Efni: Umsögn ÖBÍ réttindasamtaka (ÖBÍ) um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum (aldursviðbót), þingskjal 138 – 138. mál.
ÖBÍ réttindasamtök lýsa stuðningi við frumvarpið sem hér er til umsagnar. Frumvarpið felur í sér að réttur til aldursviðbótar haldist óbreyttur þegar réttur til örorkulífeyris fellur niður og taka ellilífeyris hefst. Samkvæmt núgildandi lögum missa örorkulífeyristakar aldursviðbótina við 67 ára aldur. Breytingin myndi bæta stöðu fatlaðs og langveiks fólks sem vegna veikinda, slysa eða fötlunar ná ekki, eða í mörgum tilvikummjög takmarkað að ávinna sér lífeyrisréttindi í lífeyrissjóðum. Eftirlaunaréttindi þeirra úr lífeyrissjóðakerfinu eru því mjög takmörkuð eða jafnvel engin. Á slíkt sérstaklega við um einstaklinga sem fá örorkumat ungir að árum. Þessir einstaklingar fá almennt mjög lág eða jafnvel engin eftirlaun frá lífeyrissjóðum og eru auk þess í þeirri stöðu að ná heldur ekki að greiða inn í og safna viðbótarlífeyrissparnaði. Þar af leiðandi þurfa þeir enn frekar að treysta á almannatryggingar. Fjárhæð aldursviðbótar fyrir einstakling sem fær fyrsta mat 18 til 24 ára er 100% eða jafnhá og örorkulífeyrir (grunnlífeyrir). Fjárhæðin lækkar hratt eftir því sem aldur er hærri við fyrsta mat og er til að mynda 15% fyrir þann sem fær fyrsta mat 40-45 ára, samanber 1. mgr. 29. gr. laga um almannatrygginga.
Ljóst er að sá hópur fatlaðs fólks sem fyrir 67 ára aldur þurfti að framfleyta sér á örorkulífeyri og/eða var um lengri tíma utan vinnumarkaðar er almennt með mun lægri tekjur og í mun erfiðari fjárhagsstöðu en aðrir ellilífeyristakar. Þetta er sá hópur ellilífeyristaka sem stendur verst. Örorkulífeyristakar sem fá fyrsta örorkumat við 18 til 24 ára aldur og hafa engar aðrar tekjur en örorkulífeyri frá TR geta lækkað um 41.225 kr. á mánuði (fyrir skatt) við að færast yfir á ellilífeyri ef þeir eru áfram í þeirri stöðu að vera einungis með lífeyrisgreiðslur almannatrygginga sér til framfærslu . Ef réttur til aldursviðbótar helst óbreyttur, eins og frumvarpið kveður á um, myndi það tryggja að þessi tekjulági hópur lækkar ekki í greiðslum við að ná 67 ára aldri.
Örorkulífeyristakar hafa að auki ekki val um að fresta töku ellilífeyris til 72 ára aldurs, eins og aðrir, og hækka þar með greiðslur sínar á mánuði um 0,5% , þar sem greiðslum til örorkulífeyristaka er breytt án umsóknar úr örorkulífeyri í ellilífeyri við 67 ára aldur.
ÖBÍ mælir með því að frumvarpið verði samþykkt, þar sem það mun bæta kjör þess hóps sem verst stendur í mengi ellilífeyrisþega.
Ekkert um okkur án okkar.
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Sigríður Hanna Ingólfsdóttir,
félagsráðgjafi ÖBÍ réttindasamtaka
Almannatryggingar (aldursviðbót)
138. mál, lagafrumvarp
Umsögn ÖBÍ, 27. október 2023