Viðbrögð Þuríðar Hörpu, formanns ÖBÍ við breytingartillögum ríkisstjórnarinnar á fjármálaáætlun 2020-2024
Á fundi fjárlaganefndar fyrir nokkrum dögum, mæltist ég til þess að hún beindi augum sínum annað en í átt að öryrkjum, í leit sinni að leiðum til sparnaðar í nýrri fjármálaáætlun. Sparnaður ríkisvaldsins mætti ekki bitna eina ferðina enn á málaflokki fatlaðs fólks. Miðað við það hvernig þessi ríkisstjórn hefur hagað málum sínum gagnvart fötluðu fólki gat ég ekki annað en gert ráð fyrir því versta. Það urðu mér því ekki tíðindi þegar í ljós kom að öryrkjar og fatlað fólk eiga að bera stærstan hluta af niðurskurðinum.
Fjármála- og efnahagsráðherra setur fram fjármálaáætlun sem sýnir 8 milljarða kr. niðurskurð miðað við fyrri áætlun til málaflokks fatlaðs fólks og öryrkja. Efndir á loforðum um leiðréttingar á kjörum til handa fötluðu fólki og öryrkjum, sem búið er að fresta frá því fyrir síðustu kosningar, verða nú engar. Því miður kom það ekki á óvart. Það eru mér engu að síður gríðarleg vonbrigði að ríkisstjórnin fari þessa leið. Hvernig getið þið gert þetta? Hér er jaðarsettasti og fátækasti samfélagshópurinn látinn taka á sig enn meiri skerðingar. Það er óásættanlegt að öryrkjar og fatlað fólk eigi enn eina ferðina að taka á sig þyngsta höggið. Enn og aftur er jaðarsettasti hópur samfélagsins settur í þá stöðu að vera fórnað fyrir aðra hagsmuni. Í alvöru talað, hve langt á þessi gengdarlausa óvild gagnvart þeim hópi sem ég tilheyri, fötluðu fólki, að ganga.
Öryrkjabandalagið hefur í mörg ár freistað þess að fá stjórnvöld til að leiðrétta kjör örorkulífeyrisþega. Í dag hafa allir hópar samfélagsins utan fatlaðs fólks, fengið leiðréttingu á sínum kjörum. Örorkulífeyrisþegar mega í dag búa við framfærslu sem engan veginn dugar. Ég spyr hvernig á að lifa af 212.000 kr. á Íslandi í dag? Hvernig geta stjórnvöld ætlast til þess að fatlað og veikt fólk nái endum saman á þessari upphæð? Hvernig er hægt að leggja meiri skerðingar á jaðarsettasta hóp samfélagsins? Hvað myndum við kalla slíkt framferði á skólalóðinni?
Viðbrögð og umfjöllun í fréttamiðlum:
- RÚV. Mikil vonbrigði að hætt sé við hækkun. Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ í viðtali við RÚV, 10. júní 2019, ruv.is
- VÍSIR. Ágúst Ólafur segir fjármálaáætlun byggða á óraunsærri bjartsýnisspá. Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fulltrúi flokksins í fjárlaganefnd Alþingis, 9. júní 2019 – visir.is
- RÚV. Björn Leví segir Bjarna bulla. Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata og nefndarmaður í fjárlaganefnd Alþingis, 8. júní 2019 – ruv.is
- MBL. „Hvers konar helvítis bull er þetta?“ Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, 8. júní 2019 – mbl.is
- RÚV. Segir breytingarnar á fjármálaáætlun ótrúlegar. Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fulltrúi flokksins í fjárlaganefnd Alþingis, 7. júní 2019 – ruv.is