Ný aðgerðaáætlun vegna fólks með fötlun var nýverið kynnt á fundi fötlunarnefndar Norrænu ráðherranefndarinnar í Sisimut á Grænlandi. Tilgangurinn með aðgerðaáætluninni er meðal annars að ryðja úr vegi hindrunum fyrir fólk með fötlun og um leið að auka aðgengi annarra líka.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, og Lilja Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri ÖBÍ, sóttu fundinn fyrir Íslands hönd. Þuríður Harpa segir að norrænt samstarf sé mjög mikilvægt fyrir Öryrkjabandalag Íslands.
Mikilvægt samstarf
„Bæði fáum við frá fyrstu hendi upplýsingar um ýmis mál sem eru í gangi hverju sinni á hinum Norðurlöndunum og getum miðlað hvernig mál ganga hér á Íslandi. Markmiðið er að verja réttindi fatlaðs fólks og það með hvaða hætti löndin vinna að mannréttindum er lærdómsríkt fyrir okkur.“
Nú þegar verið er smá saman að innleiða Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í lög hér á Íslandi er enn mikilvægara fyrir okkur að hafa góða tengingu við norðurlandaþjóðirnar. Þrjú svið sem hafa verið nefnd í norrænu áætluninni; mannréttindi, sjálfbær þróun og frjáls för eru öll mjög mikilvæg réttindamál fyrir fatlað fólk. Sem dæmi má nefna að fólk t.d. námsmenn sem búið hafa í öðru Norðurlandi og veikist eða fatlast getur lent í búsetuskerðingu, þannig að réttindi þess hvað varðar framfærslu getur skerst mikið. Þessu viljum við m.a. breyta og er Norrænt samstarf mikilvægt í því sambandi.“
Hindranir burt
Fjallað er um aðgerðaáætlunina á Norden.org. Þar segir meðal annars:
Ný aðgerðaáætlun vegna fólks með fötlun var nýverið kynnt á fundi fötlunarnefndar Norrænu ráðherranefndarinnar í Sisimut á Grænlandi. Tilgangurinn með aðgerðaáætluninni er meðal annars að ryðja úr vegi hindrunum fyrir fólk með fötlun og um leið að auka aðgengi annarra líka.
Við viljum ryðja úr vegi þeim hindrunum sem enn eru fyrir hendi hjá fólki með fötlun,“ segi Ola Balke frá Þátttökustofnuninni í Svíþjóð en hann er formaður fötlunarnefndar Norrænu ráðherranefndarinnar í formennskutíð Svíþjóðar 2018. Í aðgerðaáætluninni eru þrjú áherslusvið sem móta norrænt samstarf milli regnhlífasamtaka á þessu sviði, fulltrúa ríkisstjórna og annarra sérfræðinga. Áherslusviðin eru:
- Mannréttindi
Að styðja og styrkja vinnuna við að innleiða og fylgja eftir samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í norrænu ríkjunum.
- Sjálfbær þróun
Að nota alþjóðleg módel til þess að styrkja aðlögun, auka jafnrétti og vinna gegn mismunun fólks með fötlun í öllum hlutum norræns samfélags með því að samþætta sjónarmið sem snúa að fötlun í vinnunni að sjálfbærri þróun.
- Frjáls för
Að auka frjálsa för og útrýma stjórnsýsluhindrunum sem varða sérstaklega fólk með fötlun.
Til bóta fyrir einstaklinginn
Tilgangur aðgerðaáætlunarinnar er að stuðla að aðlögun fólks með fötlun með aukinni norrænni þekkingarmiðlun og nánara samstarfi um stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks. „Aðgerðaáætlunin er miðlæg samstarfsáætlun sem mun verða einstaklingum til gagns, þjóðunum og Norðurlöndunum sem svæði,“ segir Ola Balke. Norrænu samstarfi á þessu sviði er meðal annars ætlað að:
- vera þjóðunum til gagns og bæta líf norrænna borgara sem búa við fötlun
- bæta og styrkja þá ferla sem fyrir hendi eru í löndunum og hafa aðlögun á öllum sviðum samfélagsins að markmiði
- dýpka og mynda samlegðaráhrif í tengslum við annað alþjóðlegt samstarf og ferla sem hafa aðlögun að leiðarljósi
- skapa forsendur fyrir miðlun reynslu, viðhaldi sérhæfðrar þekkingar og þróun aðferða til að aðlaga fólk með fötlun á ýmsum sviðum stefnumótunar og í tilteknu samhengi
- samþætta með afgerandi hætti sjónarmið um jafnrétti milli karla og kvenna, stúlkna og drengja, réttindi barna og ungmenna og sjálfbæra þróun í starfsemi sinni.
Grænland bætir aðstæður fólks með fötlun
Á Grænlandi þar sem fötlunarráð Norrænu ráðherranefndarinnar kynnti nýverið aðgerðaáætlunina í Sisimut hefur ríkisstjórnin bætt aðstæður fólks með fötlun. Til dæmis hefur verið opnuð ný miðstöð fyrir fólk með fötlun sem þjónar öllu landinu, grænlenska ríkisstjórnin hefur hefur skipað talsmann Tilioq í málaflokknum og skipulögð hefur verið námsstefna með áherslu á þjónustu við fólk með fötlun á strjálbýlum svæðum.