150 Reykjavík
Reykjavík, 20. janúar 2021
ÖBÍ lýsir stuðningi við hækkun frítekjumarka vegna tekna lífeyrisþega við útreikning lífeyris almannatrygginga. Upphæðir frítekjumarka hafa verið láta standa í stað árum og jafnvel áratugum saman í stað þess að þau séu uppfærð og látin fylgja öðrum hækkunum, s.s. hækkun lífeyris almannatrygginga og/eða launavísitölu.
Frítekjumörk fyrir útreikning tekjutryggingar og heimilisuppbótar fyrir örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega hafa verið óbreytt frá árinu 2009. Frítekjumark á atvinnutekjur hvetur örorkulífeyrisþega sem hafa vinnufærni til atvinnuþátttöku. Á meðan frítekjumarkið stendur í stað og laun á vinnumarkaði hækka, þá skila launahækkanir sér ekki til örorkulífeyrisþega. Ef frítekjumark vegna atvinnutekna hefði hækkað í samræmi við hækkun launavísitölu frá árinu 2009, var frítekjumarkið komið yfir 217.000 kr. á mánuði í stað 109.600 kr. í janúar 2020.
Ekkert um okkur án okkar!