi og voru báðar samþykktar. Fundarstjóri bar þá ályktunina, með áorðnum breytingum, undir atkvæði. Ályktunin var samþykkt með þorra atkvæða gegn einu svohljóðandi:
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 20. – 21. október 2017, skorar á alla þingmenn sem munu taka sæti á Alþingi að loknum alþingiskosningum 28. október nk. að koma á aðgengiseftirliti. Þrátt fyrir að í lögum um mannvirki og byggingarreglugerð séu ákvæði um aðgengi fyrir alla og algilda hönnun er ekkert virkt eftirlit með því að þau ákvæði séu virt. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var fullgiltur síðastliðið haust, en enn komast eigendur mannvirkja upp með að reisa og breyta byggingum án þess að virða aðgengiskröfur. Málefnahópur ÖBÍ um aðgengi vill að komið verið á aðgengiseftirliti um allt land. Því verði sinnt af slökkviliðum landsins sem þegar sinna eldvarnareftirliti í öllum sveitarfélögum. Það hefur verið staðfest við málefnahópinn að slökkviliðin geti sinnt aðgengiseftirliti samhliða öðrum verkefnum. Hægt sé að beita dagsektum ef aðgengisstöðlum sé ekki fylgt eftir.
Ályktun aðalfundar ÖBÍ um atvinnu- og menntamál (fskj. nr. 22).
Fundarstjóri las ályktunina og meðfylgjandi greinargerð. Fundarstjóri bauð umræður.
Fram komu þrjár tillögur um breytingu á orðalagi. Tvær voru felldar og ein samþykkt.
Fundarstjóri bar þá ályktunina, með áorðnum breytingum, undir atkvæði. Ályktunin var samþykkt með þorra atkvæða gegn einu svohljóðandi:
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ), haldinn 20. – 21. október 2017, skorar á alla þingmenn sem munu taka sæti á Alþingi að loknum alþingiskosningum 28. október nk. að:
• Auka atvinnutækifæri fatlaðs fólks og fólks með skerta starfsgetu þannig að hlutastörf
við hæfi verði í boði.
• Innleiða hvatningakerfi fyrir fyrirtæki og stofnanir til að ráða starfsfólk með skerta starfsgetu. Tryggt verði að viðeigandi hjálpartæki séu fyrir hendi.
• Stofna opinberan lánasjóð fyrir fatlað fólk og örorkulífeyrisþega til að fjármagna kostnað til atvinnuuppbyggingar sem gæti stuðlað að aukinni atvinnuþátttöku þeirra.
• Jafna tækifæri fatlaðs fólks til náms og tryggja að nemendur með sérþarfir fái þá lögbundnu þjónustu sem þeir eiga rétt á innan skólakerfisins.
• Auka námsframboð fyrir eldri nemendur með sérþarfir.
Ályktun aðalfundar ÖBÍ um heilbrigðismál (fskj. nr. 23).
Fundarstjóri las ályktunina og meðfylgjandi greinargerð. Fundarstjóri bauð umræður. Fram komu þrjár tillögur um breytingu á orðalagi, sem voru samþykktar. Fundarstjóri bar þá ályktunina, með áorðnum breytingum, undir atkvæði. Ályktunin var samþykkt samhljóða svohljóðandi:
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 20. – 21. október 2017, skorar á alla þingmenn sem munu taka sæti á Alþingi að loknum alþingiskosningum 28. október nk. að koma á gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu. Stefna þarf að gjaldfrjálsri heilbrigðis- þjónustu, fyrst fyrir börn, langveika og öryrkja. Nú eru í gildi greiðsluþátttökukerfi fyrir lyf og fyrir heilbrigðisþjónustu, en sameiginleg greiðsluþök þeirra eru alltof há. Þau þarf að lækka hið fyrsta. Þar fyrir utan leggst margvíslegur annar kostnaður á sjúklinga. Þar má nefna sálfræðiþjónustu, ferðakostnað innanlands, tannlækna- þjónustu, tæknifrjóvganir og næringarráðgjöf sem þarf að setja undir greiðsluþak, og tryggja að gjaldskrár um endurgreiðslur vegna heilbrigðiskostnaðar, s.s. tannlækna- þjónustu, séu uppfærðar árlega m.t.t. launavísitölu og breytingu á vísitölu neysluverðs.
Ályktun aðalfundar ÖBÍ um kjaramál (fskj. nr. 24).
Fundarstjóri las ályktunina og meðfylgjandi greinargerð. Fundarstjóri bauð umræður. Fram komu þrjár tillögur um breytingu á orðalagi, voru allar samþykktar. Fundarstjóri bar þá ályktunina, með áorðnum breytingum, undir atkvæði. Ályktunin var samþykkt svohljóðandi:
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 20. – 21. október 2017, skorar á alla þingmenn sem munu taka sæti á Alþingi að loknum alþingiskosningum 28. október nk. að bæta kjör örorkulífeyrisþega með því að hafa áhrif á fjárlagagerð ríkisins fyrir árið 2018 með eftirfarandi hætti:
– Hækka óskertan lífeyri almannatrygginga í 390.000 kr. fyrir skatt (framfærslu- viðmið án heimilisuppbótar).
– Afnema krónu-á-móti-krónu skerðingu sérstakrar framfærsluppbótar með því að fella bótaflokkinn inn í tekjutrygginguna.
– Afnema tekjuskerðingar í almannatryggingakerfinu.
– Hækka persónuafslátt þannig að ekki verði greiddur skattur af tekjum undir 300.000 kr. á mánuði.
– Setja lög til að koma í veg fyrir víxlverkun skerðinga á milli greiðslna úr lífeyrissjóðum og úr almannatryggingakerfinu.
Ályktun aðalfundar ÖBÍ um notendastýrða persónulega aðstoð (fskj. nr. 25).
Fundarstjóri las ályktunina og meðfylgjandi greinargerð. Fundarstjóri bauð umræður. Engar umræður voru. Fundarstjóri bar ályktunina undir atkvæði. Ályktunin var samþykkt svohljóðandi:
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 20. – 21. október 2017, skorar á alla þingmenn sem munu taka sæti á Alþingi að loknum alþingiskosningum 28. október nk. að lögfesta notendastýrða persónulega aðstoð fyrir áramót, sbr. yfirlýsingu formanna allra flokka á Alþingi dags. 26. september 2017. Krafan felur í sér að þjónustuformið sé fellt inn í núgildandi lög um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992, sem eitt meginform af þjónustu við fatlað fólk, og tryggt verði nægilegt fjármagn til að mæta þörf allra einstaklinga sem falla undir skilyrði umræddra laga.
Ályktun aðalfundar ÖBÍ um mannréttindavernd fatlaðs fólks (fskj. nr. 26).
Fundarstjóri las ályktunina og bauð umræður. Engar umræður voru. Fundarstjóri bar ályktunina undir atkvæð og var hún samþykkt svohljóðandi.
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ), haldinn 20. – 21. október 2017, hvetur alla þingmenn sem munu taka sæti á Alþingi að loknum alþingiskosningum 28. október nk. að tryggja að staðið verði við þingsályktun frá 20. september 2016. Er þannig skorað á alþingismenn að tryggja að valkvæður viðauki við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði fullgiltur fyrir árslok 2017, í samræmi við þingsályktunina. Viðaukinn kveður á um kæruleið fyrir þá sem telja á sér brotið og er þannig mikilvægur þáttur í því að gæta þeirra réttinda sem tryggja á með samningnum. Þingsályktun frá 20. september 2016 er hér: http://www.althingi.is/altext/145/s/1693.html
Önnur mál
Fráfarandi formaður ÖBÍ, Ellen J. Calmon, ávarpaði fundinn. Þakkaði hún Þórnýju Björk Jakobsdóttur, Halldóri Sævari Guðbergssyni, Lilju Þorgeirsdóttur og öllu samstarfsfólki ÖBÍ fyrir frábært samstarf. Óskaði nýjum formanni velgengni. Þakkaði fundarstjórum störf sín.
Þá þökkuðu fundarstjórar fyrir sig og afhentu nýkjörnum formanni ÖBÍ, Þuríði Hörpu Sigurðardóttur, fundinn.
Fundarlok
Nýkjörinn formaður þakkaði góðan fund, starfsfólki fyrir störf sín, óskaði nýkjörnum fulltrúum til hamingju með embætti sín. Formaður þakkaði traustið.
Formaður sleit fundi kl. 16:36.
Fylgiskjöl:
1) Dagskrá aðalfundar 20. og 21. október 2017
2) Ársskýrsla Öryrkjabandalags Íslands 2016-2017
3) Ársreikningur ÖBÍ 2016
4) Ársreikningar fyrirtækja
a) BRYNJA hússjóður Öryrkjabandalagsins
b) Örtækni
c) Hringsjá
d) Fjölmennt
5) Fulltrúar aðildarfélaga ÖBÍ á aðalfundi
6) Framboð til stjórnar ÖBÍ – listi yfir frambjóðendur
7) a) og b) Formaður ÖBÍ – kynning frambjóðenda
8) Aðgengi – málefnahópur. Kynning framjóðanda
9) Atvinnu- og menntamál – málefnahópur. Kynning framjóðanda
10) Heilbrigðismál – málefnahópur. Kynning framjóðanda
11) a) og b) Kjaramál – málefnahópur. Kynning framjóðenda
12) Sjálfstætt líf – málefnahópur. Kynning framjóðanda
13) a) til d) Stjórn ÖBÍ – kynning frambjóðenda
14) a) til e) Kjörnefnd ÖBÍ – kynning frambjóðenda
15) a) til e) Laganefndar ÖBÍ – kynning frambjóðenda
16) a) og b) Skoðunarmenn reikninga ÖBÍ – kynning frambjóðenda
17) a) og b) Varamenn skoðunarmanna reikninga ÖBÍ – kynning frambjóðenda
18) Niðurstöður kosninga
19) Lög Öryrkjabandalags Íslands, síðast breytt 2015
20) a) til e) Lagabreytingartillögur
21) Ályktun um aðgengi
22) Ályktun um atvinnu- og menntamál
23) Ályktun um heilbrigðismál
24) Ályktun um kjaramál
25) Ályktun um notendastýrða persónulega aðstoð
26) Ályktun um mannréttindi fatlaðs fólks
Aðalfundur 2016
Aðalfundur ÖBÍ 2016
Fundargerð aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands sem haldinn var á Hilton Reykjavík Nordica í Reykjavík 14. október 2016, kl. 16.00-20.00, og 15. október 2016, kl. 10.00-17.00.
Ávarp formanns
Formaður ÖBÍ, Ellen Calmon, setti fundinn kl. 16:16 og bauð fundarmenn velkomna. Formaður lagði til að Kolbeinn Óttarsson Proppé og Drífa Snædal yrðu fundarstjórar og var það samþykkt samhljóða. Formaður lagði til að Aðalheiður Rúnarsdóttir og Ragnheiður Ásta Sigurðardóttir rituðu fundinn og var það samþykkt samhljóða. Þá afhenti formaður fundarstjórum fundinn.
Fundarsetning, kjör fundarstjóra og fundarritara
Fundarstjórar þökkuðu traustið og buðu gesti velkomna. Fundarstjóri fór yfir dagskrá fundarins (fskj. nr. 1) sem fundarmenn höfðu fengið senda.
Fundarstjóri bar undir fundinn að Soffía Melsteð frá Kvennahreyfingu ÖBÍ og Andri Valgeirsson Ungliðahreyfingu ÖBÍ sætu fundinn sem áheyrnarfulltrúar og var það samþykkt samhljóða.
Fundarstjóri leitaði samþykkis fundarins fyrir setu Áslaugar Hreiðarsdóttur, Elínar Sigríðar Ármannsdóttur og Fjólu Heiðdal, sem aðalfulltrúa Máleflis; og setu Guðrúnar Sæmundsdóttur, Herdísar Sigurjónsdóttur og Kjartans Birgissonar sem aðalfulltrúa ME félags Íslands, á fundinum, því upplýsingar höfðu borist eftir tilskilinn tíma. Var seta þeirra samþykkt samhljóða.
Fundarstjóri óskaði þá samþykkis fundarins fyrir setu áheyrnarfulltrúa málefnahópa: Maríu Hauksdóttur og Hrafnhildar Kristbjörnsdóttur, málefnahópi um atvinnu- og menntamál, og Guðmundar Inga Kristinssonar, málefnahópi um kjaramál. Var seta þeirra samþykkt einróma.
Almenn fundarstörf
Skýrsla stjórnar (1)
Formaður flutti skýrslu sína (fskj. nr. 2 – Skýrsla formanns og stjórnar, síður 9-21) og fór meðal annars yfir eftirtalin atriði. Starfsáætlun sem breyttist mjög. Nýtt skipurit ÖBÍ og skrifstofu. Stofnun málefnahópa. Umsagnir um lagafrumvörp. Mikilvægt er að starfsáætlun sé lífræn.
Þann 8. október 2016 bauð ÖBÍ öllum framboðum til alþingis til fundar. Flestir flokkar voru sammála um mikilvægi þess að lögfesta notendastýrða persónulega aðstoð (NPA). Mikilvægt er að upplýsingahlutverki ÖBÍ sé sinnt og því er upptaka af fundinum aðgengileg á vef ÖBÍ.
ÖBÍ átti 55 ára afmæli 5. maí síðastliðinn. Í tilefni af því var veittur styrkur til aðildarfélaga til myndbandagerðar en aukafé frá Íslenskri getspá var nýtt í þetta verkefni. Gerður var samningur við fyrirtækið Tjarnargötu og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir ráðin verkefnastjóri.
Mikill áhugi var á að koma upp innri vef ÖBÍ og á fyrri hluta ársins var slíkur vefur tekinn í notkun. Um er að ræða svokallað podio kerfi og fyrir tilstilli þess var hægt að draga úr póstsendingum auk þess sem það auðveldaði samstarf málefnahópa og allt fundaskipulag. Mikilvægt er að kerfið sé nýtt.
20. september síðastliðinn mælti Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra fyrir fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem var samþykkt. Næsta skref verður að fá ríkið til að lögfesta samninginn, en ÖBÍ mun skrifa skuggaskýrslu. Hér var um gríðarlega stóran sigur að ræða.
Í september fékk ÖBÍ Gallup til að kanna viðhorf almennings til öryrkja. ÖBÍ tók þátt í nefnd um breytingar á lögum um almannatryggingar. Eingöngu var hlustað á sjónarmið stjórnarmeirihlutans og samtök atvinnulífsins og hætti ÖBÍ því þátttöku í nefndinni.
Stefnuþing var haldið í apríl 2015. Málefnahóparnir voru algjörlega frábærir, líf og fjör, allir lausnamiðaðir og tillögumiðaðir. Með tilkomu málefnahópanna fer fram einbeittari vinna og meiri forgangsröðun. Reglulegir fundir með formönnum aðildarfélaganna eru skemmtilegustu fundirnir sem formaður ÖBÍ situr. Í tilefni af 1. maí var farið í auglýsingaherferð varðandi börn sem búa við skort. Slagorðið var fæði, klæði, húsnæði og í auglýsingunum voru frægir aðilar í gúmmístígvélum.
Á árinu hefur ÖBÍ farið í nokkur dómsmál. Á þessu ári voru tvö dómsmál sem bar hæst, annars vegar framfærslumálið og hins vegar sérstakar húsaleigubætur. ÖBÍ reyndi samtalsleiðina en því miður var enginn vilji til staðar hjá borginni.
Í mars síðastliðnum urðu veigamiklar skipulagsbreytingar á skrifstofunni sem er nánar fjallað um í ársskýrslunni. Á árinu voru margir sem nýttu sér sumarskólann í Galway en nokkrir félagar í aðildarfélögum ÖBÍ voru styrktir til þátttöku. Hugmyndir eru uppi um að koma á fót sambærilegum sumarskóla á Norðurlöndunum. Varaformaður ÖBÍ, Halldór Sævar Guðbergsson, hefur sinnt samstarfi við EDF mjög vel, þar sem áherslan í ár var meðal annars á fatlað flóttafólk.
Á liðnu ári var ÖBÍ oft í fjölmiðlum. Bandalagið átti gott samstarf við stjórnmálamenn. Mikilvægt er að halda baráttunni áfram, og halda fram á veginn. Markmiðið er samfélag án fordóma og fátæktar. Mikilvægt er að fá almenning til þess að leggjast á árar með okkur. ÖBÍ og félagar þess bíða óþreyjufull eftir að ná árangri. Okkar verkefni eru stór og taka tíma en smám saman mun dropinn hola steininn.
Fundarstjóri þakkaði formanni skýrsluna og opnaði mælendaskrá. Magnús Þorgrímsson, Hjartaheill, þakkaði gott starf og hvatti menn til að halda baráttustarfinu áfram. Taldi hann mikilvægt að koma málefnum öryrkja á framfæri. Ólína Sveinsdóttir, Parkinsonsamtökunum, þakkaði góða og fallega ársskýrslu. Snædís Rán Hjartar- dóttir, Fjólu, minnti á að ekki er búið að fullgilda valfrjálsa bókun við samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks, einungis var samþykkt þingsályktun þess efnis að valfrjálsa bókunin yrði fullgild fyrir árslok 2017. Halldór Sævar Guðbergsson, varaformaður ÖBÍ, ræddi alvarlegar aðfinnslur Eyglóar Harðardóttur, félagsmálaráðherra, um að ÖBÍ og hagsmunasamtök haldi niðri kjörum. Hann telur það ósanngjarnt gangvart ÖBÍ og öryrkjum. Sagði Halldór starfsgetumat til staðar í dag og það sé mjög harkalegt. Hvatti hann fundarmenn til að halda baráttunni áfram. Bergur Þorri Benjamínsson, gjaldkeri ÖBÍ, þakkaði Hrafnhildi Kristbjörnsdóttur fyrir að stíga fram og segja sannleikann um fordóma gagnvart fötluðum í atvinnuleit.
Fundarstjóri bar skýrsluna upp til samþykktar og var hún samþykkt samhljóða.
Ársreikningur ÖBÍ (2)
Guðmundur Snorrason, endurskoðandi frá PwC ehf., kynnti ársreikning ÖBÍ fyrir árið 2015 (fskj. nr. 3 – Ársreikningur). Það var álit endurskoðanda að reikningurinn gæfi glögga mynd af stöðu ÖBÍ í árslok 2015. Þá hefði ársreikningur ÖBÍ að geyma nauðsynlegar upplýsingar í samræmi við lög um ársreikninga og gaf skoðunin ekki tilefni til athugasemda.
Heildarrekstrartekjur ársins voru kr. 492,4 milljónir á móti kr. 464 milljónum árið 2014. Megintekjustofn ÖBÍ var framlag Íslenskrar getspár, 481 milljón. Leigutekjur voru nýr tekjustofn sem kom fram árið 2014 vegna nýs húsnæðis, numu þær 10,9 milljónum 2015. Aðrar tekjur, 128 þúsund, voru tekjur af auglýsingum í blað ÖBÍ.
Rekstrargjöld voru samtals 514,4 milljónir, um 40 milljónum hærri en 2014. Þar munar mest um 29 milljóna kr. hækkun á styrkjum og framlögum á milli ára, var 256 milljónir 2014 en 285,1 milljón 2015. Laun, tengd gjöld og lífeyrisskuldbindingar hækkuðu, fyrst og fremst vegna fleiri starfsmanna og launahækkana. Kostnaður vegna funda, ráðstefna, kynninga, auglýsinga og fleiri þátta hækkaði nokkuð á milli ára en aðkeypt þjónusta og rannsóknir lækkuðu að sama skapi. Kostnaður við tíma- og vefrit stóð í stað á milli ára en rekstrarkostnaður fasteignar lækkaði úr 14,3 milljónum 2014 í 11,7 milljónir 2015. Afskriftir jukust úr 6,9 milljónum 2014 í 9 milljónir 2015 og var það vegna þess að húsnæði var í notkun allt árið 2015 en bara hluta árs 2014. Rekstrarafkoma ársins var neikvæð uppá 22 milljónir 2015 á móti 9,9 milljónum 2014. Vaxtatekjur og verðbætur voru 10 milljónir 2015 en 11,9 árið á undan. Því var hrein rekstrarafkoma ársins neikvæð um 11,9 milljónir 2015, en var jákvæð sem nam rúmlega 1,7 milljónum 2014.
Varanlegir fjármunir hækka á milli ára, úr 512,2 milljónum 2014 í 524,4 milljónir 2015. Veltufjármunir lækkuðu á milli ára, úr 221,4 milljónum í 171,6 milljónir. Það stafar meðal annars af því að í árslok 2014 voru ógreiddir reikningar vegna framkvæmda við Sigtún og skammtímakröfur á Íslenska getspá vegna desemberframlaga. Í árslok árið 2015 voru eigið fé og skuldir ÖBÍ kr. 696 milljónir og handbært fé kr. 117 milljónir.
Gjaldkeri ÖBÍ, Bergur Þorri Benjamínsson, kvaddi sér hljóðs og sagði tekjur aukast ár frá ári, sem gæfi ÖBÍ möguleika á auknum styrkveitingum. 134 milljónum var úthlutað í styrki 2015, sem er 14 milljóna kr. aukning á milli ára. Sem dæmi nefnir Bergur að Brynja, hússjóður Öryrkjabandalagsins, fékk viðbótarframlag og fyrirtæki bandalagsins fengu einnig aukastyrki. Aðaltekjulind ÖBÍ er Íslensk getspá og fjárstreymi er tryggt næstu árin því í desember 2015 var starfsleyfi Íslenskrar getspár framlengt til 2034.
Þá opnaði fundarstjóri mælendaskrá og voru framkvæmdastjóri ÖBÍ, Lilja Þorgeirsdóttir og gjaldkeri ÖBÍ, Bergur Þorri Benjamínsson, til svara. Ólína Sveinsdóttir frá Parkinsonsamtökunum spurði um hækkun lífeyrisskuldbindinga. Sveinn Rúnar Hauksson, frá Geðhjálp, spurði hví eignir rýrni á milli ára. Endurskoðandi leiðrétti sig, sagði að um lækkun hafi verið að ræða, ekki hækkun. Einstaklingur sem átti lífeyrisréttindi féll frá og því lækka þær skuldbindingar. Jafnframt lækkuðu skuldaliðir, því handbært fé var notað til að lækka skuldir. Hann sagði eigið fé lækka sem nemi afkomu ársins, sem ræðst af ráðstöfun tekna til aðildarfélaga. Endurskoðandi sagði þetta koma hvað best fram í sjóðsstreyminu.
Frímann Sigurnýasson, SÍBS, spurði hvort tap og útborganir til aðildarfélaga séu stefna ÖBÍ. Bergur svaraði og sagði svo ekki vera, heldur voru aðstæður þannig 2015 að þessar greiðslur voru mögulegar. Því nýtti stjórn tækifærið þetta árið en ekki er um framtíðarstefnu að ræða.
Þá bar fundarstjóri ársreikning 2015 upp til atkvæða. Var hann samþykktur einróma.
Skýrslur fastra málefnahópa (3)
Skýrslur málefnahópa lágu frammi. (fskj. nr. 2, síður 24-27)
Málefnahópur um aðgengi (a)
Grétar Pétur Geirsson formaður málefnahóps um aðgengi sagði frá starfi hópsins. Auk Grétars sátu í hópnum Andri Valgeirsson, Sjálfsbjörg, Birna Einarsdóttir, Gigtarfélagi Íslands, Ingólfur Már Magnússon, Heyrnarhjálp, Ingveldur Jónsdóttir, MS félagi Íslands, Jón Heiðar Jónsson, Sjálfsbjörg og Lilja Sveinsdóttir, Blindrafélaginu. Þrír úr hópnum sitja í ferlinefnd og Ingveldur Jónsdóttir er í undirbúningsnefnd ferðaþjónustu fatlaðra í Kópavogi. Grétar Pétur sagði lykilatriði að koma málefnahópum á laggirnar, að starf þeirra sé skilvirkt og árangursríkt.
Helsta verkefni málefnahóps um aðgengi var umsögn um drög að nýrri byggingarreglugerð þar sem stóð til að minnka stæði og salerni fatlaðra. Bæði Sjálfsbjörg og ÖBÍ sendu, að fengnu lögfræðiáliti, umsagnir og mótmæltu harðlega, sem leiddi til þess að drögunum var hafnað.
Helstu verkefni hópsins framundan eru hönnun útisvæða því götur og torg eru oft hönnuð án tillits til þarfa fatlaðs fólks. Grétar þakkaði nefndinni vel unnin störf og Stefáni Vilbergssyni, starfsmanni hópsins, sérstaklega.
Málefnahópur um atvinnu- og menntamál (b)
Elín H. Hinriksdóttir, starfandi formaður málefnahóps um atvinnu- og menntamál, kynnti skýrslu hópsins. Hópinn skipuðu Guðrún Sæmundsdóttir, ME félagi Íslands, Elín H. Hinriksdóttir, ADHD samtökunum, Hrafnhildur Kristbjörnsdóttir, Sjálfsbjörg, María Hauksdóttir, Blindrafélaginu, Snævar Ívarsson, Félagi lesblindra, og Sylviane Lecoultre, Geðhjálp.
Hópurinn fundaði 15 sinnum á tímabilinu desember 2015 til september 2016. Markmiðið var að kortleggja stöðu menntunar og atvinnu í samfélaginu og gera tillögur að úrbótum.
Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, kom á fund hópsins, sem og Sabine Leskopf, formaður mannréttindasviðs borgarinnar. Fjölmörg verkefni bíða úrlausnar og hópurinn hlakkar til að takast á við þau verkefni.
Málefnahópur um heilbrigðismál (c)
Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir, formaður málefnahóps um heilbrigðismál, kynnti skýrslu hópsins. Í hópnum störfuðu Emil Thóroddsen, Gigtarfélagi Íslands, Bergþór G. Böðvarsson, Geðhjálp, Fríða Rún Þórðardóttir, Astma- og ofnæmisfélagi Íslands, Guðrún Bergmann Franzdóttir, Hjartaheill, Hannes Þórisson, Félagi nýrnasjúkra, og Sigríður Jóhannsdóttir, Samtökum sykursjúkra.
Hópurinn vann umsagnir við frumvarp um lyfjalög, um málefni aldraðra, gæludýr í strætó og fleiri atriði. Umfjöllunarefni hópsins eru áhersluatriði stefnuþings 2014, heilsugæsla, hjálpartæki og þjálfun og greiðsluþátttaka. Framundan eru mörg krefjandi og spennandi verkefni.
Málefnahópur um kjaramál (d)
María Hauksdóttir, kynnti skýrslu hópsins. Í hópnum starfa Dóra Ingvadóttir, Gigtarfélagi Íslands, Erna Arngrímsdóttir, SPOEX, Frímann Sigurnýasson, SÍBS, Guðmundur Ingi Kristinsson, Sjálfsbjörg, Hilmar Guðmundsson, Sjálfsbjörg og María M.B. Olsen, Gigtarfélagi Íslands.
Hópurinn fjallaði um kjaramál skjólstæðinga ÖBÍ. Á liðnu ári hefur hópurinn haldið opinn fund í Ráðhúsi Reykjavíkur um kjör og ímynd öryrkja og birt greinar í dagblöðum. Helstu baráttumál hópsins, leiðrétting kjaragliðnunar, hækkun persónuafsláttar og að lífeyrir almannatrygginga verði einstaklingsmiðaður og óháður sambúðarformi, eru í samræmi við niðurstöður stefnuþings.
Á árinu sendi hópurinn frá sér áskorun til stjórnvalda um samstarf um útreikning kjara- og skattagliðnunar. Áætlað var að halda málþing á vegum hópsins í október 2016 en því var frestað til næsta árs vegna alþingiskosninga.
Málefnahópur um sjálfstætt líf (e)
Rúnar Björn Herrera, formaður málefnahóps um sjálfstætt líf kynnti skýrslu hópsins. Í hópnum voru Hrefna Haraldsdóttir, ADHD samtökunum, Inga Björk Bjarnadóttir, fulltrúi ÖBÍ í verkefnisstjórn um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA), Snædís Rán Hjartardóttir, Heyrnarhjálp, Védís Drafnardóttir, Geðhjálp, Þuríður Harpa Sigurðardóttir, Sjálfsbjörg og Ægir Lúðvíksson, MND félaginu.
Notendastýrð, persónuleg aðstoð, NPA, er helsta baráttumál hópsins. Markmiðið er að NPA verði komið í lög fyrir lok árs 2016.
Fundarstjóri opnaði mælendaskrá. Ægir Lúðvíksson, MND félaginu, þakkaði skýrslur og sagði skipun hópanna þarfa. Magnús Þorgrímsson, Heilaheill, þakkaði góðar skýrslur. Hann saknaði umræðu um hóp öryrkja sem hefur búið erlendis og þeirrar tekjuskerðingar sem þeir verða oft fyrir og finnst það þurfi að koma fram í vinnu málefnahópanna. Elín H. Hinriksdóttir, starfandi formaður málefnahóps um atvinnu- og menntamál, svaraði og sagði frá málþingi sem haldið var 8. september 2015 um atvinnumál undir yfirskriftinni „Vannýttur mannauður“ þar sem farið var yfir málefni fatlaðs fólks í atvinnulífinu.
Bergur Þorri Benjamínsson, gjaldkeri ÖBÍ, lagði áherslu á að þetta er fyrsta starfsár nýs skipulags. Honum þykir árangur af starfi málefnahópanna mjög góður, að margt sé jákvætt en enn eigi eftir að fínpússa starfið. Lögð hefur verið áhersla á að hafa málþing og fundi á vegum málefnahópanna aðgengileg landsbyggðinni. Bergur samsinnti Magnúsi og sagði bent á þetta vandamál í skýrslu ÖBÍ til velferðarnefndar alþingis. Vill hvetja fundarmenn og félaga til að vera duglega að taka þátt í málþingum sem haldin eru og vera duglega að auglýsa fundi. Að lokum þakkaði Bergur málefnahópum og starfsmönnum þeirra fyrir gott starf.
Guðrún Sæmundsdóttir, ME félaginu, benti á að málefnahópur um atvinnu- og menntamál hefur beitt sér sérstaklega fyrir atvinnumálum öryrkja og sendi nýlega frá sér skýrslu um nýsköpun. Í skýrslunni er lögð áhersla á að öryrkjar geti unnið heima hjá sér við það sem þeir hafa áhuga og getu til. En til þess að þetta verði að veruleika þarf að vera til staðar bæði pólitískur vilji og stjórnsýsluleg ákvörðun.
Skýrslur fyrirtækja (4)
Skýrslur fyrirtækja lágu frammi. (fskj. nr. 2, síður 29-35)
BRYNJA, hússjóður Öryrkjabandalagsins (a)
Björn Arnar Magnússon framkvæmdastjóri var til svara fyrir BRYNJU hússjóð. Garðar Sverrisson, formaður BRYNJU, kvaddi sér hljóðs og sagði frá því að skýrslan fyrir árið 2015 sýndi fram á alvarlegt ástand í húsnæðismálum. Biðlistar hjá Brynju séu að lengjast eins og glöggt má sjá á því að BRYNJA eigi um 800 íbúðir og á biðlista séu um 400 manns. Garðar benti ennfremur á að húsnæðismál séu mjög stór þáttur í baráttu fyrir bættum kjörum. Sjá má ársreikning Brynju í fylgiskjali nr. 4a.
Halldór Sævar Guðbergsson, varaformaður ÖBÍ, ræddi um vandann á húsnæðismarkaði, sem hann heldur mikið stærri en komið hefur fram. Sagðist Halldór jafnvel telja þörf á að stofna starfshóp til að fjalla um málið. Arnar Helgi Lárusson, SEM samtökunum, spurði hvort allt húsnæði BRYNJU sé fullkomlega aðgengilegt fötluðum. Björn Arnar, framkvæmdastjóri BRYNJU, sagði 60-70% vera aðgengilegt, en fullkomið aðgengi í nær 50% íbúða. Mikil áhersla sé á gott aðgengi í keyptu húsnæði en BRYNJA hússjóður sé hins vegar ekki með sérstakan úttektaraðila á sínum vegum.
Rúnar Björn Herrera, SEM samtökunum, spurði hvort hægt væri að nýta varasjóð ÖBÍ til uppbyggingar eða fjölgunar íbúða. Bergur Þorri Benjamínsson svaraði og sagði að BRYNJA ætti 800 íbúðir en að húsnæðismálin væru risavaxið og ofvaxið verkefni. Ægir Lúðvíksson, MND félaginu, vildi meina að það væri ekki hlutverk ÖBÍ að tryggja öryrkjum húsnæði, heldur ríkisins og sveitarfélaganna. Ennfremur taldi hann að húsnæðismál ættu að fara undir málefnahópana. Frímann Sigurnýasson, SÍBS, sagði að húsnæðismál væru stór og vaxandi málaflokkur sem þyrfti að ræða á opinskáan hátt. Ennfremur stakk hann upp á að framkvæmdastjórar fyrirtækja sem tengdust ÖBÍ kynntu sín fyrirtæki þar sem fulltrúar aðalfundar ÖBÍ hefðu ekki nægjanlega þekkingu á þeim. Fundarstjóri svaraði því strax að ekki væri hægt að setja þetta á dagskrá svo seint.
Halldór Sævar, varaformaður ÖBÍ, svaraði varðandi vandræði á fasteigna- og leigumarkaðnum. Hann taldi ásókn í félagslegt leiguhúsnæði vera alvarlegt vandamál þar sem að þar sé kannski á ferðinni enn stærri hópur en öryrkjar sem þora þó ekki að sækja um vegna hræðslu um að uppfylla ekki skilyrði.
Örtækni (b)
Framkvæmdastjóri Örtækni, Þorsteinn Jóhannsson, var til svara en engar fyrirspurnir bárust. Sjá má ársreikning Örtækni í fylgiskjali nr. 4b.
Hringsjá (c)
Helga Eysteinsdóttir, forstöðumaður Hringsjár, var til svara en engar fyrirspurnir bárust. Sjá má ársreikning Hringsjár í fylgiskjali nr. 4c.
TMF – Tölvumiðstöð (d)
Sigrún Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri TMF – Tölvumiðstöðvar, var til svara en engar fyrirspurnir bárust.
Fjölmennt (e)
Erna Arngrímsdóttir, stjórnarmaður í Fjölmennt, var til svara en engar fyrirspurnir bárust. Sjá má ársreikning Fjölmenntar í fylgiskjali nr. 4d.
Íslensk getspá (f)
Vífill Oddsson, fulltrúi ÖBÍ í stjórn Íslenskrar getspár, kvaddi sér hljóðs og sagði stöðuna og útlitið gott.
Stefnuþing: stefna og starfsáætlun (5)
Ellen Calmon, formaður ÖBÍ, kynnti stefnu og starfsáætlun stefnuþings sem haldið var í mars. Málefnahópar höfðu það verkefni að forgangsraða þremur atriðum sem þeir vildu helst leggja áherslu á. Nánari skýringar á afstöðu, rök og hugmyndir að leiðum má sjá í fylgiskjölum nr. 5a-e.
Tillögur málefnahóps um aðgengi má sjá í fskj. nr. 5a. Hópurinn lagði til að aðgengiseftirlit, textun í sjónvarpi og hönnun útisvæða yrðu sett í forgang.
Tillögur málefnahóps um atvinnu- og menntamál má sjá í fskj. nr. 5b. Hópurinn lagði til að innleiðing hvatningakerfis fyrir fyrirtæki og stofnanir um ábyrga samfélagsþátttöku og stofnun lánasjóðs sem veitir lán til að fjármagna kostnað vegna atvinnuuppbyggingar yrðu sett í forgang, ásamt því að knýja á um að einstaklingar með sérþarfir fái lögbundna þjónustu í menntakerfinu.
Tillögur málefnahóps um heilbrigðismál má sjá í fskj. nr. 5c. Hópurinn lagði til að heilsugæslan, hjálpartæki og þjálfun og greiðsluþátttaka yrðu sett í forgang.
Tillögur málefnahóps um kjaramál má sjá í fskj. nr. 5d. Hópurinn lagði til að leiðrétting kjaragliðnunar og veruleg hækkun persónuafsláttar yrðu sett í forgang ásamt því að draga verulega úr tekjuskerðingum og vinna að einföldun almannatryggingakerfisins.
Tillögur málefnahóps um sjálfstætt líf má sjá í fskj. nr. 5e. Hópurinn lagði til að NPA, SRFF (samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks) og samskiptamál yrðu sett í forgang.
Fundarstjóri opnaði mælendaskrá. Athugasemd var gerð við breytingu á röðun tillagna málefnahóps. Ægir Lúðvíksson, MND félaginu, sagðist ekki líta á röð atriða sem forgangsröðun heldur taldi að um væri að ræða þrjú verkefni sem ættu að vera jafnvíg. Auður Ólafsdóttir, SÍBS, gerði athugasemd varðandi málefnahóp um heilbrigðismál. Taldi hún ályktun frá þeim varðandi greiðsluþátttökukerfið ekki vera í samræmi við tillögur stefnuþings.
Fundarstjóri bar þá tillögurnar upp til atkvæða og voru þær samþykktar samhljóða.
Aðildargjöld (6)
Gjaldkeri lagði til að aðildargjöld yrðu óbreytt, 0 kr. og var það samþykkt einróma.
Klukkan 19:22 frestaði fundarstjóri fundi til kl. 10, laugardag 15. október 2016.
Laugardagur 15. október 2016 – fundi framhaldið
Fundarstjóri hóf fund að nýju kl. 10:10 og kynnti dagskrá (fskj. nr. 1). Fundarstjóri gerði tillögu um að taka umræður um ályktanir fyrir á meðan talið var í kosningum og var það samþykkt samhljóða. Fundarstjóri lagði til að Páll Hilmarsson, Dóra Guðrún Pálsdóttir og Ólafur Sindri Ólafsson yrðu talningarmenn á fundinum. Var það samþykkt samhljóða.
Albert Ingason, fulltrúi í kjörnefnd kvaddi sér hljóðs og sagði stuttlega frá starfi nefndarinnar. Hlutverk nefndarinnar er að óska eftir framboðum í trúnaðarstöður. Tölvupóstur var sendur út til aðildarfélaga og framboð bárust til allra embætta.
Fundarstjóri kynnti fyrirkomulag kosningar 7 stjórnarmanna. Stjórn lagði til eftirfarandi fyrirkomulag:
Merkja þarf við hvern og einn frambjóðanda sem fólk kýs með tölustöfum frá 1-7. Talan einn gefur flest stig. Ekki má merkja með X eða með öðrum táknum. Kjósa þarf 7 manns, hvorki fleiri né færri, annars er seðillinn ógildur.
Atkvæðin verða talin á eftirfarandi hátt:
Talan 1 gefur 7 stig
2 = 6 stig 4 = 4 stig 6 = 2 stig
3 = 5 stig 5 = 3 stig 7 = 1 stig
Fundarstjóri bauð umræður um tillöguna. Sigríður Jóhannsdóttir, Samtökum sykursjúkra, Guðmundur Skúli Johnsen, Félagi lesblindra, Ægir Lúðvíksson, MND félaginu, Arnar Helgi Lárusson, SEM samtökunum og Vilhjálmur Hjálmarsson, ADHD samtökunum, voru á móti fyrirkomulaginu vegna stigagjafarinnar. Bergur Þorri Benjamínsson, gjaldkeri ÖBÍ, Frímann Sigurnýasson, SÍBS, Garðar Sverrisson, MS félagi Íslands og Halldór Sævar Guðbergsson, varaformaður ÖBÍ, voru fylgjandi tillögunni. Ingveldur Jónsdóttir, formaður laganefndar, tók til máls og skýrði afstöðu laganefndar til atkvæðagreiðslu við stjórnarkjör, að aðferð sem notuð var árið 2014 hafi ekki verið nógu góð og því þurfti að finna aðra leið. Fleiri tóku ekki til máls.
Þá bar fundarstjóri tillöguna upp til atkvæða. Voru 43 með tillögunni og 40 á móti. Tillagan var því samþykkt.
Kosningar í stjórn
Fram fór nafnakall. Listi með nöfnum frambjóðenda og kynningar á þeim var sendur með fundargögnum 28. september 2016 (fskj. nr. 6). Voru 114 atkvæðabærir mættir til fundar.
Formaður (7)
Ekki var kosið um formann á aðalfundi 2016, skv. lögum ÖBÍ.
Varaformaður (8)
Í framboði til embættis varaformanns til tveggja ára, 2016-2018, var Halldór Sævar Guðbergsson, Blindrafélaginu (sjá fskj. nr. 8). Engin framboð voru úr sal og því var Halldór Sævar Guðbergsson sjálfkjörinn í embætti varaformanns 2016-2018. Halldór kom í ræðustól og þakkaði traustið. Hann sagðist líta svo á að verkefni og ábyrgð varaformanns snérust um innra starf ÖBÍ.
Gjaldkeri (9)
Í framboði var Bergur Þorri Benjamínsson, Sjálfsbjörg (sjá fskj. nr. 9). Engin framboð voru úr sal og Bergur Þorri því sjálfkjörinn í embætti gjaldkera 2016-2018. Bergur kom í ræðustól og þakkaði traustið.
Formenn fastra málefnahópa (10)
Formenn fastra málefnahópa skulu kosnir á oddatöluári, en vegna afsagna tveggja formanna málefnahópa var kosið um formennsku í þeim málefnahópum til eins árs.
Málefnahópur um atvinnu- og menntamál. Í framboði var Elín H. Hinriksdóttir, ADHD samtökunum (sjá fskj. nr. 10a ). Framboð Guðrúnar Sæmundsdóttur, ME félagi Íslands, barst eftir að framboðsfrestur rann út en fundurinn samþykkti samhljóða að leyfa framboð hennar (sjá fskj. nr. 10b). Því var kosið á milli Elínar og Guðrúnar um formennsku í málefnahópi um atvinnu- og menntamál. Greidd voru 114 atkvæði sem féllu þannig að Guðrún hlaut 68 og Elín 46 (fskj. nr. 17a). Guðrún Sæmundsdóttir var því réttkjörinn formaður málefnahóps um atvinnu- og menntamál 2016-2017.
Fundarstjóri óskaði leyfis fundarins að bæta fulltrúa aðildarfélags, sem mætti seint, á kjörskrá og var það samþykkt samhljóða. Voru þá 115 á kjörskrá.
Málefnahópur um heilbrigðismál. Emil Thóroddsen, Gigtarfélagi Íslands (sjá fskj. nr. 11a), og Vilhjálmur Hjálmarsson, ADHD samtökunum (sjá fskj. nr. 11b), voru í framboði. Greidd voru 115 atkvæði. Auðir seðlar voru tveir og ógildir fjórir. Emil hlaut 72 atkvæði og Vilhjálmur 37. (fskj. nr. 17b). Emil Thóroddsen var því réttkjörinn formaður málefnahóps um heilbrigðismál 2016-2017.
Stjórnarmenn (11)
Fundarstjóri kynnti kosningu sjö stjórnarmanna til tveggja ára sem lá fyrir fundinum og þá sem voru í framboði (sjá fskj. nr. 10a, 11b, nr. 12a-m). Tvö framboð bárust á fundinum, frá Karli Þorsteinssyni (sjá fskj. nr. 12n), Ás styrktarfélagi og Daníel Ómari Viggóssyni, CP félaginu (sjá fskj. nr. 12o). Fundurinn samþykkti framboð þeirra. Frambjóðendur kynntu sig.
Þá var gengið til kosninga sjö stjórnarmanna til tveggja ára setu. Var fyrirkomulag kosninganna útskýrt og kjörseðlum dreift. Greidd voru 115 atkvæði, þar af voru 4 ógild (fskj. nr. 17c).
Þessi hlutu kosningu til tveggja ára 2016-2018:
1. Garðar Sverrisson, MS félagi Íslands, 389 stig
2. Arnþrúður Karlsdóttir, Tourette-samtökunum, 288 stig
3. Dóra Ingvadóttir, Gigtarfélaginu, 278 stig
4. G. Torfi Áskelsson, Parkinsonsamtökunum, 254 stig
5. Fríða Rún Þórðardóttir, Astma- og ofnæmisfélagi Íslands, 243 stig
6. Einar Þór Jónsson, HIV – Íslandi, 239 stig
7. Ægir Lúðvíksson, MND – félaginu á Íslandi, 204 stig
Fundarstjóri kynnti kosningu eins manns til stjórnarsetu til eins árs. Tvö framboð höfðu borist innan tilskilins frests, frá Aroni Guðmundssyni, MND – félaginu á Íslandi (sjá fskj. nr. 13) og Torfa Áskelssyni, Parkinsonsamtökunum (sjá fskj. nr. 12l). Fundarstjóri leitaði samþykkis fundarins fyrir framboðum eftirtalinna, sem gáfu kost á sér á fundinum: Daníel Ómar Viggósson, CP félaginu á Íslandi (sjá fskj. nr. 12o), Vilhjálmur Hjálmarsson, ADHD samtökunum (sjá fskj. nr. 11b), Þuríður Harpa Sigurðardóttir, Sjálfsbjörg og Sylviane Pétursson-Lecoultre, Geðhjálp (sjá fskj. nr. 12k). Voru þau samþykkt samhljóða. Frambjóðendur kynntu sig.
Þá var gengið til kosninga stjórnarmanns til eins árs. Var fyrirkomulag kosninganna útskýrt og kjörseðlum dreift. Greidd voru 115 atkvæði, þar af var einn seðill ógildur og einn seðill auður (fskj. nr. 17d ).
Þessi hlaut kosningu til eins árs 2016-2017:
1. Aron Guðmundsson, MND – félaginu á Íslandi, 36 atkvæði
Varamenn í stjórn (12)
Fundarstjóri kynnti kosningu þriggja varamanna í stjórn. Þessi voru í framboði: Elín H. Hinriksdóttir, ADHD samtökunum (sjá fskj. nr. 10a), Ingveldur Jónsdóttir, MS félagi Íslands (sjá fskj. nr. 14a), Ómar Geir Bragason, Samtökum sykursjúkra (sjá fskj. nr. 12i), Sigurjón Einarsson, Fjólu (sjá fskj. nr. 14b), Snævar Ívarsson, Félagi lesblindra (sjá fskj. nr. 12j) og Vilhjálmur Hjálmarsson, ADHD samtökunum (sjá fskj. nr. 11b). Framboð bárust úr sal og samþykkti fundurinn þau samhljóða: Þuríður Harpa Sigurðardóttir, Sjálfsbjörg og Sylviane Lecoultre, Geðhjálp (sjá fskj. nr. 12k). Frambjóðendur kynntu sig.
Fundarstjóri kynnti fyrirkomulag kosninga, sem var það sama og í kjöri stjórnarmanna. Þá var kjörseðlum dreift. Greidd voru 106 atkvæði og voru tvö ógild (fskj. nr. 17e).
Þessi hlutu kosningu sem varamenn í stjórn:
1. Ingveldur Jónsdóttir, MS félagi Íslands, 170 stig
2. Sylviane Lecoutre, Geðhjálp, 106 stig
3. Elín H. Hinriksdóttir ADHD samtökunum, 91 stig
Aðrar kosningar til tveggja ára
Samkvæmt lögum ÖBÍ skal kjósa í kjörnefnd, laganefnd og skoðunarmenn reikninga á oddatöluári. Þær kosningar fóru því ekki fram nú 2016.
Lagabreytingar, aðildarumsóknir, ályktanir, önnur mál
Lagabreytingar (16)
Teknar voru til afgreiðslu 12 tillögur til lagabreytinga sem borist höfðu laganefnd fyrir aðalfund og eitt bráðabirgðaákvæði. Ingveldur Jónsdóttir, formaður laganefndar, kynnti breytingartillögur laganefndar, sem sjá má í fylgiskjali nr. 16. Til þess að breyta lögum ÖBÍ þurfti tvo þriðju hluta atkvæða.
1. Viðbót við 5. gr. Umsókn um aðild. Tillaga samþykkt samhljóða.
2. Viðbót við 9. gr. Almennt ákvæði. Tillaga samþykkt samhljóða.
3. Viðbót við 10. gr. Aðalfundarfulltrúar. Tillaga samþykkt samhljóða.
4. Viðbót við 11. gr. Dagskrá aðalfundar. Tillaga samþykkt með þorra atkvæða. Einn sat hjá.
5. Viðbót við 12. gr. Kjörgengi og atkvæðagreiðslur. Tillaga samþykkt með þorra atkvæða. Einn sat hjá.
6. Viðbót við 13. gr. Framboð í trúnaðarstöður og hlutverk kjörnefndar. Tillaga samþykkt samhljóða.
7. Innskot í 1. ml. 1. mgr. 14. gr. Lagabreytingar. Tillaga samþykkt með þorra atkvæða. Einn sat hjá.
8. Innskot í 1. ml. 1. mgr. 15. gr. Ályktanir aðalfundar. Tillaga samþykkt með þorra atkvæða. Einn sat hjá.
9. Viðbót við 18. gr. A. Kosning og hlutverk stjórnar. Tillaga samþykkt samhljóða.
10. Viðbætur við 1. og 2. mgr. 23. gr. Málefnahópar. Tillaga samþykkt með þorra atkvæða. Fundarmaður óskaði eftir því að atkvæðagreiðsla yrði endurtekin. Orðið var við því og atkvæði talin. Tillaga samþykkt með 82 atkvæðum, níu voru á móti og þrír sátu hjá.
11. Viðbót við 24. gr. Laganefnd. Tillaga samþykkt með þorra atkvæða. Einn sat hjá.
12. Innskot í 3. ml. 26. gr. Reikningsár og ársreikningar. Tillaga samþykkt samhljóða.
13. Nýtt bráðabirgðaákvæði. Ákvæði samþykkt með þorra atkvæða. Einn var á móti.
Þá bar fundarstjóri lög ÖBÍ upp til atkvæða, svo breytt. Voru þau samþykkt samhljóða.
Fundarmaður gerði athugasemd við fundarstjórn. Hann taldi fundarstjóra hafa farið heldur hratt í yfirferð breytingatillagna svo mönnum gafst ekki tími til að tjá sig. Því hann vildi koma ábendingu til laganefndar um að kosning varamanna í stjórn yrði á hverju ári.
Aðildarumsóknir (17)
Skylduliður á dagskrá skv. lögum ÖBÍ. Engar aðildarumsóknir höfðu borist.
Ályktanir aðalfundar (18)
Ályktanir bárust eftir að frestur rann út. Fundarstjóri bar undir fundinn að taka tillögurnar fyrir og var það samþykkt samhljóða (fskj. nr. 18a-g).
Ályktun aðalfundar ÖBÍ um notendastýrða, persónulega aðstoð (fskj. nr. 18a).
Fundarstjóri las upp ályktunina og bauð umræður um hana. Engar umræður voru. Fundarstjóri bar ályktunina upp til atkvæða.
Ályktunin var samþykkt svohljóðandi:
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 14.-15. október 2016, krefst þess að réttur fatlaðs fólks til notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA) verði lögfestur strax á haustþingi 2016.
Ályktun aðalfundar ÖBÍ um aðgengismál (fskj. nr. 18b).
Fundarstjóri las upp ályktunina og bauð umræður um hana. Engar umræður voru um. Fundarstjóri bar ályktunina upp til atkvæða. Var hún samþykkt með þorra atkvæða, einn sat hjá.
Ályktunin var samþykkt svohljóðandi:
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 14.-15. október 2016, hvetur stjórnvöld strax á haustþingi til að beita sér fyrir því að fjarlægja tálma sem hindra aðgengi í samfélaginu í víðum skilningi og hafi virkt eftirlit með því að þeir verði ekki settir upp aftur.
Standa þarf vörð um ákvæði byggingarreglugerðar um algilda hönnun og setja þarf á fót sérstakt aðgengiseftirlit með byggingum. Bæta þarf almenningssamgöngur og tryggja þarf að akstursþjónusta sé til staðar fyrir þá sem þurfa á henni að halda. Þá er brýnt að festa í lög kröfu um að allt útsent sjónvarpsefni sé textað. Bætt aðgengi fyrir suma er bætt aðgengi fyrir alla.
Ályktun aðalfundar ÖBÍ um atvinnu- og menntamál (fskj. nr. 18c).
Fundarstjóri las upp ályktunina og bauð umræður um hana. Guðrún Sæmundsdóttir, ME félagi Íslands, lagði fram breytingatillögu sem varðar nýsköpun. Rúnar Björn Herrera, SEM samtökunum, lagði til breytingu á breytingatillögunni. Ellen lagði til að segja fatlaðs fólks og örorkulífeyrisþega.
Ályktunin var samþykkt samhljóða svohljóðandi:
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ), haldinn 14.-15. október 2016, hvetur stjórnvöld til að:
● Auka atvinnutækifæri fatlaðs fólk og fólks með skerta starfsgetu þannig að hlutastörf við hæfi verði í boði.
● Innleiða hvatningakerfi fyrir fyrirtæki og stofnanir til að ráða starfsfólk með skerta starfsgetu.
● Stofna opinberan lánasjóð fyrir fatlað fólk og örorkulífeyrisþega til að fjármagna kostnað til atvinnuuppbyggingar sem gæti stuðlað að aukinni atvinnuþátttöku þeirra.
● Jafna tækifæri fatlaðs fólks til náms og tryggja að nemendur með sérþarfir fái þá lögbundnu þjónustu sem þeir eiga rétt á innan skólakerfisins.
● Auka námsframboð fyrir eldri nemendur með sérþarfir.
● Nýsköpunarumhverfi fatlaðs fólks og örorkulífeyrisþega þarfnast úrbóta til þess að þau eigi jafna möguleika til nýsköpunar og aðrir. Öryrkjabandalagið leggur til að opinberar stofnanir um nýsköpun bæti þjónustu sína og tryggi frumkvöðlum með skerðingar þjónustu fagfólks við áætlanagerð og styrkumsóknir.
Ályktun aðalfundar ÖBÍ um kjaramál (fskj. nr. 18d).
Fundarstjóri las upp ályktunina og bauð umræður um hana. Engar umræður voru. Fundarstjóri bar ályktunina upp til atkvæða. Var hún samþykkt með þorra atkvæða, einn sat hjá.
Ályktunin var samþykkt svohljóðandi:
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 14.-15. október 2016, skorar á alla þingmenn sem munu taka sæti á Alþingi að loknum alþingiskosningum 29. október nk. að bæta kjör örorkulífeyrisþega með því að hafa áhrif á fjárlagagerð ríkisins fyrir árið 2017 með eftirfarandi hætti:
● Hækka óskertan lífeyri almannatrygginga í 390.000 kr. fyrir skatt.
● Afnema krónu-á-móti-krónu skerðingu sérstakrar framfærsluuppbótar með því að fella hana inn í tekjutrygginguna.
● Draga verulega úr tekjuskerðingum í almannatryggingakerfinu, s.s. með lækkun skerðingarprósentu og hækkun frítekjumarka.
● Hækka skattleysismörk í 310.000 kr. á mánuði.
● Setja lög til að koma í veg fyrir að lífeyrissjóðir skerði greiðslur til örorkulífeyrisþega vegna greiðslna úr almannatryggingakerfinu.
Ályktun aðalfundar ÖBÍ um heilbrigðismál (fskj. nr. 18e).
Fundarstjóri las upp ályktunina og bauð umræður um hana. Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir, fráfarandi formaður málefnahópsins, kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir starfi hópsins við samningu ályktunarinnar.
Bergur Þorri Benjamínsson gerði tillögu um að bæta við: Hjálpartæki eru til að mynda mjög dýr og reglur um kostnaðarþátttöku mjög óskýrar.
Fundarstjóri bar breytingatillöguna upp til atkvæða. Var hún samþykkt með þorra atkvæða. Sjö voru á móti og níu sátu hjá.
Ályktunin var samþykkt svohljóðandi:
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 14. – 15. október 2016, skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir því að heilbrigðisþjónusta verði gjaldfrjáls.
Kostnaður sjúklinga í heilbrigðiskerfinu hefur aukist á undanförnum árum. Þrátt fyrir að í gildi sé greiðsluþátttökukerfi lyfja og að brátt taki gildi nýtt greiðsluþátttökukerfi í heilbrigðisþjónustu er margvíslegur annar kostnaður sem sjúkratryggðir þurfa að greiða og er ekkert þak á því. Hjálpartæki eru til að mynda mjög dýr og reglur um kostnaðarþátttöku óskýrar. Sameina þarf þessi kerfi og stefna að gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu, fyrir fyrir börn, langveika og örorkulífeyrisþega.
Ályktun um samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks. (fskj. nr. 18f).
Fundarstjóri las upp ályktunina og bauð umræður um hana. Hjörtur Heiðar Jónsson, Heyrnarhjálp, benti á að valfrjáls bókun hefur ekki verið fullgilt eða samþykkt. Hvatti hann til þess að hún yrði samþykkt sem allra fyrst. Bergur Þorri Benjamínsson, Sjálfsbjörg, sagði að Alþingi yrði að samþykkja bókunina ekki síðar en á árinu 2017. Ellen Calmon, formaður, sagði að eingöngu væri eftir stjórnsýsluleg framkvæmd þar sem að bókunin myndi taka gildi 1. janúar 2017. Rúnar Björn Herrera, SEM samtökunum, lagði áherslu á að nauðsynlegt væri að taka af vafa um það að bókunin yrði samþykkt. Svavar Kjarrval, Einhverfusamtökunum, samþykkti að fullgilda.
Breyting var gerð á orðalagi: og að valfrjáls bókun við samninginn skuli einnig fullgilt fyrir árslok 2017.
Ályktunin var samþykkt svohljóðandi:
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 14.-15. október 2016, fagnar nýlegri ákvörðun Alþingis um fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) og að valfrjáls bókun um samninginn skuli einnig fullgilt fyrir árslok 2017.
Aðalfundurinn hvetur stjórnvöld til þess að tryggja enn betur réttindi fatlaðs fólks á Íslandi með lögfestingu samningsins og innleiðingu réttindanna sem í honum felast í íslensk lög sem allra fyrst. Stofnuð verði sérstök verkefnisstjórn til að fylgja málum eftir.
Ályktun aðalfundar ÖBÍ um almannatryggingakerfið (fskj. nr. 18g).
Fundarstjóri las upp ályktunina og bauð umræður um hana. Nokkrar athugasemdir komu varðandi orðalag.
Ályktunin var samþykkt svohljóðandi:
Í ljósi nýsamþykktra breytinga á almannatryggingakerfinu skorar aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 14.-15. október 2016, á nýja ríkisstjórn sem tekur til starfa eftir kosningar nú í október að draga úr tekjuskerðingum örorkulífeyrisþega, með því að fella sérstöku framfærsluuppbótina inn í tekjutryggingu frá og með 1. janúar 2017. Með lagabreytingunni, sem samþykkt var á Alþingi 13. október, var sú leið valin að auka krónu á móti krónu skerðingar og jafnframt að auka muninn á milli greiðslna til þeirra sem fá greidda heimilisuppbót og hinna sem fá hana ekki. Því er skorað á nýja ríkisstjórn að bæta kjör allra örorkulífeyrisþega.
Tillaga til aðalfundar ÖBÍ um aukinn stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. (fskj. nr. 19). Tillagan barst eftir að frestur var liðinn. Fundarstjóri bar undir fundinn að taka tillöguna fyrir og var það samþykkt samhljóða. Vilhjálmur Hjálmarsson, ADHD samtökunum, mælti fyrir tillögunni, sem var svohljóðandi:
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 14.-15. október 2016 samþykkir að fela stjórn ÖBÍ að koma á fót leiðbeiningar- og ráðgjafarþjónustu vegna barna og fjölskyldna þeirra.
Í því skyni skal sérstaklega horft til réttinda barna og fjölskyldna og þjónustu og ráðgjafar, m.a. í samskiptum við menntakerfið og velferðarþjónustu á vegum sveitarfélaga.
Tillagan var lesin og umræður voru um hana. Bergur Þorri Benjamínsson, gjaldkeri ÖBÍ, vill skoða og fara varlega í sakirnar. Jón Páll Gestsson, Samtökum sykursjúkra, gerði athugasemd og taldi að með þessu væri farið inn á svið ríkis og sveitarfélaga. Þuríður Harpa Sigurðardóttir, Sjálfsbjörg, setti fyrirvara og vildi skoða betur. Rúnar Björn Herrera, SEM samtökunum, var sammála Þuríði og taldi það geta verið hættulegt fyrir hagsmunasamtök að fara í rekstur.
Bergur Þorri Benjamínsson, Sjálfsbjörg, lagði fram breytingatillögu á tillögunni. Bergur lagði til innskot „skoði möguleikann á því að”. Breytingatillagan var borin upp og samþykkt.
Tillagan var borin upp með áorðnum breytingum og samþykkt með þorra atkvæða, sjö voru á móti og einn sat hjá.
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 14.-15. október 2016 samþykkir að fela stjórn ÖBÍ að skoða möguleikann á því að koma á fót leiðbeiningar- og ráðgjafarþjónustu vegna barna og fjölskyldna þeirra.
Í því skyni skal sérstaklega horft til réttinda barna og fjölskyldna og þjónustu og ráðgjafar, m.a. í samskiptum við menntakerfið og velferðarþjónustu á vegum sveitarfélaga.
Önnur mál (19)
Fundarstjóri opnaði mælendaskrá. Vilhjálmur Hjálmarsson, ADHD samtökunum, ræddi nýja kosningakerfið og spurði um rök fyrir framkvæmd kosninga.
Ásta Dís Guðjónsdóttir, Sjálfsbjörg, minnti á alþjóðlegan baráttudag gegn fátækt og lagði til að sú vika yrði nýtt til að minna á almannatryggingar og heilbrigði.
Sigþór Hallgrímsson, formaður Blindrafélagsins, minnti á alþjóðadag hvíta stafsins sem er 15. október. Sagði hann frá því að Blindrafélagið nýtti daginn til þess að vekja athygli á aðgengismálum með gulum þumli sem félagið lét útbúa. Hvatti hann fundargesti til að taka myndir af þumlinum og sýna aðgengi, þar sem þumallinn vísar upp eða niður, eftir því hvort aðgengi er gott eða slæmt.
Halldór Sævar Guðbergsson, varaformaður ÖBÍ, þakkaði traustið í embætti varaformanns. Sagðist Halldór finna mikla samstöðu í hópnum og grósku sem ætti eftir að leiða til góðra verka.
Bergur Þorri Benjamínsson, Sjálfsbjörg, þakkaði fyrir traustið í embætti gjaldkera. Vakti Bergur athygli á nýju lagafrumvarpi sem varðar kaup á bílum fyrir fatlað fólk.
Guðný Linda Óladóttir, Samtökum lungnasjúklinga, vakti athygli á alþjóðlega líffæragjafadeginum.
Fulltrúi SPOEX minnti á alþjóðadag psoriasis sem er 29. október en verður í ár haldinn 25. október á Grand hóteli.
Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla, minnti á nýtt app fyrir snjallsíma, sem er bæði fræðsla um einkenni heilablæðingar og öryggistæki ef fólk fær heilablæðingu.
Emil Thóroddsen, Gigtarfélagi Íslands, þakkaði fyrir stuðninginn í embætti formanns málefnahóps um heilbrigðismál og kynnti opið hús á vegum Gigtarfélagsins.
Þá þökkuðu fundarstjórar fyrir sig og afhentu formanni fundinn.
Fundarlok
Formaður þakkaði góðan fund, þakkaði fundarstjórum og starfsfólki fyrir störf sín, þakkaði öllum sem buðu sig fram til trúnaðarstarfa, þakkaði laganefnd og formönnum málefnahópa.
Formaður sleit fundi kl. 16:53.
Fylgiskjöl:
1. Dagskrá aðalfundar 14. og 15. október 2016
2. Ársskýrsla ÖBÍ 2015-2016
3. Ársreikningur ÖBÍ 2015
4. Ársreikningar fyrirtækja
a)BRYNJA hússjóður Öryrkjabandalagsins
b)Örtækni
c) Hringsjá
d)Fjölmennt
5. Tillögur málefnahópa eftir stefnuþing ÖBÍ
a)Tillögur málefnahóps um aðgengi
b)Tillögur málefnahóps um atvinnu- og menntamál
c) Tillögur málefnahóps um heilbrigðismál
d)Tillögur málefnahóps um kjaramál
e)Tillögur málefnahóps um sjálfstætt líf
6. Listi yfir aðalfundarfulltrúa aðildarfélaga ÖBÍ
7. Yfirlit yfir framboð til stjórnar ÖBÍ 2016
8. Kynning frambjóðanda til varaformanns (1)
9. Kynning frambjóðanda til gjaldkera (1)
10. a) og b) Kynningar frambjóðenda til formanns málefnahóps um atvinnu- og menntamál (2)
11. a) og b) Kynningar frambjóðenda til formanns málefnahóps um heilbrigðismál (2)
12. a) til o) Kynningar frambjóðenda til stjórnar í 2 ár (15)
13. Kynning frambjóðanda til stjórnar í 1 ár (1)
14. a) og b) Kynningar varamanna (2)
15. Lög Öryrkjabandalags Íslands samþykkt 13. nóvember 2014
16. Lagabreytingatillögur laganefndar ÖBÍ
17. a) til e) Niðurstöður talninga í atkvæðagreiðslu
18. a) til g) Ályktanir Aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands 2016
19. Tillaga um aukinn stuðning við börn og fjölskyldur þeirra
Aðalfundur 2015
Aðalfundur ÖBÍ 2015
Fundargerð aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands
haldinn á Hilton Reykjavík Nordica í Reykjavík
3. október 2015, kl. 10.00-17.00, og
6. október 2015, kl. 16.00-22.00.
Ávarp formanns
Ellen Calmon, formaður ÖBÍ, setti fundinn kl. 10:08 og bauð fundarmenn velkomna. Formaður lagði til að Kolbeinn Óttarsson Proppé og Hildur Lilliendahl Viggósdóttir yrðu fundarstjórar og var það samþykkt samhljóða. Formaður lagði til að Aðalheiður Rúnarsdóttir, Anna Guðrún Sigurðardóttir og Stefán Vilbergsson rituðu fundinn og var það samþykkt samhljóða.
Fundarsetning, kjör fundarstjóra og fundarritara
Fundarstjórar þökkuðu traustið og buðu gesti velkomna. Fundarstjóri fór yfir dagskrá fundarins (fskj. D1) og bar upp tillögu um að Páll Hilmarsson, Dóra Guðrún Pálsdóttir og Ólafur Sindri Ólafsson yrðu teljarar á fundinum. Var það samþykkt samhljóða.
Fundarstjóri bar undir fundinn að Þuríður Harpa Sigurðardóttir frá Kvennahreyfingu ÖBÍ og Áslaug Ýr Hjartardóttir frá Ungliðahreyfingu ÖBÍ sætu sem áheyrnafulltrúar og var það samþykkt samhljóða.
Almenn fundarstörf
Skýrsla stjórnar
Formaður flutti skýrslu sína (fskj. 1 – Skýrsla formanns og stjórnar).
Formaður fór yfir helstu verkefni og mál starfsársins. Þar bar hæst að skrifstofa bandalagsins flutti í nýtt húsnæði á starfsárinu sem keypt var fyrir arf frá Ólafi Gísla Björnssyni. Kjarahópur bandalagsins tók saman skýrsluna Virkt samfélag (fskj. 1a – Skýrsla um Virkt samfélag). Umsagnir til Alþingis vegna kjaramála eru afar fyrirferða- miklar og fyrirspurnir voru unnar í samvinnu við þingmenn. Fjöldi bréfa var sendur ráðherrum, stofnunum og embættismönnum með fyrirspurnum, ábendingum og tillögum til úrbóta. Kjarahópur ÖBÍ var virkur við gerð auglýsinga til að kynna samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Formaður sýndi myndbönd sem gerð voru í tengslum við kynningu samningsins. Nefnd ÖBÍ um algilda hönnun var virk. Guðjón Sigurðsson og Arnar Helgi Lárusson unnu ötullega að aðgengiseftirliti. Gerðar voru athugasemdir við skort á túlkun fyrir heyrnarlausa í sjónvarpi og aðgengilegum salernum á útihátíðum.
Rannsóknir sýna að stór hluti örorkulífeyrisþega vill vinna, en einungis um 30% þeirra hefur atvinnutengdar tekjur. Mikilvægt er að til verði störf fyrir fólk með skerta starfsgetu og ÖBÍ hefur reynt að vekja athygli á því með verkefninu Atvinna fyrir alla. Formaður sendi þingmönnum bréf til áminningar um verkefnið og fjöldi manns skrifaði greinar til birtingar í Fréttablaðinu. Þverpólitísk samstaða var um NPA – sjálfstætt líf þegar verkefnið var sett af stað. Um afar mikilvægt verkefni er að ræða fyrir fatlaða, en fjárframlög frá ríki og sveitarfélögum eru ekki fullnægandi. Fjórum fötluðum konum var veittur styrkur til að fara á námskeið um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks – SRFF – í Galway á Norður-Írlandi. Rannveig Traustadóttir hélt námskeið um samninginn hér á landi.
Þrír formannafundir voru haldnir á árinu, ungliðahreyfing ÖBÍ fór af stað og bandalagið tók þátt í EDF, norrænu samstarfi og ráðgefandi ráði til Norrænu ráðherranefndarinnar. Vefur bandalagsins var uppfærður, gerður snjallvænn, og vinna við innri vef er í gangi.
Fundarstjóri tilkynnti að umræður um skýrslu stjórnar færu fram eftir kynningu reikninga félagsins en Gísli Helgason, Blindravinafélaginu, gerði athugasemd við fundarstjórn því hann áleit að skýrsla stjórnar væri eitt og reikningar annað og því ætti að ræða þau atriði sitt í hvoru lagi. Gísli fór fram á að umræða skýrslu stjórnar væri tekin fyrir sérstaklega. Fundarstjóri gerði ekki athugasemdir við það og gaf Gísla orðið. Hann þakkaði ágæta skýrslu, spurði hvort ÖBÍ væri ekki opinber stofnun vegna átaksins Atvinna fyrir alla sem snérist um að fjölga störfum hjá opinberum stofnunum og spurði hví samningi við Örtækni hafi verið sagt upp, í ljósi þessa átaks. Frímann Sigurnýjasarson þakkaði góða skýrslu stjórnar og lagði til að ljúka yfirferð reikninga bandalagsins og skýrslna fyrirtækja áður en umræður færu fram. Fundarstjóri bar tillögu Frímanns upp til atkvæða og var hún samþykkt með þorra atkvæða.
Ársreikningur bandalagsins
Guðmundur Snorrason, endurskoðandi frá PwC ehf., kynnti ársreikning ÖBÍ fyrir árið 2014 (fskj. 2 – Ársreikningur). Það var álit Guðmundar að reikningurinn gæfi glögga mynd af stöðu bandalagsins í árslok 2014. Þá hefði skýrsla stjórnar að geyma nauðsynlegar upplýsingar í samræmi við lög um ársreikninga og gaf skoðunin ekki tilefni til athugasemda.
Framlag frá Íslenskri getspá var megin-tekjustofn bandalagsins, en leigutekjur voru nýr tekjustofn sem kom fram á árinu vegna nýs húsnæðis. Heildar rekstrartekjur ársins voru kr. 464,5 milljónir á móti kr. 466 milljónum árið 2013. Tekjur ársins voru örlítið lægri en árið á undan vegna aukaframlags frá Íslenskri getspá það ár.
Stjórn ákvað að hafa meiri sundurliðun í framsetningu rekstrarreiknings en áður hafði verið. Styrkir og framlög voru lægri en árið áður en laun, tengd gjöld og lífeyrisskuldbindingar hækkuðu, fyrst og fremst vegna fleiri starfsmanna og launahækkana. Kostnaður vegna funda, kynninga, auglýsinga og fleiri þátta hækkaði á milli ára, sem og aðkeypt þjónusta og rannsóknir. Kostnaður við tíma- og vefrit lækkaði á milli ára vegna minni útgáfustarfsemi og rekstrarkostnaður fasteignar var svipaður, þótt um annars konar gjöld væri að ræða vegna nýs húsnæðis. Rekstrarkostnaður skrifstofu hækkaði á milli ára, aðallega því búnaður og fleira var endurnýjað vegna flutninganna. Rekstrarniðurstaða ræðst mjög af innkomu frá Íslenskri getspá og framlögum til aðildarfélaga. Hún var neikvæð 2014 og skýrist munur á milli ára að verulegu leyti með aukaframlagi Íslenskrar getspár árið 2013. Vaxtatekjur og verðbætur voru lægri 2014 vegna þess að sjóðir voru notaðir í nýtt húsnæði bandalagsins. Varanlegir fjármunir hækka á milli ára. Í árslok árið 2014 voru eignir og skuldir ÖBÍ kr. 733,5 milljónir og haldbært fé kr. 177,2 milljónir.
Fundarstjóri opnaði fyrir umræður og fyrirspurnir um skýrslu stjórnar og reikninga bandalagsins. Til svara voru formaður, framkvæmdastjóri og gjaldkeri bandalagsins.
Framkvæmdastjóri var fyrstur á mælendaskrá og sagði frá styrkjum sem aðildarfélög ÖBÍ fengu árið 2014 og 50 milljón kr. hækkun á þeim vegna aukaframlags frá Íslenskri getspá. 120 milljónir voru því til skiptanna. Brynja, hússjóður ÖBÍ, fékk 10 milljón aukagreiðslu til viðbótar við þær 105 sem voru á fjárhagsáætlun. Fyrirtæki ÖBÍ, Hringsjá, Örtækni, Tölvumiðstöðin og Fjölmennt, fengu einnig aukaframlög. Tæpar tvær milljónir voru settar í varasjóð bandalagsins sem var 153 milljónir króna í lok árs 2014. Varasjóðurinn er nauðsynlegur því ekki er hægt að treysta fyllilega á framlög frá Íslenskri getspá. Starfsleyfi Lottósins gildir til 1. janúar 2019 og mikilvægt er að standa vörð um það og stefna að endurnýjun. Arfur Ólafs Gísla Björssonar gerði bandalaginu kleift að kaupa húsnæði sem er nægilega stórt til að hýsa starfsemi þess. 12 milljónir króna á ári koma svo í leigutekjur af fasteigninni sem standa undir föstum kostnaði við rekstur hennar. Eignin er í raun tvær álmur svo möguleiki er á að selja hluta hennar ef sá vilji kemur upp.
Fundarstjóri bað fundarmenn að vera gagnorða og opnaði fyrir fyrirspurnir.
Formaður svaraði fyrirspurnum og í máli hans kom fram að mikilvægt sé að fá ríkisstjórn og almenning til að skilja að kjör öryrkja eru óásættanleg, að tala á þann hátt að almenningur vilji byggja annars konar samfélag þar sem örorkulífeyrisþegar geti lifað mannsæmandi lífi af lífeyrinum. Formaður sagði frá því að dómsmál sem ÖBÍ stendur að fer í aðalmeðferð 3. desember 2015. Í greinargerð Ólafs Ísleifssonar hagfræðings, sem fylgir málinu, segist hann telja að örorkulífeyrisþegi þurfi um 100.000 kr. meira en hann hefur í dag til að lifa mannsæmandi lífi af örorkulífeyrinum. Formaður sagði líta svo út sem mannréttindi séu ekki tekin gild á Íslandi nema í gegnum dómsmál, að lagagreinar dugi ekki til að tryggja þau.
Fram kom í máli formanns að um þriðjungur starfsfólks skrifstofunnar sé fatlaður og það hlutfall fari upp í um helming séu aðstandendur starfsfólks taldir með. Þá sagði formaður að þörf væri á að endurskoða skipulag skrifstofu og hlutverk starfsmanna og sagði þá vinnu hafna með Stefnuþingi sem haldið var í apríl 2015. Að lokum sagði formaður leigutekjur af hluta nýja húsnæðisins stæðu nánast undir rekstrarkostnaði þess.
Til að svara fyrirspurn Gísla Helgasonar sagði formaður að farið hafi verið í útboð þrifa þegar skrifstofa bandalagsins fluttist í nýtt húsnæði og niðurstaðan varð að þjónusta Örtækni var mun dýrari en hjá öðrum, samhliða því að Örtækni veitir bara þjónustu á skrifstofutíma, sem henti ekki eftir flutningana. Formaður harmaði að ekki væri hægt að nýta þjónustu Örtækni, sagði að uppsögn samningsins hafi verið niðurstaða framkvæmdastjórnar, en mælti með að samningar yrðu endurskoðaðir. Grétar Pétur Geirsson, gjaldkeri ÖBÍ, tók fram að hann hafi alls ekki samþykkt að segja upp samningi við Örtækni, enda væri hann stjórnarformaður þess fyrirtækis.
Varðandi fyrirspurn um verkefnið Atvinna fyrir alla sagði formaður að verkefnið hafi farið af stað á ársfundi Vinnumálatofnunar í október 2014 þar sem ráðherra hvatti forstjóra opinberra stofnana að ráða fólk með skerta starfsgetu. Sérstakur hluti á vefsíðu Vinnumála- stofnunar var settur upp til að auðvelda stofnunum að auglýsa laus störf. Verkefnið fór hægt af stað, eftir fjóra mánuði voru störfin einungis orðin þrjú svo ráðist var í auglýsingaherferð og ráðherra heimsótti stofnanir til að kynna verkefnið. Í lok september 2014 voru störfin orðin 46. Formaður sagði að byrjað hafi verið á opinberum fyrirtækjum og stofnunum því þau hafi ríkari skyldu en almenn fyrirtæki til að ráða fatlaða í vinnu. Halldór Guðbergsson, Blindrafélaginu, sem kom að verkefninu Atvinna fyrir alla fyrir hönd ÖBÍ, tók fram að ástæða þess að byrjað hafi verið á opinberum vinnustöðum væri að almennt var litið svo á að opinberar stofnanir og fyrirtæki stæðu sig almennt verr en atvinnulífið. Halldór sagði verkefnið muni halda áfram.
Þá sagði formaður frá málþingi sem haldið var um niðurstöður rannsókna sem bandalagið styrkti og að skýrsla um rannsókn um fatlaða íbúa hafi verið kynnt sveitarstjórnum og frambjóðendum í sveitarstjórnakosningum á síðasta ári.
Framkvæmdastjóri svaraði fyrirspurnum og í máli hans kom fram að rannsókn um fatlaða íbúa sveitarfélaga hafi verið gerð að frumkvæði ÖBÍ, til að hafa staðreyndir um fatlaða og ýmis mál þeim tengd á hreinu í aðdraganda sveitarstjórnakosninga því það styrkir bandalagið í sinni baráttu. Spurt var um ósamræmi í ársreikningum ÖBÍ og Hringsjár og framkvæmda- stjóri sagði að á fjárhagsáætlun hafi Hringsjá fengið 1,1 milljón kr. úthlutað, en svo vegna aukaframlags frá Íslenskri getspá hafi fyrirtækið fengið 5 milljónir til viðbótar í lok árs 2014 og því þurfi að athuga hvort þessar tölur sé ekki að finna undir öðrum lið í ársreikningi Hringsjár.
Framkvæmdastjóri þakkaði Bergi Þorra Benjamínssyn, Sjálfsbjörgu, fyrir þá ábendingu að bandalagið væri rekið með tapi ef ekki væri fyrir fjármagnstekjur því hann taldi að rekstur skapaði ekki nægar tekur til að vega upp á móti kostnaði og sagði lausafjárstöðu hafa verið það góða ekki væri ástæða tl að ráðstafa fjármagni á meðan framkvæmdir stóðu yfir við nýtt húsnæði. Að loknum framkvæmdum í lok árs var nokkur afgangur sem ákveðið var að veita í styrki og því var rekstrarafkoman sem raun bar vitni.
Því næst bar fundarstjóri reikningana upp til atkvæða og voru þeir samþykktir samhljóða.
Skýrslur fastra málefnahópa
Þessi dagskrárliður er í nýjum lögum Bandalagsins frá árinu 2014, og ákvæðið því ekki komið til framkvæmdar því kosið var í málefnahópa á aðalfundi 2015.
Skýrslur fyrirtækja
Skýrslur fyrirtækja lágu frammi. (fskj. 1 – Skýrsla formanns og stjórnar)
BRYNJA, hússjóður Öryrkjabandalagsins
Björn Arnar Magnússon, framkvæmdastjóri, og Garðar Sverrisson, formaður BRYNJU, voru til svara, en engar fyrirspurnir bárust.
Örtækni
Spurt var hvort þrifið hafi verið utan skrifstofutíma er skrifstofur ÖBÍ voru í Hátúni og hvers vegna þrif væru ekki leyfð á skrifstofutíma í nýju húsnæði. Þorsteinn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Örtækni, sagði að allt starf sem unnið sé hjá fyrirtækinu sé unnið á dagvinnutíma. Formaður sagði að notkun á nýju húsnæði væri öðruvísi en í Hátúni svo það væri ekki gerlegt að hafa þrif á skrifstofutíma. Formaður endurtók að fyrirkomulag þrifa væri ekki meitlað í stein og því hægt að endurskoða það.
Þá var spurt hvort ÖBÍ kynnti sér sögu fyrirtækja og framkomu þeirra við stafsfólk í útboðsferli eða hvort eingöngu sé horft til kostnaðar. Framkvæmdastjóri svaraði því játandi, sagði allt skoðað, jafnvel sakaskrár, að það væru góð og sjálfsögð vinnubrögð að kanna slíkt.
Hringsjá
Helga Eysteinsdóttir, forstöðumaður Hringsjár, var til svara en engar fyrirspurnir bárust.
TMF- Tölvumiðstöð
Sigrún Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri TMF – Tölvumiðstöðvar, var til svara en engar fyrirspurnir bárust.
Fjölmennt
Erna Arngrímsdóttir, stjórnarmaður í Fjölmennt, var til svara en engar fyrirspurnir bárust.
Stefnuþing: Stefna og starfsáætlun
Arndís Ósk Jónsdóttir, stjórnunar- og mannauðsráðgjafi, kynnti Stefnuþing sem haldið var 10.-11. apríl 2015. Hún rifjaði upp ástæður þess að þingið var haldið og fór yfir hlutverk þess, undirbúning, verklag, tilhögun og vinnu (fskj. 3 – Glærur AÓJ).
Arndís fór yfir niðurstöður þingsins og lagði til að stjórn taki þær til skoðunar og noti til að móta markmið, áherslur og aðgerðir næstu ára. Afrakstur þingsins má finna í skýrslu (fskj. 3a – Skýrsla Stefnuþings), þremur viðaukum og hrágögnum sem geymd eru skrifstofu ÖBÍ. Stefnuþingið sendi tillögur um fimm málefnahópa fyrir aðalfund, en fleiri tillögur (12) komu fram og má finna þær í viðaukum skýrslunnar. Arndís þakkaði fyrir að taka þátt í verkefninu, sagði vinnuna hafa verið jákvæða, glaðlega og kraftmikla.
Formaður lagði til að samþykkja þá fimm hópa sem stefnuþing lagði til: Kjaramál, Aðgengi, Heilbrigðismál, Atvinnu- og menntamál og Sjálfstætt líf.
Spurt var hvort kosið yrði í tímabundna hópa á þinginu eða hvort skrifstofa myndi skipa þá og hvort einhver skilgreining væri á starfstíma þessara hópa. Sigurjón Sveinsson, lögfræðingur ÖBÍ, svaraði og sagði það vera ákvörðun stjórnar að afgreiða fyrirkomulag hópanna. Einnig var spurt um endurhæfingu og formaður sagði málefni tengd endurhæfingu væru hluti málefnahóps um heilbrigðismál.
Formaður lagði til að samþykkja þá fimm hópa sem stefnuþing lagði til: Kjaramál, Aðgengi, Heilbrigðismál, Atvinnu- og menntamál og Sjálfstætt líf, og var það samþykkt án mótatkvæða.
Aðildargjöld, ákvörðun
Gjaldkeri lagði til að aðildargjöld yrðu óbreytt, 0 kr. og var það samþykkt einróma.
Kosningar í stjórn
Fundur hófst eftir hádegishlé kl. 13:25. Fundarstjóri kynnti framkomna tillögu frá Fríðu Bragadóttur, Laufi – félagi flogaveikra, um breytingar á dagskrá, svohljóðandi (fskj. vantar. Orðrétt eftir upptöku, sjá útprentun fskj. 4):
„Ef tími vinnst til meðan beðið er talningaúrslita í fyrri hluta kosnina verði sá tími nýttur til að klára
seinni hluta kosninga, þ.e. laganefnd – kjörnefnd – skoðunarmenn reikninga.“
Fundarstjóri bar tillöguna upp til atkvæða og var hún samþykkt einróma.
Fram fór nafnakall. Fundarstjóri óskaði leyfis fundarins að Sigríður Jóhannsdóttir mætti sitja fundinn sem fulltrúi Félags heyrnarlausra, að Guðrún Þorgeirsdóttir og Ólöf Eysteinsdóttir mættu sitja fundinn sem fulltrúar MG-félags Íslands og Guðrún Sæmundsdóttir og Jóna Hrafnborg Kristmannsdóttir sem fulltrúar ME félagsins. Var það samþykkt samhljóða.
Mættir voru 113 fulltrúar fyrir 37 félög bandalagsins, tveir voru fjarverandi og höfðu ekki kallað inn varamann (fskj. 4a – Fulltrúar aðildarfélaga, mætingarlisti 3. október).
Þess var óskað að kosningar færu fram leynilega og því voru allar kosningar til stjórnar skriflegar. Listi yfir framboði til embætta lá frammi (fskj. 4b – Framboð til embætta og nefnda, listi 3. október).
Fundarstjóri greindi frá því að tillaga hefði borist frá Svavari Kjarrval, Einhverfusamtökunum, (fskj. 4c) um að í persónukjöri verði atkvæðafjöldi á atkvæðaseðli takmarkaður við fjölda frambjóðenda. Eftir samráð við lögfræðinga var tillögunni vísað frá á þeim grundvelli að hún væri ekki tæk því hún gengi gegn lögum og eðli kosninga.
Formaður
Tvö voru í framboði: Ellen Calmon, ADHD samtökunum, og Guðjón Sigurðsson, MND-félaginu á Íslandi. Engin framboð voru úr sal. Fundarstjóri bauð frambjóðendum að kynna sig og veitti hvorum fimm mínútur til þess.
Greidd voru 113 atkvæði. Þar af voru 110 gild og þrír seðlar auðir. (fskj. 4d). A, Ellen Calmon, hlaut 88 atkvæði og B, Guðjón Sigurðsson, fékk 22 atkvæði. Því var Ellen Calmon réttilega kjörinn formaður ÖBÍ 2015-2017. Nýkjörinn formaður tók til máls og þakkaði stuðninginn.
Varaformaður
Tveir voru í framboði: Arnar Helgi Lárusson, SEM samtökunum, og Halldór Sævar Guðbergsson, Blindrafélaginu. Arnar Helgi dró framboð sitt til baka á fundinum. Engin framboð voru úr sal og því var Halldór Sævar Guðbergsson sjálfkjörinn í embætti varaformanns 2015-2016. Halldór kom í ræðustól og þakkaði traustið. Hann sagðist líta svo á að verkefni og ábyrgð varaformanns snérust um innra starf Bandalagsins.
Gjaldkeri
Einn var í framboði: Bergur Þorri Benjamínsson, Sjálfsbjörgu. Engin framboð voru úr sal og Bergur Þorri því sjálfkjörinn í embætti gjaldkera 2015-2016. Bergur kom í ræðustól og þakkaði traustið.
Formenn fastra málefnahópa
Kjaramál – málefnahópur. Einn var í framboði: María Óskarsdóttir, Sjálfsbjörgu. Engin framboð voru úr sal og því var María Óskarsdóttir sjálfkjörin formaður málefnahóps um kjaramál 2015-2017. María þakkaði stuðninginn.
Aðgengi – málefnahópur. Einn var í framboði: Arnar Helgi Lárusson, SEM samtökunum. Arnar Helgi dró framboð sitt til baka á fundinum.
Gísli Helgason, Blindravinafélaginu, bauð sig fram til formennsku í hópnum. Skorað var á Grétar Pétur Geirsson, Sjálfsbjörgu, og Ingibjörgu Jónsdóttur, MS félaginu, að bjóða sig fram. Grétar Pétur tók áskoruninni, en Ingibjörg gaf ekki kost á sér. Gísli dró framboð sitt til baka. Fleiri framboð komu ekki fram og því var Grétar Pétur sjálfkjörinn formaður málefnahóps um aðgengismál 2015-2017. Grétar Pétur þakkaði velvild og sagðist mundi vinna ötullega að málefnum hópsins.
Heilbrigðismál – málefnahópur. Tvö voru í framboði: Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir, Sjálfsbjörgu, og Vilhjálmur Hjálmarsson, ADHD samtökunum. Framboð Vilhjálms barst eftir að framboðsfrestur rann út en fundurinn samþykkti að leyfa framboð hans. Frambjóðendur fengu tvær mínútur til að kynna sig.
Greidd voru 111 atkvæði. Guðbjörg hlaut 61 atkvæði og Vilhjálmur 49 (fskj. 4e). Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir var því réttkjörin formaður málefnahóps um heilbrigðismál 2015-2017. Guðbjörg þakkaði traustið og lýsti von um að Vilhjálmur tæki þátt í starfi hópsins.
Atvinnu- og menntamál – málefnahópur. Einn var í framboði: Hjördís Anna Haraldsdóttir, Félagi heyrnarlausra. Engin framboð bárust úr sal og Hjördís Anna því réttkjörin formaður málefnahóps um atvinnu- og menntamál 2015-2017. Hjördís þakkaði traustið og sagðist hlakka til þess að taka þátt í vinnu hópsins, sem er hennar hjartans mál.
Sjálfstætt líf – málefnahópur. Tveir voru í framboði: Hjörtur Jónsson, Heyrnarhjálp, og Rúnar Herrera, SEM samtökunum. Kristín Björnsdóttir, Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra, og Ægir Lúðvíksson, MND-félaginu, höfðu dregið framboð sín til baka. Frambjóðendur kynntu sig.
Greidd voru 109 atkvæði. Hjörtur hlaut 37 og Rúnar 70 (fskj. 4f). Auðir seðlar voru tveir. Rúnar Björn Herrera var réttkjörinn formaður málefnahóps um Sjálfstætt líf 2015-2017. Rúnar þakkaði fyrir.
Stjórnarmenn
Fundarstjóri kynnti kosningu ellefu stjórnarmanna sem lá fyrir fundinum og þá sem voru í framboði (fskj. 4b). Einar Þór Jónsson, HIV-Ísland, hafði dregið framboð sitt til baka og framboð Guðbjargar Kristínar Eiríksdóttur, Sjálfsbjörgu, féll sjálfkrafa niður því hún var nýkjörinn formaður málefnahóps um heilbrigðismál. Ekkert framboð barst á fundinum.
Fundarstjóri kynnti fyrirkomulag kosninganna, að hver fundarmaður hafi 11 atkvæði og geti greitt allt að ellefu atkvæði. Fundarstjóri sagði ákvörðun hafi komið frá fundarstjórum, að fengnu áliti lögfræðinga og einstaklinga vana vinnu við kosningar. Var fyrirkomulagið rætt.
Fundarstjóri kynnti fram komna skriflega tillögu um framkvæmd kosninga frá Snævari Ívarssyni, Einari Hrafni Jóhannessyni og Guðmundi Skúla Johnsen frá Félagi lesblindra og Hrönn Pedersen, CCU samtökunum, svohljóðandi (fskj. 4g):
„Fer fram á að kjósa verði fulla ellefu á lista annars verði seðill ógildur.“
Fundarstjóri bauð umræður um tillöguna. Þeir sem tóku til máls voru hrifnir af tillögunni og vildu að hún yrði samþykkt, töldu hana í samræmi við fyrra fyrirkomulag. Jafnframt þótti mönnum mikilvægt að farið yrði yfir verkfyrirkomulag og framkvæmd kosninga að aðalfundi loknum.
Fundarstjóri bar upp dagskrártillögu sem borist hafði frá Vilhjálmi Hjálmarssyni, ADHD samtökunum, svohljóðandi (fskj. vantar. Orðrétt eftir upptöku. Sjá útprentun fskj. 4h):
„gengið verði strax til kosninga á þeim forsendum sem fundarstjórar lögðu upp með. Um nýtt
fyrirkomulag er að ræða sem eflaust þarfnast endurskoðunar í ljósi reynslunnar.“
Tillöguflytjandi gerði stuttlega grein fyrir tillögunni. Fundarstjóri bar tillöguna upp til atkvæða.
Sveinn Rúnar Hauksson, Geðhjálp, tók orðið og gerði athugasemd við dagskrá og fundarstjórn fundarstjóra. Gísli Helgason, Blindravinafélaginu, gerði athugasemd við afgreiðslu fundarstjóra á framkominni dagskrártillögu. Tillöguflytjandi dró tillöguna til baka.
Formaður gerði dagskrártillögu, að hætta umræðum og greiða atkvæði um fram komna tillögu um framkvæmd kosninga, því málið þarfnist frekari skoðunar, t.d. í laganefnd (fskj. 4i). Fundarstjóri bar tillögu formanns upp til atkvæða og var hún samþykkt samhljóða.
Fundarstjóri tók þá fyrir tillögu um framkvæmd kosninga (fskj. 4g). Gerð var athugasemd við orðalag tillögunnar. Fundarstjóri fékk leyfi tillöguflytjanda að lagfæra orðalag til að skýra tillöguna. Fundarstjóri bara svohljóðandi tillögu upp til atkvæða (fskj. 4g, orðrétt eftir upptöku):
„fer fram á að kjósa verði fulla ellefu á lista, annars verði seðill ógildur.“
Var tillagan samþykkt með 77 atkvæðum á móti 22.
Þá var gengið til kosninga til stjórnar. Var fyrirkomulag kosninganna úrskýrt og kjörseðlum dreift.
Greidd voru 106 atkvæði, þar af voru 103 gild, eitt ógild og tvö auð (fskj. 4j).
Þessi hlutu kosningu til tveggja ára 2015-2017: Svava Aradóttir, FAAS, 81 atkvæði. Svavar Kjarrval Lúthersson, Einhverfusamtökunum, 80 atkvæði. Maggý Hrönn Hermannsdóttir, Geðhjálp, 78 atkvæði. Árni Heimir Ingimundarson, Málbjörgu, 77 atkvæði.
Þessi hlutu kosningu til eins árs 2015-2016: Erna Arngrímsdóttir, SPOEX, 76 atkvæði. Kristín Björnsdóttir, Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra, 76 atkvæði. Daníel Ómar Viggósson, CP félaginu, 72 atkvæði. Ægir Lúðvíksson, MND félaginu á Íslandi, 65 atkvæði. Garðar Sverrisson, MS félagi Íslands, 64 atkvæði. Karl Þorsteinsson, Ás styrktarfélagi, 63 atkvæði. Emil Thoroddsen, Gigtarfélagi Íslands, 62 atkvæði.
Aðrar kosningar til tveggja ára
Skoðunarmenn reikninga og varamenn
Fundarstjóri kynnti kosningu skoðunarmanna reikninga og varamanna þeirra. Tvö framboð bárust áður en framboðsfrestur rann út (fskj. 4b). Ekkert framboð barst á fundinum og Fríða Bragadóttir, Laufi – félagi flogaveikra, og Hrönn Petersen, CCU samtökunum, því sjálfkjörnar sem skoðunarmenn reikninga 2015-2017.
Engin framboð bárust til varamanna skoðunarmanna reikninga áður en framboðsfrestur rann út. Framboð Ólafs Dýrmundssonar, Stómasamtökunum, og Valdimars Leó Friðrikssonar, MS félaginu komu fram á fundinum. Fundur samþykkti framboð Ólafs og Valdimars. Engin fleiri framboð bárust og Ólafur Dýrmundsson, Stómasamtökunum, og Valdimar Leó Friðriksson, MS félaginu, því sjálfskjörnir sem varamenn skoðunarmanna reikninga 2015-2017.
Kjörnefnd
Fundarstjóri kynnti kosningu fimm manna í kjörnefnd og þá sem voru í framboði (fskj. 4b). Friðfinnur Hermannsson, FAAS, hafði dregið framboð sitt til baka. Framboð Alberts Ingasonar, SPOEX, var samþykkt á fundinum með þorra atkvæða. Þá voru fimm í framboði og kjörnefnd því sjálfkjörin. Dagný Erna Lárusdóttir, SÍBS, Jón Þorkelsson, Stómasamtökum Íslands, Sigurbjörg Ármannsdóttir, MS-félagi Íslands, Sigurður R. Sigurjónsson, SÍBS, og Albert Ingason, SPOEX, voru kosin til setu í kjörnefnd.
Laganefnd
Fundarstjóri kynnti kosningu í fimm manna laganefnd og þá sem voru í framboði (fskj. 4b). Engin framboð komu fram á fundinum og Halldóra Ingvarsdóttir, Gigtarfélagi Íslands, Ingi Hans Ágústsson, HIV-Ísland, Ingveldur Jónsdóttir, MS-félagi Íslands, Svavar Kjarrval Lúthersson, Einhverfusamtökunum, og Þröstur Emilsson, ADHD samtökunum, því sjálfkjörin í laganefnd 2015-2017.
Klukkan 18:15 frestaði fundarstjóri fundi til kl. 16 þriðjudag 6. október 2015.
Þriðjudagur 6. október 2015 – fundi framhaldið.
Fundarstjóri hóf fund kl. 16.16, kynnti dagskrá (fskj. D2) og gerði nafnakall (fskj.4k).
Varamenn í stjórn
Fundarstjóri kynnti breytingar á framboðslista til varamennsku í stjórn er kynntur hafði verið (fskj. 4l). Í framboði voru Snævar Ívarsson, Félagi lesblindra, og Sunna Brá Stefánsdóttir, Gigtarfélagi Íslands.
Þá kynnti fundarstjóri framboð sem borist höfðu eftir að frestu rann út; frá Friðgeiri Jóhannessyni, Fjólu, Gísla Helgasyni, Blindravinafélaginu, og Inga Hans Ágústssyni, HIV-félaginu. Skorað var á Ingveldi Jónsdóttur, MS félaginu, að gefa kost á sér, sem hún gerði. Arnþrúður Karlsdóttir, Tourette-samtökunum, tilkynnti framboð sitt. Vilhjálmur Hjálmarsson, ADHD samtökunum, tók áskorun um framboð sem og Þórir Steingrímsson, Heilaheill. Voru fulltrúar SÍBS hvattir til framboðs og Nílsína Larsen, SÍBS, gaf kost á sér. Fundarstjóri lagði til að fundurinn leyfði framboð þessara fulltrúa og það var gert samhljóða. Frambjóðendur kynntu sig og þá kynnti fundarstjóri fyrirkomulag kosningarinnar.
Greidd voru 90 atkvæði hvar Arnþrúður Karlsdóttir, Tourette-samtökunum með 40 atkvæði, Ingveldur Jónsdóttir, MS félaginu, með 43 atkvæði og Nílsína Larsen, SÍBS, með 45 atkvæði hlutu kosningu sem varamenn í stjórn 2015-2016 (fskj. 4m).
Lagabreytingar, aðildarumsóknir, ályktanir, önnur mál
Lagabreytingar
Teknar voru til afgreiðslu tvær tillögur til lagabreytinga sem borist höfðu laganefnd fyrir aðalfund. Báðar lutu að 18. grein laga Bandalagsins, lið A) Kosning og hlutverk stjórnar, svo hljóðandi:
Stjórn samanstendur af nítján stjórnarmönnum: formanni, varaformanni, gjaldkera, fimm
formönnum fastra málefnahópa og ellefu öðrum stjórnarmönnum. Stjórn er kosin á aðalfundi
úr hópi aðalfundarfulltrúa sem boðið hafa sig fram til trúnaðarstarfa skv. 13. gr. Jafnframt skal
aðalfundur kjósa þrjá varame nn sem hafa seturétt á stjórnarfundum.
Tillaga til lagabreytingar frá umræðuhópi sem skipaður var samkvæmt ákvörðun aðalfundar 2014 hljóðaði svo (fskj. 5):
Við 1. mgr. 18. gr. A bætist setning sem segir:
„Aðalfundur skal leitast við að tryggja að stjórn verði skipuð að meirihluta fötluðu fólki.“
Sigurjón Sveinsson, lögfræðingur ÖBÍ, gerði stuttlega grein fyrir starfi hópsins og tillögunni.
Tillaga til lagabreytingar frá Gísla Helgasyni, Blindravinafélaginu, hljóðaði svo (fskj. 5a):
Viðbót: Í stjórn Öryrkjabandalagsins skal meirihluti vera úr röðum fatlaðs eða langveiks fólks, að
minnsta kosti 51% stjórnar bandalagsins.
Fundarstjóri las greinargerð með tillögunni og flutningsmaður gerði stuttlega grein fyrir henni.
Fundarstjóri bauð umræður. Rætt var um hugtök og skilgreiningar, um fatlaða og ófatlaða, um fjölda í aðildarfélögum og um kvóta, um hvað styrki félagið og hvað geti sundrað. Kom fram sú skoðun að valdefling félaga sé mikilvæg, að allir félagsmenn hafi rödd.
Sigurjón Sveinsson, lögfræðingur ÖBÍ, svaraði fyrirspurn um hvort lög bandalagsins skilgreini hver sé fatlaður neitandi. Hann sagði samning SÞ skilgreina fatlaða sem þá sem vegna skerðinga og samspils við umhverfið geta ekki tekið þátt í samfélaginu. Einnig sagði Sigurjón að í reglum EDF segi að allar stjórnir (e. governing bodies) skuli að meirihluta skipaðar fötluðum eða aðstandendum barna sem geta ekki talað fyrir sig sjálf.
Fundarstjóri kynnti þá fyrirkomulag kosninga. Umræður urðu um hvort þær skyldu vera leynilegar eða ekki. Niðurstaða varð að þær skyldu framkvæmdar með handauppréttingu.
Þá bar fundarstjóri tillögu Gísla Helgasonar upp til atkvæða. Var tillaga Gísla felld með 64 atkvæðum gegn 23.
Því næst bar fundarstjóri upp tillögu umræðuhóps ÖBÍ. Tillaga umræðuhópsins var felld með 44 atkvæðum gegn 33.
Fundarstjóri gerði matarhlé í klukkustund.
Aðildarumsóknir
Ný rödd
Framkvæmdastjórn ÖBÍ taldi umsókn Nýrrar raddar uppfylla öll skilyrði og lagði hana fyrir fundinn. Engar umræður urðu og aðildarumsókn Nýrrar raddar var samþykkt með einu mótatkvæði. (fskj. 6).
Astma- og ofnæmisfélagið
Framkvæmdastjórn ÖBÍ mat umsókn Astma- og ofnæmisfélagsins(sjá fskj. #6a) gilda og lagði hana fyrir fundinn. Fundarstjóri bauð umræður. Veltu fundarmenn fyrir sér hvaða félög geti sótt um aðild að ÖBÍ og hvernig fjöldi fulltrúa hvers aðildarfélags sé ákvarðaður. Fundarstjóri las bréf frá formanni og framkvæmdastjóra SÍBS vegna umsókna aðildarfélaga SÍBS að ÖBÍ að ósk formanns SÍBS (fskj. 6b).
Fundarstjóri bar þá umsókn Astma- og ofnæmisfélagsins upp til atkvæða og var hún samþykkt með fimm mótatkvæðum.
Samtök lungnasjúklinga
Fundarstjóri lagði til að heimila fyrirtöku umsóknar Samtaka lungnasjúklinga (fskj. 6c). Urðu umræður um lagaákvæði bandalagsins um umsóknir, sérstaklega hvað varðar umsóknarfrest og undanþágur frá honum.
Fundarstjóri bar tillögu sína um fyrirtöku umsóknarinnar undir atkvæði. Var hún samþykkt með 35 atkvæðum gegn 27.
Fundarstjóri bauð umræður um aðildarumsókn Samtaka lungnaskjúklinga. Spurt var hvort fulltrúar SÍBS væru hæfir í ljósi tengsla við umsóknarfélagið. Sigurjón Sveinsson, lögmaður ÖBÍ, sagði öll aðildarfélög hafa rétt til þátttöku í öllum atkvæðagreiðslum og því væru fulltrúar SÍBS hæfir. Hjörtur Jónsson, Heyrnarhjálp, gerði grein fyrir atkvæði sínu. Hann sat hjá við atkvæðagreiðsluna vegna laga bandalagsins og hvernig talning félagsmanna er túlkuð og til að gæta jafnræðis milli þeirra félaga sem sóttu um aðild. Bergur Þorri Benjamínsson, Sjálfsbjörgu, lagði til að umræðum yrði hætt (fskj. 6d, vantar. Tekið úr hljóðupptöku).
Fundarstjóri bar aðildarumsókn Samtaka lungnasjúklinga upp til atkvæða og var hún samþykkt með 37 atkvæðum gegn 27.
Hjartaheill
Fundarstjóri lagði til að aðildarumsókn Hjartaheilla að ÖBÍ yrði tekin til umfjöllunar. (fskj. 6e). Var tillagan rædd og spurt um lagaákvæði varðandi aðildarumsóknir, bæði laga ÖBÍ og umsóknarfélaga, og skilyrði fyrir aðild.
Fundarstjóri bar tillgögu sína um fyrirtöku upp til atkvæða og var hún samþykkt með 32 atkvæðum gegn 30. Fundarstjóri bar þá aðildarumsókn Hjartaheilla undir atkvæði, sem var samþykkt með 36 atkvæðum gegn 27.
Ályktanir aðalfundar
Engar ályktanir bárust framkvæmdastjórn innan tilskilins frests, en tvær ályktanir höfðu borist fyrir fundinn (fskj. 7 og 7a).
Ályktun aðalfundar ÖBÍ um samning sameinuðu þjóðanna (fskj. 7).
Fundarstjóri leitaði samþykkis fundarfulltrúa til að taka ályktun frá framkvæmdastjórn ÖBÍ til umræðu. Var það samþykkt með einu mótatkvæði. Fundarstjóri bauð umræður.
Rúnar Björn Þorkelsson, SEM, gerði athugasemd við þýðingu samningsins og lagði til að bæta inn orðinu persónulega þar sem fjallað er um aðstoð við fatlað fólk í kaflanum um Sjálfstætt líf í greinargerð sem fylgir með ályktuninni:
Sjálfstætt líf: Í 19. gr. segir að fatlað fólk hafi rétt til jafns við aðra til að lifa sjálfstæðu lífi án
aðgreiningar í samfélaginu. Tryggja þarf fólki tækifæri til að velja sér búsetustað, hvar og með
hverjum það býr, það á ekki að þurfa að eiga heima þar sem búsetuform ríkir. Einnig á fatlað fólk
rétt á [persónulegri] aðstoð sem miðast við þarfi og forsendur þess, sem gerir því kleift að taka
virkan þátt í samfélaginu. Í þessu sambandi er mikilvægt að lögleiða notendastýrða persónulega
aðstoð (NPA).
Var það samþykkt.
Svavar Kjarrval, Einhverfusamtökunum, lagði til að skipta út orðinu fullgilding fyrir orðið lögfesting í ályktuninni:
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) krefst þess að stjórnvöld fullgildi samning Sameinuðu
þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) á haustþingi 2015, ásamt valfrjálsri bókun hans og gangi
svo strax í að lögfesta hann. Þannig eiga stjórnvöld að efla og tryggja mannsæmandi framfærslu,
ásamt aðgengi, algildri hönnun, heilbrigðisþjónustu, menntun og atvinnu við hæfi. Með fullgildingu
[lögfestingu] SRFF verður réttur fatlaðs fólks til virkrar þátttöku í samfélaginu tryggður til jafns við
þátttöku annarra. Undir samninginn rúmast öll baráttumál ÖBÍ meðal annars kjaramál, aðgengi,
heilbrigðismál, atvinnumál, menntamál og sjálfstætt líf.
Voru allir fundarfulltrúar sammála þeirri breytingu.
Urðu umræður um muninn á fullgildingu og lögfestingu. Sigurjón Sveinsson, lögfræðingur ÖBÍ, og Ásta Sóley Sigurðardóttir, ADHD samtökunum, útskýrðu hvað fullgilding og lögfesting feli í sér. Til þess að verða aðili að samningi þarf ríki að fullgilda hann. Þegar búið er að fullgilda samning þarf að skoða hvort breyta þurfi lögum viðkomandi ríkis áður en hægt verði að lögfesta hann. Ef ríki er ekki aðili að samningi, hefur ekki fullgilt hann, hefur lögfesting hans ekkert gildi. Fullgilding veitir einstaklingi óbeinan rétt skv. samningi skv. alþjóðarétti.
Spurt var um lögmæti fundarins. Fundarstjóri lét telja fulltrúa og fundurinn reyndist lögmætur.
Fundarfulltrúar sem tóku til máls hvöttu til samþykktar. Þá var gengið til atkvæða og var ályktunin samþykkt samhljóða með áorðnum breytingum.
Ályktun um starfshóp um gerð siðaregla fyrir ÖBÍ. (fskj. 7a).
Fundurinn samþykkti að taka ályktun um starfshóp um gerð siðaregla fyrir ÖBÍ frá Auði Ólafsdóttur, SíBS, til afgreiðslu með tveimur mótatkvæðum. Fundarstjóri las upp ályktunina og meðfylgjandi greinargerð og bauð umræður.
Vakin var athygli á siðareglur Almannaheilla, sem ÖBÍ er aðili að, og spurt hvort þær séu ekki góður grunnur að siðareglum fyrir ÖBÍ, að viðbættum ákvæðum um hagsmuna- skráningu. Var því velt upp hvort ÖBÍ gæti sett siðareglur fyrir aðildarfélög sín, sérstaklega ef þeim ættu að fylgja viðurlög fyrir félagsmenn aðildarfélaga. Flutningsmaður ályktunar dró hana til baka, en bað stjórn bandalagsins jafnframt að taka efni hennar til athugunar.
Önnur mál
Fundarmenn þökkuðu góðan fund og hvöttu félaga til að sýna samkennd og samstöðu, bæði með félögum hér á landi og erlendis. Einnig voru fundarmenn hvattir til að raða sér í málefnahópa bandalagsins.
Bergur Þorri Benjamínsson, Sjálfsbjörgu, sagði frá niðurstöðum af vinnu starfshóps sem hann og Guðríður Ólafsdóttir, sem lengi starfaði sem félagsmálafulltrúi ÖBÍ, sátu í síðasta ár. Fjallaði hópurinn um styrki til bifreiðakaupa fatlaðra. Sagði Bergur frá því að ráðherra ætli að halda tíma á milli styrkveitinga óbreyttum fyrst um sinn og að hann ætli að beita sér fyrir því að styrkir hækki um 20% strax á þessu ári.
Fram komu ábendingar varðandi framkvæmd aðalfundar að gæta þess að dreifa ekki símanúmerum og netföngum fundarfulltrúa til allra. Sett var fram hugmynd um innra net til dreifingu fundargagna.
Halldór Sævar Guðbergsson, Blindrafélaginu, nýkjörinn varaformaður, sendi hamingjuóskir til nýkjörinna og óskaði góðs samstarfs.
Þá þökkuðu fundarstjórar fyrir sig og afhentu formanni fundinn.
Fundarlok
Formaður þakkaði góðan fund, starfsfólki fyrir störf sín, óskaði nýkjörnum til hamingju með embætti sín og bað fundarmenn að muna eftir málefnahópum um fötluð börn, fatlaðar konur og kynningarmál.
Formaður sleit fundi kl. 21:58.
Fylgiskjöl:
1 Skýrsla formanns og stjórnar
1a Skýrsla um Virkt samfélag
2 Ársreikningur
3 Glærur Arndísar Óskar Jónsdóttur
3a Skýrsla Stefnuþings
4 Dagskrártillaga Fríðu Bragadóttur. Skráð orðrétt eftir hljóðupptöku
4a Fulltrúar aðildarfélaga, mætingarlisti 3. október
4b Framboð til embætta og nefnda, listi 3. október
4c Tillaga um framkvæmd kosninga frá Svavari Kjarrval Lútherssyni
4d Niðurstöður formannskosninga
4e Niðurstöður kosninga formanns málefnahóps um heilbrigðismál
4f Niðurstöður kosninga formanns málefnahóps um sjálfstætt líf
4g Tillaga Guðmundar Skúla Johnsen, Snævars Ívarssonar og Einars Hrafns Jóhannessonar frá Félagi lesblindra og Hrannar Pedersen, CCU samtökunum
4h Dagskrártillaga Vilhjálms Hjálmarssonar. Skráð orðrétt eftir hljóðupptöku
4i Dagskrártillaga formanns
4j Niðurstöður kosninga til stjórnar
4k Fulltrúar aðildarfélaga, mætingarlisti 6. október
4l Framboð til embætta og nefnda, listi 6. október. Niðurstöður kosninga 3. október
4m Niðurstaða kosningar varamanna í stjórn
5 Lagabreytingartillaga Gísla Helgasonar, Blindravinafélagi Íslands
5a Lagabreytingartillaga umræðuhóps ÖBÍ
6 Aðildarumsókn Nýrrar raddar
6a Aðildarumsókn Astma- og ofnæmisfélagsins
6b Bréf frá SÍBS vegna aðildarumsókna
6c Aðildarumsókn Hjartaheilla
6d Dagskrártillaga Bergs Þorra Benjamínssonar, Sjálfsbjörgu, um að hætta umræðum
6e Aðildarumsókn Hjartaheilla
7 Ályktun aðalfundar Öryrkjabandalagsins Íslands
7a Tillaga til ályktunar frá SÍBS
D1 Dagskrá 3. október 2015
D2 Dagskrá 6. október 2015