![Ingibjörg Sveinsdóttir, Ph.d. í klínískri sálfræði og sérfræðingur í velferðarráðuneytinu.](https://www.obi.is/wp-content/uploads/2019/01/2018-11-20-malthing-obi-er-gaett-ad-gedheilbrigdi-16.jpg)
Ingibjörg Sveinsdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu, fjallaðium geðheilbrigðismál, frá sjónarhóli kerfisins í erindi sínu á málþingi Öryrkjabandalags Íslands: Er gætt að geðheilbrigði? sem haldið var á Grand hóteli í Reykjavík í nóvember í fyrra.
Ingibjörg fór meðal annars yfir markmið geðheilbrigðisstefnu stjórnvalda. Þar segir að meginmarkmið stefnunnar sé:
Aukin vellíðan og betri geðheilsa landsmanna og virkari samfélagsþátttaka einstaklinga sem glíma við geðraskanir til skemmri eða lengri tíma óháð búsetu þeirra.
Undirmarkmið:
-Þjónusta við einstaklinga með geðraskanir sé samþætt og samfelld.
-Uppeldisskilyrði barna stuðli að vellíðan þeirra.
-Fólki verði ekki mismunað á grundvelli geðheilsu.
Erindi Ingibjargar á málþinginu er hér að neðan. Glærur Ingibjargar.