

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) hefur það að markmiði að tryggja réttindi fatlaðs fólks til jafns við aðra. Þegar ríki verður aðili samningsins ber það skyldu til „að tryggja og stuðla að því að öll mannréttindi og grundvallarfrelsi verði í einu og öllu að veruleika fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi vegna fötlunar“ sbr. 4. grein hans.
Allir einstaklingar eru jafnir fyrir lögum og eiga sama tilkall til allra mannréttinda. Með SRFF er viðurkennt að fatlað fólk hefur ekki haft sömu tækifæri og aðrir í gegnum tíðina. Aðildarríkin viðurkenna þessa staðreynd og heita því að vinna að bættum hag og bættum rétti fatlaðs fólks.
Samningurinn er fyrst og fremst jafnréttissamningur. Aðildarríkjum samningsins ber að vinna að jöfnum rétti og jöfnum tækifærum allra óháð fötlun. Samningurinn hefur nú þegar haft víðtæk áhrif á stöðu fatlaðs fólks í aðildarríkjum samningsins.
Íslensk stjórnvöld undirrituðu samninginn árið 2007, fullgiltu hann 2016 en hafa enn ekki lögfest hann. Alþingi samþykkti vorið 2019 þingsályktunartillögu sextán þingmanna að ríkisstjórninni yrði falið að undirbúa lögfestingu SRFF og að frumvarpið yrði lagt fyrir Alþingi eigi síðar en 13. desember 2020. Sú varð ekki raunin. ÖBÍ treysti því að samningurinn yrði lögfestur á 152. löggjafarþingi 2021-2022. Sú varð heldur ekki raunin.
Lögfesting samningsins mun tryggja að fatlað fólk á Íslandi geti byggt rétt sinn á samningnum með beinum hætti. Það þýðir verulega réttarbót.
Undanfarin ár hefur ÖBÍ unnið markvisst með beinum og óbeinum hætti að tryggja öllu fötluðu fólki á Íslandi, óháð skerðingum, kynjum, aldri eða stöðu að öðru leiti, öll þau réttindi sem felast í samningnum. Það hefur verið gert með ýmsum hætti eins og með fræðslu, fundum og bréfaskriftum til ráðamanna, umsögnum, undirskriftasöfnunum, kynningum, markaðherferðum, alþjóðlegu samstarfi og ritun svokallaðrar skuggaskýrslu.
Skuggaskýrsla er skýrsla óháðra aðila, þ.e. ekki ríkisvaldsins, um stöðu mála í tilteknu ríki. Slíkar skýrslur eru sendar til nefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Alma Ýr Ingólfsdóttir lögfræðingur hefur séð um ritun skuggaskýrslu fyrir bandalagið.
,,Meðal þeirra breytinga sem gerðar voru á þýðingunni eru eftirfarandi atriði:
Þar að auki voru gerðar ýmsar orðalagsbreytingar í því skyni að gera þýðinguna aðgengilegri og í betra samræmi við frumtextann. Í fskj. I er nýja þýðingin í heild sinni. Í fskj. II er tafla þar sem sjá má samanburð á frumtextanum, þ.e. gildandi þýðingu og nýju þýðingunni.“
Sjá nánar þingsályktunina.
,,Sam-einuðu Þjóðirnar
Sam-einuðu þjóðirnar er stofnun þar sem þjóðir í heiminum hittast til að ræða og komast að sam-komu-lagi um miki-væg mál sem varða okkur öll
Sam-einðu þjóðirnar vilja frelsi og jafn-rétti allra …“
,,Markmið samningsins er að efla, verja og tryggja full og jöfn mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk til jafns við aðra, ásamt því að efla og vinna að virðingu fyrir eðlislægri mannlegri reisn þess. Samningurinn felur í sér bann við hvers kyns mismunun á grundvelli fötlunar og að fötluðu fólki sé tryggð jöfn og árangursrík réttarvernd gegn mismunun á öllum sviðum.
Í 3. gr. er að finna almennar meginreglur samningsins, þær eru:
Á vef Sameinuðu þjóðanna má nálgast upplýsingar um samninginn og ýmsar útgáfur af honum.