Skip to main content
AðgengiHúsnæðismálNPAUmsögn

Frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga

By 28. febrúar 2025No Comments
Kröfuganga ÖBÍ 1. maí 2024

„Meirihluti íbúðarhúsnæðis á Íslandi er óaðgengilegt fötluðu fólki og vont versnandi fer þegar leitað er eftir aðgengilegum atvinnuhúsnæðum.“

ÖBÍ réttindasamtök (ÖBÍ) taka undir áherslur frumvarpsins um mikilvægi öflugra sveitarfélaga og að tryggð verði sem jöfnust réttindi og aðgengi íbúa að þjónustu. Markviss jöfnun spilar lykil hlutverk fyrir sveitarfélög svo þau geti öll veitt lögbundna þjónustu um land allt. Sveitarfélög hafa mikið frelsi til að forgangsraða og útfæra verkefni fyrir nærsamfélagið. Frelsi fylgir ábyrgð og brýnt að sveitarfélög láti engin lögbundin verkefni mæta afgangi eða sinni þeim á ófullnægjandi hátt.

ÖBÍ áréttar áherslur sínar frá fyrri umsögn að þess sé gætt að þjónusta í málefnum fatlaðs fólks skerðist ekki heldur styrkist við sameiningu sveitarfélaga. Stuðla má að hagræðingu í rekstri við sameiningu og ljóst er að mörg minni sveitarfélög ráða illa eða ekki við skyldur sínar. ÖBÍ vill koma eftirfarandi athugasemdum og tillögum á framfæri.

Stuðningsþörf á landsvísu

Í 11. gr. frumvarpsins er gerð breyting á forsendum framlaga til sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk. Í stað þess að mælt sé fyrir um að framlögin skuli reiknuð á grundvelli fjölda einstaklinga og þjónustuþarfa þeirra í hverju sveitarfélagi og á hverju þjónustusvæði fyrir sig verði framlögin reiknuð á grundvelli samræmds mats á stuðningsþörf á landsvísu.

ÖBÍ óskar eftir nánari útlistun á framkvæmd samræmds mats á landsvísu og áhrif matsins á framlög Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga þar sem þjónustu þörf fatlaðs fólks er umfram landsmeðaltal. Niðurstaða landsmeðaltals má ekki leiða til mismununar á veitingu lögbundinnar þjónustu milli sveitarfélaga og hamla búsetufrelsi fatlaðs fólks til jafns við ófatlað fólk.

Deild um málefni fatlaðs fólks og NPA

ÖBÍ fagnar stofnun sérstakrar deildar innan Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna málefna fatlaðs fólks. Slík deild getur stuðlað að aukinni þekkingu og yfirsýn ríkisins um stöðu málaflokksins á landsvísu, stytt boðleiðir og beitt sér fyrir jafnri veitingu lögbundinnar þjónustu um land allt.

ÖBÍ fagnar ákvæði frumvarpsins sem veitir Jöfnunarsjóði heimild í reglugerð til að veita önnur fjárframlög til þjónustusvæða, sveitarfélaga, Sambands íslenskra sveitarfélaga og annarra aðila vegna rekstrarmála eða þróunarvinnu sem nýtist þjónustusvæðum og sveitarfélögum til framþróunar í málaflokknum. Að mati ÖBÍ er mikilvægt að ráðuneytið útlisti jafnframt skýr viðmið og skýrt verklag um úthlutun vegna þróunarvinnu og rekstrarmála til framþróunar í málefnum fatlaðs fólks í sömu reglugerð. Þá leggur ÖBÍ til að Jöfnunarsjóður kynni heimildarákvæðið fyrir hagaðilum og auglýsi reglulega eftir umsóknum.

ÖBÍ vonar að fyrirhuguð ákvæði í reglugerð vegna ráðstöfunar framlaga Jöfnunarsjóðs til notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar NPA muni tryggja fötluðu fólki jafnt aðgengi að sjálfstæðu lífi um allt land. Togstreita milli ríkis og sveitarfélaga um fjármögnun NPA má ekki bitna á notendum sem treysta á framfylgd lögbundinnar þjónustu.

ÖBÍ hvetur stjórnvöld til að útfæra reglugerðarákvæðið í samræmi við hugmyndafræði um sjálfstætt líf og jafnan rétt fatlaðs fólks til búsetufrelsis á við ófatlað fólk. Þá leggur ÖBÍ til að fjármagn frá Jöfnunarsjóði vegna samþykktra NPA samninga fylgi einstaklingum sem flytja í nýtt sveitarfélag.

Fasteignasjóður Jöfnunarsjóðs

ÖBÍ telur jákvætt að Fasteignasjóður Jöfnunarsjóðs mun áfram gegna mikilvægu hlutverki við uppbyggingu aðgengilegra mannvirkja og breytingar á fasteignum í eigu sveitarfélaga sem nýttar eru í þjónustu við fatlað fólk. ÖBÍ áréttar að hugmyndafræði um algilda hönnun og aðgengi fyrir alla nær yfir öll mannvirki óháð því hvort byggingin er sérstaklega hugsuð til búsetu eða atvinnuþátttöku fatlaðs fólks eður ey. Með fyrirhugaðri lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) í mars næstkomandi mun Íslandi bera lagaleg skylda að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja fötluðu fólki aðgengi, til jafns við aðra, að efnislegu umhverfi sínu, samgöngum og þjónustu sem opin er eða veitt almenningi hvort sem er í þéttbýli eða dreifbýli.

Dæmi eru um að fatlað fólk hafi ekki getað fengið úthlutað lausri félagslegri leiguíbúð í eigu sveitarfélags sökum þess að íbúðin var ekki aðgengileg. ÖBÍ leggur til að tilgreint verði í reglugerð 280/2021 heimild Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs til að úthluta framlögum til sveitarfélaga vegna endurbóta á almennu leiguhúsnæði í sinni eigu í samræmi við hugmyndafræði um algilda hönnun og aðgengi fyrir alla.

Nýtt örorkulífeyriskerfi tekur gildi 1. september næstkomandi sem mun meðal annars stuðla að fjölgun fatlaðs fólks á vinnumarkaði. Með breytingunni gefst ríki og sveitarfélögum sóknarfæri til að verða leiðandi í inngildingu fatlaðs fólks inn í atvinnulífið og vera fyrirmynd fyrir fyrirtæki í einkaeigu.

Meirihluti íbúðarhúsnæðis á Íslandi er óaðgengilegt fötluðu fólki og vont versnandi fer þegar leitað er eftir aðgengilegum atvinnuhúsnæðum. Óaðgengileg hönnun húsnæðis og nærumhverfis þrengir verulega að tækifærum fatlaðs fólks um atvinnuþátttöku, aðgengi að þjónustu og að samfélaginu.

ÖBÍ leggur til að tilgreint verði í reglugerð 280/2021 heimild Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs til að úthluta framlögum til sveitarfélaga vegna endurbóta á almennu atvinnuhúsnæði í sinni eigu í samræmi við hugmyndafræði um algilda hönnun og aðgengi fyrir alla.

Akstursþjónusta fyrir fatlað fólk

ÖBÍ telur endurskipulagningu framlaga Jöfnunarsjóðs vegna akstursþjónustu fyrir fatlað fólk úr dreifbýli vera jákvætt skref í rétta átt. Samkvæmt greinargerð frumvarpsins verður ekki lengur þörf á að skerða framlög frá Jöfnunarsjóði til þeirra sveitarfélaga sem sinna þessari þjónustu. Í lið E.2. í landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024 – 2027 kemur fram að ólíkar reglur sveitarfélaga og þjónustusvæða um akstursþjónustu fatlaðs fólks valda því að réttindi eru ólík á milli svæða. Jafnframt er tilgreint í 20. gr. SRFF að gerðar skuli ráðstafanir til þess að tryggja að fatlað fólk geti farið allra sinna ferða og tryggja sjálfstæði þess í þeim efnum, eftir því sem frekast er unnt.

ÖBÍ vonar að notendur akstursþjónustu þeirra sveitarfélaga sem áður fengu skert fjárframlög njóti góðs af breytingunum og leggur til að Innviðaráðuneytið láti framkvæma þjónustukönnun hjá þjónustunotendum viðkomandi sveitarfélaga ári eftir að breytingarnar taka gildi.

ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.

Ekkert um okkur án okkar!

Með vinsemd og virðingu,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ


Frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Mál nr. S-32/2025. Innviðaráðuneytið. Sveitarfélög og byggðamál.
Umsögn ÖBÍ, 28. febrúar 2025