
Adobe Stock.
„Fatlað fólk er háðara einkabílnum en aðrir og geta þess til að nota almenningssamgöngur, að hjóla eða ganga oft takmörkuð.“
ÖBÍ réttindasamtök (ÖBÍ) hafa fengið frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki til umsagnar og vilja koma áleiðis eftirfarandi athugasemdum og tillögum.
ÖBÍ hefur skilning á því að auka þurfi tekjustofna ríkisins með gjaldtöku á ökutæki. ÖBÍ tekur undir með ASÍ að réttlátara sé að leggja kílómetragjald á almenning frekar en gjald sem tekur mið af eyðslu eldsneytis í ljósi þess að tekjuhærri hópar eru líklegri til að reka hreinorku- eða tengiltvinnbifreiðar. Þó verður að koma í veg fyrir að olíufélögin sjái sér leik á borði og hækki álagningu á eldsneyti í kjölfar kerfisbreytinga.
Fatlað fólk sem rekur bíl má þó ekki við frekari álögum sem sýnir sig ekki síst í því að styrkir og uppbætur bjóðast til kaupa og til reksturs bifreiða sem og lán til bílakaupa hjá Tryggingastofnun ríkisins (TR). Skilyrði til þess eru þó ströng og hópurinn sem um ræðir er þröngur. Í stórum dráttum er um að ræða fólk með hreyfihömlun sem þarf bíl til að geta stundað vinnu, skóla, reglubundna endurhæfingu eða sækja heilbrigðisþjónustu, sbr. reglugerð um uppbætur og styrki til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða, nr. 905/2021. Fjárhæðir styrkja og uppbóta hafa nánast staðið í stað frá árinu 2009 þar til 1. janúar 2024 þegar gerðar voru langþráðar breytingar með reglugerð nr. 1419/2023.
Engu að síður þarf að horfast í augu við það að fatlað fólk hefur dregist aftur úr og setið eftir með rekstrarþunga jarðeldsneytisbíla á meðan rafbílavæðingin hefur gengið yfir landið. Fatlað fólk hefur oft lítið lánshæfi hjá fjármálafyrirtækjum og teljast almennt til tekjulægstu hópa samfélagsins.
Fatlað fólk er háðara einkabílnum en aðrir og geta þess til að nota almenningssamgöngur, að hjóla eða ganga oft takmörkuð. Í mörgum tilfellum þarf hreyfihamlað fólk að breyta bifreiðum og bæta við hjálpartækjum sem bæði gerir bifreiðakaupin dýrari og samtímis þyngja þær bifreiðarnar umtalsvert sem eykur á eldsneytiskostnað. Jafnframt er viðbúið að bifreiðar viðkomandi einstaklinga séu í efri þyngdarflokki út frá nauðsyn en ekki vilja viðkomandi til að reka slíkt ökutæki.
ÖBÍ leggur til að sú viðbót verði gerð við 4. gr. frumvarpsins að bifreiðar sem keyptar eru á grundvelli reglugerðar um uppbætur og styrki til hreyfihamlaðra vegna bifreiða nr. 905/2021 og bifreiðar sem eru í eigu og eða reknar af hreyfihömluðu fólki, sbr. sömu reglugerð séu undanþegnar gjaldskyldu kílómetragjalds. Enn fremur verði öðrum örorkulífeyristökum sem ekki uppfylla skilyrði um styrki og uppbætur frá TR veittur afsláttur af kílómetragjaldi.
ÖBÍ telja ofangreinda tillögur réttmætar í ljósi fyrrgreindra aðstæðna.
Ekkert um okkur án okkar!
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ réttindasamtökum
Kílómetragjald á ökutæki
123. mál, lagafrumvarp (stjórnarfrumvarp).
Umsögn ÖBÍ, 26. mars 2025