ÖBÍ réttindasamtök lýsa ánægju með að Orkan hafi nú rampað upp þrjár bensíndælur á stöð sinni við Suðurfell og þannig gert hana að fyrstu bensínstöðinni sem er aðgengileg fyrir hreyfihamlað fólk.
Þessar framkvæmdir eru liður í samstarfsverkefni Römpum upp Ísland, Sjálfsbjargar og Orkunnar en einnig hafa rampar verið byggðir á Orkustöð á Stokkseyri og til stendur að halda verkefninu áfram.
Verkefnið er samstarfsverkefni Römpum upp Ísland, Sjálfsbjargar og Orkunnar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá þeim.
„Það er brýn nauðsyn á að allir fái lifað í samfélagi án aðgreiningar. Þetta er mikilvægt skref í þá átt, bæði hvað varðar aðgang að bensíni og olíu á lægra verði og aðgengi að annarri þjónustu,” er haft eftir Þorleifi Gunnlaugssyni, framkvæmdastjóra Römpum upp Ísland, í fréttatilkynningu.