Heimili barna sem búa á tveimur heimilum verða þá jafnsett við kaup á tilteknum hjálpartækjum sem styrkt eru af Sjúkratryggingum Íslands. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerð þessa efnis sem heimilar stofnuninni að veita styrki til beggja heimila barns vegna kaupa á sjúkrarúmum, dýnum, stuðningsbúnaði og hjálpartækjum tengdum salernisferðum.
Í svari við fyrirspurn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur frá því í apríl 2021, og skilað var 10 maí síðast liðinn, segir að þær aðgerðir sem heyra undir heilbrigðisráðherra hafi verið tímasettar og fjármagnaðar að einhverju leyti. Á árinu 2021 hefur fjármögnun verið tryggð fyrir tillögu starfshópsins sem varðar börn sem eiga heimili á tveimur stöðum og gætu þarfnast hjálpartækja á báðum heimilum svo að bæði heimilin verði jafnsett til að mæta þörfum þeirra, þar sem ekki er alltaf hægt að flytja hjálpartæki milli staða. Veitt verður heimild til kaupa á hjálpartækjum á tveimur heimilum fatlaðra barna en um er að ræða heildaraðgerð fyrir 200 millj. kr. og á árinu 2021 munu 68 millj. kr. renna til verkefnisins. Að auki munu fastar styrkupphæðir sem tilgreindar eru í fylgiskjali með reglugerð um styrki vegna hjálpartækja, nr. 1155/2013, verða hækkaðar. Gert er ráð fyrir því að verja 107 millj. kr. til þessa í ár og einnig verður 107 millj. kr. varið til þessa á næsta ári, 2022.
Í seinni hluta fyrirspurnarinnar var spurt hvort ráðherra hygðist láta endurskoða regluverk um hjálpartæki til samræmis við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, svo sem varðandi skilgreiningar á hugtökum, kom fram í svari ráðherra að ekki væri alveg ljóst hvort ósamræmi ríki í hugtakanotkun í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og í 26. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, um hjálpartæki. Það kunni þó að vera ákjósanlegt að endurskoða skilgreiningu á hugtakinu hjálpartæki í reglugerðum til þess að hún samræmist betur samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.