
AdobeStock_143735038
„Fimm ár er langur tími fyrir fólk sem býr við lítið sem ekkert húsnæðisöryggi og mikilvægt að bráðaaðgerðir byrji að hafa áhrif eins fljótt og auðið er …“
Umsögn um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald (skilyrði fyrir skammtímaleigu, miðlun upplýsinga, tímabinding rekstrarleyfa)
ÖBÍ réttindasamtök taka undir markmið frumvarpsins um mikilvægi þess að skapa jafnvægi á húsnæðismarkaði og almennum leigumarkaði. Í október- og nóvemberskýrslum Húsnæðis- og Mannvirkjastofnunar (HMS) frá 2024 kemur fram að leigjendur með 400.000 krónur eða minna á mánuði greiða tvær krónur af hverjum þremur í húsaleigu. Framboð langtímaleiguíbúða á almennum leigumarkaði hefur minnkað samhliða fjölgun skammtímaleiguíbúða með tilheyrandi þrengingum fyrir fólk í húsnæðisleit.
Samkvæmt skráningu eigna á Airbnb eftir tegund leigusala leigja 60% út fleiri en eina eign og 20% leigja út fleiri en tíu eignir. Áhrif þrenginganna finnast víða í samfélaginu en samkvæmt vegvísi leigumarkaðarins sem HMS gaf út febrúar 2025 fannst 54% leigjenda sem leigja af hagnaðardrifnum leigufélögum frekar eða mjög erfitt að verða sér úti um leiguhúsnæði árið 2024, en voru 49% árið 2022. Vont versnandi fer þegar litið er til skýrslu um húsnæðismál fatlaðs fólks frá nóvember 2023, en 65% svarenda með 75% örorkumat fannst mjög eða frekar erfitt að fá leigt húsnæði á almennum markaði. ÖBÍ vill koma eftirfarandi athugasemdum og tillögum á framfæri.
Bráðaaðgerðir í húsnæðismálum
ÖBÍ fagna breytingum frumvarpsins um að heimagisting verði afmörkuð við lögheimili einstaklings og eina aðra fasteign í eigu hans sem er utan þéttbýlis. Sú breyting er í góðu samræmi við áform ríkisstjórnarinnar um bráðaaðgerðir í húsnæðismálum til að bregðast rösklega við uppsöfnuðum íbúðaskorti og húsnæðisöryggi landsmanna. Því skjóta áform frumvarpsins um að þegar útgefin rekstrarleyfi haldi gildi sínu tímabundið til fimm ára, eða til ársins 2031 skökku við. Fimm ár er langur tími fyrir fólk sem býr við lítið sem ekkert húsnæðisöryggi og mikilvægt að bráðaaðgerðir byrji að hafa áhrif eins fljótt og auðið er samhliða skipulagningu langtímalausna. ÖBÍ telur eðlilegt að tekið sé tillit til aðstæðna leigusala og að ákveðið svigrúm sé veitt til að aðlagast nýjum lögum og reglugerðum. Hins vegar er sóknarfæri til að ná skjótari ávinningi með innleiðingu hvata fyrir þá leigusala sem hyggjast endurskipuleggja rekstur sinn úr skammtímaleigu yfir í langtímaleigu.
ÖBÍ leggur til að tímabinda þau rekstrarleyfi sem eru nú þegar í gildi til ársins 2028 í stað 2031. Þá leggur ÖBÍ til að leigusalar sem fengu samþykkt rekstrarleyfi á fasteign í þéttbýli í skammtímaleigu 1. mars 2025 eða fyrr og ganga frá undirritun á langtímaleigusamningi á sömu eign fyrir 1. janúar 2027 greiði áfram skatta og gjöld á þeim kjörum sem gilda um heimagistingar til 1. janúar 2029.
Óskráð skammtímaleiga
ÖBÍ telur jákvætt að stjórnvöld veiti embætti sýslumanns árlegt fjármagn sem er eyrnamekt svokallaðri Heimagistingavakt. Mikilvægt er að allir leigusalar fasteigna í skammtímaleigu spili eftir sömu leikreglum, tryggi hollustuhætti og öryggi gesta og greiði samfélagslegan kostnað í samræmi við lög og reglugerðir. Að mati ÖBÍ er það mikið áhyggjuefni að um 4200 einstaklingar eða um 56% gististarfsemi á landsvísu bjóði út fasteignir til skammtímaleigu án skráningar eða tilskilinna leyfa líkt og fram kemur í greinargerð frumvarpsins. Þá tekur ÖBÍ undir áherslu greinargerðarinnar um að takist að draga í enn meira mæli úr skammtímaleigu sem stunduð er án skráningar eða tilskilinna leyfa mun það hafa jákvæð áhrif á húsnæðismarkaðinn og samfélagið í heild.
ÖBÍ leggur til að stjórnvöld tvöfaldi eyrnamerkta fjárveitingu til svokallaðar Heimagistingavaktar úr 70 miljónum í 140 miljónir.
Tækifæri fatlaðs fólks til þátttöku í heimagistingu
Fatlað fólk er fjölbreyttur hópur fólks með margvíslegar líkamlegar og andlegar aðstæður og fær örorkumat á ólíkum tíma yfir æviskeiðið. Fatlað fólk sem reiðir sig alfarið á lífeyrisgreiðslur hafa lítið sem engin tækifæri til að vænka hag sinn svo ekki komi til skerðinga á lífeyrisgreiðslum.
ÖBÍ leggur áherslu á að gætt sé að ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF). Í 9. gr. samningsins er áréttað að aðildarríkin skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja fötluðu fólki aðgengi, til jafns við aðra, að efnislegu umhverfi sínu og gera fötluðu fólki kleift að taka fullan þátt á öllum sviðum lífsins til jafns við ófatlað fólk. Í því samhengi er vert að nefna að launþegar sem leigja fasteign sína út í skammtímaleigu fá ekki skertar greiðslur frá sínum launagreiðanda.
ÖBÍ leggur til að fjármagnstekjur vegna skammtímaleigu sem mætir gildandi reglum hverju sinni um hámarks dagafjölda og hámarks upphæð, leiði ekki til skerðinga á lífeyrisgreiðslum. Jafnframt leggur ÖBÍ í til að stjórnvöld beini þeim tilmælum til Tryggingarstofnunar Ríkisins (TR) að draga frá þá upphæð sem hlýst vegna skammtímaleigu frá heildarupphæð fjármagnstekna á staðgreiðsluskrá Skattsins við yfirferð hjá TR.
ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.
Ekkert um okkur án okkar!
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ
Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald (skilyrði fyrir skammtímaleigu, miðlun upplýsinga, tímabinding rekstrarleyfa)
Mál nr. S-57/2025. Menningar- og viðskiptaráðuneytið. [Ferðaþjónusta].
Umsögn ÖBÍ, 20. mars 2025