Á aðalfundi ÖBÍ, 15. og 16. október, var Þuríður Harpa Sigurðardóttir endurkjörin formaður ÖBÍ til næstu tveggja ára. Auk hennar voru níu einstaklingar kjörnir í stjórn bandalagsins til sama tíma.
Þau sem kjörin voru í stjórn eru:
-
Hjördís Ýrr Skúladóttir, MS félaginu,
-
Albert Ingason, SPOEX,
-
María Magdalena Birgisdóttir Olsen, Gigtarfélagi Íslands,
-
Fríða Rún Þórðardóttir, Astma og ofnæmisfélagið.
Í málefnahópa voru kjörnir fimm formenn, í samræmi við tillögu stefnuþings og samþykkta breytingatillögu stjórnar.
-
Formaður málefnahóps um aðgengismál, Bergur Þorri Benjamínsson, Sjálfsbjörg lsh.
-
Formaður málefnahóps um atvinnu og menntamál, Hrönn Stefánsdóttir, Gigtarfélag Íslands.
-
Formaður málefnahóps um heilbrigðismál, Vilhjálmur Hjálmarsson, ADHD samtökin.
-
Formaður málefnahóps um kjaramál, Atli Þór Þorvaldsson, Parkinsonsamtökin.
-
Formaður málefnahóps um húsnæðismál, María Pétursdóttir, MS félag Íslands.
Aðalfundur samþykkti einnig nokkrar breytingar á lögum bandalagsins, flestar til samræmis við ný lög um félög til almannaheilla. Heimasíða ÖBÍ verður uppfærð í samræmi við niðurstöður aðalfundar í kjölfarið.