Reykjavík, 29. október 2019
Efni: Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr.100/2007 (upplýsingaskylda og eftirlitsheimildir), 72. mál.
Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) hefur fengið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr.100/2007 (upplýsingaskylda og eftirlitsheimildir), 72. mál.
ÖBÍ tekur undir með flutningsmönnum frumvarpsins að eftirlitsheimildir Tryggingastofnunar og upplýsingaskylda einstaklinga gangi of langt þegar 3ja aðila, maka umsækjanda, er gert að taka þátt í meðferð máls sem í raun er ekki tengt honum.
Eins og Tryggingastofnun ríkisins (TR) rekur í umsögn sinni eru það fjármagnstekjur maka sem geta haft áhrif á útreikning lífeyris sem stofnunin greiðir út. Einu gögnin sem TR notar til að skoða fjármagnstekjur umsækjanda og maka hans eru skattframtöl aðila. Fjármagnstekjur eru einu tekjur maka sem geta haft áhrif á lífeyri og því ljóst að engin ástæða er fyrir TR að krefjast upplýsinga frá maka eða fresta afgreiðslu mála vegna skorts á upplýsingum frá maka. Samkvæmt 43. gr. almannatryggingalaga er ýmsum aðilum, m.a. skattayfirvöldum skylt að veita TR upplýsingar að því marki sem það telst nauðsynlegt til að unnt sé að framfylgja lögunum. Er því ljóst að TR getur óskað eftir skattframtölum beint frá skattyfirvöldum ef nauðsyn krefur og því ekki þörf á því að krefjast aðkomu maka lífeyrisþega að afgreiðslu stofnunarinnar.
Ekkert um okkur án okkar.
Með vinsemd og virðingu,
Þuríður Harpa Sigurðardóttir
Formaður ÖBÍ