Umboðsmaður hefur í nokkurn tíma verið með þessi mál til athugunar, og sendi í október bréf til nokkurra sveitarfélaga og mennta og menningarmálaráðuneytisins þar sem farið var fram á upplýsingar og gögn vegna þeirra upplýsinga sem fram höfðu komið að svokölluð „gul“ herbergi væru í notkun í einhverjum skólum, þar sem börn væru tekin afsíðis og látin vera, oft ein.
Umboðsmaður spurði í bréfi sínu hvort þeir nemendur sem úrræðinu hafði verið beitt á, hafi dvalið í herberginu í stutta stund, eða í lengri tíma, hvort þeir hefðu verið þar einir eða með starfsmanna. Einnig hvort úrræðinu hefði verið beitt í tilefni af atvikum sem vörðuðu nemandann sjálfan, eða vegna athafna annara nemenda sem beindust að honum. Umboðsmaður hefur fengið þau svör sem hann óskaði eftir, og jafnframt, samkvæmt frétt á heimasíðu embættisins, hafa honum borist ábendingar um einstök atvik af þessum toga.
Þessi mál hafa nokkuð verið í umfjöllun frá því síðla sumars, og meðal annars tók stjórn Öryrkjabandalagsins þá ákvörðun að styðja foreldra í hugsanlegum málaferlum þar sem auðsýnt var að barn var ekki að fá þann stuðning sem það á rétt á, og stefnan um skóla án aðgreiningar því í raun virt að vettugi.
Lögmaður ÖBÍ sendi bréf til nokkurra sveitarfélaga og grunnskóla í þeim, þar sem óskað var eftir svörum um ákveðin atriði, vegna barns í viðkomandi skóla. Ánægjulegt er að segja frá því að fljótlega brást einn af þessum grunnskólum við og jók við þau úrræði sem í boði voru fyrir börn sem þurfa meiri stuðning, með þeim árangri að barnið nýtur þess nú að fara í skólann.
Nýlega fjallaði fréttablaðið ítarlega um þessi mál, og þar sagði Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis, að ef svipta eigi fólk, og þar með talið börn, frelsi þurfi að meginreglu lagaheimild og rannsókn hans í þessu máli hafi það sem útgangspunkt. Skúli segir að skoðun embættis umboðsmanns sé afmörkuð við frelsissviptingu, afleiðingar innilokunar á börn og hvernig verklagi, skráningu og upplýsingagjöf sé háttað í þessum málum.
Rannsókn umboðsmanns heldur áfram og í kjölfar þessara heimsókna tekin afstaða til þess hver næstu skref hans verða vegna málsins.