Sóttvarnalæknir beinir því til félagasamtaka og félaga sjúklinga og/eða aðstandenda að koma eftirfarandi skilaboðum um smitvarnir vegna kórónaveiru (COVID-19) á framfæri til þeirra sem málið varðar:
Gripið hefur verið til margvíslegra varúðarráðstafana að undanförnu til að hefta útbreiðslu COVID-19 kórónaveirunnar hér á landi. Veirunnar varð fyrst vart í Kína í lok desember síðastliðnum og varð þar að faraldri. Síðan hefur hún breiðst nokkuð hratt til annarra landa og hér á landi hefur greinst smit hjá nokkrum einstaklingum sem allir höfðu verið í útlöndum.
Einkenni þeirra sem veikjast í kjölfar smits líkjast helst inflúensusýkingu, þ.e. hósti, hiti, bein- og vöðvaverkir og þreyta. Flestir sem smitast finna aðeins fyrir vægum einkennum og jafna sig fljótt. Ekki verður þó horft fram hjá því að veiran getur valdið alvarlegum veikindum og í verstu tilfellum reynst lífshættuleg. Þess vegna er mjög mikilvægt að allir leggist á eitt til að hefta útbreiðslu og fylgi í einu og öllu leiðbeiningum heilbrigðisyfirvalda um sóttvarnir.
Heilbrigðisyfirvöld beita margvíslegum leiðum til að koma upplýsingum og leiðbeiningum til almennings á framfæri sem víðast.
- Gæta vel að hreinlæti, þvo hendur reglulega með sápu og nota handspritt. Forðast snertingu við augu, nef og munn.
- Hósta og hnerra í krepptan olnboga eða í pappír þegar um kvefeinkenni er að ræða.
- Forðast náið samneyti við einstaklinga með hósta og almenn kvefeinkenni.
- Sýna aðgát í umgengni við algenga snertifleti á fjölförnum stöðum, s.s. handrið, lyftuhnappa, snertiskjái, greiðsluposa og hurðahúna.
- Sleppa handaböndum og faðmlögum og heilsa fremur með brosi.
Ef einstaklingur finnur fyrir veikindum og óttast að um smit af völdum kórónaveiru sé að ræða á hann að hringja í símanúmerið 1700 til að fá nánari upplýsingar. Ekki mæta á bráðamóttöku eða á heilsugæslustöð nema að fengnum ráðleggingum í síma.
Á vef embættis landlæknis www.landlaeknir.is eru birtar ítarlegar leiðbeiningar til almennings og nýjustu upplýsingar af kórónaveirunni eftir því sem þörf krefur.
Samhæfingarstöð almannavarna