Öryrkjar þekkja þessa stöðu vel, þeir hafa aldrei átt kost á mannsæmandi lífi hvorki fyrir sig né börn sín. Þeir hafa lært að engum er treystandi, þeirra von er engin, þeir reyna að vera ekki fyrir, vera ósýnilegir. Huldufólk í landi réttlætis og tækifæra.
Staðreyndin er sú að stærstur hluti öryrkja hefur verið á vinnumarkaði, jafnvel í áratugi, alið börn inn í samfélagið og vissulega lagt sitt af mörkum. Þessu fólki er þakkað þeirra framlag með framfærslu sem í dag er rétt um 220.000 kr. útborgaðar (en um 70% öryrkja fá grunnörorkulífeyri eða minna.) Þessi upphæð þarf að duga til að borga húsaleigu, lyf og lækniskostnað, mat og annað sem daglegt líf útheimtir. Við vitum það öll að það hér er á ferðinni ákveðinn ómöguleiki. Við vitum það líka að krafa samtaka launafólks um hækkun grunnatvinnuleysisbóta er lífsnauðsyn. Jafn vel og við vitum að krafa fatlaðs fólks um hækkun örorkulífeyris er neyðarákall fólks í sárri fátækt.
Margir hafa lýst skoðunum sínum á hvernig best sé að koma til móts við þá sem lent hafa og munu lenda í atvinnuleysi í kjölfar Covid-19. Rauði þráðurinn þar er að skynsamlegast sé að forða fólki frá skuldavanda og öllum þeim hörmungum sem fylgir því að geta ekki staðið við skuldbindingar sínar.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði á vordögum að ríkisstjórnin myndi gera meira en minna. ÖBÍ benti á að í þessari alvarlegu krísu mætti ekki skilja neinn eftir. Huga yrði sérstaklega að þeim hópum sem verst standa, sem er fatlað fólk.
Ekkert hefur verið gert til að bæta stöðu þess hóps ef frá er talin 20.000 kr. eingreiðsla sem ríkisstjórnin taldi leysti vandamál hans. Velferð fatlaðs fólks heldur ekki vöku fyrir ráðamönnum þjóðarinnar né virðist umræða um um hana ná eyrum þeirra. Enn ber þessi hópur hæsta skatta og mestar skerðingar (jaðarskattar), fólkið sem er með allra lægstu tekjurnar, fólkið sem gerði ekkert af sér til að verðskulda þann þunga dóm að búa í sárri fátækt, hulið ásjónu stjórnvalda, sem virðast ófær um að taka ákvarðanir sem bæta kjör fatlaðs fólks.
Það er réttlætismál og skref í átt að jöfnuði að fólk sé ekki hneppt í ánauð fátæktar vegna þess að það skyndilega missti vinnuna. Sama er að segja um þá sem missa starfsgetu eða fæðast fatlaðir, það er réttlætismál að fólk lifi af þeirri framfærslu sem ríkið ákvarðar. Ábyrgðin liggur hjá stjórnmálamönnum, þeirra er mátturinn.
ÖBÍ tekur undir kröfur samtaka launafólks um hækkun atvinnuleysisbóta, sem eru í dag 289.000 kr. fyrir skatt. Áhyggjur af framfærslu þeirra sem verða að reiða sig á atvinnuleysisbætur eru réttmætar og ætti að taka alvarlega.
Því miður fjölgar þeim íslendingum sem geta nú samsamað sig því að ómögulegt sé að lifa af 240.000 kr. Örorkulífeyrisþegar hafa ekkert val þeirra er fátæktin í boði ríkisstjórnarinnar sem skammtar framfærslu lítið yfir 220.000 kr. á mánuði og jafnvel undir 200 þúsundum.
Ég fagna því að þjóðin hafi vaknað til vitundar um að framfærsluupphæðir ríkisins sem ná ekki einu sinni lágmarkslaunum sé of lág. Að hætta sé á að fólk lendi í algjörum vítahring vanskila sem geti haft alvarlegar afleiðingar á heilsu og afkomu fólks til ófyrisjáanlegs tíma.
Þjóðin hefur vaknað, að undanskildum ráðamönnum okkar. Vonandi fara þeir að rumska, því við verðum að gera betur, af því við getum það!