Yfirlýsingin er hér í heild sinni:
Landssamtökin Þroskahjálp, Landssamtökin Geðhjálp og Öryrkjabandalag Íslands hvetja komandi ríkisstjórn Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, til að setja í sáttmála sinn skýran vilja til breytinga og endurskoðunar á framfærslukerfi almannatrygginga.
Það er okkar vilji að allt ferli við endurskoðun kerfisins verði unnið í samráði við hagsmunasamtök fatlaðs fólks og að breytingar á kerfinu auki tækifæri til þátttöku í samfélaginu.
Fjölga þarf störfum og starfsúrvali til að mæta þörfum fólks sem hefur misjafna getu. Hið opinbera sýni gott fordæmi með því að skapa breytt úrval hlutastarfa þar sem viðeigandi aðlögun er viðhöfð og hvetji vinnumarkaðinn til samstarfs.
Markmiðið verði að skapa samfélag þar sem allir hafa tækifæri og enginn er skilinn eftir.
Undirrituð lýsa yfir miklum vilja til samstarfs og samráðs um þá vegferð.
Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður ÞroskahjálparHéðinn Unnsteinsson, formaður GeðhjálparÞuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins.