Fjölmennum á opinn fund 29. maí nk. á Hilton Reykjavík Nordica frá kl. 9-14. Varaformaður ÖBÍ, Halldór Sævar Guðbergsson verður í pallborði.
„Íbúðalánasjóður og Félagsmálaráðuneytið boða til opins fundar á Hilton Reykjavík Nordica miðvikudaginn 29. maí. Tilgangur fundarins er að kalla eftir opinni umræðu um hvernig breytingar á húsaleigulögum geti best tryggt öryggi á leigumarkaði.“ Sjá nánar hér
Dagskrá
8:30 Morgunhressing
9:15 Opnunarávarp – Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra
9:30 Framsöguerindi
- Lísa Margrét Sigurðardóttir, lögfræðingur í félagsmálaráðuneytinu
Húsaleigulög: ákvörðun leigu, lengd leigusamnings, uppsögn og úrræði. - Margrét Kristín Blöndal, formaður Samtaka leigjenda á Íslandi
Frá sjónarhóli leigjenda. - Marinó Örn Ólafsson, lánasjóðsfulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands
Frá sjónarhóli námsmanna. - María Björk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Ölmu
Fjölbreytni, framboð og fagmennska. - Sigurður Helgi Guðjónsson, framkvæmdastjóri Húseigendafélagsins
Frá sjónarhóli hins almenna leigusala.
10:00 Vinnustofur
12:15 Hádegishlé
13:00 Pallborðsumræður undir stjórn Sigmars Guðmundssonar dagskrárgerðarmanns á RÚV
- Arnar Gauti Reynisson, framkvæmdastjóri Heimavalla
- Auður Björg Jónsdóttir, formaður kærunefndar húsamála
- Ása Ólafsdóttir, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands
- Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, varaformaður Húseigendafélagsins
- Halldór Sævar Guðbergsson, varaformaður Öryrkjabandalags Íslands
- Hólmsteinn Brekkan, framkvæmdastjóri Samtaka leigjenda á Íslandi
14:15 Fundarslit
Boðið er upp á léttan hádegisverð fyrir fundarmenn. Athugið að sætaframboð er takmarkað og því er æskilegt að fólk skrái sig hér