![Bergþór Heimir Þórðarson, varaformaður málefnahóps ÖBÍ um kjaramál, ásamt Halldóru Mogensen, formanni velferðarnefndar Alþingis, en bæði sátu í pallborði að loknum erindum á málþinginu: Eru öryrkjar fólkið með breiðu bökin?](https://www.obi.is/wp-content/uploads/2019/03/2019-03-19-malthing-obi-eru-oryrkjar-folkid-med-breidu-bokin-0389.jpg)
Hafa tekjur öryrkja hækkað eins og tekjur annarra? Svona spyr Bergþór Heimir Þórðarson, varaformaður málefnahóps ÖBÍ um kjaramál, í erindi sínu á málþingi hópsins: Eru öryrkjar fólkið með breiðu bökin?
Bergþór fjallar um þróun lífeyris og tekna öryrkja í samanburði við þjóðfélagið í heild. Hann kemst að þeirri niðurstöðu að mikil kjaragliðnun hefur átt sér stað. Bilið á milli tekna öryrkja og annarra hefur breikkað um 65 prósent frá því rétt um aldamót og um á þriðja tug prósenta á síðasta rúmum áratug. Glærur Bergþórs má sjá hér, og upptöku af erindi hans hér að neðan.