Með nýrri lagabreytingu sem samþykkt var á Alþingi í lok síðasta mánaðar, koma mæðra-/ feðralaun ekki lengur til skerðinga á framfærsluuppbót hjá einstæðum foreldrum sem fá greidd mæðra-/feðralaun með tveimur börnum eða fleiri.
Lagabreytingin nær til alls 449 manns. Mæðra-/feðralaun með tveimum börnum eru 12.343 kr. og með þremur eða fleiri börnum 32.090 kr. Hér má lesa nánar um mæðra- og feðralaun á vef TR:
https://www.tr.is/fjolskyldur/maedra-og-fedralaun
ÖBÍ réttindasamtök hafa barist fyrir þessari breytingu um nokkurt skeið. Í grein sem birtist í Fréttablaðinu árið 2018 segir eftirfarandi:
„Króna á móti krónu skerðing hittir verst fyrir þá sem síst skyldi. Ef stjórnvöld vilja vinna gegn fátækt ættu þau að afnema þessa skerðingu, en samstaða er á Alþingi um mikilvægi þess.“
„Það er ánægjulegt að þetta réttlætismál hafi náð fram að ganga,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ.