Tekjuviðmið breytast þannig að 65% af skattskyldum tekjum örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega hafa nú áhrif á útreikninginn í stað 100% áður. Aldurstengd örorkuuppbót hefur nú 50% vægi í stað 100% áður. Bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð, aðrar en aldurstengd örorkuuppbót, hafa áfram 100% vægi.
Þessi breyting á við í þeim tilfellum að sérstök framfærslu uppbót hefur verið skert krónu á móti krónu vegna annara tekna viðkomandi. Fyrir hverja krónu sem sérstaka framfærslu uppbótin hefur verið skert, mun TR því greiða 35 aura til baka. Athygli er samt vakin á því að staðgreiðsla skatta verður dregin af þessari endurgreiðslu. Endurgreiðslan mun hins vegar ekki hafa nein áhrif á aðrar greiðslur frá TR.
Öryrkjabandalag Íslands lítur á þessa lagabreytingu sem hænuskref í þá átt að afnema að fullu þá skerðingu sem króna á móti krónu, nú 65 aurar á móti krónu er, og veltir áfram fyrir sér hvers vegna svo erfiðlega gangi að fá ríkisstjórn til að afnema að fullu þessa skerðingu. Aðeins þannig er fötluðu fólki opnuð leið inn á vinnumarkaðinn án þess að þurfa að kaupa sig inn á hann.
Skerðing er áfram til staðar, bara aðeins minni. ÖBÍ brýnir stjórnvöld til að stíga skrefið til fulls og afnema skerðinguna að fullu.