Segir í eftirfylgni Ríkisendurskoðunar með skýrslu hennar til Alþingis 2012. Jafnframt að setja þurfi skýrari reglur um eftirlit með kaupum VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs.
Í grein á vefsíðu Ríksiendurskoðunar
er meðala annars bent á að árið 2012 birti Ríkisendurskoðun skýrslu þar sem settar voru fram samtals fjórar ábendingar til velferðarráðuneytis um úrbætur á þessu sviði.
Ráðuneytið var hvatt til að:
- Móta heildstæða stefnu um málefni fólks með skerta starfsgetu, einnig þess sem lög um atvinnutengda starfsendurhæfingu taka ekki til. Setja fram skýr markmið, aðgerðaáætlun og mælikvarða á árangur.
- Stuðla að aukinni ábyrgð vinnuveitenda á að koma til móts við þarfir þessa hóps.
- Auka samfellu í endurhæfingarferlinu. Mikilvægt væri að starfsendurhæfing hæfist fyrr en verið hefði og að henni væri fylgt betur eftir.
- Semja við VIRK Starfsendurhæfingarsjóð um kaup á endurhæfingarþjónustu fyrir fólk sem stæði utan vinnumarkaðar og ætti þar með ekki lögbundinn rétt á þjónustunni. Jafnframt þyrfti að setja skýrar reglur eftirlit ráðuneytisins með þjónustukaupum sjóðsins.
Fram kemur hjá Ríkisendurskoðun að úrbætur hafa verið gerðar á tveimur liðum en ráðuneytið hafi ekki mótað heildstæða stefnu um málefni fólks með skerta starfsgetu, né sett reglur um eftirlit með kaupum VIRK – Starfsendurhæfingarjóðs á þjónustu. Ábendingar um þessi atriði eru því ítrekaðar.