Umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um tillögu til þingsályktunar um orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega, þingskjal 90 – 90. mál.
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks felur m.a. í sér rétt fatlaðs fólks til að hafa sömu valkosti og aðrir í samfélaginu. Gleðilegt er að horft sé á mikilvægi þess að allir hafi tækifæri til þess að taka frí frá daglegu umhverfi en ljóst er að örorkulífeyrisþegar hafa takmarkaðri aðgang að orlofshúsum en aðrir þjóðfélagshópar.
Flest stéttarfélög bjóða félagsmönnum sínum upp á fjölbreytta orlofskosti víðsvegar um landið fyrir hóflegt gjald. Aðgangur að þeim orlofskostum er þó bundinn þátttöku á vinnumarkaði sem og að aðgengi er oft ábótavant.
Ef tillagan verður samþykkt og ráðist verði í það verkefni að koma upp orlofshúsum fyrir örorkulífeyrisþega aukast lífsgæði fatlaðs fólks. Hafa verður í huga að slík hús verða að vera byggð samkvæmt algildri hönnun, vera staðsett um land allt og vera í boði á viðráðanlegu verði.
ÖBÍ styður þingsályktunartillöguna heilshugar.
Af gefnu tilefni er ítrekað að stjórnvöldum er skylt að hafa virkt samráð við heildarsamtök fatlaðs fólks um ákvarðanir sem varða hagsmuni þess, samkvæmt ákvæðum Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF), enda segir í 3. mgr. 4. gr., „aðildarríkin skulu, þegar þau undirbúa og beita löggjöf sinni og stefnu samningi þessum til framkvæmda og vinna að ákvarðanatöku um málefni fatlaðs fólks, hafa náið samráð og tryggja virka þátttöku fatlaðs fólks, þ.m.t. fötluð börn, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd“.
Ekkert um okkur án okkar!
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ
Orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega
90. mál, þingsályktunartillaga.
Umsögn ÖBÍ, 18. mars 2024