Tilnefningar óskast fyrir lok dags 15. september.
Öryrkjabandalag Íslands veitir Hvatningarverðlaun sín árlega á alþjóðadegi fatlaðs fólks 3. desember.
Markmið verðlaunanna er að skapa jákvæða ímynd fyrir fatlað fólk og vekja athygli á þeim sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu.
Verðlaun eru veitt í þremur flokkum:
- Flokki einstaklinga,
- Flokki fyrirtækja/ stofnana
- Flokknum umfjöllun/kynningu
Tilnefningar í hverjum flokki eru þrjár talsins.
Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson er verndari verðlaunanna.
Þekkir þú einhvern sem ætti að tilnefna?
Tilnefningar má senda með rafrænu eyðublaði á heimasíðu ÖBÍ. Einnig má senda tilnefningu í bréfpósti.