Eftir breytinguna verður fast verð á hverja íbúð 47.000 kr. á mánuði auk þess sem hver fermetri íbúðar er verðlagður á 1.170 kr. Þá verður sú breyting frá og með 1. apríl að leigjendur í félagslegu leiguhúsnæði í Kópavogi eiga rétt á að sækja um sérstakan húsnæðisstuðning. Á heimasíðu bæjarins segir að þetta sé liður í því að samræma leiguverð og beina stuðningi bæjarins frekar til tekjulægri leigjenda.
Sjá frekar hér
Markmið breytinganna samkvæmt frétt bæjarins er að rekstur félagslega húsnæðiskerfisins, þjónusta við leigjendur og viðhald íbúða verði skilvirkara og marvissara.
Kópavogsbær mun hafa samband við alla leigjendur varðandi breytingar og uppfærslu á leigusamningum á næstu vikum. Jafnframt verða þeir leigjendur sem óska eftir því að flytja í minni íbúðir vegna áhrifa breytinga á leiguverði hafðir í forgang þegar kemur að flutningi milli íbúða.
Um Um 420 íbúðir eru í útleigu hjá Kópavogsbæ í félagslega húsnæðiskerfinu. Íbúðir hafa verið verðlagðar með mismunandi hætti eftir því hvenær leigusamningur var gerður. Með breytingunni er tryggt að leigjendur greiði sömu leigu fyrir sambærilegar eignir. Við útreikninga verður notast við birt flatarmál íbúða samkvæmt fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands.
Vegna tilkomu sérstaks húsnæðisstuðnings mun greiðslubyrði vegna húsaleigu hjá lægsta tekjuhópnum að jafnaði lækka. Greiðslubyrði leigutaka mun að jafnaði hækka um 6,8% en hækkunin kemur helst fram hjá þeim sem höfðu áður lága hlutfallslega greiðslubyrði og háar skattskyldar tekjur. Mjög lítil breyting mun eiga sér stað fyrir tekjuhópa sem hafa tekjur upp að 400.000 kr. á mánuði.
Sérstakur húsnæðisstuðningur er fjárstuðningur til greiðslu húsaleigu umfram húsnæðisbætur, að uppfylltum almennum skilyrðum skv. lögum um húsnæðisbætur nr. 75/2016 og skv. reglum Kópavogsbæjar um sérstakan húsnæðisstuðning. Sækja verður um sérstakan húsnæðisstuðning á www.husbot.is.