Mikilvægt er að NPA-notendur og þeir sem eru með annars konar notendasamninga séu viðbúnir því að upp komi grunur um COVID-19 smit hjá sér eða í hópi aðstoðarfólks.
Þegar hætta er talin á smiti af völdum COVID-19 þarf notandi og aðstoðarfólk hans að:
- Þekkja einkenni COVID-19 sýkingar og smitleiðir veirunnar og kynna sér leiðbeiningar um viður- kennda verkferla, nánari upplýsingar á vefjum embættis landlæknis, félagsmálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og NPA-miðstöðvarinnar.
- Einkenni COVID-19 eru: Hósti, hiti, kvefeinkenni, bein- og vöðvaverkir og þreyta, stundum með hálsbólgu. Eins hefur breytingu eða tapi á bragð- og lyktarskyni verið lýst.
- Vera tilbúin að gæta mjög vel að hreinlæti, efla sýkingavarnir og beita grundvallarsmitgát.
- Vera tilbúin að takast á við verkefni vegna COVID-19.
- Vera tilbúin og veita aðstoð við takmörkun á aðgengi að heimili notenda og stöðva óþarfa umgang til varnar smiti.
- Kunna að klæðast og afklæðast hlífðarfatnaði.
- Hafa kynnt sér myndbönd sóttvarnalæknis á vef embættis landlæknis um sýkingavarnir, handþvott og notkun hlífðarbúnaðar.
- Upplýsa tengilið hjá félagsþjónustu viðkomandi sveitarfélags ef grunur vaknar um smit af völdum COVID-19 og eftir atvikum umsýsluaðila eða aðstoðarverkstjórnanda.
Geymið eftirfarandi á vísum stað innan heimilis:
- Handspritt
- Bréfþurrkur
- Einnota hanskar
- Hlífðargrímur
- Plastpokar
- Sótthreinsandi lögur til yfirborðshreinsunar t.d. spritt eða Virkon
- Virkon töflur og leiðbeiningar með þeim.
Leiðbeiningar um notkun hlífðargríma eru að finna hér [PDF] og hér [á Facebook] má sjá leiðbeiningamyndband um notkun hlífðargríma.
Mikilvægt er að undirbúa sig og gera eigin viðbragðsáætlun, ræða við aðstoðarfólk um hvernig bregðast skuli við komi veikindi upp og þú þurfir að fara í sóttkví eða einangrun. Þessar leiðbeiningar er gott að hafa til hliðsjónar við gerð eigin viðbragðsáætlunar.
Gott er að:
- Taka saman helstu símanúmer sem þurfa að vera tiltæk.
- Eiga alltaf hreinlætisefni, sótthreinsandi efni, handspritt, sápur, pappírsþurrkur, einnota hanska, hlífðargrímur o.fl.
- Gera verklag um sóttvarnir og hreinlæti fyrir aðstoðarfólk og umgengni á þínu heimili:
- Handþvottur
- Þrif á vistarverum og snertiflötum
- Almennt hreinlæti
- Gera verklag um heimsóknir, fjölda gesta og ferðir út af heimili.
- Gera áætlun um það hvernig þú getur brugðist við komi upp grunur um COVID-19 smit eða staðfest smit hjá þér eða í hópi aðstoðarmanna þinna.
- Reyna að sjá fyrir hvernig þú getur brugðist við neyðartilvikum. Til dæmis ef þú missir stóran hluta aðstoðarfólks í sóttkví eða einangrun.
- Ákveða hver sinnir verkstjórnarhlutverkinu ef þú getur ekki sinnt því vegna veikinda.
- Ræða við aðstoðarfólk um viðbrögð og verklag um hvað skal gera komi smit upp hjá þér eða í hópi aðstoðarmanna þinna.
- Gera lista yfir þá sem geta verið þínir bakverðir:
- Taka saman lista yfir fólk sem hefur unnið hjá þér áður, hafa samband við það og athuga hvort það geti mögulega stokkið til í neyð.
- Kanna hvort fjölskyldumeðlimir eða vinir geti komið inn til aðstoðar ef þörf er á.
- Þekkja til verklags um hvernig hægt er að fá aðstoð bakvarðarsveitar velferðarþjónustu.
- Gera verklag um hvernig á að sækja mat, lyf og annað sem þarf að vera til á þínu heimili ef upp kemur COVID- 19 smit.
- Eiga leiðbeiningar útprentaðar sem þörf er á og kynna eftir þörfum fyrir aðstoðarfólki þínu.