Þrif hefjast um leið og hinn veiki er farinn úr rýminu. Svæðið er þrifið samkvæmt fyrirmælum SVL [PDF]. Starfsmenn skulu hafa lokið viðeigandi þjálfun við að klæðast og afklæðast hlífðarbúnaði, ásamt viðeigandi frágangi/förgun. Ekki er vitað hve lengi Kórónaveira getur lifað í umhverfinu (klukkustundir eða dagar). Það fer m.a. eftir yfirborðsfleti, raka- og hitastigi.
Eigin smitgát þeirra sem þrífa svæði eftir COVID-19
- Beita skal grundvallarsmitgát við þrif vegna gruns um COVID-2019 sýkingu.
- Við þrifin skal nota eftirfarandi hlífðarbúnað:
- Einnota hanska (tvenn pör)
- Einnota hlífðarslopp
- Veirumaski og hlífðargleraugu eru sett upp ef hætta er á að sóttmengað efni berist í andlit.
- Að verki loknu skal setja notaðan hlífðarbúnað í plastpoka sem er lokaður tryggilega, og má fara í almennt sorp.
- Hendur eru þvegnar og sprittaðar strax og búið er að ganga frá hönskum í lokaðan poka sem má fara í almennt sorp.
- Farið í hreinan vinnufatnað að verki loknu. Óhreinan fatnað má þvo í þvottavél.
Þrif á svæði sem grunað er að vera mengað af smitefni
- Þrífa skal svæðið þar sem hinn veiki dvaldi og nánasta umhverfi.
- Ekki má nota þrýstiloft, s.s. háþrýstidælur á stétt, það getur þyrlað smitefni út í andrúmsloftið.
- Sóttmengað svæði er afmarkað og umgengni annarra er beint frá.
- Hafið tiltækan poka fyrir sorp.
- Nota skal samþykkt hreinsi- og sótthreinsiefni (t.d. spritt eða 1% virkon). Notið réttan styrkleika.
- Bréfaþurrkur eru notaðar til þess að hreinsa upp sýnileg spilliefni. Skiptið um hanska ef á þá fer mengað efni.
- Fyrst er þvegið með sápulegi og að því búnu farið yfir með sótthreinsunarefni (t.d. spritt eða 1% virkon).
- Fyrst er þrifið efst og haldið áfram niður á við. Byrjið á því að dreifa sápulegi yfir svæðið með bréfaþurrku eða úðara. Þegar allt svæðið hefur verið þakið sápulegi eru bréfaþurrkur notaðar til að þurrka upp og settar í poka sem er lokað og má fara í almennt sorp. Síðan er allt svæðið þakið pappírsþurrkum og vætt í pappírsþurrkunum með spritti eða 1% virkon. Bíðið þann tíma sem leiðbeiningar framleiðanda segja til um og þá eru þurrkurnar fjarlægðar og settar í lokaðan poka sem má fara í almennt sorp. Að lokum er svæðið skolað með heitu (60°) vatni og þurrkað að því búnu.
- Pappír og öðrum einnota vörum af svæðinu þar sem hinn veiki dvaldi er einnig hent í poka sem má fara í almennt sorp.
- Á milli svæða skal skipta um þvottaklúta og þeir settir að verki loknu í poka sem má fara í almennan þvott.
- Á svæðum sem hinn veiki notaði skal þrífa eftirfarandi:
- Hurðarhúna og læsingarbúnaður á hurð.
- Krana og vaska.
- Veggi sem liggja að rúmi, salerni og vaski.
- Salerni og umhverfi þess.
- Hlífðarbúnaður og hanskar fara að verki loknu í poka og í almennt sorp.