![Á myndinni eru frá vinstri: Halldór Sævar Guðbergsson, varaformaður ÖBÍ, Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, og Lilja Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri ÖBÍ.](https://www.obi.is/wp-content/uploads/2018/10/dsc_1832.jpg)
Stjórn Öryrkjabandalags Íslands hefur ályktað um starfsgetumat. Ályktunin er einföld.
Stjórn Öryrkjabandalags Íslands skorar á stjórnvöld að: Efla núverandi kerfi örorkumats í stað tilraunakennds starfsgetumats.
Í greinargerð með ályktun stjórnarinnar segir að að núverandi kerfi örorkumats sé í grundvallaratriðum vel uppbyggt, sveigjanlegt og traust. Bandalagið vill efla það og draga úr tekjutengingum í stað þess að leggja út í þá tilraunastarfsemi sem fólgin er í starfsgetumati sem ekki hefur verið sýnt fram á að fái staðist.
Starfsgeta öryrkja er gjarnan afar sveiflukennd. Með tilkomu starfsgetumats í stað örorkumats er hætt við að öryrkjar lendi í alvarlegri afkomuóvissu. Þá þarf að hafa í huga að íslenskt atvinnulíf býður ekki upp á nægilega mörg og fjölbreytt störf við hæfi þeirra öryrkja sem treysta sér til að vinna. Almannatryggingar refsa öryrkjum fyrir atvinnuþátttöku með ósanngjörnum skerðingum. Starfsgetumat í stað núgildandi örorkumats er óraunhæft.