Styrkir úr Námssjóði Sigríðar Jónsdóttur eru veittir öryrkjum. Þeir eru veittir til hagnýts náms, verklegs eða bóklegs, svo og til náms í hvers konar listgreinum. Einnig er heimilt að styrkja þá sem vilja sérhæfa sig til starfa í þágu fólks með þroskahömlun.
Opið er fyrir umsóknir haustúthlutunar til 16. september 2018. Sækja má um hér á vefnum.
Stefnt er að því að upplýsingar vegna styrkúthlutunar liggi fyrir eigi síðar en 2. október. Nánari upplýsingar um námssjóðinn.