Á alþjóðadegi fatlaðs fólks, 3. desember, veitti Öryrkjabandalag Íslands Hvatningarverðlaun sín í níunda sinn að þessu sinni hlutu eftirtaldir verðlaunin:
Í flokki einstaklinga:
- Brynjar Karl Birgisson, fyrir Lego-verkefnið „Titanic“ og söguna
„Minn einhverfi stórhugur“.
Í flokki fyrirtækja/stofnana:
- Sjónarhóll, fyrir ráðgjöf og dyggan stuðning við réttindabaráttu foreldra barna með sérþarfir.
Í flokki umfjöllunar/kynningar:
- Snædís Rán Hjartardóttir, fyrir baráttu sína við stjórnvöld vegna synjunar á túlkaþjónustu.
Verndari verðlaunanna er Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson. Hönnuður verðlauna er Þórunn Árnadóttir, vöruhönnuður.
Sjá fréttir frá viðburðinum: