![IMG_0782 Móttaka í nýju skrifstofurými ÖBÍ réttindasamtaka.](https://www.obi.is/wp-content/uploads/2023/01/IMG_0782-scaled.jpg)
Skrifstofur ÖBÍ réttindasamtaka eru fluttar upp á 2. hæð í Sigtúni 42. Opnunartími móttöku er óbreyttur eða 9:30 – 15:00 alla virka daga.
Stórt og gott fundarherbergi er í hinni nýju skrifstofuálmu, auk nokkurra næðisrýma. Yfir stendur vinna við að gera fyrra skrifstofurými klárt fyrir nýja leigjendur.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur á nýjum stað.