150 Reykjavík
Reykjavík, 22. mars 2021
Efni: Umsögn Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) um tillögu til þingsályktunar um skipun starfshóps um rétt til að annast veikt eða slasað barn, þingskjal 192-191. mál.
ÖBÍ styður þingsályktunartillöguna og vonast til þess að hún verði samþykkt.
ÖBÍ er sammála því að endurskoða þurfi réttindi fatlaðra og langveikra barna til umönnunar foreldra/forsjáraðila enda segir í 23. grein, 3, tölulið í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, „aðildarríkin skulu tryggja fötluðum börnum jafnan rétt með tilliti til fjölskyldulífs. Til þess að þessi réttur verði að veruleika og í því skyni að koma í veg fyrir að fötluðum börnum sé leynt, þau yfirgefin, vanrækt eða að þau séu þolendur aðskilnaðar skulu aðildarríkin skuldbinda sig til þess að veita fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra snemma alhliða upplýsingar, þjónustu og stuðning“.
ÖBÍ er heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi og samanstendur af 42 aðildarfélögum sem öll eru hagsmunasamtök ólíkra fötlunarhópa og er samanlagður félagafjöldi þeirra um 40.000 manns.
ÖBÍ gerir alvarlegar athugasemdir við það að fá hvorki umsagnarbeiðni um þingsályktunartillöguna né vera talið upp ásamt þeim aðilum sem lagt er til að fái sæti í starfshópnum en þar eru fyrir utan umboðsmann barna einungis aðilar sem snúa að vinnumarkaðinum. ÖBÍ telur nauðsynlegt að hagsmunasamtök fatlaðs fólks eigi einnig sæti í starfshópnum til að koma hagsmunum fatlaðra og langveikra barna á framfæri.
Rétt er að minna á að stjórnvöldum er skylt að hafa virkt samráð við heildarsamtök fatlaðs fólks um ákvarðanir sem varða hagsmuni þess, samkvæmt ákvæðum Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SSRF), enda segir í 3. mgr. 4. gr., „aðildarríkin skulu, þegar þau undirbúa og beita löggjöf sinni og stefnu samningi þessum til framkvæmda og vinna að ákvarðanatöku um málefni fatlaðs fólks, hafa náið samráð og tryggja virka þátttöku fatlaðs fólks, þ.m.t. fötluð börn, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd“.
Ekkert um okkar, án okkar!